Færsluflokkur: Bloggar
28.12.2021 | 18:11
Bless, löggudraumar og covid-móðgandi frændi
Ástarfleyið er eitthvað sem virðist eiga að höfða til mín og er ýtt að mér án miskunnar, eða hefur verið gert síðustu dagana, síðmiðaldra skutlunnar á Skaganum sem íhugar ekki neitt síkt eftir vesenið með veðurfræðinginn forðum.
Meira að segja er reynt að höfða til ótta við dauðann án ástar til að fá mig til að skrá mig. Ég fer bara, þegar ég sé svona auglýsingar, að hugsa um óheppnu búðina í Kringlunni sem auglýsti á plastpokum sínum: Fegurðin kemur innan frá! Eins og feitabollurnar sem keyptu fötin þar gætu verið sætar að utan, as if. Bara fáránlegt og huggaði okkur alls ekki neitt.
Ég viðurkenni samt að ég er spennt fyrir einhverjum sem hefur vit á eldgosum og jarðskjálftum. Held að allt of margir meðlimir séu á fb-síðunni Jarðsöguvinir - Friends of Historical Geology en hún höfðar samt mun meira til mín sem stefnumótasíða en Ástarfleyið. Ég geri núorðið aðeins þær kröfur til karla að þeir andi og það væri gríðarlega mikill bónus ef viðkomandi gæti talað um jarðsögu, eldgos, kvikuhreyfingar og jarðskjálfta af einhverju viti.
Þegar ég horfði á Kastljós í gær skemmti ég mér vel, enda eitt af áhugamálum mínum í brennidepli þar. Það var ekki fyrr en eftir á sem ég nánast táraðist og gróf endanlega þá von mína að verða rannsóknarlögga. Ég er sennilega eina manneskjan á Íslandi sem hefði ekki getað sagt (til að bjarga lífi mínu) eftir á í hvers konar fötum Kristín var - flestir veðjuðu á að hún hefði svona góðan húmor ... eina sem ég hugsaði; hún er ekki í handprjónaðri peysu, nú verður ekki allt vitlaust hjá Handóðum prjónurum sem vilja vita í hvaða peysu hún var og hvar hægt væri að kaupa uppskriftina. Það hefur verið gaman að fylgjast með þeirri síðu þegar þessir skjálftafræðingar hafa mætt í peysum. Ég kann ekki að prjóna, veit ekki af hverju ég sé samt allar þessar myndarskapssíður á Facebook, um prjón, matargerð og fleira. ég kunni t.d. ekki að búa til almennilegt hakk og spagettí fyrr en ég sá það gert í þættinum Með okkar augum. Nú rúlla ég þessu upp með alls kyns afbrigðum. Það sem áður hafði klikkað hjá mér var að setja ekki grænmetistening og tómat-puré. Alltaf að vesenast með krydderíið til að ná réttu bragði.
Ég heyri vel, þegar ekki eru hávær umhverfishljóð (ég væri löngu hamingjusamlega gift ef ég hefði ekki bara sagt HA? HVAÐ SEGIRÐU? á Borginni í gamla daga þegar sætu strákarnir sögðu eitthvað fallegt við mig, eins og ég hef áður sagt frá og má líka lesa um annað slagið í Sérstæðum sakamálum - enn í dag). En að læðast um hljóðan glæpavettvang í þögn - þá væri ég manneskjan sem heyrði brakið í skápnum. Ég er talnaglögg líka, svo kannski hefur elsku rannsóknarlögreglan einhver not fyrir mig þegar ég er ekki lengur í 180 prósenta vinnu við annað eins og núna. Svo gæti ég reynt að skerpa athyglisgáfuna varðandi klæðaburð fólks. Ég þekki ekki heldur bíla á lit eða eftir tegund, heldur bílnúmerum sem gæti mögulega komið sér vel hjá löggunni! Bíddu, var ekki auglýst eftir þessum bíl í september? myndi ég segja og þrítuga samstarfslögga mín alveg gapa af hrifningu. Jú, hvernig fórstu að þessu? Búið að mála bílinn og skipta um spegla, húdd, boddí, dekk, viftureimar og bara allt! Þú ert mesti fengur sem lögreglan hefur haft vit á að grípa - og samt komin yfir sextugt! Vá, hvað ég er hætt að vera með aldursfordóma.
Nú bíðum við bara eftir gosi. Það hreyfist vart hár á höfði okkar Skagamanna nema skjálftar fari yfir fjóra en ég heyrði smávegis brakhljóð (góð heyrn) þegar sá stærsti kom í dag og gestkomandi kona ruggaði smávegis í sófanum. Nú finnst mér að t.d. Magnús Tumi ætti að lýsa því yfir að það kæmi aldrei aftur gos á Reykjanesskaga, til að flýta fyrir því ... og fækka þar með jarðskjálftum.
Nú eru 62 Skagamenn í einangrun og 121 í sóttkví - endar eflaust með því að við fáum þetta öll. Ég skil samt ekki þá sem tala um covid eins og flensu. Sóttvarnir okkar hafa hægt á útbreiðslunni til að bjarga þeim viðkvæmustu sem fara kannski verr út úr þessu en við. Mig langar ekki í skert lyktar- og bragðskyn eða eitthvað þaðan af verra, svo ég vona að ég verði ein af þeim sem sleppur alfarið.
Í fjölskylduhittingi skömmu fyrir jól spurði einn frændi minn: Veistu um einhvern í fjölskyldunni / ættinni sem hefur fengið covid?
Ég fór að hugsa og datt hreinlega enginn í hug svo ég hristi hausinn og horfði spyrjandi á hann. Greindin skein úr grágrænum augum mínum. Frændi hafði víst rekist á fyrirlestur á netinu um covid-rannsókn, í fyrstu covid-bylgjunni í fyrra, þar sem kom fram að sumir færu betur en aðrir út úr covid ... eitthvað eldgamalt dæmi sem hann mundi ekki nógu vel, Neanderthal-eitthvað, sagði hann afsakandi, maður, api-eitthvað, en ef ættin mín sleppur alfarið erum við mögulega kannski þá apamegin?!? Hann lofaði að senda mér hlekk á þennan fyrirlestur ef hann fyndi hann. Frændi bætti samt við að ef eitthvað slíkt kæmi fram, myndi hann samt ekki sleppa því að fara í bólusetningu. Svo klóraði hann sér á síðunum, leitaði mér lúsa, rak upp ógnandi öskur og stökk hratt í burtu. Nánar um þetta síðar, ef frændi finnur fyrirlesturinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2021 | 16:43
Örlagaríkt eplavín og Refsara-Facebook í ruglinu
Jólafríi lokið og alvara lífsins tekin við. Þvílík letijól, að mestu í þoku því Halla frænka gaf okkur systrum sérdeilis gott heimalagað eplavín sem sló í gegn hjá okkur á meðan við þræluðum og púluðum á aðfangadag. Engin miskunn hjá Svanhildi af Kópavogi þegar á að skræla epli og súkkulaði í salat. Eftir eitt staup af eplavíni varð ekki aftur snúið og þá, um miðbik undirbúnings, nenntum við þessu ekki lengur, Hilda fíraði upp í grillinu á pallinum austanverðum. Við tróðum öllu matardraslinu þangað og héldum áfram að skála fyrir öllu því dásamlega sem árið hafði fært okkur, ábyggilega covid líka, þetta var mjög sterkt vín. Ég man ekki mikið eftir kvöldinu, bara gleðiöskrum fólks yfir sérlega flottum jólagjöfunum, þynnkan er enn að drepa mig. Ég hitaði 1944-rétti ofan í jóladagsgestina sem ég hef grunaða um að hafa kippt þeim mat með, bara til að fá eitthvað. Hvernig ég komst heim frá Reykjavík er ekkert annað en hulinn harmur, skilst mér, sem inniheldur skíðahúfu og erma-straubretti, svo fátt eitt sé talið.
Sem betur fer var þetta lítil flaska og restin, nokkrir dropar, gladdi líka mömmu og Davíð frænda síðar um kvöldið.
Drengurinn hefur tilkynnt öllum (óumbeðið) sem vilja hlusta að ég ætli í sykurbindindi eftir áramót (átti að vera leyndarmál) - af því að ég bað hann um að hætta að bjóða mér nammi sem hann lumar alltaf á og vill dreifa gleðinni. Ég freistast alltaf. Sko, ég fer aldrei sérferð í sjoppu eftir sælgæti en ef það er til í Himnaríki finnst mér kjörið, jafnvel snjallt, að borða það, jafnvel klára. Bestu molarnir eru búnir í Nóakonfektinu sem ég fékk í jólagjöf, sjúkk, með dyggri aðstoð jóladagsgesta, takk kærlega, og ég gleðst í raun yfir því að hafa ekki fengið bara fyllta mola. Þá væri ég búin með þá og kæmist ekki lengur á milli herbergja sem væri agalegt. Það þarf að klára hangikjötið úr Einarsbúð sem fékk hæstu einkunn gestanna þriggja. Stráksi borðar sem betur fer annars staðar í kvöld, honum leist ekkert á hangikjöt þriðja kvöldið í röð þótt honum þyki það hrikalega gott, Bjúgríður verður því að fórna sér á altari nýtninnar. Krummi (fuglinn) er nú samt alltaf svolítið svangur svo hann fær restina, sem verður pottþétt. Þessi covid-keppur situr sem fastast á mér en hefur ekkert stækkað samt! Vildi að ég gæti kennt bólusetningum um. Æ, geri það bara samt. Sé að Fréttin, bloggsíða gegn bólusetningum, kennir bólusetningum um óvænt og sorgleg andlát ungra fótboltamanna, sem gerðist því miður stöku sinnum fyrir covid líka. Allt notað til að hræða fólk.
Frænda mínum, sem gengur oft undir nafninu Halldór fjandi, var fleygt öfugum út af Facebook - sem eyddi að auki reikningi hans og traðkaði ofan á minningum hans og færslum síðustu ég-veit-ekki-hvað-margra ára. Honum varð á að óska sjálfri Nönnu Rögnvaldardóttur gleðilegra jóla og notaði orðið heillin (heil lin?) sem minnti mögulega aðeins of mikið á helförina forðum, við höldum það, hneyksluðu Facebook-vinir hans. Þetta var ekki bara 24 klst. refsing, heldur hvarf síðan hans endanlega sem er ömurlegt.
Mikið á ég eftir að sakna fjanda af Facebook. Hvernig væri að fullvissa sig um að brot hafi verið framið áður en svona lagað er gert? Hvaða drasl er Facebook að verða? Halldór, komdu bara hingað á Moggabloggið. Þú yrðir fínt mótvægi við bullið í sumum hérna, eins og í fallegu frænku þinni af Himnaríki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2021 | 17:03
Skortur á skapandi hugsun og síðasta spákonuferðin
Ég verð að viðurkenna að það var bara notalegt að vakna við jarðskjálfta í nótt, aftur í morgun, rugga aðeins í rúminu og heyra alls kyns brak og bresti, skárra en að hafa verið sest við vinnu sína við tölvuna. Þegar ég áttaði mig á því að þetta væri frekar stór jarðskjálfti var hann yfirstaðinn. Sennilega verður jólagos, jafnvel nýársgos en ég vona satt að segja að skjálfi ekki of mikið þangað til. Það væri frekar töff að geta boðið gestum sínum upp á hangikjöt með öllu, líka eldgosi út um gluggann. Nú er ég bara að tala um gildi góðs og spennandi útsýnis en hugsa samt alveg um óþægindi íbúa á Reykjanesskaganum.
Vinir mínir í jarðskjálfta- og goshópnum dæstu þegar því var lýst yfir að gosinu væri lokið, sögðu að það væri ekki tímabært, það færi af stað aftur, og hvað gerðist ekki? Svona dyngjugos standa víst í áratugi. Vona bara að taki skemmri tíma fyrir glóandi kvikindið að koma sér upp á yfirborðið.
Á myndinni sést yfir hafið, Reykjavík til vinstri, Keilir og fleira flott þar til hægri og á staðnum beint fyrir ofan ljósastaurinn gaus síðast. Ef ég hefði tekið myndina aðeins meira til hægri sæist kannski í Keflavík og jafnvel Ameríku ef jörðin væri ekki svona hnöttótt. Ef hún er það þá ... held að það sé samsæri til að fá okkur til að ferðast meira, en við nennum því ekki af því að okkur er talin trú um að við komum alltaf á sama stað aftur. Eitthvað. Held ég. Ekki.
Ég þarf sennilega ekki að vinna á morgun, svo dugleg höfum við verið að vinna af okkur ... en ég ætla að reyna að vera dugleg í kvöld og á morgun; baka, skreyta og slíkt. Eitthvað sem fólk gerði bara á Þorláksmessu í gamla daga. Eina sem ég óttast virkilega er að gleyma að sjóða hangikjötið í fyrramálið.
Léleg jólamynd í sjónvarpinu í kvöld yrði þá verðlaunin fyrir dugnaðinn. Ég þyrfti sennilega að hafa ögn meira skapandi huga - þá sæi ég ekki draslið heima hjá mér (sjá mynd). Ekki kannski mikið - en það er ekki jólafínt. Jólatréð komið inn í stofu en enn í kassanum, skrautið í grennd.
Fyrir nokkru keypti ég rauðan og fallegan jakka hjá Systrum og mökum í Síðumúla (Ármúla?) og var mjög ánægð með hann. Líka ánægð með mig að hafa valið LIT á sjálfan jakkann, yfirleitt reyni ég að hafa jakka og aðrar yfirhafnir svartar, þá get ég notað þær lengur og svartur litur er klæðilegur, finnst mér. Hægt að lífga upp á með litríkum skartgripum, blússum og slíku ... og auðvitað ákvað ég eftir mjög stuttan tíma að skipta jakkanum og fá hann svartan. Hann hafði verið ósnertur í pokanum og tíminn til að skipta honum hafði runnið út, sem ég vissi ekki. En ljúfa, elskulega konan sagði að það væri greinilegt að ég hefði ekki gengið í honum, svo var kvittunin á botninum líka ... og sem betur fer hafði ég ekki reynt að strauja pokakrumpurnar úr honum sjálf, og hún leyfði mér að fá svartan ... nema hann var uppseldur. Ég sagðist bíða róleg eftir að þær saumuðu, lægi ekkert á, nóg á nýju ári - en nei, þær fóru að sauma og ég get sótt jakkann á morgun. Ég fylltist óvæntri jakkagleði (veit ekki alveg hvar jólagleðin er) en þessi gamli hefði alveg getað þjónað mér eitt ár í viðbót. Yfirleitt læt ég nægja að kaupa mér nýja sokka til að vera ekki étin af jólakettinum.
Það getur samt verið slæmt að vera of nýtin, að ganga of lengi í sömu uppáhaldsfötunum ... eins og um árið þegar ég fór til spákonunnar (á síðustu öld sko) - var að byrja í sumarfríi, átti tíma í klippingu daginn eftir, búin að gleyma tímanum hjá henni þegar ég var sótt, henti yfir mig einhverjum druslujakka (hann var hippalegur og átti að vera frekar druslulegur) og hljóp út á inniskónum án þess að gefa mér tíma til að setja á mig varalit. Svo las falsspákonan ekki í spilin eða bollann, heldur í útganginn á mér (ég hefði auðvitað aldrei farið svona í Kjötborg eða á Gaukinn). Hún ráðlagði mér að semja við lánardrottna mína og varð vandræðaleg þegar ég sagðist ekki vera í vanskilum. Þvílík steypa. Svo varð ég ekki fúl fyrr en daginn eftir. Sennilega var þetta í síðasta sinn sem ég fór til spákonu. Mér fannst það alltaf ógurlega spennandi, ekki síst þegar ég fór til Amyar Engilberts (1986) sem var landsfræg. Það gengu ýmsar sögur um hana, meðal annars sú að hún hefði sagt manni nokkrum hvenær hann dæi ... Sá maður átti að hafa dottið í djammið og síðan látist nákvæmlega þann dag - en svona sögur eru oft ýktar. Hún sagði mér frá einu þegar ég var hjá henni, að hún hefði gengið fram hjá húsgrunni, og ákveðið að losa sig við tarotspil sín, fleygt þeim þarna yfir. Ekki svo löngu síðar reis þar sjálf Kringlan, byggð ofan á spilunum hennar Amyar. Mér fannst það voða merkilegt.
En ... nú þarf ég að blása smávegis jólaanda um Himnaríki ... skreyta og fá bökunarilm í húsið (tilbúnar kökudeigsrúllur í ísskápnum, ég elska nútímann). Myndin hér að ofan sýnir það sem ég stefni á í kökumálum ... þetta verður löng nótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.12.2021 | 17:10
Heppnin góða og ævintýri hangikjötsins
Alltaf í kringum jól núna síðustu árin fyllist ég sérstöku þakklæti fyrir að vinna ekki í Buckingham-höll og eiga þannig á hættu að fá jólagjöf fulla af hnetum, möndlum, döðlum og rúsínum sem hefði orðið hlutskipti mitt. Nema ef ég hefði orðið uppáhald drottningar, skilst að butlerinn og einkaþjónninn og nokkrir fleiri fái dýrar og fínar gjafir, lausar við hrylling ... en ... eins hryllingur, annars góðgæti, reyni að hafa það í huga.
Hef tekið eftir því að þegar ég kaupi svokallaðar sætar gjafir passa ég mig á hnetunum til öryggis. Ekki að ég ætli að fara að bjóða mér í heimsókn til gjafþeganna til að snæða með þeim súkkulaðið. Ja, Hilda er til dæmis með ofnæmi fyrir tómötum og ryki og hún er ekkert skárri en ég, ekki gefur hún fólki þannig súkkulaði. Súkkulaði með hnetum hljómar álíka í mínum eyrum og súkkulaði með ryki og tómötum. Ég vinn hjá Birtíngi, sjúkk, og þótt engin skylda sé að gefa starfsfólki sínu jólagjafir, hefur fyrirtækið iðulega sett ýmis met í yndislegheitum og gjafmildi. Mín gjöf er í bænum, undir jólatrénu hjá Hildu.
Drottningin í Buckingham-höll gefur flestu sínu starfsfólki Christmas Pudding (sjá átakanlega mynd) sem er alveg ótrúlega skrítin gjöf, að mínu mati. Ég stórefa að þessi elska hafi fundið upp á því sjálf. Örugglega einhver starfsmaður sem á ættingja sem framleiða slíka búðinga, nema frændhygli sé bönnuð í Bretlandi þótt hún sé þjóðaríþrótt hér ...
Ég lenti í spennandi atviki áðan og svakalega góðri þjónustu sem ég átti samt varla skilið. Sökum hálku og lélegs göngulags þegar svo stendur á, já, og var svolítið tímabundin líka, ákvað ég að panta í uppáhaldsbúðinni minni fyrir hangikjötsveislu jóladags og fá heimsent.
Besta búð í heimi, góðan dag.
Löngu síðar:
Og að lokum úrbeinað hangikjötslæri í kringum 2 kíló, frá SS. ... ég fæ yndislegt fólk í heimsókn ... bla bla, hvað eru fimm sinnum átta deilt með þremur? Já, jólin bara alveg að koma, bla, bla ... ekki kannski Last Christmas, kannski bara John Lennon-lagið þarna so this is Christmas ... Jói Fel, já, sú bók, Hurðakrækir ... haaha, bla bla ...
Hálftíma seinna hringdi dyrabjallan. Tveir harðvítugir sendlar með vöðva og sixpakk komu upp með pöntun mína, hreinlega þutu upp stigana. Mig grunar að regluleg stigahlaupin hafi haft þessi áhrif. Ávallt tveir saman, eins og vottarnir, löggurnar, iðnaðarmennirnir, til öryggis ... ég hef marghissað mig á þessu. Samt vita allir að ég hvorki daðra né tek eftir því þegar daðrað er við mig. Ef einhver biður mig að giftast sér hlæ ég bara og segi: Takk. Mikið ertu indæll. Ég bretti strax upp ermar og bjó mig undir að setja inn í ísskáp.
Myndin af hangikjötinu er rammstolin af mbl.is, fylgdi grein frá 2016 um hægeldað hangikjöt. Af hverju þrjóskast ég við að eiga ekki matarstell? Þetta er svo fínt. Haldið að væri ekki flott fyrir gestina að fá allt í stíl? Nei, mitt fólk þarf að þola svo margt. Ég á samt fimm grunna diska sem eru alveg eins. Fjölbreytileikinn ræður ríkjum í Himnaríki, þegar kemur að leirtaui. Spari, hversdags? Hver fann upp á þeirri vitleysu?
Ónei! Kjötið sem stóð upp úr öðrum kassanum var eitthvað grunsamlegt. Það uppfyllti mörg af skilyrðunum; var rúm tvö kíló, reykt, úrbeinað og frá SS en reyndist ekki vera hangikjöt þótt litlu munaði. Ég gargaði blíðlega niður stigann á sendlana sem héldu að þeir væru sloppnir ... Hei, vitlaust kjöt! Annar þeirra þaut upp aftur, tvær, þrjár tröppur í einu. Greip með sér hamborgarhrygginn sem leit ofboðslega vel út en ég býð ekki í gesti mína á jóladag ef þeir fá ekki hangikjöt með laufabrauðinu, uppstúfinu, grænu baununum og rauðkálinu ...
Tíu mínútum seinna kom þessi líka brjálæðislega fallegi hangikjötshnullungur ... Hafið þið vitað aðra eins þjónustu? Svona er að búa á Akranesi. Eins og ykkur hefur eflaust grunað, gerði ég mitt besta til að rugla stúlkuna sem tók við pöntuninni - ég lít á það sem skyldu mína að kenna fólki í þjónustustörfum þolinmæði, æðruleysi og láta ekki síblaðrandi kúnna trufla sig. Ég hef nú samt einu sinni grætt á því ... Fyrir fáeinum árum þegar ég bað um lyfseðil upp á pensílín en talaði svo mikið um landhelgismálið og hvernig upplifun það væri að sjá grasið gróa og málningu þorna að ég fékk róandi lyf í staðinn, kvefið batnaði vissulega fyrir rest en var samt auðveldasta og mest kósí kvef sem ég hef fengið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2021 | 18:28
Rósakálshöfnun og loks innri ró ...
Jólastreitan hefur ekki angrað húsfrúna í Himnaríki sem hefur bara unnið af kappi, haldið heimilinu í horfinu, setið fremur fámenna afmælisveislu um helgina og nánast bara dinglað sér. Vissulega pakkað inn öllum jólagjöfum og flutt langflestar þeirra til Reykjavíkur - eru það ekki gjafirnar sem skipta hvort eð er mestu máli um jól? Ég hugsa ekki einu sinni út í jólamatinn ... ef mat skyldi kalla ... Hilda tók vægast sagt mjög illa í að hafa rósakál með matnum, eða prump(u)kál, eins og næstelsti íbúi Himnaríkis kallar það. Bíði hún þar til ég legg til eitthvað sniðugt aftur. Í fína skemmtiferðaskipinu (jólin 2018) var stöðugt boðið upp á prumpkál og kvartaði hún þar? Nei. Hún er reyndar sú sem fékk alltaf harðsoðið egg benedict í morgunmat uppi á fimmtánda dekki svo kannski hefur hún fengið mánudagsbitana af rósakálinu. Eða kann ekki við afleiðingar átsins á því og mögulega sú eina (klárasta) af nokkur þúsund farþegum sem sá í gegnum stjórnendur skipsis sem otuðu því skipulega að okkur með hverri máltíð. Metan hvað ...
Við stráksi fórum með vinkonu minni út að borða upp úr hádegi í gær (sjá mynd). Höfnin heitir staðurinn sem varð fyrir valinu og við fengum the gluggaborð. Lítið að gera í hádeginu svo það var kósí hjá okkur og frábærlega góður matur. Dásamlegur félagsskapur, meira að segja gekk sjálfur borgarstjórinn fram hjá glugganum í miðri máltíð sem gerði upplifunina enn ánægjulegri. Minnti mig á morgunverðinn í New York 1993 þar sem ég smakkaði svokallaða beyglu í fyrsta sinn þegar Dustin Hoffman gekk fram hjá. Ég fékk mér plokkfisk, vinkonan hamborgara og stráksi steikarloku. Hjónin á næsta borði fengu sér líka plokkfisk (smekkfólk) og féllu gjörsamlega kylliflöt fyrir rúgbrauðinu með, skiljanlega. Ég skrifaði orðið RÚGBRAUÐ fyrir þau á miða og vonandi fundu þau nóg af rúgbrauði í verslunum í grennd. Ég kunni ekki við að mæla með rúgbrauðinu í Fiskbúð Akraness við þau sem er best, bara eins og allt hér.
Höfnin er í einu af grænbláu húsunum við höfnina og við hliðina, í sama húsinu, var áður Kaffi Haítí sem virðist hafa hætt starfsemi, því miður. Það var ótrúlega gaman að fara í bæinn, sjá hvað allt hefur breyst rosalega mikið, mér finnst hann orðinn fallegri. Vildi að ég hefði ekki verið á hraðferð, það var svo mikil stemning í miðbænum og ekki bara lundabúðir eins og var (f.c.). Hilda sótti mig niður á Hverfisgötu, við óttuðumst að allt væri lokað alls staðar til að dissa vesalings fólkið sem kýs að vera á bíl, eins og víða má sjá upphrópanir um á samfélagsmiðlum, en svo var nú bara alls ekki.
Þvílík brjálæðisleg heppni að ég var komin snemma fram úr í morgun, fyrir níu!!!, bjó um en þvottafjallið enn hátt og digurt, í körfum á gólfinu. Fyrra þvottafjall frágengið, ég er bara svo dugleg að gera ný og ný fjöll úr hreinum þvotti! En alla vega komu tveir karlar á krana (lyftubíl?) til mín á gluggann um ellefuleytið, án nokkurrar miskunnar, til að skipta um gler í besta útsýnisglugganum þar sem móða hafði hreiðrað um sig.
Ég kunni ekki við að segja þessum elskum réttu ástæðuna fyrir gluggaskiptunum, eða þá að mig hafði langað í rúm 15 ár að geta þrifið gluggakistuna hinum megin við glerið. Sem ég gat í dag, LOKSINS. Veðursældin hér við Faxaflóann er stundum að drepa mig. Hvað ég myndi gefa mikið fyrir rok og hreinsandi rigningu stöku sinnum í stað þess að fá smiði til að skipta út svokölluðu móðugleri ... Ég gæti þurft að bíða í 15 ár þar til mér tekst að þrífa gluggakistuna utan frá aftur. Þá hlýtur nú bara að vera búið að finna upp flugbílana sem ég hélt í gamla daga að yrði aðalfararskjóti okkar í síðasta lagi árið 2000.
Á myndinni sést þegar ég þríf ytri, óþrífanlegu utanfrá-gluggakistuna í algjöru ofboði á meðan smiðirnir sóttu nýja og fína glerið. Þeir tóku ekki eftir neinu - en ég náði innri ró í fyrsta skipti síðan snemma árs 2006 þegar ég leit grútskítuga gluggakistuna fyrst augum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.12.2021 | 18:39
Flenna, gála, sætbaka ... gott nafn óskast
Við fengum fínasta KFC-kjúkling í Grjótinu sem kokkurinn bandaríski (frá Kansas) eldaði svo lystilega, kartöflumúsin var líka æði. Þótt hann tali smávegis íslensku gat ég ekki stillt mig um að æfa mig í enskunni. Mig er farið að langa svo til Conway aftur, til Elfu og Toms, þau eru komin með nýjan hund sem trekkir ekkert smávegis. Kattakerling sjúk í hunda, væri sennilega nokkuð góð lýsing á mér. Fólk hér á Akranesi með hunda í bandi hleypur öskrandi yfir götuna til að þurfa ekki að mæta mér og leyfa mér að klappa og knúsa í korter. Þetta er ýkt en samt ekki. Stundum tekst mér að stilla mig en horfist þó alltaf í augu við hundinn og sendi honum ástríkt augnaráð. Sé að hundana langar alltaf rosalega til að kynnast mér og fá klapp.
Við þræddum búðirnar, alls staðar gleði, fjör og glamúr ... Það voru Nína, Hjá Dýrfinnu, Bjarg, @HOME, Kaja og Penninn í þetta sinn og nú held ég að veskið sé orðið galtómt en allar gjafir komnar. Mikið held ég að sumir græði á gleymsku* minni (*gáfumerki, viðutan prófessors-heilkennið). Fyrir rúmum mánuði keypti ég afmælisgjöf handa Hildu og nennti ekki að liggja á henni og afhenti henni hana, nennti ekki að bera með í strætó, geyma, kannski gleyma, svo aftur í bæinn ... og keypti óvart aðra í dag, frekar veglega því hún hefur oft fengið svo miklar druslugjafir frá mér í gegnum áratugina. Hún hefur bara gott af því að fá fleiri gjafir. Að eiga afmæli svona nálægt jólum hefur án efa kostað hana marga, marga sálfræðitíma. Nógu slæmt er að eiga afmæli í ágúst, þegar allir eru í útlöndum eða úti á landi í sumarleyfi - en fyrir jólin er það martröð. Einar, sonur minn, var alltaf voða sáttur við að vera fæddur í kringum páska, því hann fékk nokkrum sinnum páskaegg í afmælisgjöf - sem honum fannst ekki slæmt.
Í Bjargi fæst alltaf eitthvað hrikalega flott og fallegt, ekki bara á mig, heldur líka á drenginn, ég keypti aukajólagjöf handa honum, enn eina, sem við búðarkonan þurftum að laumupúkast með, hann beið samt úti eins og hlýðinn fóstursonur, fínt veður í dag. En allt þetta búðaráp tók svo á okkur að Kaffi Kaja var eins og vin í eyðimörkinni - kaffibolli og eitthvert fínirí fyrir mig sem vantar nafnið á. Sjá mynd - ég hef tekið betri myndir.
Karamelludýrð? Karamelludásemd? Sætbaka? Smábaka minnir um of á tvíböku ... Eitthvað sem heitir small tart á ensku en við Karen viljum endilega íslenskt nafn á þetta. Flenna, gála, lauslát kona, segir Snara um tart. Veit að Karen (Kaja) yrði meira en glöð ef einhver kæmi með gott nafn. SÆTBAKA fínt þangað til. Svo vandræðast hún líka með brownie, hló þegar ég sagði að brúnka minnti mig á belju, held að ein beljan í sveitinni hafi heitið það - en ég hef minni áhuga á brúnkunum hennar því það er möndlumjöl í þeim. Ekkert slíkt í sætbökunni. Svei mér þá, ef þetta nafn venst ekki bara.
Við Kaja slógumst ekki beint - í raun bara alls ekki - en ég hef haldið því fram að fólk hræðist ekki fréttir af covid ... alla vega þekki ég engan sem bíður með öndina í hálsinum eftir tölum dagsins til að fá svo hræðslukast, en hún segir að það hafi verið mun rólegra að gera um allt Akranes, hjá verslunum og í veitingageiranum, þegar smit voru mörg á Skaganum fyrir skömmu. Hér með ét ég þetta ofan í mig - tölur hræða mig kannski ekki - en ég er ekki ein í heiminum. Mjög fá smit, ef nokkur, hjá okkur núna og alveg nóg að gera alls staðar, fannst mér í dag. Allir eitthvað svo glaðir og elskulegir þrátt fyrir álagið nú fyrir jól. Mæli með að gera eins og við Hilda í gamla daga, áður en ég flutti aftur á Skagann, að verja góðum degi hér fyrir jólin, kaupa gjafir, jafnvel jólaföt (sokka til að fara ekki í jólaköttinn) og fá okkur gott í gogginn á æskuslóðunum. Það verður enginn svikinn af því að koma hingað.
Við drengurinn stefnum á bæjarferð um helgina með gjöfina til Hildu og nokkrar jólagjafir, margir koma til Hildu með pakka og fá pakka á næstu dögum - sem ég get nýtt mér með mínar gjafir. Við eigum mikið til sömu ættingja ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2021 | 22:37
Stríðið sem bara harðnar og ... afsakið, bold
Það er kominn svo mikill tryllingur í umræðuna og stundum er hreinlega erfitt að kíkja á feisbúkk þar sem hinu ágætasta fólki (læknum, vísindafólki) er líkt við fjöldamorðingja. Umræðan er komin þangað. Við hverja einustu frétt sem tengist kórónuveirunni kemur nú fjöldi athugasemda (skipulagt?) um meinta skaðsemi bólusetninga - pent orðað. Mér skilst að bólusetningum fyrri tíma hafi einnig verið mótmælt og gott ef ekki var einnig talað um tilraunir.
Það er að verða hæpið hjá meirihlutanum (bólusettum) að láta nægja að glotta bara og hrista hausinn yfir minnihlutanum (óbólusettum, ekki samt öllum). Það þarf að svara, lið fyrir lið, hrekja það sem er rugl og útskýra það sem er satt. En sennilega tekst ekki að snúa neinum. Samt gott að leiðrétta það sem rangt er ... ef einhver sannleikur er í einhverju, þá drukknar hann í öllu bullinu sem flýtur með. Eins og bullið um að bólusettir megi ekki gefa blóð.
MYND: Skjáskot af einu frekar meinlausu kommenti um Þórólf sóttvarnalækni, undir frétt RÚV af einhverju bólusetningatengdu. Ógn við mannlíf í landinu? Ætli það. Efra kommentið er um friðargöngu og er deilt (skipulega?) út um allt á Facebook núna, og ég spyr: Af hverju er mótmælaganga gegn bólusetningum barna kölluð FRIÐARGANGA? Er ekki verið að ræna nafninu af friðarsinnum sem hafa gengið fyrir friði undir þessu nafni á Þorláksmessu árum saman? Til að fá fleiri í gönguna?
Er ekki hægt að setja algengar staðhæfingar beggja stríðsaðila í eins konar spurt & svarað á aðgengilega síðu? Fjölmiðils eða sóttvarnayfirvalda?
Alvörurök, hlekkir og fleira? Það má ekki vanmeta þetta stríð sem er því miður farið að kljúfa vinahópa og fjölskyldur - og rangar upplýsingar, hvaðan sem þær koma, geta verið hættulegar. Ef ég væri betri í ensku, t.d. menntaður líffræðingur og ekki í 180% vinnu myndi ég gera eitthvað - en kannski ekki breyta eigin bloggsíðu (afsakið, fjölmiðli) í áróður, ekki þegar ég er byrjuð að horfa á boldið aftur.
Svo eru það þau sem mótmæla þessum hræðsluáróðri ... því að tyggja tölur ofan í fólk alla daga sem geri það ofsahrætt (og séu notaðar til að hefta frelsi fólks). Ég mótmæli harðlega, þekki engan sem óttast að heyra smittölur dagsins, ekki síðan í fyrra alla vega þegar við vissum nánast ekkert um veiruna. Fólk kinkar kolli, það sem nennir að hlusta á fréttir, og heldur svo áfram að panta miða á sína tónleika, fara út að borða, kaupa jólagjafir og slíkt, og jú, grímur, spritt, hraðpróf og bara það sem fylgir því að halda áfram sem eðlilegustu lífi. Við höfum verið ótrúlega frjáls á Íslandi miðað við mörg önnur lönd.
En hva, annað og mun meira spennandi; svo virðist sem Hope (dóttir Brooke) sé búin að endurheimta dóttur sína sem hún hélt að hefði fæðst andvana en Steffí (dóttur Ridge) ættleiddi (til að fá leikfélaga fyrir dóttur sína) án þess að vita móðernið, Steffí hefur lengi verið keppinautur Hope um ástir Liams ... sem er faðir beggja stúlknanna, þá eldri á hann með Steffí og yngri með Hope, sem hann er með núna. Löng saga.
Mynd f.v.: Hope, Liam, Steffí.
Ridge á líka soninn Tómas sem elskar Hope af mikilli þráhyggju, það hefur eitthvað mikið gengið á mánuðina þegar ég horfði á eldgos í sjónvarpinu alla daga, en Tómas er farinn að daðra við Zoe (sem er, held ég, dóttir læknisins og spilafíkilsins blanka sem rændi barninu af Hope og seldi Taylor, mömmu Steffíar, hún vildi að barnið sem Liam og Steffí eiga saman eignaðist leikfélaga ... hafði ekki heyrt um bangsa eða hreinlega hvolp. Ridge reif skilnaðarpappírana í þætti dagsins og sagði Brooke að hann elskaði hana of mikið ... hann þoldi víst ekki hversu illa Brooke talaði um Tómas, son hans, þegar hann hræddi greinilega líftóruna úr Hope, dóttur Brooke, með ástreitni. Nú sé ég eftir að hafa hætt öskrandi að horfa á þessa þætti. Mér fannst dregið um of á langinn að Hope fengi barn sitt aftur þegar fleiri en þrír (þjóð veit þá þrír vita) vissu af samsærinu um að ræna af henni barninu. Hvernig getur hún allt í einu deilt forræði lítils drengs (ekki sonar hennar hennar) með fyrrnefndum Tómasi, allt í einu klikkhaus og eltihrelli, sem hún treystir ekki (og er að nota Zoe til að róa alla í kring). Nú er eiginlega spurning um að skreppa austur á firði og múta Svölu til að segja mér hvað hefur eiginlega gerst. Svo er komin einhver ný kona, alveg bjáluð í Ridge, og vill eyðileggja hjónaband hans og Brooke, veit sennilega ekki af rifnu skilnaðarpappírunum, og sú kona er góð vinkona Tómasar sem viðurkenndi fyrir henni að hann ætlaði sér Hope, hann geti beðið ... múahaha
Úff, ég skildi ekki helminginn af þessu sjálf. En ég er sennilega fallin. Og bíð spennt eftir því að dæturnar sem Liam á með Hope og Steffí verði gjafvaxta, það gerist hratt í boldinu, og fari að bítast um einhvern sjarmörinn.
Á morgun kaupi ég restina af jólagjöfunum og afmælisgjöf handa Hildu sem verður 39+ á laugardaginn. Fyrst ætlum við stráksi að fara á Grjótið og fá okkur hádegismat, hálfgerðan KFC-kjúkling ... með kartöflumús.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.12.2021 | 13:58
Jólametnaður og vafi um tilveru prinsessu
Nú er hreinlega að verða jólafínt í Himnaríki. Ég skellti bara rúmteppunum í stofunni ofan á hreina þvottinn í körfunum, eina óyfirstíganlega verkið, breiddi þau smekklega yfir svo þetta er orðið eins og hús fyrir kettina. Skelli svo seríu á. Ég á mjög ráðagóða fb-vini.
Annars gengur allt mjög vel og metnaður í hámarki nú fyrir jólin. Ég bakaði piparkökur í gær og skreytti í alla nótt, ákvað að hafa tónlistarþema og Mía systir var orðin alveg rosalega fúl, svo hætti hún bara að svara í símann. Hún er tónlistarkennari með meiru, en hvernig gat ég skapað Jólaóratóríu Bachs á piparkökunum án aðstoðar hennar? Hún getur bara sofið í jólafríinu. Við enduðum á að hafa Píanókonsert nr. 1 eftir Tchaíkovskí. Líka kröftugt en ég tók bara píanónóturnar.
Indæl kona, hélt ég, garðyrkjufræðingur, skellti bara á mig þegar ég ætlaði að leita ráða hjá henni! Ég var einlæg en glettin og sagði: Ég hata garðyrkju, er sem sagt ungbarnssál þótt ég hafi fæðst á Íslandi, hehehe, en þarf nauðsynlega að skreyta piparkökur nú í nótt, hvaða blóm passa best með nótum, hverju mælir þú me- Di, di, di, di. Ég mun ALDREI líta þessa konu réttu auga eftir þetta, slekk reyndar alltaf öskrandi á sjónvarpinu þegar þátturinn hennar hefst, hélt að það væri vegna þess að hún hefur Ý í gælunafni sínu! En nei, ég hef bara fundið á mér illskuna hið innra.
Ég stórefast samt um að ég leyfi nokkrum að borða fíniríið. Ekki nema Guðni forseti komi í heimsókn sem eru talsvert litlar líkur á. Það næsta sem ég hef komist honum er að vera í sama tímariti í viðtali, hvort með sinn köttinn sem báðir fengu enga óskabyrjun í lífinu. Keli minn af Kattholti, naumlega bjargað úr poka í holu í Heiðmörk í desember fyrir 11 árum. Þótt köttur forsetans fái kannski þríréttað, rækjur og rjóma, kavíar og kampavínsblandað vatn og búi á sjálfum Bessastöðum, er minn líka með þetta fína, fína sjávarútsýni - og ég er iðulega heima til að klappa honum, þeytist ekki um allt í opinberum heimsóknum, eða móttökum þar sem kattahár á fatnaði eru bönnuð. En forsetinn er auðvitað velkominn. Ég myndi samt segja: Viltu nokkuð piparkökur ... sem tók mig fjórtán klukkutíma að skreyta án atrennu? Grátklökk röddin. Ef hann þiggur samt, mun ég einfaldlega kjósa Ástþór næst.
Myndin átakanlega sýnir hvað gekk á hjá kisunum í morgun - gæti tengst loftfimleikum Kela ... eða Krumma ... eða Mosa.
Eitt truflar mig alveg rosalega. Af hverju fáum við ekki að sjá litla barnið þeirra Harrys prins og Meghan Markle, meint yngra barn, stúlkuna? Var kannski ekkert barn? Bara þykjustuólétta til að reyna að draga úr árásum Piers Morgan á þau?
Urðu þau fyrir vonbrigðum með útlitið á henni? Er hún þybbin og með gleraugu, sem sagt með þá útlitsgalla á fólki sem Hollywood kálar iðulega fyrst í bíómyndum.
Mér datt þetta í hug þegar kom í fréttum að undankeppni Eurovision verði í kvikmyndaveri í Gufunesi á næsta ári. Miðað við það og allar tæknibrellur kvikmyndanna og að við gætum allt eins sent Frank Sinatra út fyrir okkur að syngja í aðalkeppninni, væri vel hægt að feika tilveru heillar prinsessu. Tekur kannski öll hirðin þátt í þessu? Er verið að draga athygli okkar frá einhverju? Andrés er reyndar kominn í skammarkrókinn og mjög langt er liðið frá hneykslinu sem Sophie olli, sem er gift Játvarði, og Karls og Kamillu-hneykslinu. Kannski er Piers Morgan bara að hjálpa bresku konungsfjölskyldunni og Harry ákvað að fórna sér. Þetta meikar sens.
Það er allt hægt að falsa nú til dags! Ja, ekki kannski alveg allt. Ég ætlaði að vera svolítið umhverfisvæn og sparsöm og búa til hluta af jólagjöf til drengsins, nammið sem hann elskar mest, eða gera nokkur heimatilbúin Kinder-egg. Það heppnaðist ekki vel og var ekki einu sinni gott á bragðið. Don´t try this at home.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2021 | 23:14
Þegar dekur var skammaryrði og aðventan dauf
Draslið heima hjá mér er kannski ekki yfirgengilegt en ... tvö rúmteppi í lokaþurrkun ofan á tungusófanum í stofunni, borðstofuborðið ónothæft því það er jólagjafapökkunarstöð. Það vantar þó enn nokkrar gjafir áður en hægt verður að fullpakka inn. Það allra, allra versta; þrjár körfur kúffullar af þvotti! Af hverju fór ég ekki í húsmæðraskóla?
Ekki eitt jólaskraut komið upp. Of margar bækur - of lítill tími? Neits, auðvitað ekki. Ég les bara þegar ég er komin upp í rúm og þótt ég fari stundum nokkuð snemma upp í til að lesa, jafnvel fljótlega eftir kvöldmat finnst mér ég ekki vera að svíkjast um. Jafnvel þótt ég lesi kannski í fimm tíma og kíki líka á snapp og insta, er samviskan hrein af því að ég les bara fyrir svefninn. Hilda systir hefur aldrei sagt að drjúg séu kvöldverkin og það hvetur mig til að fara snemma upp í. Gæti ég kannski brotið saman þvott á kvöldin? Ja, mér finnst eiginlega betra að gera það í dagsbirtu upp á svörtu sokkana sem allir eru eins í fremur dimmu og rómantísku svefnherbergi mínu, en í dagsbirtu er ég svolítið föst í tölvunni við vinnu. En að vakna bara fyrr á morgnana. Latríður mín? Já, en þá get ég ekki lesið nema í örfáa klukkutíma! Elsta kona landsins drekkur ekki vín (eins og ég eftir að Vínbúðin flutti enn fjær) og les einhver ósköp og segir það halda sér síungri (gamalli). Ég stefni hér með á að verða langelsti bloggari landsins, uppfylli skilyrðin.
En mögulega er kominn tími til að trekkja Storytel í gang - hlusta og gleyma sér við unaðinn sem fylgir því að brjóta saman þvott á sjálfstýringu og ganga frá honum inn í skápa. Þegar ég var síðast í sambærilegri þvottaneyð byrjaði ég á fyndinni glæpasögu - en veit samt ekki hvort ég nenni að klára hana. Of langt síðan og eiginkonan í sögunni var allt of blóðþyrst.
Vonast eftir meira jólaskapi. Trúi ekki að það einskorðist við væmnar jólamyndir ... Nú væri gott að fá Fasta, orkugefandi hollustuberjadrykkinn sem fékkst eiginlega hvergi og hætt var að framleiða af því að hann seldist svo illa. Ég sakna hans daglega.
Þetta er samt bara win-win ef ég hugsa til fólksins í gamla daga sem gerði ALLT á Þorláksmessu. Skipti á rúmum (1 x á ári), þvoði rúmfötin og þurrkaði, viðraði, eldaði, baðaði sig, dró ullarsokkana af vinnumönnunum, hengdi upp kjöt og margt fleira. Mamma t.d. skreytti jólatréð og stofuna eftir að við vorum sofnuð á Þorláksmessu, pabbi þá að hitta mennina, og kl. 18 daginn eftir var stofan opnuð og við gengum inn í jólin. Aðventan var ansi mikið rólegri - og ekkert við að vera nema stjarna uppi á þaki á einu viðhengi Sementsverksmiðunnar. Litlu jól í skólanum, einhver bakstur, tiltekt af svo miklum myndarskap að þakrennurnar voru pússaðar. Ég frétti af fjölskylduföður þessa tíma sem setti nýjar fúgur árlega fyrir jól á milli flísanna á baðinu.
Ég var orðin gift kona með barn þegar ég reyndi að klára allt FYRIR aðfangadag til að við hjónin, 20+, gætum horft á barnaefnið í sjónvarpinu. Svona hafði maður nú verið illilega sveltur á barnsaldri, allt var svo bannað, að til að vinna þetta allt upp varð ég að horfa á barnaefni alla aðfangadaga til 28 ára aldurs, þá löngu fráskilin (hvaða maður þolir slíkt?). Inn á milli las ég Andrésblöð á íslensku, líka til að vinna upp svekkelsið af þeim dönsku sem var rétt að okkur án orðabókar. Gott að grípa samt til mömmu sem hafði lært sína hjúkrun á dönsku.
Það var hræðilegt að vera uppi á þessum tíma. Orðið dekur var þá mikið skammaryrði, nú fær fólk það í jólagjöf í ýmsu formi.
Einn Facebook-vinur minn, samt ágætur, tekur saman ýmsar þýðingarvillur en líka keðjustatusa eins og fund milli brauðs sem ég hreinlega skil ekki hvað þýðir. Ég ætti kannski að senda honum hjartnæmu myndirnar sem ég hef safnað (tekið skjáskot af) og textinn er iðulega: Ég er of fatlaður / veikur / fátækur /dauðvona / með risastórt utanáliggjandi æxli (mynd) / ljót/ur ... til að nokkur setji læk á þessa mynd eða deili henni, eða skrifi amen og Facebook sendi þá viðkomandi einn dollara. Ég sé alveg fyrir mér illkvittna skólastráka leita að afar sorglegri ljósmynd og búa til átakanlegan bulltexta og flissa svo yfir allri dreifingunni sem myndin fær hjá góðviljuðu fólki. Alltaf einhverjir sem falla fyrir þessu, deila þessu svo við höldum ekki að viðkomandi hafi eitthvað á móti veiku fólki, ljótu eða dauðvona, og deila svo líka árlegum jólasögum af litla stráknum /stelpunni sem á ekki nóg fyrir blómum á gröf mömmu eða dúkku til að setja í kistu litlu systur í kistulagningunni og einhver gefur honum tvo skildinga án þess að vita alla sorgina sem býr að baki ... Sennilega er ég siðblind fyrst hjarta mitt er svona grjóthart gagnvart þessu. Hvað er að fólki sem býr þetta til?
Ég er samt algjör aumingi og grenjuskjóða, tárast iðulega yfir einhverju, allt of mörgu, finnst mér; fallegri tónlist, týndum köttum, dánum gæludýrum og þaðan af verra, en svona bullsögur þoli ég ekki.
Inga vinkona hló að mér í dag þegar ég sagði henni frá spælingu vikunnar. Þegar mig hafði verið að dreyma æsispennandi draum, leigumorðingi á hælunum á okkur nokkrum og við stefndum á að fara út í Flatey á Skjálfanda, fæðingarstað pabba, til að heyja lokaorrustu við morðingjann. Þá heyrðist hávært BLING! í símanum og ég vaknaði. Einhver að senda þumal í eldgosa- og jarðskjálftahópnum mínum (kl. 8.23) við eitthvað sem einhver skrifaði þar kvöldinu áður. Ekki séns að geta sofnað aftur og haldið áfram spennandi flóttanum en ég reyndi samt, mjög fast. Ég tími ekki að slökkva á símanum yfir nóttina og mér er bara nær að vera í skemmtilegum hópi með bæði A- og B-fólki, allavega einni AB. Þess virði að vakna, ég reyni bara að hafa draumana dauflegri í framtíðinni.
Að lokum: Óþolandi að ungar keppniskonur í blaki VERÐI að vera í bikiníi til að teljast löglegar á íþróttamótum. En hvað með karlkynsballettdansara, ÞURFA þeir að vera í svona þröngum buxum? Hafa strákarnir aldrei mótmælt þessari opinberun? Ég er ekki viss um að þeir fengju að synda í svona fatnaði í sundlauginni á Akranesi, hvað þá mæta svona í Einarsbúð. Ekki kveikja á sjónvarpinu núna. RÚV þó!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.12.2021 | 17:15
Leyniupptökur og leitin að rétta veitingastaðnum
Þá er það komið á hreint. Strætó gengur hvorki á jóladag né nýársdag þannig að ég er háð góðsemi elsku góða fólksins míns sem lítur svo vel út alltaf hreint ... báða þessa daga til að komast heim til kisanna - eftir að hafa haldið jól og áramót með ástvinum. Til að fá örugglega alltaf far á jóladag held ég hangikjötsboð með laufabrauði og allt í Himnaríki en þarf kannski, ef ég verð mjög dónaleg við alla, að fara heim á puttanum fyrsta jan. Nema mér detti í hug að vera með boð þá líka ... Takk, Strætó. Ég legg ekki á Kela, Krumma og Mosa að vera lengi eina heima svo vinkona mín kíkir á þá nokkrum sinnum, kveikir á sjónvarpinu á gamlárskvöld og stillir frekar hátt - þannig hefur það verið árum saman og þeir kippa sér ekki mikið upp við flugelda lengur. Þeir geta látið fara vel um sig í flestum kringumstæðum, sbr. myndina hér að ofan.
Vinur minn hér á Akranesi komst yfir merkilega upptöku af fundi hjá fyrirtæki nokkru fyrr á þessu ári. Til að vernda vin minn verður nafni fyrirtækisins haldið algjörlega leyndu.
Fundarstjóri: Fundur er settur. Nokkur mál eru á dagskrá, en fáið ykkur endilega snittur og kampavín, ég er með fólk til að keyra fínu dýru jeppana ykkar heim og ykkur með, svo engar áhyggjurm, það er líka 200 ára gamalt koníak hérna og vodki fyrir þau allra hörðustu. Gefum framkvæmdastjóra orðið.
Frkvstjóri: Já, velkomin á þennan svaka mikilvæga fund. Við þurfum að taka samtalið um m.a. upplýsingaskyldu til þessa vanþakkláta lýðs sem við reynum að þjónusta sjúklega vel miðað við fjármagnið sem við kjósum að veita í það. Ég sé varla fram á að geta ráðið tvo aðila í fullt starf í skemmtinefnd skrifstofunnar þótt brjáluð vinna bíði nú þegar í t.d. undanfara jólanna, páskanna, bolludagsins, sumarsins, haustsins, hrekkjavökunnar og þakkargjörðar-þarna. Nema við finnum leiðir til að spara meira. Ég fagna öllum tillögum.
(F=fundarpersóna)
F1: En að ráða útlendinga í miðasöluna í Mjódd, þeir eru svo þakklátir fyrir að fá vinnu og hægt að svína á þeim. Það kunna allir hér á landi ensku svo við þurfum ekki að senda þá á íslenskunámskeið sem er alveg 40 kúlur á mann. Eða hætta með Mjódd bara? Nei, grín, en nógu fjandi dýrt ...
F2: Við gætum líka fækkað skýlum svo fleiri kaupi sér bíl?
F1: Held að það sé ekki séns, þau eru þegar orðin of fá, að mati Heilbrigðiseftirlitsins sem segir kvef-, æ, diffar ekki.
F3: Færum tapað-fundið hingað í Hestháls þangað sem enginn kemst nema fuglinn fljúgandi eða á bíl. Gætum auglýst hlutina sem fólk týndi á uuu ... er ircið hætt? Ahh, nei, ég er með það, á Pinterest, þar sem eru bara handavinnukerlingar og fávitarnir vita varla hvað það er! Við gætum svo selt það dýrmætasta og ferðasjóðurinn verður digur á skömmum tíma. Segjum samt að allt fari í Rauða krossinn eða eitthvað.
Fundarfólk skellir upp úr. Nokkrir klappa saman lófum.
F2: Er þá ekki sama snilldin að senda fregnir af t.d. ófærð, niðurfellingu ferða og breytingum þangað? Nei, annars, það væri ógeðslega fyndið að setja slíkar tilkynningar á Twitter, þar sem hjólapakkið keppist við að segja brandara í einni stuttri setningu. Gísli Marteinn er kannski sá eini sem gæti notfært sér þetta, hann hefur tekið strætó nokkrum sinnum. Við höldum bara annan fund og ákveðum viðbrögð ef hann fer að deila einhverju nytsamlegu þaðan á Facebook hjá sér.
Hlátrasköllin taka sig upp aftur og óma í góða stund en síðan segir fundarstjóri: Fleiri tillögur?
F4: Þarf fólk ekki að geta fengið nótu á kennitölu þarna í Mjóddinni? Ég hef heyrt kvartað yfir því.
F1: Nei, Ferlaugur minn, þetta er þannig fólk að það er óþarfi, svona lúserar vita ekki hvað bókhald er.
Ný hlátursroka, nú í fimm mínútur. Ein konan treður gullfallegum Fendi-trefli sínum upp í sig til að reyna að stöðva hláturinn, en demantsskreytt og loðfóðruð gríman er löngu sprungin af öllu flissfrussinu. Þetta eru skemmtilegustu fundir sem hún veit. Hvernig hún komst í stjórnina er kapítuli út af fyrir sig, en sú ljóta leið var bæði blóði drifin og þyrnum stráð.
Frkvstjóri: Jæja, allt samþykkt, takk fyrir að nenna að mæta, skál! Fáið ykkur endilega meira. Nóg til.
Þetta er það helsta, ég heyrði ekki allt fyrir glasaglamri. Þetta með Pinterest, Twitter og að fá ekki nótu á kennitölu er satt, sennilega allt bara. En ég gef ekki upp hvert fyrirtækið er þótt þið pyntið mig.
-------
Okkur stráksa er boðið út að borða um næstu helgi. Ég var búin að segja frá því að ég byggist við að hann veldi KFC ef hann fengi að ráða, þannig að þetta er í mínum höndum. Mér dettur nákvæmlega ekkert í hug nema Hótel Holt og BSÍ ...
Eitthvað þar á milli hentar vel ... en 15 ára fjarvera mín frá borginni hefur haft þau óvæntu og fúlu áhrif að ég veit ekki lengur hvaða staðir þykja góðir. Er Grillið ekki hætt, og Argentína? Sennilega bið ég vinkonu mína um að velja - og helst stað sem við höfum ekki farið á áður. Eins gott að veðurfræðingar haldi sig á mottunni og spái svokölluðu góðu veðri svo elsku strætó fari á milli. Hviður á Kjalarnesi eru ekki bestu vinkonur mínar þegar ég stefni á að gera eitthvað í bænum. Langtímaspáin norska yr.no segir að það verði fínasta strætóveður. Meira að segja hlýindi og engin hálka sem er það besta. Ég sé stundum eftir því að hafa hætt með veðurfræðingnum áður en við byrjuðum saman.
Myndin hér að ofan er af tveimur þekktum erlendum læknum sem meira að segja ég kannast við, dr. Drake Ramoray og Dr. Derek Shepherd sem hittust þarna í fyrsta sinn. Myndin tengist færslunni óbeint.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 30
- Sl. sólarhring: 54
- Sl. viku: 792
- Frá upphafi: 1528700
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 640
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 22
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni