Rafvirkinn sem hvarf og möguleg hrekkja-húsráð

SamkeppniEnn og aftur skörum við Skagamenn fram úr. Eitt sinn voru það kartöflur, knattspyrnumenn og fagrar konur, og enn á þetta allt við, enn setjum við met vegna fríðleika Skagakvenna, það breytist ekkert þótt ég segi sjálf frá, stöku frávik eins og Húsavíkurafbrigðið 1986, frænka mín ættuð frá Flatey á Skjálfanda sem lagði heiminn að fótum sér. Nú er það ómíkrómskóvítið.

 

 

Myndin er frá keppni en ég fann enga af konum, sennilega þessir femínismar þarna sem hafa tekið þær af Internetinu.

 

Ég hafði hugsað mér að skreppa í dagsferð í bæinn á morgun en var tvístígandi með það, ef ég hef fengið kvikindið í mig er ein manneskja í bænum sérlega viðkvæm og má alls ekki við covid fremur en öðru. Og um leið og ég heyrði fréttirnar í gær fór ég að finna til eymsla í hálsi og svo aftur í morgun þegar ég mundi eftir þessu. Svipað og þegar ég sat saklaus í sóttkví í fimm daga fyrir rúmu ári. Það sem ímyndunaraflið getur gert. En ég held að þótt ég hafi engar tölur séð í dag að þetta sé frekar afmarkað, svo ég dríf mig bara með strætó. Það þarf að nota farmiðana áður en þeir verða ónýtir í mars. Strætó alltaf sama dúllan - ef það væru ekki svona dásamlegir bílstjórar ...

 

SkórÉg lærði aðferð til að gera fínu nýju vetrarskóna mína þægilegri eða laga þá að fótunum á mér. Það er að ganga þá til með því að vera í rökum og sæmilega þykkum sokkum og hafa sjampó í vatninu sem þeir eru bleyttir með. Sjampó víkkar. Vinkona mín frá Litháen er mjög fróð þegar kemur að húsráðum þótt bjúgráðið með hvítkál utan um fætur yfir nótt hafi ekki virkað. Til að minnka skóna aftur, sleppa sjampóinu en nota spíra út í vatnið. „Vodka?“ spurði ég eins og ég ætti helling af því. „Já, alveg eins,“ svaraði hún. Spíri þrengir.

 

 

Ég er núna í rökum, sjampóvættum sokkum ofan í skónum og ætla að nota hið séríslenska (held ég) ráð einnig, að troða samankrumpuðum dagblöðum ofan í þá á meðan þeir eru enn heitir og leyfa þeim að vera þannig nokkuð lengi. Gerði það eitt sinn við mikla uppáhaldsskó sem hétu Sckala-skór, eitthvað slíkt, og voru einstaklega flottir, danskir og dýrir. Sólinn hentaði íslenskum vetri engan veginn svo ég fór með þá til skósmiðs í Garðastræti til að fá vetrardekkin. Ég átti þá árum saman og þegar mál var komið að skipta voru Danir hættir að framleiða þá. Thank you very many!

 

 

Svo er litháíska vinkonan kannski með sérkennilegan húmor, hefur komið fyrir földum myndavélum á heimili mínu og hlær tryllingslega að mér þegar ég fer eftir ráðum hennar. Mögulega með YouTube-rásina: Paerzinti drauga ... a-ið aftast með hlykk niður úr sér, eða Að hrekkja vinkonu. Milljónir fylgjenda sáu kannski þegar ég vafði hvítkáli um bjúgþykku fætur mína og fór í sokka utan yfir. Sáu og hlógu þegar ég vaknaði berfætt, furðulostin, og þurfti að tína kál úr rúmfötunum og undan rúmi, þvo rúmfötin og setja hrein. Enn með bjúg.

 

Dyrabjalla Himnaríkis er enn biluð og það er farið að bitna illilega á ástalífi mínu, hef ég á tilfinningunni. Mamma hefur alltaf lagt hart að mér að hafa vissa hluti í lagi og einn þeirra er dyrabjallan. Áriðandi eftir að lyftukranarnir hættu að vera hér fyrir neðan allar nætur.

Útskrifast nógu margir rafvirkjar ár hvert úr fjölbrautaskólanum til að það dugi Skagamönnum? Er rangt af mér að hafa skipað aðeins einn, reyndar mjög skemmtilegan, hirðrafvirkja í Himnaríki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 199
  • Sl. sólarhring: 281
  • Sl. viku: 1741
  • Frá upphafi: 1460674

Annað

  • Innlit í dag: 184
  • Innlit sl. viku: 1408
  • Gestir í dag: 177
  • IP-tölur í dag: 177

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband