Grímur sem stjórna ...

EyðieyjaEðlileg spurning á þessu heimili: „Það er til Egg Benedict, er þá til Egg Guðríður Haraldsdóttir?“ Í svipuðum flokki og „Var Akrafjallið / bílar / rafmagn til þegar þú varst lítil?“ Mér finnst það bera vott um sérlega gott uppeldi að drengurinn skuli vita hvað Egg Benedict er.

 

Við fórum saman á Galito um hálfsexleytið, hann langaði í nautakjöts-eitthvað, ég var með hakk á kantinum og ætlaði að gera lasagna. Hann féll nú samt fyrir Bernés-borgara ... aftur. Samt hafði ég mælt með nautasteikarlokunni sem ég smakkaði eitt árið og er enn á matseðlinum. Ég fékk mér fisk, ljómandi fínan.

 

Við sátum í miðjum salnum, bæði með „bert bakið“ svo mér leið allan tímann eins og einhver með hníf væri í þann veginn að fara að myrða mig, sennilega reynsla úr æsispennandi fyrri lífum (djók) og það skemmdi svolítið steminguna. Það er einhver njósnari í mér, Bond-tilfinning sem veldur því að ég vil sitja með bakið í vegg til að geta varist þegar hættu ber að höndum.

 

Svo fórum við í sjoppuna á heimleiðinni þó að mig hefði miklu frekar langað í eftirrétt á Galito, það gleymdist að kaupa nammi fyrir helgina. Ég finn svo vel hvað gríman gerir mann eftirlátan og undirgefinn vegna súrefnisskortsins, ekki bara gagnvart stjórnvöldum sem vilja auðvitað hafa okkur stillt, heldur einnig fósturbarni sem langaði í nautakjöt og svo nammi, en líka afgreiðslufólki í sjoppum. „Er það þá komið?“ spurði stúlkan og þótt mig langaði í fullt af nammi í viðbót sagði ég hlýðin: „Já, takk“. Nú er eins gott að orða spurningar til mín rétt því ég segi  við öllu. Ég væri enn í sjoppunni ef hún hefði sagt aftur og aftur: „Eitthvað fleira?“

 

DauðareynslaMig dreymdi vondan draum í nótt sem ég vildi að ég hefði gleymt en vinkona mín kann að ráða drauma og sagði hann vera fyrir góðu, ég ákvað að trúa því. Kannski tengist hann spennandi atburðum í sumar ...

 

Við Hilda erum farnar að undirbúa helgarferð norður á land nú í júlí (barnlausar) og ég er strax búin að pakka niður g-streng og náttfötum sem eru auðvitað ekkert annað en Chanel no 5. Við gistum eina nótt á Sauðárkróki ... og til að gera þetta enn meira spennandi má lesa um rest á Tinder-reikningnum mínum sem verður stofnaður korter í ferðalag. Við systur verðum reyndar saman í herbergi sem skemmir veiðarnar eitthvað, þarf að endurhugsa þetta aðeins og plana betur nú í vikunni. Þetta verður alveg örugglega spennandi ferð ef ég þekki hana systur mína rétt.

 

 

En ég mun segja frá öllu í smáatriðum hér á blogginu sem þá stendur loks undir nafni sem djarft blogg sem engu eirir, ekki einu sinni kaffi.   


Að gosstöðvum í gullstól ...

MæðradagurinnÉg gladdist yfir því sem kom fram í fréttum að leggja eigi betri veg til að auðvelda eldra fólki, hægfara fólki eða letipúkum eins og mér sem fara í ræktina en nenna samt ekki að erfiða í marga klukkutíma til að berja gosið augum. Ekki eftir að eina vinkona mín sem er með sixpakk nærri dó við að fara. Eina sem ég þarf samt að vita er hvaða (hvaðan) kaffi kvennadeild slysavarnarfélags Grindavíkur er með í gosbúðinni. Sennilega Kaffitár ... enda af Suðurnesjum. Það væri nú vel valið.

Það endar vonandi með því að hægt verði að fá burðarmenn, alltaf gaman að sitja í gullstól (sem tveir sterkir og myndarlegir menn búa til með því að flétta saman höndum). Ég þori alls ekki að lesa Eldana eftir Siggu Hagalín fyrr en ég er búin að fara. Það gerist víst eitthvað svakalegt í bókinni þegar búið er að auðvelda ferðafólki aðgang ...  

Nú eru tvö tímafrek verkefni frá og mér finnst ég hafa tíma fyrir hvað sem er núna. Þarf að kaupa suðusúkkulaði á morgun og mögulega baka áðurnefnda úr fyrri bloggum, Nammi, nammi, gott, gott. Fóstursonurinn fékk sérkennilegan glampa í augun þegar ég sagði honum frá þessari köku. Þarf líka að fara í hraðbanka - það verður spennandi skólaferðalag á miðvikudaginn en annars eru bara tvær vikur eftir í skólanum. Mikið ofboðslega er ég hrifin af Fjölbrautaskóla Vesturlands, starfsbrautin þar er að minnsta kosti algjört æði - og mötuneytið og allt starfsfólkið. Drengurinn er stórhrifinn. Hann fer í tveggja vikna sumarbúðir í lok maí og svo er það garðyrkjuvinna í sumar - einhver verður að vinna fyrir heimilinu! 

 

Glefsur:

SjónvarpsglápObama-forsetafjölskyldan var að missa Bo, heittelskaðan heimilishundinn. Forsetinn setti það á Facebook-síðu sína fyrir 5 klst. og þegar eru komin 155 þús. samúðarkveðjur, 1,3 millj. ástartjákn og 52 þús. deilingar.

Mjög ofmetið útvarpsefni að leyfa hlustendum að hringja og tala og tala og fá óskalag ... afsakið geðvonskuna - veljið betri óskalög (Black Sabbath, Radiohead, Abba, Wu Tang Clan, Eminem, Björk osfrv,)

Facebook var rifja upp með mér beiskufulla færslu mína um fatabúð sem seldi allar stærðir og auglýsti til að gleðja okkur ljótu, feitu kúnnana sína: Fegurðin kemur innan frá. Hversu misheppnað, búðin líka löngu farin á hausinn.

Mér tókst að horfa á RÚV frá fréttum og fram yfir fyrri bíómynd kvöldsins sem var bráðskemmtileg. Vel gert, ég horfi annars bara á eldgosið. Gat ekki horft á þá seinni, Fatal Attraction, óttast að ég finni mér giftan elskhuga, myrði kanínuna hans, hóti konu hans og bjóði barninu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn - af því að ég er útivinnandi, metnaðarfull kona sem nýtur velgengni - í stað þess að vera hamingjusöm húsmóðir og eiginkona. Bíómyndir geta haft ótrúleg áhrif. Ég hef ekki týnt fjarstýringu síðan ég sá Sódómu Reykjavík og varla tekið frí síðan ég sá Stellu í orlofi. 


Bloggfærslur 9. maí 2021

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 17
  • Sl. sólarhring: 29
  • Sl. viku: 156
  • Frá upphafi: 1527925

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 121
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband