Færsluflokkur: Bloggar

Húsfreyjugleði, strætósögur og kökuuppskrift

BjallanÓreglan er að verða algjör á þessu heimili. Ég vaknaði um áttaleytið í morgun (á sunnudegi!!!). Reyndar eftir níu tíma svefn. Dormaði að sjálfsögðu áfram með kött fast upp við bakið á mér. Krummi (miðköttur) tók upp á þeim svefnvenjum fyrir tæpu ári, hann er 12 og hálfs. Ég vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera, í myrkri og í raun dagurinn ekki hafinn - þá dormar maður.

 

Þegar ég tók strætó heim á sunnudaginn fyrir viku (aldrei aftur klukkan 17.30 Akureyrarferðin) var vagninn troðfullur. Ég settist næstum aftast hjá öðrum villingi, pólskum manni sem býr á Hvammstanga. Hann fékk vinnu þar sem kokkur hjá Sjávarborg, geggjuðum matsölustað við sjóinn. Ég sagði þetta skemmtilega tilviljun, þar sem ég þekki fjölda fólks í 530 ... og ekkert smávegis frábært fólk, hann væri sannarlega heppinn með stað. Ég fann að ég þurfti ekkert að segja honum það. Nú bíður hann spenntur eftir almennilegum vetri og ég lofaði honum að hann fengi alveg örugglega meira en hálfs sentímetra háa snjóskafla eins og algengt er á Akranesi. Þannig að ég mun plata systur mína enn einu sinni að koma við á Hvammstanga (þarf ekki að pína hana) og snæða eins og eina góða máltíð hjá Davíd von Pólland.

 

Mynd 1: Ég svipaðist um eftir bjöllu, þar sem ég sat í fremsta sæti fyrir aftan afturdyrnar. Kannski yrði stráksi að standa upp til að ýta þegar við nálguðumst Garðabraut. Það var ekki fyrr en maðurinn sem sat í sætinu fyrir framan mig, hinum megin við ganginn hringdi bjöllunni við hnéð á mér að ég sá að ég sat á besta stað. Heklaði trefillinn sem grillir í er að sjálfsögðu eftir mig, allt of langur nema í frosti til að vefja fjórum sinnum um hálsinn. Hann er úr plötulopa og mjög hlýr.

 

JarðarberjatertaSmávegis bras var með greiðslu í strætó þegar ég fór í bæinn á föstudaginn, þannig séð, ég sagði bílstjóranum að drengurinn greiddi hálft gjald en ég fullt. Það hefði orðið sorglegur misskilningur í fyrrasumar sem nánast endaði með ofbeldi þegar ungi pólski bílstjórinn lét mig borga hálft gjald, hann sá ekki muninn á tæplega 64 ára konu og 67 ára með elliafslátt. Elsku bílstjórinn, þessi í fyrradag, er frá Úkraínu og bara í afleysingum, sagði þetta hræðilegt, svona gerðu bílstjórar ekki. Hann heitir Slava og hefur ekið mikið um bæði Noreg og Svíþjóð á trukkum. Hann sagði frábært að keyra hér, miklu minni vetur hér á suðvesturhorninu en hann ætti að venjast ... en eitt nýtt hefði bæst við hér - eða rokið. Oft þyrfti hann að ríghalda í stýrið (Hafnarfjall, Kjalarnes) til að haldast á veginum. Svo ók strætó út á veg 51 áleiðis að göngunum og við hættum að spjalla. Synd að hann verði bara í mánuð, eini ungi maðurinn á leið 57 sem hefur vit á aldri kvenna. Nema þessi frá Litháen, hann virðir okkur ætíð vandlega fyrir sér og stimplar inn rétt fargjald. Annaðhvort aldursglöggur eða farinn að þekkja okkur stráksa. Ef ekki væri fyrir frábæru bílstjórana myndi ég heimta nýja Akraborg. Ég sakna hennar svo mikið.

 

Mynd 2 tók ég á hárgreiðslustofunni þegar ég fór í klippingu um daginn. Húsfreyjan (jólablað) lá frammi og ég laumaðist til að taka mynd af einni uppáhaldsuppskriftinni (sem ég á nú samt einhvers staðar). Anna Júlía (hármeistari minn) sagði blaðið fullt af gömlu góðu uppskriftunum svo sennilega leita ég blaðið uppi og kaupi. Mjög sniðug hugmynd að mjög svo eigulegu blaði.

 

Gestirnir eru á leiðinni, þá þarf að hætta bloggeríi, klæða sig eftir sturtuna og finna eitthvað gott til að bjóða þeim. Hefði átt að fara á fætur þegar ég vaknaði, þá hefði ég getað bakað, ég er idjót. Ég á reyndar alls konar sælgæti sem ég keypti á jólamarkaðnum í gær, get alveg eins boðið upp á það í stað þess að lauma því með í jólapakka sem ég ætlaði að gera - það er hvort eð er allt morandi í sælgæti yfir jólin.     


Karlhylli á Kex hostel og djörf jólakúla í safnið

Allt karlkynsGærkvöldið fór í djamm í tilefni af fertugsafmæli Rásar 2 þar sem ég vann einu sinni fyrir bráðum fjörutíu árum. Ég var búin að lofa miklu slúðri og kjaftasögum en neyðist til að svíkja það, allir voru svo rólegir en um leið glaðir og enginn spennandi hneyksli. Upp á síðkastið, eða reyndar síðustu árin, hef ég orðið vör við aukna aðsókn alls karlkyns í mig (sjá mynd nr. 1 þar sem sjást fjórir af ótal mörgum aðdáendum mínum) og glaðst nokkuð yfir því án þess þó að veiða nokkuð að ráði út á karlhyllina - sem er furðulegt. Fyrir gærkvöldið fannst mér Siggi Gunnars einhver sá allra dásamlegasti og yndislegasti maður sem ég hafði aldrei kynnst og þar skjátlaðist mér ekki þegar ég hitti hann og kynntist í gærkvöldi. Ég er ekki alveg týpan til að vaða í ókunnugt fólk og heilsa, jafnvel þótt ég hafi verið búin að drekka hálfan bjór. Það sem bjargaði öllu var að hann hafði sest við hliðina á treflinum mínum og úlpunni á staðnum þar sem ég hafði verið fyrst og það var komið  fararsnið á mig eftir tveggja tíma skemmtun. Tónlistaratriði: Una Torfa, Mugison ... mjög flott. Ég brosti til Sigga og hann rétti mér útifötin mín og sagði um leið: „Gaman að sjá þig, ég hlustaði oft á þig í gamla daga (á Aðalstöðinni)“ og svo komu einhver falleg orð. Ég er orðin svo meyr núna á seinni árum að ég nánast klökknaði - settist smástund hjá honum og spjallaði. Nú veit ég að ég er jafngömlul bæði Madonnu og mömmu hans Sigga. Siggi er eiginlega miklu meira æði en ég hélt, svo mannþekking mín í gegnum fjölmiðla er bara nokkuð góð. Eins með Pál Óskar sem allir halda að sé svo næs, við unnum saman um skeið og hann var stundum dyravörður í afmælinu mínu ... en hann er akkúrat enn meira næs en fólk heldur.

 

Myndin sýnir þessa tvo og aðra tvo ... svo ekki verður um villst - ég nýt heilmikillar karlhylli.

Svipmyndir

Þegar ég mætti um sexleytið (ef mér er boðið kl. sex, mæti ég kl. sex) settist ég við hliðina á Þorgeiri Ástvalds - þarna sátu þau hjónin og voru einu andlitin sem ég kannaðist við. Ég var svo sem búin að kenna nemendum mínum að Íslendingar mættu sumir jafnvel nokkrum klukkutímum of seint í boð, en verð alltaf jafnhissa yfir óstundvísi landans. Á móti mér sat ungur og skemmtilegur maður (Úlfur Kolka). Hann var með þætti um rapp ... Saga rappsins heita þeir og eru komnir á Storytel of oll pleisis. Á þá ætla ég svo sannarlega að hlusta fljótlega og hlakka mikið til. Svona er Rás 2, svo ótrúlega mikil fjölbreytni ríkjandi. Næst tekur Úlfur rapphljómsveitir fyrir, eina í hverjum þætti og ég mun alls ekki missa af þeim. Það opnaðist eitthvað hjá mér þegar ég keypti áskrift að MTV árið 1995 og ný og æðislega flott tónlist fossaði yfir líf mitt. Ég hafði verið stöðnuð í Pink Floyd, Jethro Tull, Led Zeppelin, Mozart, Bach og slíkri dýrð en hafði svo sannarlega pláss fyrir meira og vona að svo verði um aldur og ævi. En sama hversu Siggi er dásamlegur held ég að honum takist aldrei í lífinu að fá mig til að hlusta á sálartónlist, soul, af nokkurri gleði - en hver veit? Hann sagðist hrifinn af sálartónlist og þungarokki! Svo ef einhver lína er þar á milli gæti soul-ið náð til mín. Hjálp!

 

Hverjir voru hvar-slúður:

Þarna voru m.a.: Lilja Dögg ráðherra, Óli Palli, Gunni bróðir hans, Kolbrún Halldórs, Friðrik Ómar (hann er svooo fyndinn), Þorsteinn J., Nanna og Fúsi tæknimaður, Goggi tæknimaður (sem sagði svo hræðilega setningu að hún verður ekki endursögð nema í mjög myrku bakherbergi sem búið er að hljóðeinangra og leita að hljóðnemum í og ég búin að drekka þrefaldan vodka í beilís ... Mætt var Arnþrúður frænka Karlsdóttir, Sigurður Pétur (Landið og miðin), Skúli Helga, Helga Vala, Kristján Sigurjónsson, Bogi Ágústsson, Hulda Geirs, Siggi Hlö., Andrea sjálf, Felix Bergsson og svona 100 í viðbót. Svo hefur kannski bæst við eftir að ég fór. Það var svooooo gaman að hitta gamla liðið og líka það nýja sem ég kynntist ögn. Ég dreif mig nú samt heim til Hildu þarna um áttaleytið og horfði á spennumynd frá 1999, Double Jeopardy. Hlýtt í hjarta eftir góða kvöldstund.

Bílstýran á Hreyfli sem ók mér í Kópavoginn þekkir einn af allra fyrstu fyrrverandi eiginmönnum mínum og lofaði að skila innilegri kveðju til hans og konunnar hans, þar sem hún er að fara til Spánar (á afmælisdegi Jóns Gnarr) og mun hitta þau í sólinni og hitasvækjunni ...  

 

David HasselhofVið stráksi tókum strætó heim kl. 12.30 í dag frá Mjódd en þegar ég var í appinu að leita að ferð heim var ég spurð hvort ég væri að fara frá ... og svo kom nákvæmt heimilisfang Hildu systur ... og satans-appinu fannst alveg upplagt að ég færi fótgangandi úr Kópavoginum í Mjódd, ég yrði bara 20-30 mín að skokka þetta. Datt ekki í hug að segja Hildu frá því, kannski myndi henni finnast það voða sniðugt líka og hætta við að skutla mér! Öpp eru misjafnlega góðhjörtuð, sum hreinlega ofmeta hrifningu Íslendinga á gönguferðum í kulda og trekki. Sem minnir mig á, ég er komin upp í tæplega 5.000 skref í dag. Veit ekki hvort það er mikið eða lítið, en mér líður samt eins og ég hafi afrekað heilan helling. Þetta er eini kosturinn við að innanbæjarstrætó tekur sér hvíld um helgar (og á kvöldin). Bíóhöllin tapar sennilega mest á þessu en kannski munar ekkert um okkur stráksa, það eiga allir aðrir Skagamenn bíl. 

 

Mjög skemmtilegur jólamarkaður er á Akratorgi, inni í gamla Landsbankahúsinu, bæði á fyrstu og annarri hæð. Hann verður þessa helgi og þá næstu. Ég missti mig gjörsamlega, keypti djarfa jólakúlu með mynd af David Hasselhoff. Sjá mynd. Hún fer í hópinn með flottustu jólakúlunum mínum. Axel í hjólabúðinni seldi mér skóreimar og skóáburð, Smári kokkur og fjölskylda var með konfekt, súkkulaði, varasalva, sápur, kerti og aðrar dásemdir, bókasafnið með bunka af bókum "gefins" en það voru reyndar frjáls framlög svo ég tók reyfara sem ég hafði þráð að lesa og borgaði, ágóðinn rennur til Mæðrastyrksnefndar. Þarna var Gulli (Sigfússon frá Borgarnesi) að selja LP-plötur - það var meira að segja ein með Skálmöld! Ég veit ekki hvort ég hafi pláss fyrir plötuspilara heima en vá, hvað væri gaman að eiga alvörugræjur og spila plötur. Svo voru jóla- og aðventuskreytingar í boði Skagamannsins knáa (ég og nöfn) sem á eiginmann á Dalvík (þar sem þeir búa og reka loppumarkað í bílskúrnum) og tilheyrir skemmtilegustu fjölskyldunni þaðan. Held að ein systirin (mágkona hans) sé með Gísla, Eirík og Helga-kaffihús, önnur býr á Akureyri, er með Mynju (verslun), ég fylgi henni á Instagram (Svana Símonar) og hún er æði. Held að maðurinn hans (flugþjónn) hafi einhvern tíma uppfært mig á Saga Class af því að ég var með svo mikinn dóna fyrir framan mig sem hallaði sætinu alveg niður í fangið á mér - og svo náði ég ekki netsambandi þótt ég hefði borgað fyrir það. Icelandair græddi reyndar á því ... ég hef splæst á mig á S-Class tvisvar síðan en held samt að ég myndi aldrei í lífinu tíma að fara þannig til Seattle, átta tíma flug, kostar nokkur hundruð þúsund fyrir einn, held ég. Þarna voru vörur frá elsku góðu Nínu minni, söngkonu og "fiskikerlingu" (sem söng um íspinna í laun fyrir dugnað í fiskvinnslu) og keilusnillingi, sem passaði Einar lítinn fyrir mig hér á Akranesi í denn og ég keypti ansi hreint jólalega rabarbarasultu af henni sem hún hafði sett kanil og negul út í. Vörur frá Silla kokki voru víst þarna en ég gleymdi að fara aftur og kíkja á fyrstu hæðinni, skilst að gæsakæfan sé vanabindandi. Takk, elsku Akraneskaupstaður, fyrir að standa fyrir þessum skemmtilega viðburði. Mikil stemning í gangi. Kannski förum við aftur á morgun, og mögulega um næstu helgi líka. Annars held ég að það verði gestkvæmt hjá mér á morgun en spurning um að draga gestina niður í bæ þegar ég verð búin að þræla þeim út. Það þarf að hengja upp myndir og kíkja á eina kommóðuskúffu. Fínt að fá hjálp við það fyrir jólin. Og ... ég er ekki byrjuð að skreyta!     


Besta og huggulegasta fólkið

401431424_10230757494070931_3207022623968770405_nÁrgangurinn okkar, sá besti, hittist um síðustu helgi í stúkuhúsinu sem er svo gamalt að það er komið á byggðasafnið. Þetta var vitanlega ansi hreint góð skemmtun, fólkið hafði ekkert breyst, konurnar stórhuggulegar og karlarnir glæsilegir. Ég upplýsti í stuttri ræðu hver ástæðan fyrir því er. Og af hverju þau okkar sem eru sléttust í framan sofa á grófum múrsteini til að reyna að búa til á sig hrukkur til að einhver trúi því að þau séu komin yfir fimmtugt. Það virkaði ekki en fjölgaði sjúkraþjálfurum umtalsvert á Akranesi. Við endurtókum leikinn, við Guðbjörn, og létum taka mynd af okkur saman. Sjá mynd. Myndin í skólaferðalaginu þegar við vorum 12 ára, sýndi gífurlega yfirburði mína þegar kom að sentímetrum. Ekki grunaði mig þá að ég væri hætt að stækka og yrði ekki höfðinu hærri en hann svo miklu lengur. Sjá mynd. Við spjölluðum saman um hríð og í spjallinu kom í ljós að hann afði verið fótboltamaður, um tíma atvinnumaður. Og ég vissi það ekki. Hafði horft á Liverpool gegn Manchester City fyrr um daginn ... en við vorum ósammála um tvennt - að Evrópukeppnin í fótbolta hefði verið 2016 (ég sagði það) og að við hefðum sigrað England í þeirri keppni sem G sagði að hefði verið 2018, HM (sem var rétt). Svona er nú hægt að tala um skemmtilega hluti á árgangsmótum. Enginn var drukkinn, þeir sem drukku voru mjög penir og Carlsberg-jólabjórinn sem Kamilla gaf mér í kveðjugjöf kom með mér heim aftur því einn bekkjarbróðirinn splæsti í rauðvín og hvítvín á liðið. Ég fór snemma heim því ég átti far í bæinn strax um kvöldið og síðan daginn eftir var það upplestur í Hörpu ... upp úr bestu bók jólabókaflóðsins ... Þá breyttist allt

Nú er það partí í kvöld, gamall vinnustaður heldur upp á stórafmæli og það verður svo gaman að hitta fólkið. Strætó fer eftir hálftíma eða svo, svo best að drífa sig. Kjaftasögublogg á morgun ef gerist eitthvað stórfenglega hneykslanlegt. 


Nóa-konfektslóð og Skálmaldartengsl

Næstum öllÞær hvimleiðu og kolröngu kjaftasögur fóru í gang að ég hefði gengið yfir mig í Glasgow (10 þúsund skrefa-hryllingurinn, munið) og væri enn að ganga saman en allt gengi nú samt vel. Jú, allt gengur vel, það er hið eina rétta af þessu. Síðustu fjórar vikurnar hef ég til dæmis verið hoppandi og skoppandi sem leiðbeinandi og kynnt íslensku fyrir fólki af níu þjóðernum. Fólkið var hvert öðru dásamlegra og heilmikil tilhlökkun að mæta í vinnuna á morgnana. Tungumálin sem það talaði voru ansi mörg; þýska, franska, norska, arabíska, spænska, litháíska, lettneska, sómalska, ítalska, rúmenska, kínverska, enska, úkraínska, pólska, rússneska ... ég er ábyggilega að gleyma einhverju. Þvílíkur fjársjóður að fá þetta fólk til landsins.

 

Mynd 1 sýnir hluta hópsins í bókabúðinni síðasta daginn. Ásta sést í baksýn bæta við nýjum jólabókum ... ég elska þennan árstíma. Eins og vanalega bætir myndavélin á mig fimmtán kílóum.  

 

Fallegt sólarlag 30.11 23Strætó númer 2 kom rétt fyrir átta á morgnana norðanmegin á Garðabrautinni og ók öfugan hring, eða niður í bæ og svo þaðan upp í sveit (Bónushús) þar sem vinnan mín er. Held að leið 2 fari fjóra eða fimm hringi á dag, til að létta á leið 1 og svo er líka frístundastrætó sem ég kann ekkert á. Ég hef verið rengd nokkrum sinnum varðandi leið 2, það væri enginn strætó númer 2 á Akranesi. „Kíktu bara á akranes.is,“ sagði ég síðast nú í hádeginu, stödd í strætó 1 á leið í klipp og lit. „Ég er ekki með tölvu og kann ekki á tölvu,“ sagði konan enn vantrúuð. Sonur hennar er hirðrafvirkinn minn og ég bið hann um að sýna henni þetta. Annars eru nýju rafmagnsvagnarnir ansi fínir en sniðnir að börnum, ekki bara leiðaáætlunin. Ef ég stelst í sætin merkt eldri borgurum með staf hef ég pláss fyrir fæturna, annars ekki. Ég myndi að sjálfsögðu þjóta upp úr eb-sætinu ef einhver eb kæmi inn í vagninn. Sætin (stærðin) eru miðuð við barnsrassa, og eiginlega of þröngt fyrir tvo fullorðna að sitja hlið við hlið þótt grannir væru. Held að innanbæjarstrætó sé aðallega hugsaður til að spara skutl á börnum, því leið 2 gengur t.d. ekki á meðan frí eru í skólum. Eins gott að ekkert slíkt var í nóvember. Reyndar ... flesta morgna skutlaði elskan hún Svitlana mér í skólann. Þá var ég búin að hella upp á í vinnunni, gera kennslustofuna klára, hlusta á músík og fullt áður en hitt starfsfólkið mætti. Langfyrst. En langseinust ef ég tók strætó, þá kom ég 8.15 sem er samt korteri fyrir byrj.

 

Mynd 2: Himinninn var ansi smart í dag, eftir lit og klipp, þar sem ég stóð þarna og tók myndina var kallað í mig. Hjördís (mömmur.is) spurði hvort okkur vantaði far, stráksi hitti mig þarna eftir skóla. Ekki í fyrsta sinn sem gott fólk býður okkur far. Stráksi var þó heldur dramatískur þegar hann sagði: „Hjördís, þarna bjargaðir þú lífi okkar.“ Svo minnti hann okkur á áðan þegar hann sagði í gríni að hann vildi frekar Hjördísi sem fósturmömmu af því að hún byggi til svo flottar kökur. „Það var sko grín,“ sagði hann en efinn skein úr augum hans. Ég þarf að baka oftar.    

 

Hjartans yndin hjá Símenntun Vesturlands, Hekla og Steinar, gerðu allt, bókstaflega allt til að auðvelda mér tilveruna í kennslunni. Ég spurði Steinar einn morguninn eftir að hafa fengið tölvuaðstoð frá honum: „Segðu mér, ertu með eðlilega tölvukunnáttu eða hefurðu menntað þig sérstaklega í tölvum?“

„Uuu, bara ósköp venjulega,“ svaraði hann og þá vissi ég stöðu mína þar.

Nokkrum morgnum seinna hljóp ég inn á skrifstofu til hans og montaði mig af því að hafa getað allt sjálf ... hann nefnilega kenndi mér um leið og hann stillti allt rétt. Ef einhver hafði notað kerfið á eftir mér deginum áður, þurfti að endurstilla og það var mikið sjokk (fyrir snilling á öðrum sviðum, eins og mig). Núna get ég eiginlega næstum því titlað mig tölvunarfræð - ekki alveg -ing, það er lögverndað. Ég keypti tvo kílókassa af Nóakonfekti á fimmtudaginn fyrir viku, annan fengu hjálparhellurnar mínar hjá Símenntun á föstudeginum og hinn fór í að gefa nemendunum smakk af þessari dásemd síðasta daginn, eða á mánudaginn síðasta. Þá fengum við inni í bókasafninu á Akranesi. Móttökurnar voru svo góðar þar, gott kaffi og önnur skemmtilegheit. Mitt fólk dáðist að jólatrénu sem Dúlluhópurinn heklaði um árið, ég sýndi þeim líka Akrafjallið, heklað úr dúllum (ég gerði tvær) sem við gerðum í tilefni 150 ára afmælis safnsins. Undir lokin horfði ég á grannt starfsfólkið og svo á mig, síðan aftur á starfsfólkið og skildi um það bil 900 grömm af Nóakonfekti eftir handa því, aukakílóin fara nokkuð jafnt á þau en engin á mig sem er ansi gott. Held að þetta heiti að skilja slóðina eftir sig, konfektslóðina.

 

AlexVið kíktum næst út í bókabúð við hliðina og fólkið mitt átti varla orð yfir jólabókahefðina hjá þessari litlu þjóð. Næst heimsóttum við Omnis, frábæra raftækjabúð sem hefur nokkrum sinnum komið í veg fyrir að ég noti góðvild Davíðs frænda of mikið ... (t.d. geturðu hjálpað mér að færa gögnin úr gamla símanum?) Svo lá leiðin út í Flamingo, sýrlenska matsölustaðinn, stutt stopp þar og við enduðum hjá Hans og Grétu (flottri fatabúð) og Model (geggjuð gjafavörubúð, blóm og raftæki). Alltaf gott að vita hvar hlutirnir fást.

 

Á Ísafirði voru eitt sinn erlendir íslenskunemar dregnir á barinn og látnir panta sér á íslensku, ef það gengi þyrftu þeir ekki að borga. Ég nýtti þessa afbragðshugmynd nema við fórum í ísdeildina í Sbarro, og ég var búin að æfa þau. Það mátti líka segja: Nei, ekki svona, eða já, takk ... og allir stóðust prófið. Móttökurnar hjá Sbarro voru æði, tveir sem afgreiddu og þeim fannst þetta bara gaman. „Eru þau á fyrsta árinu?“ spurði Alla sem vinnur þarna. „Neibbs, voru að klára fyrsta mánuðinn!“ svaraði ég. Alla kallaði til þeirra: „Mikið eruð þið dugleg!“ og meinti það. Það gladdi okkur mjög, mér fannst það líka. 

 

Mynd 3: Litli fallegi nágranni minn, Alexander, kíkti í heimsókn fyrir nokkrum dögum. Stóri bróðir hans gisti hjá mér nóttina þegar Alex kom í heiminn. Sá stutti var yfirkominn af öllu því nýja sem hann sá í himnaríki en svo fór hann að brosa á fullu. Kettirnir urðu ofsaglaðir að hitta stórabróður sem tekur alltaf þegar hann kemur í heimsókn, smávegis mat úr dallinum þeirra og færir þeim, hvar sem þeir liggja í slökun. Þeir kunna að meta það - og þeir elska börn.

 

Hluti af íslenskukennslunni er að tala um samfélagið hér og að sýna þeim nytsamlegar feisbúkksíður, benda á antíkskúrinn, Búkollu, leigusíður og slíkt, en um daginn vorum við frekar háfleyg og lífslíkur Íslendinga bárust í tal. Ég komst að því í spjallinu að lífslíkur úkraínskra karlmanna eru að meðaltali 65 ár! Sá sem sagði mér það á örfá ár í að ná því sjálfur svo ég harðbannaði honum að snúa aftur til Úkraínu. Hann glotti nú bara en kommon, fólk er bara rétt síðmiðaldra 65 ára (tala af reynslu).

 

Einhverjar flensur hrjáðu okkur eins og aðra landsmenn, ég dældi í mig flensulyfi úr Ameríkunni fyrstu vikuna og líka Pepto Bismol þegar maginn var með stæla einn morguninn í síðustu viku. Fékk PB og flensulyf með elsku Anne þegar hún heimsótti mig í sumar og það kom sér aldeilis vel. En ekki eiga allir svona lagað svo einn daginn voru bara fimm eða sex nemendur mættir, allt frekar miklir töffarar svo ég skellti á tónlistartíma og spilaði m.a. ásamt íslenskum lögum, Eurovision-lög frá þeirra löndum til að kynna fyrir hinum ... og svo leyfði ég þeim að heyra HEL með Skálmöld og Sinfó. Well, þau klöppuðu eftir lagið, þeim fannst þetta svo flott, svo það er til fleira smekklegt fólk en ég! Ég gat bætt við gleði þeirra með því að segja þeim að gítarleikarinn í Skálmöld byggi á Akranesi (ef heimildir mínar eru réttar).


Skafandi og skutlandi nágrannar frá Himnaríki ...

MyndFrá jarðsögu-, eldgosa- og hamfaralegu tilliti er mjög gott að búa á Akranesi, skilst mér, þekki eina sem á eintóma ættingja í jarð-, veðurfræðinga- og eldgosakreðsunni, möguleg flóð kannski hér en sérlega litlar líkur á eldgosi við bæjarfótinn. En við finnum vel fyrir stærri skjálftunum á Reykjanesskaga. Ég vorkenni mér nú samt ekkert mikið, hugsa bara til elsku Grindvíkinga, þetta hlýtur að vera ansi óþægilegt, svo vægt sé til orða tekið. Svefnlaus fyrrinótt hjá þeim eins og mér, mér tókst þó að halda mér vakandi við íslenskuítroðið í gær. Þvílíkur munur var svo að vakna í morgun eftir nægan svefn sl. nótt. Svo hófust lætin. Nú hef ég ekki tölu á jarðskjálftum sem hafa tröllriðið öllu hér í Himnaríki og hrætt kettina mína, brotið glerið á innrammaðri mynd af Kór Langholtskirkju og fylgifiskum þar sem við vorum stödd í Flórens í júní 1985, ef ég man rétt. Myndinni hafði ég tyllt upp á hillu í stofu og hún hrundi niður við einn stóran. Í einhverjum af þeim fyrri datt pakki með tepokum á gólfið í eldhúsinu. Óþægilegt en ekkert miðað við það sem er í gangi hinum megin við hafið, í 56 kílómetra fjarlægð í beinni línu. Elsku Grindvíkingar, ég væri orðin ansi strekkt á taugum í þeirra sporum (varlega orðað). "Kristallarnir" á lampanum mínum úti í glugga hafa dinglað nánast látlaust í dag og kvöld, eins og ljósakrónurnar þarna hinum megin. Áður en stráksi fór í helgargistingu spurði hann mig til öryggis hvort við myndum deyja, hann náði nokkrum stórum hér heima, en var samt ekki sérlega áhyggjufullur. Hann er í sundi í þessum skrifuðum orðum, og nýtur lífsins. Ég er komin með jarðskjálftariðu, kíki reglulega á lampann þegar ég hristist, hann er ekki alltaf á sama máli.    

 

Valur að skafaNágrannakona mín frá Úkraínu, kattahvíslari með meiru, vinnur ekki langt frá mínum vinnustað og hefur skutlað mér undanfarna morgna í vinnuna. Í morgun biðum við í frosnum bílnum eftir því að miðstöðin hitaði rúðurnar svo sæist út, en allt í einu birtist sjálfur Valur nágranni sem skóf rúðurnar með ljóshraða, eða á innan við hálfri mínútu. 

Ef ég flyt í bæinn, sem gæti alveg orðið, svona ef ég tími ... þá ætla ég að taka hvern einasta nágranna hússins með mér (og Hekls Angels og Ingu og fleiri). Þeir vita ekki af því en mér tekst einhvern veginn að sannfæra þá um nauðsyn þess að við höldum áfram að búa öll saman. Það hlýtur að hækka fasteignaverð til muna að geta auglýst svona góða nágranna.

 

Myndin (þessi gula) sýnir hinn frábæra Val (að skafa) sem flýtti för okkar til muna í morgunsárið.

 

Það var hroðalega hált í morgun og ekki hafði það skánað í hádeginu. Ég hét því eiginlega að ef ég slyppi óbrotin heim myndi ég halda mig inni þar til í vor. Svo sá ég að spáð er hlýrra veðri næstu daga svo ég endurskoða það. Strætó ók ofboðslega hægt (næstum 10 mínútum á eftir áætlun) sem er hið eina rétta í svona ástandi, það var eins og ísfilma yfir öllum götum og gangstéttum. Sem betur fer er nokkuð um gras hérna sem óhætt er að ganga á, en ég kveið bara fyrir því að ganga yfir hlaðið, bílaplanið fyrir utan himnaríki. En ... sennilega var Valur búinn að salta því þar var nákvæmlega engin hálka! Eða kraftaverk, auðvitað.

 

Facebook-fréttir:

Ansi hreint margir hafa deilt tíu ára gömlum flökkustatus á íslensku í dag um að þeir gefi Facebook alls ekki leyfi til að nota myndir þeirra ... o.s.frv. Færri brandarar fyrir vikið.  


Fljúgandi kettir og sterkur áhrifavaldur

super-MosiFljúgandi kettir-heilkennið heldur áfram í Himnaríki og nú bíð ég bara eftir því að Krummi leiki listir sínar. Í dag hoppaði Mosi lengst upp á eldgömlu IKEA-samstæðuna - eitthvað sem ég hélt að hann gæti ekki lengur, vegna frekar mikillar matarlystar. Hér er mynd því til sönnunar.

Jú, vissulega nota kettirnir sófa og stólbök til að taka tilhlaup en samt ... elsku Ofur-Mosinn minn. Ef myndin hefur prentast vel má sjá grilla í mávastellið mitt í neðstu hillunni vinstra megin í glerskápnum. Eða drög að mávastelli, tvo bolla, sem er betra en ekkert. Er samt ekki að safna, komin með þetta fína matarstell frá Kristbjörgu í antíkskúrnum og á líka allt of marga bolla. Það þarf svo sem frekar marga bolla fyrst uppþvottavélin fer bara í gang tvisvar í viku. Í gær kenndi ég stráksa að taka hreint úr vélinni og ganga frá sem tókst mjög vel en Tetris-hæfileikana þarf að æfa til betur gangi að setja í vélina. Ég hef með góðum árangri notað stafrófsröð (t.d. gafflar, hnífar, skeiðar í aðra körfuna). Hann er samt efnilegur.

 

Mikil áhrifÁhrifavaldar á Instagram eru sumir virkilega skemmtilegir og aðrir nokkuð leiðinlegir, án þess endilega að ætla sér það (fólk sem nær smávinsældum og fer í kjölfarið að tala alveg rosalega mikið í myndavélina og með skoðanir ...) og sumir eru ofboðslega, rosalega máttugir án þess að ætla sér það, og jafnvel án þess að vera virkir á Instagram, bara á Facebook og stundum Snapchat. Mér þykir þetta svo leitt með fiskidaginn mikla, ég var í alvöru ekki reið yfir því að hann hafi verið haldinn 12. ágúst sl., á afmælinu mínu, við getum auðveldlega deilt deginum. Hættir kannski gleðigangan ef daginn ber upp á laugardag, eða verður hún flutt og haldin viku fyrr, eða um verslunarmannahelgina? Þetta var bara nöldur því ég óttaðist að þessir viðburðir fækkuðu afmælisgestum hjá mér ... og það var óþarfur ótti.

 

Kvefið er á nokkru undanhaldi - góð hvíld um helgina, bara allra nauðsynlegustu húsverkir unnir, sett í þvottavél, sett í uppþvottavél og drasl fært til yfir á minna áberandi staði áður en hægt verður að ganga frá. Ég dái flensupillurnar mínar sem ég tek samt sparlega. Einu sinni yfir daginn og svo fyrir nóttina. Því miður er eitthvað í þessum næturpillum sem gerir mig syfjaða svo ég sef sennilega af mér byrjun eldgossins ef það hefst með hressum skjálfta.

Mér skilst að Almannavarnir geti ekki bannað Bláa lóninu að hafa opið, gæti þýtt feita málsókn og háar skaðabætur ef ekkert gerist í gosmálum. Hvað er himinhár aðgangseyrir (15.000?) sinnum kannski fimm hundruð manns á dag? Jú, sjö og hálf milljón, og svo fer að gjósa annars staðar? En það á að upplýsa gesti lónsins um það sem er í gangi sem mér skilst að hafi ekki verið gert.

Sökum kvefs og aumingjaskapar komst ég ekki í bæinn og missti þar með af vatnslitasýningu Önnu vinkonu sem opnaði í gær í bókasafninu í Garðabæ, missti líka af troðfullum fundinum í Háskólabíói um Palestínu og hryllinginn sem þar stendur yfir. Ég mæli með grein Hlédísar Sveinsdóttur sem hefur verið deilt mikið á samfélagsmiðlum í dag. Afar vel skrifuð og rökstudd grein sem heitir Ég skil ekki

 

Fréttir af Facebook

Stöku grein, m.a. um slæmar jólagjafir: 

Tengdamamma gaf mér flík í stærð 14 en ég nota fatastærð 8. Hún sagði við það tilefni: „Ég valdi þetta því mér sýnist þú hafa bætt svolítið á þig upp á síðkastið.“ (Þetta er mjög móðgandi komandi frá tengdamömmu)

 

Stöku brandari

Læknir: „Einhver dæmi um andleg veikindi í fjölskyldunni?“

Maður: „Nei, við erum öll trúlaus.“

 

Stöku krúttlegheit:

Diego á sínum stað í A4 í Skeifunni.

 

Stöku nöldur:

Ein ekki ánægð með að auglýst sé leikfimi fyrir 60 plús og á tíma þegar vinnandi fólk kemst ekki. Vildi meina að unga fókið sem ákveður svona tíma fyrir "eldgamla" fólkið haldi að sé allt meira og minna hætt að vinna. (Sem er alls ekki. Ég er t.d. enn í þremur störfum, svona mestmegnis með eitthvað þrennt í gangi en af því að ég er forréttindadrós og ræð að mestu mínum vinnutíma (nema núna næstu vikur) gæti ég farið í svona leikfimi ... nema ég myndi aldrei nenna að fara í morguntíma. Ég hélt í alvöru (og vonaði) að maður þurfi minni svefn með árunum og yrði að hressum morgunhana.          


Bækur, ótalin skref og árgangsmót

Stráksi og GunnarBókabúðin allra besta hér á Akranesi var með skemmtilegan viðburð í dag, þá kom sjálfur Gunnar Helgason og kynnti bókina sína, Bannað að drepa. Stráksi var mjög spenntur svo ég keypti áritað eintak ... sem hann vonandi gleymir hratt því hann fær hana í jólagjöf. Keypti tvennt sniðugt handa honum úti í Glasgow og þarf að finna svona fimm hluti í viðbót, minna má það ekki vera. Hann er svo brjálæðislega mikið jólabarn og á innilega skilið að fá margar, margar jólagjafir.

Bækurnar hans Gunnars eru hver annarri betri. Mamma klikk og hinar, líka fótboltabækurnar og svo þessar, um það sem er bannað, þær eru víst alveg frábærar. Stráksa fannst skrítið að sjá Gunnar þar sem við þekkjum tvíburabróður hans, hann Ása ... „og þeir eru alveg eins!“ sagði hann hlessa. „Nei,“ leiðrétti ég hann. „Ási er nú ólíkt huggulegri.“ Stráksi flissaði, þeir eru eiginlega alveg ofboðslega líkir. Báðir sætir og fyndnir, við sættumst á það. Ég ætla að laumast til að lesa Bannað að drepa, fyrir jólin. Svo held ég að hinar tvær „Bannað að ...“ séu á Storytel, þá er nú aldeilis hægt að byrja á þeim.

Ég keypti til viðbótar þrjár bækur á lækkuðu verði, jólagjafir sem ég þarf helst að pakka inn núna svo ég stelist ekki í þær. Þetta eru svakalega góð bókajól, mig langar í alla vega 25 bækur. Svo á ég eftir að kaupa ljóðabækur og prósa fyrir suma. 

 

Annars hef ég verið hálflasin frá Glasgow-heimkomu. Kvef að reyna að herja á en ég berst hatrammlega gegn því - með C-vítamíni og amerískum flensupillum sem eru víst stranglega bannaðar Íslendingum. Hef getað stundað kennsluna en naumlega samt. Það var sérlega gott að enginn skóli var í dag, föstudag. Ég hafði mjög gott af því að dorma til hádegis. Tók grænar flensupillur (næturpillur) og rumskaði ekki við stóra jarðskjálftann í nótt en stráksi vaknaði og fannst þetta mjög spennandi. Ég veit ekki hvort ég eigi að vera fegin eða spæld.

 

Hress og gigtveikurÍ næstu viku þarf ég að koma mér upp einhverju sem hjálpar mér að láta símann elta mig hvert spor því það er lúmskt mikil hreyfing í því að þjóta um alla skólastofu og hlýða fólki af níu þjóðernum yfir. Í þrjá tíma ... og fá svo bara 1.200 skref yfir daginn, í gemsann sem liggur vissulega grafkyrr í töskunni eða á skrifborðinu, eins þegar ég hamast við að elda kvöldmatinn og stilli símanum upp á hillu, hlusta á sögu eða fréttir á meðan ég tek ábyggilega 100 skref. Hef nokkurn metnað fyrir skrefum eftir útlandaferðina, metnað sem ég hafði alls ekki áður, en það hefur verið of hált og kalt til að ganga í vinnuna og safna. Í gær fékk ég óvænt far báðar leiðir. Úkraínski kattahvíslarinn minn (ok, móðir hans) greip mig á stoppistöðinni þar sem ég beið eftir leið 2, skutlaði syninum í skólann, síðan mér í minn skóla og fór þá í vinnuna.

Svo eftir kennslu, þegar ég beið eftir leið 1 við Bónushúsið, (hann á að vera þar kl. 11.58 en kemur iðulega of snemma, eða 11.54, sem er sérlega stressandi því ég er búin að vinna kl. 11.50, get varla hlaupið, er enn að drepast í hásininni eftir að hafa tekið á sprett að óþörfu að næstu stoppistöð vegna misskilnings), kom gömul bekkjarsystir á hlýjum og fínum bíl og bauð mér far heim. Elsku Sigga.

 

Við hlökkum mikið til að hitta árganginn okkar ögn seinna í þessum mánuði. Byrjum gleðskapinn klukkan 18 og endum fyrir miðnætti (ekki ótti við að breytast í grasker, heldur fáum við salinn ekki lengur). Þetta er einstakur hópur, við höfum ekkert breyst, ekki einu sinni karlarnir, eins og við höfum verið geymd í formalíni eða eigum málverk uppi á háalofti af okkur, sem eldist en við ekki. Við erum líka hrikalega skemmtileg og fjölhæf og lýsum upp hvert herbergi sem við göngum inn í. Fólk hér á Skaganum talar um þetta. Þau okkar sem búa annars staðar, eins og í Noregi, Grænlandi eða Reykjavík, hefur sömu sögu að segja. Við vinnum meira að segja búningaverðlaunin alla öskudaga þótt við höfum ekki einu sinni farið í búning. Alla vega ég sem vinn heima en geri ráð fyrir að það eigi við um allan okkar árgang.

Madonna, jafnaldra okkar, er á tónleikaferðalagi núna en ætlaði að reyna að koma til Akraness, skjótast, af því að það er þyrlupallur hér á hlaðinu. Vonum að það takist. Annar jafnaldri okkar, Michael Jackson, hefði ella komið ef hann væri enn á lífi. Held að enn einn jafnaldrinn, Helgi fokkings Björns, eigi heldur ekki heimangegnt. Mig grunar samt að hann sé brjálaður yfir þokunni sem skall á hérna á Írsku dögunum í fyrra eða hitteðfyrra svo enginn sá hann og varla heyrði því þokan var svo þykk. Það er svo sem til sæmilegt tónlistarfólk af öðrum árgangi en vissulega vandfundið. Sjáum til hvað nefndin getur. Er alveg til í diskótek ef sæmilegt rokk fær að heyrast. 

 

Mynd 2 var tekin snemma í kvöld, af gömlum og gigtveikum Kela sem þaut ofsaglaður um allt Himnaríki og endaði uppi á skáp, hann getur sko ekki hoppað, heldur klifrar upp á sófa eða rúm. Dýralæknirinn í Hamraborg í Kópavogi er alveg frábær, Keli var nánast við dauðans dyr fyrir nokkrum vikum, hættur að vilja borða, orðinn horaður og svaf nánast út í eitt. „Sennilega gigt,“ sagði dýri, „prófaðu þetta lyf, settu dropa út í blautmat, sumir kettir hætta að borða ef þeir finna til!“ Og Keli fór að fljúga, sjá mynd.       


Margfalt persónulegt met í óviljandi göngu í Glasgow

SkrefatalningGlasgow-ferðin var skrambi góð. Við systur og fylgifiskar vorum ekkert í því að sprengja okkur í einu eða neinu. Það var búið að benda okkur á veitingastaði í grennd en við létum bara ráðast hverju sinni hvar, snæddum t.d. tvisvar á hótelinu, einu sinni á ítalska staðnum hinum megin við götuna og tvisvar á Fridays. Allt alveg prýðilega gott.

 

 

Við náðum að kynnast miðborginni nokkuð og það sem var óhugnanlega langt labb fyrst var pís of keik nokkrum dögum seinna. Talandi um labb ... eða að ganga, kannski aðallega skref. Ég setti margfalt persónulegt met í óviljandi göngu, og ef það er keppnisgrein er ég gullverðlaunahafi. Sjá afskaplega átakanlega sönnun úr símanum mínum. Ég kíkti áðan á meðaltalsgengna kílómetra nýliðins lífs míns og þar á meðal var dagurinn FYRIR brottför til Glasgow, og þetta voru samt 4,3 km á dag ... ókei, eins og iðulega í útlandinu og bara eðlilegt!

 

 

Það sem ég kvarta helst yfir er "evilmap" systur minnar, sem reiknaði út fjarlægðir og hversu langan tíma tæki að fara þær. „Við erum alveg að verða komin,“ hljómaði mjög reglulega eftir að hún hafði kíkt í gemsann sinn. Vissulega bað hún mig að kíkja á slíkt kort í mínum eigin síma á leið frá Höfn í Hornafirði í vor og þar fann ég út að það tæki okkur 17 klst. og 14 mín. að komast á næstu bensínstöð (ég hef aldrei gert þetta áður, enda biðja strætóbílstjórar mig aldrei um neitt slíkt).

Syðri-GlasgowEftir að hlátursöskrum systur minnar linnti var farþegi aftur í beðinn um að finna út úr þessu, og í ljós kom að mitt kort var stillt á gönguhraða. Við sem búum á Íslandi vitum öll að það eru bara örfáir kílómetrar á milli bensínstöðva hér, svo það var óhætt að hlæja. En ég hló ekki þarna úti í Glasgow, frekar grét innra með mér þegar ég áttaði mig á því að evilmap systur minnar var með stillingu fyrir akstur. Þegar hún sagði að það væru bara 12 mínútur á hótelið voru það örugglega 120 mínútur fyrir gangandi. Mig svimaði of mikið af örmögnun til að geta litið á klukkuna, tók bara eitt sársaukafullt skref í einu, upp brekkur, tröppur og alls kyns ófærur í einhverjum útjaðri borgarinnar, fannst mér. Í dag hef ég gengið 1.627 skef en reyndar miklu meira því ég er ekki með gemsann á mér þegar ég þýt frá skrifborði að töflu, eða á milli nemenda og legg lymskulegar spurningar fyrir þá. Hvað heitir þú. Hvaðan ertu? Hvaða tungumál talar þú? Og ji minn góður, hvað þetta fólk mitt talar mörg tungumál, þýska, franska, ítalska, spænska, og þá er ég ekki að tala um móðurmál þess. Nú skal ég flýta mér að troða sem mestri íslensku í þau svo við fáum þessa dýrmætu og fjölhæfu starfskrafta inn í atvinnulífið.  

 

 

Ég get samt ekki kvartað yfir skrefapyntingum systur minnar, það sem ég gerði, einnig óvart, var ekki mikið skárra. Mér var falið að sjá um veðurspána sem var fáránlega "vond", að mínu mati, eða hátt í 20°C, algjör ógeðssumarhiti (sjá mynd). Var ekki Glasgow svo norðarlega og nánast svipað veðurfar og hér, ögn hlýrra kannski? Hilda gladdist mjög yfir þessari óvæntu hitabylgju; skildi hlýju úlpuna og ullarsokkana eftir heima og stakk sólvörn ofan í tösku ásamt bikiníi.

 

 

Á NeroÞað var ekki norska veðursíðan sem klikkaði, heldur ykkar einlæg sem tók hitann í litlum bæ í Bandaríkjunum, bæ sem heitir Glasgow. Svo svekkelsið jafnaðist algjörlega út. Við ætlum aftur og þá miklu sjálfsöruggari. Okkur langaði að skreppa til Edinborgar, líka að kíkja á Nessie en það hefði tekið megnið af deginum, rútuferð til Loch Ness tekur þrjá og hálfan tíma aðra leiðina og annar fylgifiskurinn okkar er of bílveikur fyrir slík ævintýri.

 

Við tókum ástfóstri við Nero-kaffihúsið okkar (sjá mynd) sem var bara í örfárra mínútna fjarlægð frá hótelinu (Holiday Inn). Fínasta kaffi og góð stemning. Þarna sátum við á milli atriða, heimsóttum auðvitað einhverjar búðir og það voru frekar strákarnir sem voru með í för sem vildu fara í þessa búð og hina búðina. Bláa peysan sem stráksi er í passar ótrúlega vel við einkennisliti Nero en svona smekkleg erum við. Ég þurfti líka að kaupa eitthvað dásamlegt handa kisupössurunum okkar, fann þennan fína trefil (sá mýksti í búðinni) handa Svitlönu og auðvitað gott te, og handa Rostyk fann ég sælgæti og fyndna drykkjarkrús. Ég missi í alvöru lífsviljann í búðum en tókst samt að finna æðislegar (ódýrar) buxur sem ég nennti ekki einu sinni að máta, greip þær bara. Ég gef núorðið fáar jólagjafir og kaupi oftar en ekki bækur - svo það var engin einbeitt kaupskylda í gangi ytra, ég held að slíkar ferðir heyri sögunni til að mestu. Ég þekki nokkra sem fara reglulega til Glasgow en ekki í innkaupaferð, heldur til að njóta. Glasgow er æðisleg borg. Við náðum í skottið á friðsamlegri mótmælagöngu, Free Palestine, og þarna ríkti mikill samhugur.

 

Frelsum PalestínuBílstjórinn sem ók okkur frá flugvellinum að hótelinu sagði okkur frá íslenskum mæðgun sem færu alltaf til Glasgow á þriggja mánaða fresti, bara til að njóta. Sama hótel, sama herbergi, sami bílstjórinn. Hann sagði okkur líka frá því þegar hann benti á fínustu styttu að hún væri í boði Íslendinga sem hefðu verið svo duglegir að koma í innkaupaferðir. Borgin var víst miklu ódýrari í gamla daga, ef ég skil það rétt.

 

Kom heim í hádeginu, um kl. 12.10, eftir fyrsta skóladaginn og náði einhvern veginn að missa af stærsta jarðskjálftanum í þessari hrinu, 4,5, kl. 12.19. Ég var einmitt að segja fólkinu sem ég fræði um hið dásamlega tungumál íslenskuna, að búa sig undir jarðskjálfta og eldgos, sýndi því vedur.is og lét fylgja með að við Skagamenn fyndum yfirleitt ekki fyrir neinu nema skjálftinn færi upp í fjóra.

 

 

Gos, gos, gos, gosFyrstu tölur sýndu 3,9 en samt sögðu ýmsir Skagamenn á Facebook að þeir hefðu fundið skjálftann. Vona bara að Svartsengi verði ekki fyrir tjóni, eða ferðafólk í Bláa lóninu eigi fótum fjör að launa ef fer að gjósa þar nálægt. Ég væri alveg til í 800 ára hvíld aftur. Þá væri alveg nægur tími til að flytja höfuðborgina upp á Akranes, til vara á Austfirði, það er ansi mikið gamalt hraun á höfuðborgarsvæðinu ... og ég sem læt mig dreyma um að koma jafnvel aftur í bæinn. Það er pláss hér fyrir alþjóðaflugvöll og allt, held ég, og gleymum ekki Einarsbúð sem nú er á leiðinni til mín með nauðsynjar. Þá neyðumst við stráksi ekki til að borða skyr í morgunmat, eins og í morgun. Súrmjólk með kornfleksi og púðursykri hjá mér - stráksi vanur All bran-i með mjólk út á. Þetta var mikil reynsla fyrir allar aldir í morgun.

EN ... ÞAÐ BESTA: Leið 2 á Akranesi (innanbæjarstrætó) stoppar rétt við Bónushúsið. Ég næ vagninum rétt fyrir kl. átta á Garðabraut (hinum megin við götuna) á leið hans niður í bæ, smáhringur og svo er ég komin á góðum tíma í vinnuna. Þarf síður að óttast beinbrot í komandi hálkutíð fyrst gönguleiðin er þetta miklu styttri. Þetta er allt of illa auglýst!

Stráksi kom með mér í þennan strætó (annars vanur að taka leið 1) til að sýna mér stuðning í fyrstu ferð minni með ókunnugum vagni, leið 1 fer ekki að Bónushúsinu fyrr en eftir morgunhvíldina (síestuna) en ég næ honum alltaf heim. Stráksi var grautfúll yfir því að koma allt of snemma í skólann, alveg korteri ... Hann hafði sem betur fer tekið gleði sína aftur þegar hann kom heim eftir hádegi.

 

Ath. Myndin sem sýnir ljósastaur, haf og eldgos er ekki ný ... 


Besti árgangur allra tíma og mismæli á Tene

GlasgowDagurinn fyrir brottför frá Akranesi fór aðallega í að hugsa um hverju skyldi pakkað með til Glasgow og lesa smávegis. Ég kíkti í Miðilinn eftir Sólveigu Pálsdóttur og mér sýnist ég eiginlega vera að verða búin með hana. Með húsverkjum hef ég vanið mig á að hlusta á sögu og í dag voru það allt of spennandi Napóleónsskjölin. Hún eldist fáránlega vel, þrátt fyrir Reiknistofu bankanna-eitthvað, og er ferlega skemmtileg. Líf mitt er nú meiri spennan. 

 

Stráki kom ofsaglaður frá Möttu sinni, eftir enn eina dekurhelgina. Hann sá mjög skemmtilega mynd í bíó, Creator, heitir hún. Svo skemmtileg er hún að hann sendi mér SMS í miðjum klíðum og sagði að ég YRÐI að sjá hana. Helgin hans endaði í sundi í dag. Er búin að finna föt á hann fyrir ferðina og pakka en ferðatöskurnar fóru reyndar tómar í bæinn í gær með hjálparhellunni, til að við stráksi slyppum við að rogast með þær í strætó á morgun. Þarf að þvo eins og eina þvottavél í kvöld, íbúðin að verða nógu fín fyrir úkraínsku kattahvíslarana sem verða hér meira og minna (í alvöru sko). Sjónvarpið mitt er stærra ...

 

Þrátt fyrir letidag fann ég millistykkið fyrir Ísland að Englandi, sem ég keypti fyrir Liverpool-ferðina, gott að hlaða símana, er það ekki? Ég fann töskuvigt líka og hálsmen* stráksa (*myndir af sólblómum á því) sem kemur okkur í gegnum alla flugvelli hraðar og betur en fyrirfólki. Ferðin til Liverpool um páskana var hrein dásemd út af því, reyndar slapp Hilda við vopnaleit af því að haldið var að hann væri með henni ... hrmpf ... eða ég talin glæpónalegri.

Facebook-óvinir, eða vonda fólkið sem hefur yfirtekið reikninga marga fb-vina minna voru sérdeilis afkastamiklir í gær og ég fékk reyndar bara beiðni frá tveimur þeirra, en með hálfrar mínútu millibili, beiðni um að fá símanúmerið mitt. Ég hef þá reglu að klippa strax á vinskapinn við viðkomandi og ekki einu sinni reyna að svara í gríni, gefa upp númer lögreglunnar eða eitthvað. En samt langar mig að vita: Geta þrjótarnir yfirtekið hvaða fb-reikning sem er eða þarf maður að ýta á tengil, svona gildru, fyrst? Veit það einhver?

 

Fleira af Facebook:

Á Tenerife: Mismæli kvöldsins við sólbrenndan eiginmann: „Þú verður að bera á þig aftereight ...“

Kettlingur, nýfluttur á framtíðarheimili sitt, komst út um pínulitla rifu á glugga en náðist af því að nýi eigandinn spilaði á símann sinn kall læðu á kettling sinn (allt til á YouTube) í leitinni. Hann kom svo hlaupandi.

Galito farið að auglýsa jólahlaðborð ... ég misskildi fyrst og hélt að ég þyrfti að taka 39 nánustu vini mína með ef ég ætlaði þangað, en það er bara þegar veislan er haldin úti í bæ og kokkur kemur með kræsingunum, þá er lágmarksfjöldi 40 manns.

 

Hvað skyldu mæta margir á árgangshittinginn minn sem átti að vera fyrir ári? Hann verður haldinn eftir miðjan nóvember. Ég var eitthvað óviss um að mæta, miklaði fyrir mér ískulda og hálku og þurfa að ganga upp í safnasvæði en Stúkuhúsið mun hýsa okkur þar sem ég átti ófáar ánægjustundir í æsku þar sem ég hét því að hvorki reykja né drekka. Ég er hætt að reykja, og drekk eiginlega aldrei, svo samviskan er hrein. Sú sem hringdi sagði að ég ætti nú heima svo nálægt ... Mér finnst 15-20 mínútna ganga að kvöldi til í sparifötunum í hálku eða byl, ekki vera nálægt. En hún féll fyrir vælinu í mér og ég fæ að vera samferða báðar leiðir. Þetta er allt of skemmtilegt og fallegt fólk til að ég tími að sitja heima. Þessi árgangur er í raun stórkostlegur sama hvert litið er; Madonna úti í heimi, Michael Jacson í svokölluðu sumarlandi, ég í Himnaríki ... Helgi fokking Bjöss ... Allt tónlistarfólk, EN ... ég minni á að ég söng með Kór Langholtskirkju í nokkur ár, Söngsveitinni Fílhamoníu (Krýningarmessan, Mozart) og Mótettukórnum (Eliah eftir Mendelsohn), hástöfum við tölvuna og fasteignaverðið í hverfinu hefur örugglega hækkað þar sem ég hækka sífellt tíðnina með söng mínum, ekki bara með Skálmöld, heldur fleirum. Jafnvel Scarlatti ... Exultate Deo eftir hann ... ég söng altröddina í því nokkrum sínnum á níunda áratug síðustu aldar, kann enn næstum hvern einasta tón og líka textann ... Ekki bara póstnúmer hér.

   


Eldum rétt-áfall og spennandi karlaverkfall

100 bestuDásemdarkona kom í heimsókn í dag og við óðum í að taka í gegn fataskápana. Eitthvað var nú minna um drasl en ég hafði haldið en þrír svartir ruslapokar fóru þó með í bæinn til Rauða krossins. Unga dásemdin og hjálparhellan fékk hvíta jólatréð mitt að gjöf, nýtt síðan í fyrra en ég fíla það ekki, svo ég kaupi bara nýtt grænt í desember og held mig við það út ævina. Þyngingarsængin öðlaðist trylltar vinsældir eftir síðasta blogg, alveg ein manneskja úr Kópavogi, af góðum ættum, vildi endilega fá hana. Sængin er á leiðinni til hennar. Það besta var kannski að ég sendi hjálparhelluna einnig með nokkra geisladiska sem eiga að enda í bifreið systur minnar, svo ég og allir aðrir farþegar þurfi ekki að hlusta á Heyr mína bæn enn einu sinni, við fórum til Hafnar í Hornafirði í vor og til baka og það lag hljómaði c.a. 35 sinnum á meðan). Ekki af trúarhita einum saman, heldur vegna skorts á diskum í bílnum. Litlasystir fær m.a. 100 bestu sjómannalögin ... eða 50 bestu, eigum við 100 sjómannalög? Jóladiskur með KK og Ellen, 100 bestu lög lýðveldisins (sjá mynd) og fleira gæðaefni. Ég á fullan skáp af geisladiskum (mest klassík eftir) og alveg sjálfsagt að hlusta á þá og því þá ekki í bílnum sem ég er svo oft farþegi í?

Ekki möguleiki að fá litlusystur mína til að hlusta á almennilegt stöff eins og Pixies eða Skálmöld ... (ég hef reynt) ekki einu sinni Nirvana eða Megadeth komast inn fyrir brynvarnir hennar. Hún gubbar bara við tilhugsunina. Hún er sennilega með of fagra sál til að- ... nei, úps, hún drekkur kaffi sem sumir kalla djöfladjús og segja að gott fólk með fagra sál myndi ekki drekka ... Í þeim hópi er rokk talið vera einna verst af vondu.

 

Kvöldmaturinn í gærStráksi fór í helgargistingu í gær og ég þurfti að klára síðasta matarpakkann frá Eldum rétt áður en innihaldið rynni út. Til að nýta embætti stráksa sem ruslamálaráðherra til fullnustu fór hann með allt rusl út ... þar á meðal fór uppskrift þessa síðasta matarpakka með pappanum út í tunnu. Ekki séns að ég færi út að leita og heldur ekki séns að elda án aðstoðar svo ég prófaði bestu vinkonu mína, ungfrú gúglu! Ég komst inn í uppskriftina af því að búið var að skrásetja að ég hefði pantað hana og fengið og hefði því rétt á að sjá hana. Ég nýtti mér ekki nýjustu tækni og tók hana með á iPad, heldur skrifaði ég hana í stílabók og tók með mér. Það þarf að hlífa þessum dýru raftækjum. Jú, maturinn heppnaðist reglulega vel, sjá mynd, ég borðaði hluta í hádeginu í dag og get klárað í hádeginu á morgun. Því seinnipartinn í dag (snemmbúinn kvöldverður) var það Lemon og ég enn pakksödd eftir þrjá tíma. Mig hlýtur að vanta vítamín, ég er svo brjáluð í avókadó og bæði samlokan og djúsinn voru löðrandi í því.

 

FrídagurinnHundfúlt að geta ekki tekið þátt í kvennaverkfallinu á þriðjudaginn, það er svo mikil stemning í þjóðfélaginu að einn gaur stofnaði síðu um karlaverkfall, með, ef ég skil það rétt, kröfu um að fá sömu laun og konur. Flott hjá honum. Frekar dræm þátttaka samt svo kannski vilja það ekki allir. Karlarnir ætla alla vega að hætta að skipta um dekk og grafa skurði þar til þeir fá launalækkun.

 

Hver vill svo sem vera á 20% hærri launum þegar hægt er að standa með mæðrum sínum, systrum, dætrum og/eða eiginkonum/kærustum? Ég verð því miður flogin út í heim, löngu, löngu planað, nú er síðasti séns minn að finna Filippus Angantý (MacIntyre?), manninn sem mig dreymdi 12 ára að yrði minn, síðasti séns áður en ég steinhætti að nenna að eltast við menn (as if). Ég daðra og dufla í huganum sem er ekki vænlegt til árangurs og ef einhver ókunnugur dirfist að heilsa mér í gegnum Messenger verð ég brjáluð, þetta er ekki Tinder, arga ég út í loftið, samt myndi ég aldrei þora á Tinder. Skilst að þetta syndrome mitt heiti piparjúnkismi sem er kannski bara eðlilegt eftir öll mín hjónabönd í gegnum tíðina.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 24
  • Sl. sólarhring: 31
  • Sl. viku: 179
  • Frá upphafi: 1527618

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 150
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband