16.10.2008 | 08:16
Morgunn á sjálfstýringu og splunkunýtt efni frá völvu Vikunnar
Tíðindalítil og ljúf ferð með Ástu í morgun, við, eða bíllinn, á sjálfstýringu alla leið, enda vér bílstjórarnir ansi syfjaðir ... Latte-ið bjargaði þó miklu og það var bara þrælgaman hjá okkur. Er komin heilu og höldnu í Hálsaskóg og hlusta nú á Bylgjuna þar sem útvarpsfólkið fjallar um VIKUNA, jibbí! Mikil hvatning bloggverja og áhugi fjölmiðla varð til þess að ákveðið var að tala við völvuna um kreppuna og einhverja atburði í tengslum við hana til áramóta. Veit ekki hvað hann Heimir var að væla um að þetta væru "bara spádómar" ... að hann langaði t.d. að vita hvað hefði EKKI komið fram í spá hennar um síðustu áramót! Djösins væl alltaf hreint. hehehehe Eina sem ég man eftir í augnablikinu er það að Valur og ÍA myndu keppa um efsta sætið í Landsbankadeildinni! Sjúr! Svo hafði hún reyndar ekki "tilfinningu" fyrir því að Ólafur Ragnar sæti næstu fjögur árin á Bessastöðum. Fannst eins og hann gæfi ekki kost á sér. Það virðist þó sem mikla meira hafi komið fram en hitt og enn eru stórviðburðir í nánd!!!
Völvan, í blaðinu kom út í dag, segir m.a. að samskiptin við Breta verði áfram á stirðu nótunum ... að einkaaðili komi að einum nýja ríkisbankanna, hún sér Glitni og sparisjóð í ágætri sambúð og margt, margt fleira en viðtalið við hana var tekið 9. okt. sl.
Svo er mjög sterkt viðtal við mikla hetju, unga konu sem segir frá reynslu sinni af því að alast upp í samfélagi Votta Jehóva og vita t.d. ekki hvenær hún átti afmæli fyrr en hún var 15 ára, hvernig jólin voru hjá fjölskyldunni og annað. Hún var misnotuð af föður í sjö ár, sem sat lengi í fangelsi fyrir það (hæstiréttur mildaði þó dóm héraðsdóms næstum um helming), móðir hennar var rekin úr trúfélaginu (hún var reyndar farin áður en þeir vildu samt reka hana ...) en pabbinn velkominn.
Jamm, farin að vinna, verið stillt, elskurnar, hafið það gott í dag og munið að það er ekki hægt að knúsa mig rafrænt í gegnum þetta nýja dæmi mbl.is, ég stillti á "fjandskap" í stjórnborðinu, annað hvort skal knúsað í eigin persónu (einungis karlkynsbloggarar, takk) eða sleppa því ... múahaha
P.s. Myndin tengist á engan hátt innihaldi bloggfærslunnar.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 213
- Sl. sólarhring: 314
- Sl. viku: 905
- Frá upphafi: 1505912
Annað
- Innlit í dag: 172
- Innlit sl. viku: 738
- Gestir í dag: 165
- IP-tölur í dag: 159
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Gurrí það þýðir ekkert að vera blogg-knús-köld. Hefur bara gott af einu internet knúsi ;-)
Vera Knútsdóttir, 16.10.2008 kl. 10:25
einu
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 16.10.2008 kl. 10:42
Já og bara fullt af þeim líka ;-)
Vera Knútsdóttir, 16.10.2008 kl. 10:47
EINU??? ... ég gat talið knúsin mín í tugum áður en ég skellti í lás í gærkvöldi og er enn aum! Þarf að stækka pósthólfið mitt, sem er líklega aðalvandamálið, ekki knúskuldi ... ekki svo. Hef reyndar alltaf brjálast ef ég fæ krúttleg keðjubréf með sorgmæddum hvolpum eða englum, eða fyndnar myndir í tölvupósti af fólki að prumpa, brandara og svona ... kannski er þessi uppreisn angi af því ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 16.10.2008 kl. 10:47
Þá ætti þetta samansafn af grínmyndum sem ég er að safna að gleðja þig ;-) http://www.facebook.com/album.php?aid=906&l=462ed&id=336200083
Vera Knútsdóttir, 16.10.2008 kl. 11:18
Og ég sem hélt að Völvan væri múmía sem væri tekin út frystigeymslu einu sinni á ári, milli jóla og nýárs. Verður þá ekkert af áramótaspánni, hm?
Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 11:19
Guðmundur, jú, auðvitað verður áramótaspá ... við afþíddum kerlu bara rétt til að fá þetta ... hún er komin í frost aftur! Hmmmm!
Takk, Vera. Þú ert æði!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 16.10.2008 kl. 11:29
Bölvaðir trúarnöttarar.
Ég fer og kaupi Vikuna.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.10.2008 kl. 12:27
Þessi vika er greinilega lestursins virði...
æj ég sendi þér óvart svona netknús í gær ÁÐUR en ég las færsluna um að slíkt væri afþakkað.. Verð á Austurvelli klukkan 17 og tek við flengingu
Ragnheiður , 16.10.2008 kl. 13:07
Mér fannst ósköp ljúft að fá knúsin ... eða þangað til kerfið bilaði og fór að senda mér 30-40 knús frá elskunni henni Gleymmérei. Þess vegna lokaði ég fyrir í bili. Leyfi kerfinu að komast í lag fyrst, nema Gleymmérei hafi verið að stríða mér .... eða elski mig ofurheitt ... eða eitthvað!
Dettur ekki í hug að flengja þig fyrir yndislegheitin!!!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 16.10.2008 kl. 13:39
Yndislegt Knús á ykkur öll ....... Munið að knúsið kostar ekkert
Kv frá mér, til ykkar........
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.10.2008 kl. 13:47
Spennandi vika verð að ná í hana eigðu góðan dag Gurrý mín
Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 16.10.2008 kl. 13:55
Verð greinilega að fá mér vikuna að þessu sinni. Knús knús. Hehe.
Sigríður Þórarinsdóttir, 16.10.2008 kl. 16:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.