30.6.2021 | 19:40
Eftir rúmt ár í rólegheitum
Fljótlega eftir hádegi áttaði ég mig á því að ég væri að fara að hitta fjölda fólks úti í íþróttahúsi, þar af heilan helling af sætum körlum, og það eftir örskamma stund. Þetta sló mig því eftir rúmt ár í rólegheitum þar sem slæmur héradagur* skipti engu, ég hef ekki farið í klipp og lit vikum saman og andlitið leit út eins og filma sem þurfti að framkalla. Eftir dauðaleit að snyrtivörum fann ég hjá öllum milljón pennunum einn maskara í veskinu mínu, sem ég keypti eiginlega í djóki í matvöruverslun ... en það fannst ekki einn einasti varalitur.
EN VASELÍNIÐ? hugsaði ég gáfulega og mundi eftir einni vinkonu sem notaði aldrei annað en hið danska illfáanlega á Íslandi Klöver-vaselín til að gera sig kyssilega í denn, og ég keypti slíka dós í Einarsbúð fyrir nokkrum árum. Ég fann dolluna (hún var eins og ný og líka innihaldið) og makaði vaselíni á varirnar, þetta var skárra, miklu skárra. Ég skokkaði af stað í fínu Lindex-regnkápunni minni, heldur betur ánægð með mig, og þá mundi ég eftir því að allir áttu að vera með grímu! Fyrsta almennilega samkvæmið þar sem maður HITTI ALLA og það eyðilagt með andskotans grímu. Ég tróð ógeðinu í andlitið á mér við innganginn og fann hana klessast á vaselínið en ég reyndi að vera jákvæð. Bannað að vera í fýlu á svona hátíðisdegi ... ég hugsaði til ýmissa vina og Þórólfs sem fengu seinni sprautuna í bænum en grunaði ekki að þau slyppu við grímu. Lappeletjandi laugardagslið ...
*Slæmur héradagur. Röng þýðing í sjónvarpi á orðinu bad hairday fyrir nokkrum árum.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Seinni sprautan? spurði hjúkkan áhyggjufull (maskarinn sjokkerandi?) Nú, fannstu ekkert fyrir þeirri fyrri? Þú gætir fengið smávegis aukaverkanir af þessari, sagði hún umhyggjusöm. Ég kvaðst ætla að reyna að muna að taka panodil við heimkomu. Ekki íbúfen, ráðlagði hún og ég lofaði því. Elsku krúttin, fagmennska og gleði, ekkert annað. Ég tók eina panodil fyrir hennar orð en er frísk og hress eins og amerísk kornfleksauglýsing.
Maskarinn fór ekki algjörlega forgörðum því ég var auðvitað tekin á löpp eftir bólusetninguna, eða 15 mín. biðtímann á eftir, bara við útganginn hjá sjúkrabílnum, og við enduðum á stefnumóti í Kallabakaríi. Mig grunar að hárið á mér sem er farið að krullast, ekki af pirringi, heldur sem fegurðarauki, hafi líka heillað. Fínar aukaverkanir af AZDC, ef það eru þær sem gera hárið svona fínt. Ekkert annað hefur breyst og engar aukaverkanir aðrar nema oggulítil eymsli síðast í nokkra daga á stungustað (á handleggnum, ekki íþróttahúsinu).
Karlmenn (karlar eru líka menn) koma mér alltaf á óvart, að hafa verið ógift svona lengi hjálpar lítið til að kynnast eðli þeirra. Ég játaði fyrir þessum sem mig minnir að heiti Sólmar, að ég hafi notað sumarsængina mína síðan í vor en viftan sé líka stundum í gangi, eða þegar hitinn fer upp í óbærilegar 11°C plús. Ég er mjög hot.
Sólfinnur vildi nú ekki meina að ég bæri ábyrgð á að sumarið væri svona kalt, hann gæti ekki ímyndað sér að ég ögraði nokkru eða nokkrum með því að hafa farið að nota hana, eins og ég dirfðist að búast við hlýju sumri (skynsamur karl) ... og sagði mér svo að hann ætti kínverska sæng úr silki - sú tryggði honum alltaf sama hitastigið hvernig sem veðrið hamaðist úti, sól og viðbjóður eða hríð og hamingja ... eins og ég myndi orða það, vetrardrottningin sjálf. Ég var svo hissa, karl sem notar kínverska silkisæng? Í raun hef ég alltaf séð fyrir mér druslulegar gólftuskur sem hafa verið saumaðar lauslega saman sem hina einu sönnu karlmannlegu sæng, og ljót sængurver ef nokkur ... Kannski hef ég lesið of margar bækur um Jack Reacher og Morgan Kane ... ég hef ímyndað mér karlmenn sem tilfinningalausar ástarsorgarmaskínur (sem valda ástarsorg) og yppa bara öxlum og bíta á jaxlinn þegar þeir mæta mótlæti. Frábær rithöfundur og nú fréttamaður klökknaði þegar ég orðaði þetta við hann fyrir mörgum árum, og ég hélt að hann væri kannski undantekningin sem sannaði regluna.
Sólröður virkaði ljúfur svo sennilega hef ég kolranga sýn á karla. Nú eru mörg ár síðan ég hætti að drekka mig út úr á veiðum, berja þá á bakið og segja eitthvað groddalegt: Djöfull var sólarlagið væmið og viðbjóðslegt í gær. Það virkaði aldrei - ég er viss um núna að taugakerfi þeirra sé fínlegra en ég hélt og þeir mögulega viðkvæmir ... eins og til dæmis Ronaldo þegar hann kemst ekki í átta liða úrslit.
Nú hef ég öðlast takmark í lífinu ... að eignast kínverska silkisæng sem tryggir gott líf sumar sem vetur, sæng Sólgarðs kostaði um 18 þúsund kall, en hann keypti hana í Kína svo ég efast stórlega um að ég fái hana í Rúmfó. En ég er hræðilega léleg í því að kaupa á netinu svo þetta verður mikil áskorun.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.2.): 5
- Sl. sólarhring: 108
- Sl. viku: 886
- Frá upphafi: 1518347
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 762
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.