Færsluflokkur: Bloggar

Bitur reynsla brjóstgóðra og óvænt sálnaflakk á Suðurlandi

FerðalagiðFerðalagið okkar vinkvenna í dag var ótrúlega skemmtilegt þrátt fyrir mögulega hættulega kónguló, kurteislegar móðganir og eitt stykki erindisleysu. Við gerðum allt til að forðast Hveragerði, mætti halda það, ... engin meining að baki þó. Fórum Þrengslin og komum þannig Selfossi gjörsamlega á óvart þegar við mættum skyndilega inn í miðjan bæinn. Við byrjuðum á því að kíkja á markað ... úti í garði í rigningunni ... Tryggvagarði. Keypti þennan fína handáburð frá Eistlandi en veðrið var sannarlega ekki sniðugt fyrir útimarkað. Steikjandi sól og geitungar svo sem ekki heldur. Kýs frekar rigningu og svala en er pottþétt ein um það.

 

Aðalspenningurinn var nú samt að sýna vinkonu minni flottu handverksbúðina á milli apóteks og KFC, þarna á aðalgötunni, þar sem ég keypti Ferfuglinn minn fyrir nokkrum vikum, og hálsmenið með fleygri setningu úr Andrésblaði. Ætlunin var að kaupa nokkrar jólagjafir jafnvel ... En nei, það var lokað, fulltrúar búðarinnar víst í tjaldi í Tryggvagarði, sem við vorum nýkomnar úr. Sá enga fugla (úr eggjabökkum) neins staðar þar - við ákváðum að drekkja sorgum okkar í fiski dagsins á Kaffi krús. Þar ríkti sannarlega ekki túristaverðið ... eiginlega var of vel útilátið fyrir manneskju sem er með minna magamál eftir að stráksi flutti út. Ég misskildi bendingu (hefnd?) og hljóp niður til að pissa þar en óttasleginn kokkur lokaði öllum pottum á ljóshraða ... mér var nær að hafa sagt, góðlátlega samt í afgreiðslunni, að það ætti ekki að vera fimm sentimetra mjólkurfroða ofan á latte, bara aldrei ... Að öðru leyti var allt fullkomið á kaffi krús. Snyrtingin reyndist vera uppi á lofti.

 

Við heimsóttum líka uppáhaldsbúð vinkonunnar sem er fatabúð, heimilisbúð og íþróttafatabúð í splunkunýja miðbænum ... með langsamlega hreinlegustu snyrtingu sem ég hef séð á ferðum mínum um landið og útlönd líka. Sumir míga í saltan sjó, ég pissa þar sem ég get (ekki úti samt), enda með frekar lélega samkvæmisblöðru. Við kíktum líka í aðra búð þar sem mikið úrval var af fallegum peysum. Ég bað um að fá að máta tvær eða þrjár og fékk nokkrar á herðatré í réttri stærð, að mati afgreiðslukonunnar ... og var reyndar alls ekki mín stærð, heldur ansi víðar og óklæðilegar á mér. Brjóstgóðar konur lenda víst nokkuð oft í þessu, að vera álitnar miklu meiri feitabollur en þær eru ... sumar eru ekki einu sinni bollur. Ég fékk rétta stærð og var svo hrifin af sjálfri mér í réttu stærðinni að ég festi kaup á einni peysunni ... þær eru ansi hreint að verða sjúskaðar sumar mínar, svo gamlar að elstu menn muna ekki annað eins, mál til komið að gefa þær í einangrun húsa úti í heimi ... eða sneiða þær niður í ábreiður og gefa fátækum* ... (*stolið frá Auði Haralds). Konan indæla sagði þegar hún mætti með réttu stærðina: -Uss, maður á aldrei að klæða yfir sig. Veit ekki almennilega hvað það þýðir en er samt alveg sammála henni. Nú er ég orðin ögn minna móðguð út í konuna hjá Krabbameinsfélaginu (Rvík) um árið, þegar ég fór í brjóstaskimun og hún benti mér á "gult tjald" til að vefja utan um mig: „Taktu gulan slopp,“ sagði hún frekar góðlega. Sá guli komst alla vega tvisvar utan um mig og samkvæmt litakóða félagsins var gulur ansi mikið stærri en sá sem passaði mér. Svo voru skriflegar leiðbeiningar inni í sloppaklefanum, á íslensku, ensku og pólsku, svo ég skil ekki enn þessi óþörfu og móðgandi afskipti. Ég mundi líka eftir konunni í Lífstykkjabúðinni (aðrir eigendur þá) sem reyndi að selja mér brjóstahaldara, svona tvíburahúfu á alla vega fertuga stórgerða og svíradigra menn.

Ég úr klefanum: „Er eðlilegt að koma krepptum hnefa með í skálina, jafnvel tveimur hnefum?“ (Get verið kvikindisleg þegar mér misbýður). Konan, enn móðgaðri: „Konur bara kunna ekki að velja sér haldara í réttri stærð ...“ Ég endaði reyndar með einn í minni réttu stærð og steig ekki fæti inn fyrir dyr á búðinni fyrr en dásamleg Skagakona hafði eignast hana, sú hreinlega kann ekki að móðga kúnnana. En nóg af beiskjublöndnum minningum sem rifjuðust upp í dag ...

 

Rokk fyrir okkur Mosa... næsti viðkomustaður var Sólheimar í Grímsnesi. Alltaf gaman að koma þangað og ekki skemmir gott kaffi fyrir. Það var fullt út úr dyrum en vinkona mín mundi eftir að hafa séð að það væru alltaf tónleikar þarna á laugardögum. Eftir ítarlegt gúgl sáum við að Björn Thoroddsen gítarleikari var tónlistargaur dagsins.

„Ég held að hann hafi gert samning við Satan,“ sagði ég samsærislega við vinkonu mína.

„Bíddu nú við,“ sagði hún hissa.

„Ja, það eða hann geymir málverk af sér uppi á háalofti sem eldist á meðan hann er alltaf sami strákurinn.“

„Aha, Dorian Gray,“ sagði vinkonan alveg sammála.

 

Við kíktum á listaverkasýninguna í hægri hluta hússins á meðan við sendum vöffluétandi gestunum hugskeyti um að drífa sig nú ... sem tókst fyrir rest. Vöfflurnar voru búnar svo við sættum okkur við perutertusneið (með ljósum botni, sem er þúsund sinnum betri en brúnn botn). Ég sat þarna glöð, umkringd hressu fólki, ýmist með hunda eða börn. Ég get varla gert upp á milli krúttlegheitanna. Guðrún vinkona horfði stundum yfir öxlina á mér, ekki á stressandi máta, sem varð til þess að ég hélt kúlinu þegar hún fór að tala um mjög stóra kónguló fyrir aftan mig ...

Nú loksins trúi ég á sálna- og líkamsflakk, allt í einu, eins og ég hefði teleportað mig, var ég komin að útidyrunum. Vinkonan starði, þögn skall á, hundur ýlfraði, tunglið kom fram úr skýjunum. 

„Ég bíð úti,“ sagði ég stillilega.

„Já, en kóngulóin er langt frá-“

„Hvaða andskotans kónguló? Það er bara allt of heitt hérna inni,“ sagði ég ákveðinni röddu og gekk út í sumarið 2024 sem lét ekki að sér hæða nú í júlí frekar en í júní. Úlpan mín inni í bíl en hjartslátturinn sá til þess að mér var ekki kalt.

 

 

Móðir mín hefði í mínum sporum ekki komið framar í þetta póstnúmer (805), varla í þennan landshluta, svo mikil var kóngulóarhræðsla hennar - sem ég ólst upp við en læt auðvitað ekki trufla líf mitt. Ég stóð sallaróleg fyrir utan húsið - í ekkert svo mikilli rigningu.

 

Þarna um fimmleytið vorum við búnar að njóta alls sem Suðurland hafði upp á að bjóða og okkur langaði að sjá, og mál til komið að halda heim. Vinkona mín lifir þvílíkt á brúninni ... datt ekki í hug að fara fram hjá Hveragerði, frekar en í hádeginu, og beygði út á ansi ótroðnar slóðir*, eitthvað Grafnings, m.a. fram hjá Þingvallavatni, virkjun (Búrfells?), og einhvern veginn komumst við inn í Mosfellsdal, beygðum til hægri og svo beinustu leið á Skagann. Ég var komin heim einum og hálfum klukkutíma ÁÐUR en strætóinn minn fór frá Mjódd. Guðrún hefur mögulega mætt honum á leið sinni heim í Kópavoginn.

* Tek fram að ég hef lítið ferðast í gegnum tíðina, mamma alltaf bíllaus, svo tók ég við með bílleysið. Ólst ekki upp við sunnudagsbíltúra, eins og svo margir vinir mínir. Kom til Þingvalla í fyrsta sinn á þrítugsafmælinu fyrir nokkrum árum.

 

- - - - - - - - - 

Efri myndin er þrjár myndir, samansettar, ein sýnir stórskemmtilegar forsetamyndir af listaverkasýningunni á Sólheimum, önnur hvað það getur verið erfitt í strætó þegar kemur óvænt djarft atriði í spennubókinni sem er verið að hlusta á ... sú þriðja sýnir fína og góða matinn (steinbíturinn var sérstaklega góður) á Kaffi krús.

- - - - - - - - -

Neðri myndin er af okkur Mosa ... ég í tölvunni, hann að horfa á sjónvarpið, við bæði að njóta þess í tætlur að hlusta á Gildruna ... takk, Bræðslan, takk, RÚV.     


Heimsendir í afmælisgjöf og besta lykt í heimi

Græna slímiðÞónokkrar bloggskammir hafa dunið á mér síðustu daga og samt er ég nánast sárasaklaus. Ekki í síðasta, heldur þarsíðasta bloggi birti ég lista yfir lélegar bíómyndir (að mati ýmissa útlendinga) þar sem rökstuðningur fylgdi - og voru alls ekki mín orð. 

Ein frænkan: „Eins og þú ert nú smekkleg, kæra fagra frænka, þá er ég þér svo innilega ósammála varðandi The Piano og The Room,“ hún var með grátstafinn í kverkunum. 

Einn frændinn: „Svona stórgreind kona eins og þú, ég dýrkaði Natural Born Killers, sem og flestir, hvað er að þér?“

 

Nokkrir á fb hjá mér höfðu skoðun á bíómyndum svo hér eru alíslenskar skoðanir líka:

 

Green Slime. Hún var svo slæm að það var fyndið.“

 

„Eina myndin sem  ég hef gengið út af er Síðasti tangó í París, það var þegar Marlon Brando teygði sig í smjörstykkið og ...“

 

Eat pray sleepEat, Pray, Sleep er ein allra versta mynd sem ég hef séð. Jesús minn ... ég gekk reyndar ekki út, en hjálpi mér hvað mér leiddist hún.“ 

Komment: Afsakið á meðan ég æli.

Svar við kommenti: Akkúrat þannig. Ég hefði gengið út en ég var með hópi samstarfsmanna. 

Annað svar: Reyndar skemmtilegt þetta freudíska mismæli mitt en lýsandi fyrir hugaástand mitt og afstöðu til myndarinnar sem heitir víst Eat, Pray, Love, en ég hef greinilega verið að sofna yfir ...

 

Ein byrjaði að skrifa en gleymdi nöfnum myndanna hræðilegu á meðan hún var að skrifa ... sjálfsvarnarviðbrögð.

 

Ég hugsaði og hugsaði og hugsaði ... hvaða mynd er verst? Man að ég var alls ekki hrifin af einni dýrustu bíómynd kvikmyndasögunnar á þeim tíma: Vatnaveröld með Kevin Costner. Framtíðarmynd þar sem allir bjuggu úti á sjó og skálmöld ríkti ... vondu karlarnir voru svooo vondir að þeir voru með plaköt uppi við þar sem stóð Kill the Whales! ... og þeir reyktu að auki, þetta tvennt var það versta sem til var á þeim tíma og er jafnvel enn. Mér fannst líka í einhverri risaeðlumyndinni að aðeins útlitsgallað fólk væri étið af risaeðlum, feitur karl, unglingur með gleraugu ... fannst það asnalegt þótt ég sé ekki feitur karl. 

 

En daginn eftir Pálínupartíið góða kom eftirfarandi athugasemd við síðasta blogg, eða myndbirtingu þar, á fb-síðu minni:

„Kærar þakkir fyrir að velja þessa mynd (af þeim 719 sem voru teknar). Móðir mín hringdi í mig að farast úr áhyggjum yfir að ég væri andsetinn. Ég reyndi að benbda henni á að ljósmyndarinn hefði beðið um grettur, en hún trúði því auðvitað ekki.“

Ég steingleymdi að skoða alla á myndinni, athugaði bara hvort ég, bloggarinn sjálfur, væri þannig útlits að ég myndi ekki hræða frá mér aðdáendur ... ljósmyndarinn bað fólk um að gretta sig, sumir héldu grettunni það lengi að hún náðist líka á góðu myndirnar ... en ég mun borga skaðabætur.

- - - - - - - - - - - - - -

 

Fréttirnar í beinniNennti ómögulega að fylgjast með setningu Ólympíuleikanna, frekar en nokkurn tímann áður, finnst yfirleitt allar svona sýningar drepleiðinlegar, var hvort eð er með fréttirnar í beinni hér á hlaðinu, sjá mynd ... en vesalings Frakkar að þessi íþróttahátíð skuli vera notuð til að eyðileggja og skemma ... kannski er almenningur þarna bara allt of frekur og dekraður (kaldhæðni) ... smávegis mótmæli húsmæðra og hætt er við að hækka mjólkurverð, hér á Íslandi yrði fólk bara gasað ... (líka kaldhæðni) ...

 

Guðrún vinkona stefnir að því að viðra mig á morgun. Okkur líst best á að skreppa austur fyrir Fjall ... á Selfoss og kannski eitthvað í kring. Ég verð á svipuðum slóðum viku seinna ... en eins gott að nýta veðrið (það verður ekki slagveður) því næsta lægð skellur á strax á sunnudaginn. Yfirleitt er gott skyggni þegar gýs á Reykjanesskaga, svo gosið kemur sennilega ekki í slagviðri. Sko, systir mín fékk eldgos í afmælisgjöf 18. desember sl. en í boðinu um daginn frétti ég að von væri á heimsendi á afmælisdaginn minn (12. ágúst) eftir eitt eða tvö ár. Sumt fólk blandar vissulega saman sólmyrkva og heimsendi en mér finnst þetta eiginlega toppa eldgos. Meira að segja strax á þessu ári verður æsispennandi atburður á afmælisdaginn minn, en þá hefjast sjónvarpsfréttir aftur á gamla tímanum, eða klukkan 19. Þannig að nú fáum við fréttir áfram í einni kássu, klukkan sex hjá útvarpinu, hálftíma seinna hjá Stöð 2 og svo hálftíma eftir það á RÚV, og allt sömu fréttirnar. Húrra! Margir hafa tekið þessari breytingu á fréttatíma nú í sumar sem persónulegri móðgun og eru brjálaðir. Ég kýs frekar að vera brjáluð yfir verðbólgu, háum vöxtum og almennu okri.

 

Facebook-fréttir

Viss frændi:

„Ef Bessastaðir poppa allt í einu upp á Airbnb á næstunni verð ég hneykslaður en ekki hissa ...“

 

„Hvar er Anne Hidalgo, við höfum ekkert séð hana?“ Svar: Fólk sem syndir í Signu sést ekki aftur. 

 

Kaffi og ristað brauðAllra, allra besta lykt í heimi ...

Vissulega nefndu margir kaffi, enda margt ægismekklegt fólk til í heiminum en hér eru nokkur svör ... ekki eftir  mig þótt ég geti tekið  undir margt þarna, eins kaffi, vanilla ... en hér er upptalningin:

 

- Fyrsti kaffibollinn á morgnana.

- Sunnudagssteikin hennar mömmu.

- Magnolíutré í blóma.

- Vanilla eða lavander.

- Lyktin úti eftir rigningu.

- Brauð að bakast inni í ofni. 

- Gamlar og nýjar bækur.

- Nýslegið gras.

- Maðurinn minn, vildi að lyktin af honum fengist í flöskum.

- Að grilla /steikja lauk og hvítlauk.

- Nýbakaðir kanilsnúðar.

- Lím.

- Gras, þú veist, þannig gras.

- Varðeldur.

- Lyktin af hestunum mínum. 

- Þvottur, nýkominn úr þurrkaranum.

- Kaffi og ristað brauð á morgnana.


Gleði og sorgir

Ameríkufólkið okkar og viðFrændfólkshittingur var í dag, ótrúlega skemmtilegur. Vissulega mættu ekki allir í ættinni (hefðum þurft Hörpu) en eins margir og rúmuðust í húsinu hennar systur minnar. Einn kom alla leið frá Hawaii ... Mitchell frændi, barnabarn Möggu, móðursystur minnar, sem átti heima nánast allt sitt líf í Kaliforníu, með Steina sínum.

Hluti móðurættarinnar mætti sem sagt, og við ræddum m.a. um hversu við söknuðum mávahlátursins, ættargaggsins sem heyrðist svo oft í boðum hjá kynslóðinni á undan okkur, mömmu og systkinum hennar. Við sem eftir sitjum/lifum hlæjum eiginlega allt of rólega. Allir búandi westan-megin hafs og hafa þar kosningarétt halda af alefli með Kamölu Harris. Vona að það dugi.

 

Þetta var svokallað Pálínuboð, þar sem allir komu með eitthvað. Ég fékk þá klikkuðu hugmynd, þar sem systir mín var hvort eð er að fara í Costco, að biðja hana að kaupa fyrir mína hönd kornflekskökurnar, munið ... og nú sit ég uppi með helminginn (35 kökur) og strax búin með tíu ... Þarna voru gómsætar flatkökur með hangikjöti, brauð með reyktum silungi, hnallþórur, grænmeti og hummus, pönnukökur, makkintoss, hjónabandssæla og margt fleira, sem sagt alvörupartí. Nokkrir lágu veikir heima með slæmt kvef (ekki covid), ég var bara heppin að vera á lokasentimetrunum í mínu kvefi svo ég komst. Tvær í fjölskyldunni eru kasóléttar og treystu sér ekki, önnur við það að eiga, hin er sett 12. ágúst, haldið ykkur. Ég sagði við væntanlegan föður að ég skyldi, af einskærri góðmennsku, aflétta þeirri ströngu og ófrávíkjanlegu hefð að barnið þyrfti að heita Guðríður eða Guðröður ef það fæddist á afmælisdaginn minn og hann viknaði af þakklæti.

 

Ég verð nú eiginlega að kvarta/væla örlítið. Hef lengi skammast, svona hálfpartinn, yfir skorti á pípurum, læknum, lögfræðingum og slíku nothæfu fólki í ættinni, frændum sem frænkum ... það er vissulega snilldarpípari ... sem býr á Siglufirði ... jú, jú, læknir, en hann býr á Hawaii í 16 klukkutíma flugfjarlægð frá Íslandi (hvað ef ég fæ flís í fingur eða illt í maga?). Ég ræddi þetta þó ekkert við hann. Samt er ég mjög þakklát fyrir alla sálfræðingina sem halda okkur öllum réttum megin við strikið ... ein þeirra smíðaði meira að segja flotta kattasandskassann í himnaríki (hver þarf smið?) ... og þroskaþjálfann sem er svo flinkur að setja saman Ikea-skápa (hver þarf smið?) ... jú, það væri flott að fá smið í fjölskylduna. Mikið vill alltaf meira. 

 

----    ----    ----    ----    ----    ----    ----   

Feðginin

 

Tveir menn sem ég þekkti hafa kvatt þetta jarðlíf á síðustu dögum, báðir á besta aldri. 

Annar var í miklu uppáhaldi sem strætóbílstjórinn minn, hitti oft á hann í ferðinni kl. 23 frá Mjódd þegar ég var að slóra eitthvað í Reykjavík. Eitt sinn sagði ég honum að mig langaði til að gera himnaríki upp og þá benti hann mér á að fá Trésmiðju Akraness, Didda og co, í verkiðþ Það reyndist vera eitt besta ráð sem mér hefur verið gefið; fagmennska, vandvirkni og heiðarleiki fram í fingurgóma. Ég frétti að hann hefði veikst, fengið krabbamein, og hef ekkert séð hann lengi, en átti alltaf von á að rekast á frábæra ljúfa Óla sem elskaði gott rokk eins og allt almennilegt fólk, á ferðinni á Skaganum en það varð því miður aldrei. Við vorum Facebook-vinir en hann var ekki sérlega virkur þar svo ekki var hægt að fylgjast með honum en ég vonaði innilega að hann yrði einn þeirra sem sigraðist á meininu og færi að keyra aftur strætó á milli Akraness og Reykjavíkur. 

 

Hinn var góður vinur sem ég umgekkst mikið um hríð (bara vinir), hann leikstýrði verki sem Skagaleikflokkurinn setti upp og í kringum þann tíma kynntumst við. Ég fór oft í leikhús með honum í bænum og í nokkur ferðalög. Hann starfaði aðallega sem leiðsögumaður og bauð mér með, fannst algjör óhæfa að ég hefði t.d. aldrei farið í norðurljósaferð og í raun skammarlega lítið ferðast um landið. Hann bauð mér m.a. í gullna hringinn og austur að Jökulsárlóni í ferð með erlendum ferðamönnum. Svo fórum við um Snæfellsnesið á hans bíl ásamt yngri dóttur hans, Ástu-Maríu, sem var búsett í Svíþjóð og lést þar fyrir örfáum árum, var öllum mikill harmdauði. Jakob (Jónsson) var í viðtali hjá mbl.is fyrir rúmri viku þar sem hann ræddi líf sitt, gleði og sorgir, og að allt væri á mikilli uppleið hjá honum. Hann var afskaplega góður sögumaður og ferðamenn sem voru svo heppnir að fá hann sem leiðsögumann, nutu þess greinilega, eins og ég, að fá að heyra sögurnar hans um landnámsmenn, söguleg eldgos og bara ýmsa merka atburði sem honum tókst að gera ljóslifandi í hugum okkar. Jakob varð bráðkvaddur á heimili sínu nýlega.

Myndin er af honum og dóttur hans, Ástu-Maríu, sem ég tók 28. mars 2015, í bráðskemmtilegu ferðalaginu um Snæfellsnes.   


Versta bíómyndin, besta afmælið og óvænt seinkun

Alltaf sól á AkranesiHvað gera konur þegar Eldum rétt kemur ekki á réttum tíma og stefnumót hafði verið ráðgert í höfuðborginni um fjögurleytið? Jú, þær blogga og vona heitt að þær nái 17.28-vagninum frá Garðabraut. Samkvæmt SMS-i frá ER mun það nást. Það varð bilun í sendibíl sem orsakaði seinkunina en ... það að komast ekki á stefnumót á réttum tíma gerir mig bara enn meira spennandi. Vona alla vega að systur minni finnist það líka. Á morgun verður hittingur ættfólks sem hittist í allra mesta lagi árlega, svona allt í einni kös, enda tæplega helmingurinn búsettur fyrir westan haf.

Það verður gaman að æfa enskuna (frændfólkið af þeirri kynslóð að það var talið rangt og ruglandi að láta það tala bæði ensku OG ÍSLENSKU í nýja landinu) og elsta frændfólkið íslenskuna, ræða um forsetamálin ytra og sitt af hverju fleira. Flest í hópnum eru fædd ytra og þótt þau upplifi Íslendinginn sterkt í sér eru þau auðvitað búsett þarna og hafa sínar skoðanir sem ég er spennt að heyra.

 

Myndin hér að ofan heitir: Alltaf sól á Akranesi. Ég er svo hrifin af síbreytilegum litunum. Keli líka.

 

AfmælisstelpanHin fjölskylda mín, þessi á Akranesi, hélt upp á fimm ára afmæli miðdótturinnar í gær með kökum, söng, blöðrum og gleði. Ég ákvað að bíða með gjöfina frá mér þar til í dag þegar ég rændi stelpuskottinu með mér í Lindex þar sem við völdum aldeilis fínt pils og bol, reyndar einnig fallega sokka í stíl og sólgleraugu til að mana fram sólina.

Svakalega skemmtilegt afmæli með mörgum gestum og frábærum kökum. Það vakti athygli mína þegar faðirinn kom og sótti mig (fín þjónusta) að hann var í stuttermabol. „Þetta er nú meira sumarið,“ sagði ég, meira að segja mér blöskrar ... mögulega er þetta samt meðvirkni með sólaraðdáendum því ég get dregið fyrir heima og sett viftur í gang en hinir hafa þurft að klæða af sér kuldann. „Þetta er ljómandi fínt veður,“ sagði hann bara og brosti. Miðstöðin í bílnum mallaði reyndar og hélt hitastiginu í 20°C þegar við ókum þessar fimm mínútur eða svo í veisluna.

 

Á myndinni má sjá sætu og kláru afmælisstelpuna í nýju fötunum. Svo átti hún þetta fína hárband í stíl.

 

Ég sá í gær á Facebook spurninguna Hver er versta bíómynd sem þú hefur nokkurn tímann séð?

 

Verð að viðurkenna að sum svörin komu mér virkilega á óvart. Ég man reyndar að gamall vinur sagði mér að þegar hann kom út úr bíóinu eftir að hafa séð Natural Born Killers, hafi hann verið uppnuminn og nánast tilbúinn til að fara að drepa ... en það entist bara í þrjár mínútur í viðbót. Og hann var að grínast, held ég.

 

Hér eru nokkrar, þangað til ég verð að hoppa í strætó: 

- Cosmopolis með Rob Pattison. Hann er fínn leikari, ég bara hata myndina, ungur, sálarlaus milljarðamæringur, hryllileg mynd.

- Pulp Fiction, hataði hana. 

- Battlefield Earth. 

- Gladiator.

- Get nefnt Magnolia og Natural Born Killers. Líka Glitter.

- The Piano. Ég gekk út.

- The Room. Fæ aldrei til baka tímann sem ég eyddi í þetta rusl.

- Vanilla Sky.

- Allar m eð Adam Sandler.

- Endurgerðin af Ghostbusters.

- Hot tub time machine.

- Eyes Wide Shut.

- The Happening. Sá allra versti leikur sem ég hef séð. Hún er í raun ein allra fyndnasta mynd sem ég hef nokkurn tíma séð.

- Zoolander. Sú eina sem ég hef gengið út af.

- The English Patient. Ég sofnaði áður en ég náði að ganga út.      


Kveflok, björgun í bröns og óvænt glæpatengsl

BlóðþrýstingsmælarKvefsóttin reyndist hundleiðinleg og stóð yfir allt of lengi og sá ekki fyrir endann á henni fyrr en bara akkúrat núna. Allt of gömul og löngu útrunnin flensulyfin gerðu þó sitt gagn, þannig séð, en ég átti mun nýlegra í duftformi (fékk það gefins) sem ég tók loksins á föstudaginn. Strangar reglur giltu varðandi það, eitthvað um að drekka brennandi heita vatnið með duftinu í innan tíu mínútna, engar skaðabætur fyrir brennda tungu ... svo ég setti þrjá plasthúðaða ísmola út í kvikindið. Svo hófst hryllingsdrykkjan og eldgamlar minningar rifu sér allt í einu leið upp á yfirborðið. Ég á sannarlega ekki margar þynnkur að baki í lífinu, enda ekki mikill vínþambari en eitt sinn, ég man ekki hvar en minnir að mögulega hafi þá ríkt tíð fyrsta, annars eða þriðja eiginmanns míns. Jú, ég fann fyrir þynnku og einhver miskunnsamur mágurinn eða frændinn átti til algjört töframeðal við því, eitthvað sem hét Alkasetzer, ég hélt þá (og mjög lengi) að þetta væri daginneftir-lyf fyrir drykkfellda, ja, alka ... fannst þetta mjög hreinskilið lyfjaheiti, og er ekki frá því að margir landsmenn hafi haldið það líka. Og þetta var duft til að setja út í vatn, kalt, minnir mig. Viðkomandi maður átti greinilega bara mjög stór glös, fyllti eitt slíkt af vatni og setti alkameðalið út í - sagði mér síðan að drekka þetta. Það tók mig sennilega tvo klukkutíma og ég náði samt að hella rúmlega helmingnum niður þegar enginn sá til. Mig grunar að þarna hafi ég, mögulega án þess að átta mig á því, ákveðið að fá aldrei aftur þynnku.

 

Ég náði að klára flensulyfshrylling föstudagsins á svona korteri, með algjörum herkjum og ópum og ... ég hét mér því þegar ég tók síðasta ógeðssopann að fá hreinlega aldrei aftur kvef! Að minnsta kosti ekki fyrr en einhver sem ég þekki fer til Ameríku, kíkir í Walmart eða Costco eða nánast hvaða búð sem er og færir mér cold and flu-meðal, helst day and night-dæmið ... Borga að sjálfsögðu fyrir.

 

Myndin samsetta hér fyrir ofan sýnir það sem ég hef þurft að þola í auglýsingamálum frá 1. júlí, annaðhvort hlerar gemsinn mig til að geta otað að mér "réttum" auglýsingum, eða kóvitarnir höfðu rétt fyrir sér allan tímann og bæði hlerunartæki og staðsetningarbúnaður var fólgin í covid-bóluefnunum, til að Bill Gates geti ... jahhh, fækkað okkur, vilja nú sumir meina. En ég prófaði að segja upphátt við gemsann minn fyrr í kvöld: „Ég á blóðþrýstingsmæli.“ Bæði á íslensku og ensku. Hvaða auglýsingar koma næst? Hef svo sem líka verið að drukkna í auglýsingum um sófaleikfimi fyrir "aldraða" og alls kyns kúrum ... og þegar ég talaði síðast um að fara í megrun var það fjarri öllum tækjum, uppi í Öskjuhlíð, í rykfrakka og með sólgleraugu, talaði mjög lágt.  

 

Galito plattiÞegar systir mín ók í hlað rétt rúmlega eitt í dag/gær, laugardag, ég er að skrifa þetta aðfaranótt sunnudags, héldum við beinustu leið í Galito í bröns. Vorum búnar að lofa okkur því að prófa ... síðasti slíkur var í Apóteki í boði hennar svo nú var komið að mér. Enginn metingur samt.

„Þið eruð tveimur mínútum of snemma,“ sagði glaðasti þjónn í heimi sem tók á móti okkur. Ég hafði látið vita af smáseinkun, að við yrðum komnar 13.10, eða tíu mínútum of seint. Bílstjóri fyrir framan systur mína ók á sextíu til sjötíu á þeim kafla sem ekki var hægt að fara fram úr en rauk svo upp í hundrað þegar akreinar voru orðnar tvær ... skilst að þetta sé alveg týpískt fyrir marga ökumenn. Hann var svoooo löghlýðinn í göngunum að hann ók á fimmtíu, hélt sig þó hægra megin svo hægt var að taka fram úr í löngu brekkunni upp norðanmegin. 

Við fengum okkur eggs benedict sem var sturlað gott, og svo ábætisplatta á eftir með kaffinu. Flott skyldi það vera.

 

„Er þetta jarðhneta?“ sagði ég skrækróma við systur mína og benti á eitthvað drapplitað lítið á diskinum, átti að vera til skrauts en þvílíkt skraut, var ekki alveg eins hægt að fá bara arsenik, vetnissprengju?

„Baðstu ekki um hnetulausan bakka?“ spurði systir mín hissa. Ég gekk reyndar bara úr skugga um að benediktsegg systur minnar væru án tómata til að hún lenti ekki á spítala, en ég hlýt að vera svona rosalega óeigingjörn, eða gleymin ... fannst sennilega ólíklegt að fólk færi að troða algengum ofnæmisvaldi í svona fínheit ... megi bakarí landsins taka þetta til sín og fara að hafa konudagskökur framtíðarinnar hnetu- og núggatlausar. 

 

Góði þjónninn kom til okkar, hafði fundið á sér að eitthvað væri á seyði þarna úti í horni vinstra megin og fór beint í skaðaminnkandi aðgerðir. „Á ég ekki að láta útbúa nýjan platta fyrir ykkur?“ spurði hann. 

„Nei, alls ekki, ekkert vesen, sérðu, ég tek bara aðra lummuna þarna sem snerti ekki hneturnar og sleppi þes-“ færði lummuna og upp gaus grænt hneturyk ... þær leyndust víðar á diskinum og í fleiri sortum hneturnar, þjónninn brosti, tók plattann og sagði: „Við viljum ekki að þú deyir, fagri fastakúnni,“ eitthvað slíkt, minnir mig. Til að eyðileggja ekki stemninguna sleppti ég því að segja að einkenni mín, þegar ég borðaði eitthvað sem jarðhnetur hefðu snert, væru nú bara kláði í hálsi í nokkra klukkutíma - en ekki sjúkrabíll í hvelli. Held að eymdin í gamla daga (mátti t.d. ekki flytja inn smartís stærstan hluta æsku minnar) hafi bjargað lífi mínu því ekki nokkur hræða komst upp með matvendni, eins og það hét þá.

 

MYND: Nýi plattinn var suddalega góður. En á myndinni sést sá fyrri, en þá hafði hneturykið sennilega sest eftir að ég hreyfði lummuna og þjónninn ekki enn búinn að fjarlægja hættuna. 

 

Brjálaða vísindakonanSystir mín hrósaði mér fyrir fagurt hár, geggjaðar strípur, en ég hafði sett eitthvað hár-dæmi í það eftir sturtuna og reynt að hemja það svolítið að auki, renna í gegnum það með fingrunum til að það stæði ekki út í loftið þegar það þornaði. Reynsla mín í hármálum er frekar slæm því hárstíll minn (villt vísindakona) hefur ekki slegið í gegn hjá neinum nema mér. Úfið, krullað, eins og á unglingsárunum. Myndin var tekin í kvöld, þegar það hafði aflagast. Ég er alla vega sátt, og kettirnir.

 

Það var ekki bara ég sem gladdist yfir heimsókninni úr bænum. Við sóttum stráksa í smábíltúr, hann var voða glaður og tók svo sannarlega í mál að hlaupa upp að staur rétt við himnaríki, með stóran matarleifapoka sem systir mín hafði tekið með úr Kópavogi, handa svöngu mávafrændum sínum á Akranesi, sem urðu líka harla glaðir. Eltu sennilega bílinn hennar og hafa nú komið sér vel fyrir í Fossvogsdal þar til þeir stinga af til Tene til að hafa þar vetursetu.

 

Humans ...Eftir góðan kaffibolla og einskæra gleði hundanna að koma heim til Gurríar frænku sem passaði þá fyrir Krumma ketti sem lítur alltaf á heimsóknir þeirra sem ógn við bæði ketti og menn, vei þeim ef þeir gelta ... Og svo þegar unga ferska systirin fór heim var sú eldgamla hreinlega búin að vera eftir allt þetta erfiði. Lagðist ofan á rúmið, hlustaði á sögu og hvíldi sig. Hin besta slökun heims því um klukkan tíu rauk ég á fætur, ekki til að hátta og sofa, heldur taka til!!! Alla vega í eldhúsinu sem var orðið ansi subbulegt, það má ekki verða veikur án þess að allt fari úrskeiðis.

 

Ég er pínku nefmælt en núna í kvöld (laugardag) lít ég svo á að þessu kvefi sé formlega lokið. Nenni því ekki lengur og mun ekki sýna því frekari athygli eða umhyggju. 

 

Svolítið óhugnanlegt að lenda í því í veikindunum að hlusta á tvær íslenskar glæpasögur í sakleysi sínu og máttleysi og báðar tengjast Akranesi glæpsamlegum böndum. Önnur um morðóðan heilbrigðisstarfsmann sem hafði búið á Akranesi og myrti bara fólk sem hafði líka búið á Akranesi ... ekki byggt á sannsögulegu. Get ekki sagt meira til að skemma ekki fyrir ... Hin var meira í Borgarfirðinum en samt, eldri maður sem löggan leitaði að, hafði átt vin SEM RAK VÍDEÓLEIGU EINMITT Á AKRANESI og lögreglan á Akranesi kom líka við sögu - og samt er ég ekki einu sinni byrjuð á bók Evu B. Ægis, skilst að hún sé svo spennandi (Heim fyrir myrkur) að ég var hreinlega of lasin til að leggja í hana ... Líst ansi vel á Rót hins illa, bók sem ég byrjaði á í kvöld á meðan ég, full þakklætis fyrir að hafa endurheimt orkuna, tók eldhúsið í gegn.

 

Mynd 4 tengist færslunni algjörlega óbeint.       


Árangursrík læknisferð og misskilin móðgun

Hælaháir skórJúlímánuður fór af stað með offorsi, eins og elstu bloggvinir muna og í dag átti ég eftirtékk-tíma hjá elskulegum lækni. Ég hafði safnað saman nokkrum kvillum til að spyrja um, smástressuð yfir því samt að mega jafnvel bara koma með eitt erindi í einu - sá eiginlega fyrir mér eilífar læknisferðir (alla vega tvær) næstu misserin. Ég reyndi að tala mjög hratt til að þetta tæki styttri tíma og hár blóðþrýstingur varð sannarlega ekki aðalatriðið, enda hafði ég lækkað niður í góðar tölur. Ég á samt að halda áfram að taka pillurnar. Læknirinn skammaði mig ekki fyrir að hafa hangið hölt í nokkra mánuði heldur kíkti á dýrðina og ... ég reyndist vera með hálfslitna hásin en hef víst verið að gera allt svo hárrétt með aðstoð Ingu vinkonu og Apóteks Vesturlands, kæla, hvíla og slíkt.

Svo allt í einu sagði læknirinn upp úr þurru að ég yrði að fara að ganga í hælaháum skóm! (Og kannski klæðast Channel númer fimm-ilmvatni við?) Var ég þá búin að missa allan kynþokka? Ég hef aldrei getað gengið á slíkum skóm en þrátt fyrir það margoft gifst, eins og hér hefur ósjaldan komið fram. Gæti verið að eiginmenn mínir hafi allir elskað mig vegna innrætis míns, greindar og góðs minnis á póstnúmer? Andskotinn!

Ég talaði ekki bara hratt, heldur hlustaði óþarflega hratt líka, læknirinn var víst að meina að enn meiri hækkun á hægri hæl myndi gera mér gott. Apótekið reddaði því, of kors. Svo fékk ég dropa fyrir viðkæman hársvörð og þar með var allt mitt uppsafnaða vesen komið í farveg.

 

Stór fjölskyldaTvær sýrlenskar fjölskyldur á Skaganum hafa tekið mig inn í klanið sitt ... í gær mætti Fatima mín í næsta húsi með mat handa sjúklingnum (kvef) og aftur í dag, en ég frestaði rabarbaragrautsgerðinni okkar um tvo daga, vegna kvefsins. Það fer fram á morgun. Já, kvefið ... læknirinn sagði að ég mætti alveg taka amerískt flensulyf sem hefur árum saman linað kvef mín og flensur - hvað þetta heitir nú allt - en á pakkanum sem ég tók með mér til doksa stóð: Ask your doctor if you have háan blóðþrýsting, sem ég sem sagt gerði þótt þrýstingurinn sé komin niður í OK. Henni fannst dagsetningin á flensulyfinu pínku fyndin ... eða best fyrir apríl 2016, samt virkar það, en ég á eflaust nýrri pillur ofan í baðskúffu. Vona það, ég er dugleg að gefa þær því mér finnst ömurlegt að fólk þurfi að kaupa nefdropa, hóstamixtúru, verkjalyf, strepsils og slíkt á meðan hægt er að taka tvo belgi og líða svo miklu betur. Hið íslenska ColdZyme er líka skrambi sniðugt kvefmeðal. Og virkar.

 

Hin fjölskyldan mín býr ögn fjær(á Akranesi er fimm mínútna aksturfjarlægð frekar langt), hafði samband í gær og gjörsamlega sjokkeraðist yfir því að ég væri með kvef ... Af hverju sagðir þú okkur ekki að þú værir veik? Ég er ekkert veik, reyndi ég að segja ... en sem sagt eiginmaðurinn skutlaði mér til læknis í dag, sem var ótrúlega vel þegið og sótti mig svo þangað og fór með mig í apótekið ... ég hef verið virkilega klökk yfir þessari miklu góðvild, það er bara gefið og gefið ... Elsku frábæra fólk. 

 

FACEBOOK - NÝJASTA NÝTT:

Nefndu hlut sem getur breytt lífi þínu en kostar innan við tíu þúsund kall. 

Þetta er bandarísk síða og ég veit að sumir hlutirnir sem eru nefndir þarna kosta gott betur en tíu þúsund kall ...

 

- Almennilegur koddi til að sofa á

- Rafmagnstannbursti 

- Bókasafnskort 

- Lykkjan

- Black Sabbath Vol 4, geisladiskur

- Bækur

- Góð margnota vatnsflaska

- Handklæðaofn

- Súkkulaði

- Cappuccino

- Brjóstahaldari sem passar

- Kvíðalyf

- Vegabréf

- Taka að sér kött

- Smokkar, fleiri ættu að nota þá

- Klósettpappír

- Taka að sér hund

- Góðir, þægilegir skór

- Svitalyktareyðir

- Seglar með hreint og óhreint til að setja á uppþvottvélina

- Getnaðarvarnir

- B-vítamín, allt í einu hætti ég að vera andvaka á nóttunni

- Brauðrist, ristað brauð er dásamlegt  


Fjögurra skóga ferð, óþekkt eða góður smekkur ...

Salatið góðaHeimaræktaða salatið var í matinn í kvöld og bragðaðist ótrúlega vel. Takk, elsku Hulda. Bætti við tómötum, agúrkum, harðsoðnum eggjum (12 mín. - þarf alltaf að gúgla) og ofnsteiktum amerískum kartöflum með olíu og hvítlaukssalti. Vinkona mín borðaði þessa dásemd með mér og samt verður nægur afgangur í hádeginu á morgun (í dag). Steingleymdi að kaupa avókadó, það hefði verið skrambi gott líka.

 

Vinkona mín hefur ferðast víða, bæði innanlands og utan og í kvöld sagði hún mér frá sniðugri fjögurra skóga gönguferð sem hún fer bráðum í og var hugsi yfir því að hún væri ekki þriggja skóga. Vinkona hennar ætti fínasta jeppa sem þær færu á sem væri frábært, og aðalvesenið væri að finna almennilegt nesti fyrir þessa daga sem ferðin tæi. Ég fór að telja í huganum ... Vaglaskógur, Kjarnaskógur, Hallormsstaðaskógur ... voru til fleiri skógar á landinu? Þetta yrði heilmikil keyrsla, fá suðvesturlandi og norður í skógana þar og svo austur, ef þetta  væru réttu skógarnir. Af hverju væri gott að hafa fínan jeppa til að komast á milli? Hvers konar ferðalög væru eiginlega til? Ég hata svo sem gönguferðir - og skógar kæmu allra síst til greina sem tilneydd gönguleið hjá mér ... og rétt áður en ég spurði nánar út í skógana sem átti að ganga í gegnum og keyra á milli þeirra á jeppum, áttaði ég mig á að hún meinti erfiðleikastig göngunnar, hún sagði skóa-. Skór, ekki skógar. Fjögurra skóa ferð er víst erfiðari en þriggja skóa ferð (þetta segir auðvitað ekkert um fjölda skóa sem fólk mun slíta í ferðinni) en það var sem sagt lýsingin á ferðinni, tímalengd, hækkun, ófærð og slíkt sem var ekki upp á neina fjóra skó, vildi gönguglaða vinkonan meina. Ég er dauð úr þreytu bara eftir spjallið um þessa gönguferð.

Hún á alveg milljón barnabörn og sýnir mikla snilli þegar hún gefur þeim afmælisgjafir ... þau fá ömmudag frá henni og í gær fór hún ásamt einu krúttinu sínu í dagsferð í bæinn, Húsdýragarðinn og tívolí, barnið réði því hvað borðað var og fannst dagurinn ansi hreint góður. Amman var að minnsta kosti alveg í skýjunum. Held að þetta sé sniðugasta afmælisgjöf sem ég hef heyrt um frá ömmu til barnabarns. Verja tíma með barninu og gera eitthvað sem því finnst skemmtilegt. Aldur barnsins skiptir auðvitað máli og þessi ferð passaði akkúrat fyrir þetta barn. Leikhúsferð eða bíóferð hentaði öðrum. Kannski tekur hún elsta barnabarnið með á Skálmaldartónleikana núna í nóvember (þrennir), svona ef það barn hefur góðan smekk fyrir tónlist ... það myndi ég sko gera. 

 

Arabíska dýrðinÁ morgun kemur vinkona mín úr næstu blokk, sú sem færði mér síðbúinn ofsagóðan hádegisverð í dag, sjá mynd, í heimsókn og lærir að búa til rabarbaragraut hér í himnaríki. Hún fékk glampa í augun þegar ég sagði henni að þetta væri gamaldags íslenskur matur og er virkilega spennt að smakka - og læra að búa hann til. Vona að hún falli fyrir honum. 

 

 

Mér finnst pínku asnalegt að þurfa nánast að éta ofan í mig að ég hafi andstyggð á gamaldags íslenskum mat ... en þá er ég auðvitað að tala um þverskorna ýsu, hræring, siginn fisk, súran þorramat og slíkt. Fátt er nefnilega betra en sumt í gamaldags flokknum, eins og pönnukökur, slátur (játs), hangikjöt, flatkökur og svo auðvitað rabarbaragrautur. Ég ræddi þetta ofaníát mitt nýlega við konu sem kom í heimsókn. Hún fór að segja mér frá móður sinni sem er komin yfir áttrætt og búsett á dvalarheimili, að starfsfólk þar hefði áhyggjur af því að hún borðaði ekki allan mat, t.d. sumar tegundir af fiski, en dóttirin veit fullvel hvers vegna, mamma hennar var einmitt pínd til að borða alls konar fiskhrylling í æsku sem hún hefur neitað að gera eftir að hún komst til vits og ára (lífið of stutt fyrir vondan mat). Hún eldaði fisk fyrir börn sín en var alltaf "búin að borða" þegar þau settust við matarborðið. Ég man reyndar ekki eftir því að mín eigin móðir hafi verið alveg brjáluð í gamaldags mat en hann var samt á boðstólum heima (og í sveitinni). Í gamla daga var "matvendni" (góður smekkur) skilgreind sem óþekkt.

 

Eftir allar þessar djörfu bækur sem hafa ofsótt mig undanfarið og ég hef kvartað yfir hér á blogginu, ákvað ég að færa mig frá þessum svokölluðu ástarsögum yfir í hinn enda rófsins, í eitthvað blóðugt og æsispennandi ... Byrjaði virkilega vongóð á bókinni Hefnd vélsagarmorðingjans en haldið ekki að aðalgaurinn þar, morðinginn sjálfur, hafi strax í öðrum kafla kynnst kynþokkafullum axarmorðingja ... Þegar fór að stefna í einhverja erótík á milli blóðbaðanna, í sirka fimmta kafla, varð mér allri lokið og fann mér aðra, gamla og góða bók um þróun fiskeldis í Téténíu síðustu hundrað árin, bara formálinn er tíu binda ritröð. Nú mega sko heyrnartólin detta úr sambandi hvar og hvenær sem er og það verður ekkert mál að sofna á kvöldin.     


Í lausu lofti og meint illska fræga fólksins

VéfréttinMánudagurinn var ljómandi fínn. Ég held þó að sumarfrí fólks hafi heilmikil áhrif á venjulegt líf margra ... meðal annars á fasteignamál mín því ég veit ekki hver staða mín er varðandi íbúðina sem ég er hæfilega spennt fyrir, eða staðsetningunni meira ... nálægt sundlaug og kirkju (djók). Sá íbúð auglýsta með þessum tveimur kostum í Grafarvogi, minnir mig. Fyrir manneskju sem fer ALDREI í sund og bara í jarðarfarir í kirkju, eru þetta ekki kostirnir sem ráða úrslitum um val mitt á húsnæði. Ég horfi á samgöngur, vídeóleigur og slíkt. Er sem sagt í lausu lofti en tíminn vinnur samt með mér, keðjur ganga yfirleitt upp, held ég, tekur tíma og því seinna sem ég geri tilboð, því betra, og meiri líkur á að allt verði gengið upp hér. 

 

MYND: Leitaði ráða hjá véfréttinni til öryggis, væri ég nokkuð að breytast í sólskinsbarn? ... en sjúkkitt! Ég er kaldur fiskur ... 

 

 

Stráksi ætlaði að kíkja um helgina en sem betur fer frestaði hann því ... hér var nánast dásvefn í gangi ... veður hefur lítil áhrif haft á mig, nema ég hata hálku, ég er meira fyrir vetur en sumar (sjá véfrétt) og það var október-veður í gangi um helgina, en samt ... Og svo kom sól, ég fór ekki einu sinni út á svalir, en minnti einna helst á fólk í kornfleksauglýsingu því slíkur var hressleikinn í dag.

 

 

Hvíta kakanÉg bakaði hvítu regnbogakökuna (takk, Betty) handa stráksa sem mætti svo í köku og safa eftir vinnu. „Áttu flensulyf?“ spurði hann nefmæltur. Jú, ég átti eitthvað smávegis og gaf honum. „Þú veist að þetta læknar ekkert, þér líður bara betur,“ minnti ég hann á. Kvefaði stráksi stoppaði bara í klukkutíma. Megnið af tertunni var skorið niður og fór í frysti, frekar fullan frysti ... Eldum rétt hafði mætt að vanda og ég hlakkaði til að borða þorsk með hrísgrjónum í kvöldmat.

 

Ég missti af hálfu kílói af rabarbara á síðu fb-vinkonu sem á snjallan son sem vildi fá eitthvað fyrir að tína rabarbara og skera hann. Ég varð of sein, fólk slóst um þessi tvö kíló sem voru í boði.

RabarbariElskan hún Hulda, gamla nágrannakona mín síðan í eldgamla daga, sá aumur á mér, og kom seinnipartinn færandi hendi, með rabararbara, nýja sultu sem hún hafði gert og salat sem hún hafði ræktað. Hún býr við sjóinn norðanmegin á Akranesi. Á morgun verður salatið í matinn ... með grænmeti og harðsoðnum eggjum, jafnvel sætri kartöflu. Slurp.

En þetta með rabarbarann. Ég skar hann niður í kvöld og skipti bitunum niður í sex poka, hver hálft kíló ... svo hér verður rabarbaragrautur reglulega á næstunni. Jóhanna Leópolds kom mér upp á hann, færði mér skammt af graut og rjóma, ekki löngu eftir að Einar dó, og ég ekki sú hugmyndaríkasta í eldamennsku ... svo þetta var nánast besti matur sem ég hafði fengið. Svo eldaði ég graut fyrir stáksa nokkuð löngu seinna og hann sagði: „Ég veit ekki hvort mér finnst þetta gott en má ég samt fá meira?“ 

Dásamlega sýrlenska fjölskyldan í næsta húsi fær að smakka og ef þeim líkar, þá fá þau alla vega eitt kíló og geta prófað sjálf, þau eru mjög spennt fyrir íslenskum mat og menningu, stórhrifin. Litli frystirinn minn er að springa, svo kannski dríf ég í þessu strax í vikunni.

 

Eins og þið vitið er ég mjög hrifin af spurningum og svörum ... svona skemmtilegheitum af Facebook. Fólk var beðið að nefna fræga manneskju sem það grunaði að væri illt hið innra.

Trump samsærisEkki stóð á svörum ... auðvitað nefndu langflestir Trump (þetta var eftir tilræðið við hann), margir nefndu Elon Musk og Tom Cruise, og einhverjir Móður Theresu, ég hef reyndar séð það áður. Skýringar fyrir aftan sum nöfnin eru ekki mínar, heldur fólksins sem nefndi djöflana í dulargerfunum. 

Trump - en líka á almannafæri, sem sagt alltaf illur.

Keanu Reeves. Ég sver það, hann hefur blekkt okkur öll (margir broskarlar)

Ellen ... en það vita allir. 

Jennifer Garner

Justin Timberlake. Hef aldrei hitt hann en vinur minn tók eitt sinn viðtal við hann. Ölvunaraksturinn er bara byrjunin á falli hans.

Elon Musk, sá appelsínuguli, allir sjónvarpspredikarar og Ted Cruz.

Johnny Depp.

Karl III konungur.

Angelina Jolie, ekki spurning. 

Oprah

Joel Osteen, Billy Graham.

Ryan Reynolds, fínn leikari en það eru alltaf svona gaurar sem skvetta kaffinu yfir aðstoðarmanninn.

Öll ... nema Brendan Frasier og Keanu Reeves.

Keanu Reeves. Maður heyrir bara hversu góður gæi hann er því allir eru hræddir við að segja sannleikann.

Osmond-fjölskyldan, eins og hún leggur sig.

Móðir Theresa

Beyoncé.

Tom Cruise.

Oprah. Ég hef ekki treyst henni síðan hún sagði að við ættum öll að eiga handklæði í stíl. 

Elon Musk. Það er ástæða fyrir því að helmingur fjölskyldu hans talar ekki við hann. 

Andrés prins. Eitthvað segir mér að hann hafi sitt af hverju að fela. (Broskarlar)

Madonna. Á einhvern skrítinn hátt. 

Tom Hanks, enginn er svona indæll, ljúfur og heiðarlegur. Ó, bíddu, jú, hann er þetta allt. 

Seven Seagal

Rosie O´Donnell.

Madonna. Ég dáði hana árum saman, en allir sem hitta hana, hata hana.


Æsandi ofsóknir, ný samsæri og fyndnar fornminjar

Daginn fyrir góðviðriðGlæsilegt útlitið lifði ekki af hárþvott og sofna með hárið rakt. Strípurnar halda sér nú samt, en ekki mikið meira en það. Ég er orðin ansi hreint krullhærð sem er bara allt í lagi, held ég. Reyndar var ég rosafín og alveg krullulaus þarna á klippingardaginn sjálfan, á gangi út úr verslunarmiðstöðinni í útjaðri Akraness þegar ungir strákar með tombólu vöktu athygli okkar vinkvennanna. Þarna mátti sjá barnabækur, tölvuleiki og eitthvað sem fínar dömur, lausar við söfnunaráráttu hefðu seint fyrirgefið sér fyrir að kaupa.

Hva, eigið þið ekki barnabörn?“ spurði annar þeirra sölumannslega en gjörsamlega laus við þá snilldarframkomu sem t.d. sölumenn trygginga og notaðra bíla, jafnvel íbúða, hafa tileinkað sér. Slíkir sölumenn hefðu spurt hvort við ættum ekki börn - eða hefðum jafnvel sjálfar aldur í svona barnadót. En það er erfitt að blekkja saklaus börn sem gætu átt mjög svo skvísulegar ömmur, við urðum ekki einu sinni móðgaðar og þótt við værum vissulega komnar á ömmualdur (minni á að það eru til tæplega fertugar ömmur), með engin barnabörn í grennd, nema kannski stolin. Við drekktum sorgum okkar í búðarápi (alveg tvær búðir), eins og fram hefur komið.

 

Myndin er af Kela að gá til veðurs fyrr í dag. Okkur hefur borist njósn af því að hryllingshiti muni ríkja um allt land á morgun. Umfangsmikla grasrækt mína má sjá vinstra megin, inni, ég á ekkert í þessari úti við Nýju blokkina. 

 

50 gráir skuggarÞað er eins gott að vera ekki lengur í barneign ... segi nú svona, því upp á síðkastið hef ég lesið nokkrar girnilegar ástarsögur sem allar fara samt út í harða erótík og gætu æst upp köldustu styttur bæjarins. Held að ástarsögur séu að breytast, fara í þessa átt, því ég gat áður hlustað á allar slíkar sögur yfir eldamennsku eða tiltekt þótt stráksi væri allt um kring. Við gátum samt flissað saman yfir rómantískum kossum, hann harðbannaði mér oft í kjölfarið að finna mér kærasta. Ef heyrnartólið dytti nú úr sambandi í æsilegustu senunum sem er vissulega vandræðalegt að hlusta á í strætó, svona á milli saklauss söguþráðar, oft spennandi, yrði ég handtekin, eða gerð útlæg frá Akranesi. Ég kalla sannarlega ekki allt ömmu mína (eins og sumir strákar með tombólu) en ég óttast í sífellu að einhver heyri hvað um er að vera í bókunum sem ég er hlusta á. Ég hef verið að hvíla mig aðeins frá hræðilegum glæpasögum en er að verða tilbúin í blóðbaðið aftur.

Það væri alveg hægt að skrifa djarfar "ástarsögur" um þessi alveg eðlilegu samskipti fólks, á miklu penni hátt svo ég gæti hlustað róleg á hárgreiðslustofunni eða strætó án ótta við að taka óvart úr sambandi heyrnartólin þannig að allt heyrist. Hvað varð um blaktandi gluggatjöld? (Það heyrast vissulega þungar stunur í mér annað slagið núna, þegar England (held með þeim) skýtur á markið en skorar ekki ... Blogga til að lifa leikinn af ... Áfram England samt! Silfur er betra en gull! 

 

Held að þetta hafi allt byrjað með Fimmtíu gráum skuggum, bókunum sem seldust í bílförmum ... ég las þær (stundum í strætó á leið heim úr vinnu, til að fjalla um þær) en man ekki eftir neinu nema því að höfundurinn gladdist mjög yfir metsölunni og gat fengið sér nýja eldhúsinnréttingu. Ég öfundaði hana af því en það liðu samt ekkert svakalega mörg ár þar til ég gat sjálf endurnýjað eigið eldhúsið, án þess að hafa þurft að skrifa dónalegar bækur. 

 

Ég kláraði eina ástar um helgina, í öllum rólegheitunum sem hafa ríkt hér í himnaríki, dúndrandi deyfð vegna dimmu? Vissulega var hellingsmikið kynlíf inn á milli misskilnings og ósagðra orða (alltaf) í bókinni en það sem stakk mig þó mest var þegar rafmagnið fór af húsinu í miklu fárviðri, konan hljóp út til að dvelja frekar í húsi kærastans sem var fjarverandi, og byrjaði á því að kveikja á kaffivélinni til að hressa sig á kaffi. Fór þá rafmagnið bara af húsinu hennar? Svona ofsjáelsi er auðvitað fúlt í skemmtilestri en getur komið sér vel í vinnunni. Svo var annað sem mér fannst svolítið skrítið ... söguhetjan sá glitta í eitthvað á bak við gamlan spegil - það reyndist vera rosalega gömul mynd ... eða fornminjar frá árinu 1991!

 

Donald-TrumpNú eru komnar nokkrar samsæriskenningar um skotárásina á Trump í gær. Ömurlegt auðvitað, svona á ekki að geta gerst. Bandarískri fb-vinkonu minni var mjög brugðið og ásakaði leyniþjónustuna um tilræðið en hún var búin að fjarlægja þau ummæli í morgun. Ég vona nú samt að þetta verði ekki til þess að Trump verði forseti ... líst heldur ekkert voða vel á hinn. Bernie Sanders hefði orðið svo flottur þarna um árið. 

Fólk segir:

- Það var venjulegur demókrati sem gerði þetta, heilaþveginn af CNN-sjónvarpsstöðinni.

- Trump setti þetta sá svið til að ná örugglega sigri. 

- Þetta var CIA, ekki spurning, þau drápu svo "morðingjann" sem þeir höfðu ráðið í verkið. 

- Biden á pottþétt sök á þessu, orðinn svo hræddur við að tapa.

 

Ég er viss um að mun flottari kenningar hafi sést þarna úti, ég kann bara ekki að leita eða veit ekki hvað réttu síðurnar heita þar sem svona lagað grasserar. Greip bara eitthvað upp af Facebook í dag. 


Að finna milljón, flottar strípur og fallandi ungdómsvíg

StrípurNýlega barst mér launagreiðsla sem er ósköp eðlilegt í lífi vinnualka, ég sá það í gemsanum, er tiltölulega nýbúin að hlaða niður bankaappinu án þess endilega að ætla að gera bankaviðskipti mín framvegis í gegnum síma! og ákvað að tvítékka á málinu. Svo ég vippaði mér þangað inn. Sá að greiðslan hafði farið á reikninginn og svo fór ég að skoða mig um ... Hei, bíddu, hvað var þetta? Lífeyris-eitthvað, svona séreignardæmi sem ég hafði ekki hugmynd um? Nei, þetta hlaut að vera fádæma grimmdarleg auglýsing um að ef ég ætti þessa upphæð fengi ég x-mikið í vexti ... Hvað er verið að vekja vonir hjá fólki, blekkja það - og það í þess eigin heimabanka? Mig sem vantaði sárlega pening til að geta með góðu móti keypt sjúskuðu íbúðina á draumastaðnum og gert hana heimilishæfa, þetta var allt of gott til að vera satt. Ég sagði vinkonu frá þessu í símtali og hennar viðbrögð voru: „Ekki ýta á neinn hlekk!“ Ég urraði innra með mér en útskýrði að ég hefði ekki fengið neitt sent, engin gylliboð, og langaði að minna hana á að ég hefði náð 85 í greindarvísitölu, tekið greindarpróf á ensku um árið og ekki skilið allt, misskilið sumt, svo ég næði sennilega 150 á íslensku. En hún trúði mér í fyrsta. Það er svolítið eins og að vinna í lottói að lenda í svona. Hjálpar mikið og minnkar áhyggjur.

 

Myndin sýnir bæði gemsann góða OG stórkostlegar strípur sem koma við sögu hér ögn neðar. 

 

 

Daginn eftir kíkti ég í heimabankann (með von í hjarta en fullvissu um að þetta gæti ekki staðist) og ... þetta var rétt, engar skrilljónir en samt, ég gæti keypt þessa íbúð (sem ég gat svo sem með herkjum þó) OG látið gera við það helsta sem kostar sennilega hátt í milljón. Ég var eiginlega búin að gefa íbúðina frá mér því það er ekkert gaman að flytja úr himnaríki í ja ... hreinsunareld. Sá fyrir mér litla kjallaraíbúð þar sem skordýr ættu greiðan aðgang og ég í sífelldu taugaáfalli ... það er talsverður munur á verði íbúða eftir hverfum, hvað þá milli landshluta. En í dag verður gert tilboð, akkúrat mánuði fyrir afmælið mitt, og svo er bara að krossa fingur að keðjan gangi upp sem fyrst. Þá er það Kópamaros, kannski með haustinu ef allt gengur vel.

 

Afsakið veðriðÞað varð allt vitlaust á Akranesi í gær ... sem betur fer er hárgreiðslustofan mín í útjaðri bæjarins, í verslanamiðstöð (þær eyðileggja miðbæi, segja sum) því elskan hún Anna Júlía gerði mig svo fína og sæta ... nú er ég með strípur, ég legg ekki meira á ykkur, hef ekki verið svona ljóshærð í áratugi. Guðrún vinkona kíkti óvænt á Skagann, og beið á meðan strípuathöfnin kláraðist, síðan fórum við að dingla okkur sem er svo gaman á Skaganum. Hún elskar Einarsbúð, eins og ég, þar gat ég keypt inn fyrir helgina ... og svo keypti hún sér fínan kjól í Bjargi, þeirri æðislega flottu og fínu fatabúð, skáhallt á móti hinni verslanamiðstöðinni (sem átti að verða nýi miðbærinn).

Ég þurfti eiginlega að endurhugsa minn gang eftir strípurnar, flytja eða ekki flytja. Ef ég lauma að þér 50 krónum, ertu þá til í að flytja í bæinn með stofuna, langaði mig að segja við hárgreiðsluséníið mitt en svo komst ég að því að hún fær kúnnana sína alls staðar að af landinu, ein kemur alla leið frá Patreksfirði ... hvað er þá einn Kópavogur á milli vina? Sjórinn minn hefur líka verið mjög flottur í sunnanáttinni og rokinu, verður sárt saknað. Þetta er vissulega draumasumarið mitt, ég þori að segja þetta af því að ég er alltaf með læst hjá mér, viftan hefur bara einu sinni farið í gang í allt sumar, EN ... ég hef samt innilega samúð með sóldýrkandi fólki sem er orðið eins og undanrenna á litinn, svo ég sker mig ekki lengur úr.

 

Næstum því hoppandi égMér líður rosalega vel af þessum háþrýstingslyfjum sem ég hef tekið í tólf daga, hugurinn miklu skarpari (sem kemur sér aldeilis vel við yfirlestur), líkaminn líka en ég bíð samt, ekki svo spennt, eftir því að ungdómsvígin falli hvert af öðru. Um leið og ein kýrin byrjar ... þið vitið.

 

Í byrjun júlí féll fyrsta vígið, ég fór á lyf í fyrsta sinn á ævinni (fyrir utan auðvitað verkjalyf, pensillín og slíkt). Í kjölfarið hljóta endajaxlarnir að fara að láta sjá sig ... og mögulega líka ellifjarsýnin sem hefur enn ekki látið á sér kræla. Já, ég er vinkonan sem var látin lesa textann aftan á vídeóspólunum í gamla daga, en ... reyndar sé ég illa frá mér þótt ég sé með gleraugu, og vinka bara öllum sem ég held að séu að veifa mér þótt ég sjái ekki hver þetta er eða hvort viðkomandi er bara að klóra sér í hausnum. Það getur örugglega valdið misskilningi í sumum tilfellum en ég sé eða veit það hvort eð er aldrei. Lítið breyst í áratugi, í hugum sumra er ég kannski skrítna konan sem er alltaf að veifa (reyna við manninn minn, reyna að húkka sér far ... o.s.frv.)

 

Facebook-spurningin 

Hvað gerum við sem við myndum aldrei viðurkenna fyrir öðrum?

 

Frekar mörg svör bárust, og það "vinsælasta" var:

 

- Pissa í sturtu!!!

 

Svo kom:

- Bora í nefið.

- Borða níu dósir af ravioli í einu.

- Prumpa á almannafæri. 

- Dæma annað fólk.

- Gleyma að nota tannþráð.

- Þefa úr eigin armkrikum.

- Drekka mjólk beint úr fernunni.

- Kíkja á nágrannana milli rifa á gardínunum.

 

Að sjálfsögðu er þetta erlend „rannsókn“ enda myndi ekki nokkur hræða búsett hér á landi gera neitt á borð við þetta ...   


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 50
  • Sl. sólarhring: 55
  • Sl. viku: 877
  • Frá upphafi: 1515972

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 733
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 26

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þægilegt líf í 11 mín.
  • Í Ikea
  • Wu Tang-sokkarnir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband