Þjóðlegt skal það vera ...

TúkallÍ hádeginu ákvað ég að standa með þjóð minni og borða saltkjöt og baunir í matsalnum. Getur það verið þjóðlegra? Ég var búin að fussa og sveia yfir þessum matseðli dagsins (pasta sem “grænmetis”réttur). Þegar samstarfsfólk mitt, hið sama kannski og úðaði í sig reyktu ýsunni um daginn, kom úr matsalnum með gleðiglampa í augum og strjúkandi vömbina ákvað ég að hætta þessu mótmælasvelti og sá ekki eftir því.

Lenti í spjalli að vanda eftir matinn og heyrðist á mönnum að þjóðfélagið myndi skjótt snúast við. Nú létu menn sér ekki nægja að þiggja smávinninga í peningakössum Háspennu, heldur tækju þeir bara kassann. Nokkrir ungir menn gerðu sér víst lítið fyrir í gær og reyndu að ræna einn spilakassavinningshafa þegar hann kom út af sódómugómorrustaðnum þar sem hann hafði grætt eitthvað smá. Skelltu poka yfir hausinn á honum og bjuggu sig undir að ræna hann. Vinningshafinn reif pokann af hausnum og kýldi gaurana, enda hraustur Ísfirðingur.

Svo voru einhverjir sem pældu í því hvort sáttmálar fyrri alda væru ekki enn í gildi og við gætum þá t.d. gert kröfu í olíulindir Norðmanna ... Lengi lifi konungurinn!

Við heimkomu setti ég sem snöggvast á Sky News. Aðalfréttin var ömurlegt attitjút Íslendinga, öllu heldur ráðamanna. Ég er mjög hrifin af Bretum og skil alveg að þeir séu grútspældir út í suma auðmennina okkar og viðbrögð ráðamanna okkar. Er ekki þannig í heiminum núna að hver hugsar um sig, líka Evrópusambandsþjóðirnar? Spennandi að vita hvernig þetta fer. Ábyggilega kalt stríð eitthvað áfram.

Ég ætlaði eldsnemma í rúmið en nýtt og spennandi verkefni bættist óvænt við ... og hef setið við tölvuna og unnið í allt kvöld, horft m.a. á Prison Break með öðru, en nú er það bað og síðan bólið. Eins og ég er með girnilegar bækur til að lesa verð ég að geyma þær til helgarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Tjallarnir eru tjúllaðir.  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.10.2008 kl. 01:12

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Njóttu dagsins og í dag er örgla steik í mötuneytis.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.10.2008 kl. 08:12

3 identicon

hæ hæ ekki get ég skilið það því miður að auðmenn þeir er hafa haft þjóðina af leiksoppum muni vera látnir bera ábyrgð, ekki hefur Breska né sú 'Islenska tekið ákvörðun um að frysta eigur þessara manna, hvort heldur bankareikninga þeirra  né eigur veraldslegar. Held því miður að Íslenska Þjóðin sé núþegar búin að missa sjálfstæði sitt nú þegar, og við verðum innlimuð í annað ríki, vonum að verði ekki Rússland. Þá verður hvorki Kjötsupa né ´kjöt í karrý sem er nú æðislega gott. Ertu búin að prufa grautin úr bankabygginu? með eplum eða perum.

getur þú ráðið daum er mig dreymdi í nótt. Mig dreymdi 3 hvíta Savani sem skiptust á að velta á undan sér gulleggi, þeir fóru afar varlega með eggið.

Bestu kv siggi

siggi (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 08:57

4 identicon

Ja, ég náði nú samstundis að toppa þetta með "Eyvindi með hor", hm.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 12:20

5 identicon

Rússarnir eru flottir!

Brúskí karamba!!!!

Einar (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 12:28

6 Smámynd: Einar Örn Einarsson

MMMM saltkjöt og baunir

Einar Örn Einarsson, 10.10.2008 kl. 18:55

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Við biðjum innilega vel að heilsa og óskum ykkur innilega góða ljúfa helgi og knús knús og bestu kveðjur til ykkar

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.10.2008 kl. 21:54

8 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Eigðu góða helgi ljúfust

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 10.10.2008 kl. 23:35

9 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Góða helgi, ég ætla að koma við hjá Elfu í bakaleiðinni frá Nínu.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 11.10.2008 kl. 20:45

10 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 11.10.2008 kl. 22:07

11 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Kjötsúpa, kjöt í karrí, fiskibollur með bleikri, ýsa með hömsum, soðið slátur með rófum, reykt ýsa með feiti (var það ekki annars kallað "feiti"?) - allt hollt og gott og er einhverra hluta dregið mikið upp sem kreppumatur....!!!! Margir virðast uplifa fortíðina sem allsherjar hallæriskreppu. Við nostalgíufíklarnir vitum nú betur.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.10.2008 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 250
  • Sl. sólarhring: 308
  • Sl. viku: 1792
  • Frá upphafi: 1460725

Annað

  • Innlit í dag: 228
  • Innlit sl. viku: 1452
  • Gestir í dag: 219
  • IP-tölur í dag: 219

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband