Nýtt um Challenger og undarlegt boð á ættarmót

Ættarmót í SkagafirðiEins og allra nánustu bloggvinir mínir vita á ég heilan helling af yndislegum systrum og hef því í gegnum tíðina eignast nokkuð marga mága, hina bestu menn. Einn þeirra gerði sér lítið fyrir í dag og bauð mér á ættarmót, eða í Facebook-hóp sem heitir Ættarmót Sigurfljóðar og Gottsveins frá Sódavatni (nöfnum breytt til að vernda ættingja hans). Umm, hugsaði ég, hvaða systir átti aftur þennan mann? og þegar ég mundi það loksins hringdi ég í hana. Þau voru ekkert skyld svo hann hafði alveg óvart boðið mér óskyldri (skv. Íslendingabók) í hópinn, kannski öllum sínum Facebook-vinum. Miðað við hvað samkvæmislíf mitt hefur verið óspennandi síðustu árin (covid hjálpaði lítið) hefði ég átt að þiggja boðið og mæta. Sennilega hef ég ekki komist nær kynlífi en þetta skrambi lengi, miðað við það sem ég hef heyrt um sum ættarmót. Ættingjar mínir í Skagafirði eru mjög siðprúðir í alla staði, ég fór síðast á ættarmót 1985 en tala samt af reynslu. Langalangafi minn úr Hegranesi átti vissulega 32 börn en þau voru langsamlega flest fædd innan hjónabands. 

Myndin fyrir ofan er frá ættarmóti í Skagafirði eitt árið.

 

Hjá KajuVið stráksi ákváðum að gera okkur verulega glaðan dag og skruppum í bókabúðina bestu, síðan á kaffihús Kaju (opið þar til 16.30 alla daga en ekki til 16, eins og ég sagði í bloggi fimmtudagsins). Engum fleygt út fyrr en klukkan fimm, skilst mér. Samloka og latte, snúður og kakó, og við bæði alsæl.

 

Gamall skólafélagi drengsins, vinnur við afgreiðslu þarna og á meðan hann gekk frá hreinum bollum og vann á fullu bak við afgreiðsluborðið, og við svona við það að fara, fórum við að spjalla. Challenger-geimskutlan barst í tal, eðlilega, sú sem sprakk í loft upp 1986, skömmu eftir flugtak. Ég sagði honum hræðilegu söguna af mér þegar ég rændi Newsweek-tímaritinu af tannlæknastofu til að geta lesið mér til um þetta og skoðað myndirnar, ég var samt með 14 tommu lánssjónvarp (sem ég missti svo skömmu síðar þegar foreldrar mannsins sem ég hætti með þurftu það aftur í kjölfarið) en náði þó aldrei að sjá þetta í fréttunum. Og svo kom rannsóknarlögreglan (þið munið) sama kvöld eða um helgina, en ekki út af þessu, mjög góð og fín heimsókn þótt ég hafi ekki getað hjálpað til við lausn neins máls, því miður, það er draumur minn. Ég hélt í nokkrar sekúndur að það væri verið að gera sérstaka rassíu vegna þjófnaðar á tímaritum á biðstofum. Það eina sem ég hafði mér til málsbóta var að ég skildi brakandi nýtt DV eftir í staðinn. En ljúfi strákurinn á Kaju bætti heilmiklu við Challenger-vitneskju mína:

 

Challenger„Þau dóu nú ekki í sprengingunni!“ sagði hann. Ég hváði, vissi reyndar að ekki hefði allt komið fram þarna um árið til að hlífa aðstandendum, en hann hafði séð í heimildamynd eða þætti um slysið á YouTube - að þau hefðu látist við að lenda á jörðu niðri. Ég hélt að ég myndi aldrei frétta neitt meira um þetta - alveg eins og ég nenni ekki að lifa í 90 ár í viðbótar til að vita hvað stendur í erfðaskrá Filippusar prins, drottningarmanns. 

 

Engar samsæriskenningar, fullyrti hann en bætti samt við að þær væri nú samt að finna þar, „það er bókstaflega allt á YouTube,“ sagði hann. „Allt!“ Ég hef reyndar horft á eina heimildamynd þar um þríbura sem voru aðskildir sem ungbörn en hittust fyrir tilviljun þá ungir menn, en annars bara tónlistarmyndbönd og skælt yfir því að öll gleði hafi verið bönnuð þegar ég var unglingur, höft voru það vinsælasta. Móðir mín braut sennilega lög þegar ég var lítil því hún var alltaf með Mackintosh-sælgæti á jólunum, alltaf. Þegar ég loks hafði efni á því sjálf, það var eftir fimmtugt, var búið að breyta molunum svo mikið að mér finnst minna varið í það. Nóa konfekt hefur enn vinninginn, og laufabrauð með malti og appelsínu ... vó, stoppaðu, frú Guðríður. Það er fyrsti vetrardagur í dag, ekki fyrsti í aðventu.

 

HullamyndElsku Ellen frænka er orðin hirðpantarinn minn og tekur fjandsamlegar vefverslanir alnetsins í nefið. Hún sér í gegnum vondar síður sem svindla á fólki og hlustaði þolinmóð á mig áðan þegar ég sagði farir mínar ekki sléttar af samskiptum mínum um daginn við dagsson.com ... sem er bara elskan hann Hulli. Þegar ég reyndi að borga jólagjöf sem ég hugðist kaupa þar dýrum dómum (þannig séð) endaði ég í BAD GATEWAY ... og fann hvergi símanúmer eða neitt til að hafa samband og fá aðstoð eins og þegar ég keypti fínu myndina eftir hann um árið (sjá mynd). Ég sagði þá hvaða mynd, millifærði og fékk hana svo senda í pósti. Hversu frábært!

 

Munið, þið sem reynið að selja dót: Betri síður, meiri sala! Fyrir jól í fyrra missti ein slík síða af því að selja mér fokdýra þyngingarsæng af því að greiðslusíðan var á ensku og þótt ég lesi Stephen King af miklum móð, gleði og skilningi skil ég ekki sumt og margt af því tengist einmitt greiðsludæmi á sölusíðum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Mörlendingar sváfu langflestir hjá ættingjum sínum þar til Pólverjar fluttust til landsins og því geta margir Mörlendingar sent öllum vinum sínum á Snjáldru (Facebook) boð á ættarmót. cool

Þegar kosið var til Alþingis nú í haust kom í ljós að nýr þingmaður, Lenya Rún Taha Karim, var ekkert skyldur öðrum þingmönnum og því var snarlega kippt í liðinn með endurtalningu í Norðvesturkjördæmi. cool

Lenya Rún Taha Karim

Þorsteinn Briem, 24.10.2021 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 17
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 159
  • Frá upphafi: 1527954

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 127
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Gemsinn
  • Mávur óttans
  • Fb grúppur Gamla fólkið

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband