Misskilinn talnanörd og bull um Blóðbankann

Litla stúlkan með kveikjarakassannGærdagurinn markaði tímamót í lífi mínu en þá áttaði ég mig á því í eitt skipti fyrir öll að ég er talnanörd. Að sjálfsögðu ætti ég að vera stærðfræðingur að mennt en þegar ég hefði átt að vera í HÍ, Harvard eða Oxford lá ég í öskustónni, eða í hverri leiguíbúðinni af annarri þar til ég gat keypt mína eigin, og með fjörugt dásemdarbarn í farteskinu. Oftast í tveimur störfum, þó með í eyrunum það sem skólasálfræðingurinn sagði svo uppörvandi: „Hann þyrfti heimavinnandi mömmu sem biði eftir honum með vöfflur og kakó eftir skóla.“ Það var svoooo freistandi að nota milljónirnar sem ég átti ekki til að gera eins og hún sagði, eða giftast fyrsta milljónamæringnum sem yrði á vegi mínum ... en ég stóðst þær freistingar.

 

Já, þetta með talnanördismann ... Í gær sá ég á Stykkishólmssíðu (ég átti heima þar fyrstu ár ævinnar) á Facebook færslu frá manni sem var fúll yfir því að fá ekki að vita hvort væru smit eða einhverjir í sóttkví í bænum hans fagra. Hann sagðist sakna upplýsinganna frá Lögreglunni á Vesturlandi.

 

KóvídkortiðÞá kíkti ég í fyrsta sinn á þetta nýja dæmi frá RÚV, Íslenska kóvidkortið, og gef því háa einkunn fyrir flottheitin en ekki svo háa fyrir tímasparandi þætti. (Svona eins og sá eða sú sem hannaði ja.is klikkaði á einfaldleikanum, það eru alltaf tvö skref að símanúmerinu sem var ekki áður).

Til að fá tölur yfir nýgengi smita (sem segir mér reyndar ekki neitt af því að lífið synjaði mér um þann sjálfsagða rétt til að verða stærðfræðingur) ýtir maður á það, þysjar svo inn á landsvæðið, bæinn sinn, til að sjá það. Svo langar mann kannski í beinharðar tölur, ýtir á Ný tilfelli og endurtekur leikinn - að síðustu er hægt að ýta á Fjöldi í einangrun - og þysja ... Tölunum um fólk í sóttkví er haldið leyndum ... Þetta nýja dæmi tekur mínútur á meðan sekúndur fóru í hitt. Veit þetta fólk ekki að við lifum á hraðri gervihnattaöld?

 

Ég lét manninn vita að enginn væri smitaður í Hólminum skv. þessum upplýsingum, og fór síðan á eigin síðu og kvartaði yfir þessu - þar sem ég mætti sannarlega engum skilningi hjá Facebook-vinum mínum, heldur þvert á móti. „Að velta sér upp úr tölunum eykur bara á streitu og ótta,“ sagði einn umhyggjusamur sem greinilega þekkir mig lítið. Aðrir sem þekkja mig betur tóku næstum í sama streng - og ég var orðin frekar hissa. Hvernig datt fólki í hug að ég vildi aðgang að þessum tölum vegna ótta eða þarfar á því að viðhalda ótta? 

Svo bara allt í einu opnaðist fyrir mér sá sannleikur að tölur hefðu alltaf leikið stórt hlutverk og átt þátt í lífi mínu. Ef jörð skylfi yrði ég að vita hvort skjálftinn hefði verið t.d. 3,7 eða 3,8, ég yrði líka að fylgjast með í miklu hvassviðri hversu hátt hviðutölurnar færu, líka þegar ég væri ekki á ferðinni sjálf á Kjalarnesi. Tölur bara gefa mér eitthvað. Að kunna flest póstnúmer utan að segir eitthvað, mamma hringdi iðulega í mig á meðan hún skrifaði jólakortin, og þegar ég ætla virkilega að slá um mig tala ég um 550 í staðinn fyrir Krókinn, 620 í stað Dalvíkur og svo framvegis. Aðdáunaraugnaráðið sem ég uppsker gerir þetta allt þess virði.

 

Ég veit samt eiginlega ekki hvort ég nenni að fylgjast með tölum á þessari Kóvidsíðu vegna uppsetningarinnar, en finnst þó fínt að hún sé til staðar, enda á ekki að leyna fólk upplýsingum sem eru hvort eð er teknar saman og stefna ekki þjóðaröryggi í hættu. Það á aldrei að hafa vit fyrir fólki. Blóðið í mér fer að sjóða þegar ég hugsa um unglingsárin og hvað stjórnmálamenn þess tíma höfðu mikið af okkur með forsjárhyggju að vopni. Sjá má átakanlegar færslur mínar um einmitt það, hér á blogginu, ef einhver nennir að skrolla. Þarf ekki að þysja ...

Hversu erfitt samt hefði verið að gera skástrik, t.d. 15 / 27, sem væri smitaðir / í sóttkví? En auðvitað á ekki að breyta heiminum til að talnasjúkur talnanörd verði hamingusamari. Ég geri mér grein fyrir því. 

Enginn segir að ég sé jarðskjálftahrædd eða veðurhrædd þótt ég fylgist nánast daglega með tölum á vedur.is. Það má alveg kalla mig nörd. Það er nákvæmlega ekkert að því að vera nörd. En plís, ekki halda að ég vilji aðgang að kóvídtölum til að næra einhvern ótta. 

 

1267_BlodbankabillNýleg saga segir að Blóðbankinn taki ekki við blóði frá bólusettu fólki. Ég kíkti á síðuna, netið, eins og ég geri oft þegar ég sé eitthvað sem ég á erfitt með að trúa eða trúi alls ekki og sá auðvitað ekki neitt um þetta. Ég var pínkupirruð (þessi tími mánaðarins, frá 1. til 31.) og hringdi svo bara í Blóðbankann. Talaði þar við elskulega konu sem varð nánast örvæntingarfull vegna erindis míns. „Okkur vantar alltaf blóð,“ sagði hún, „stærstur hluti landsmanna er bólusettur, við yrðum í hræðilegum vandræðum ef bólusett fólk mætti ekki gefa blóð, þetta er algjört bull!“ Við kvöddumst með kærleikum og loforði mínu um að gefa blóð næst þegar Blóðbíllinn kæmist á Skagann.

 

Eitt sinn sá ég vísað í Daily Mail vegna fréttar um „yfirgengilega frekju“ fólks sem er ætíð flokkað eftir trú sinni, sem hefði heimtað að nokkrir Subway-staðir í London yrðu svínakjötslausir. Mér fannst þetta ótrúlegt svo ég gúglaði. Í ljós kom að einhver hjá Subway hafði fengið þessa fínu viðskiptahugmynd að opna nýja og svínakjötslausa staði í hverfum þar sem múslimar væru í meirihluta. Það virkaði mjög vel. Ég borða ekki svínakjöt, aðallega vegna illrar meðferðar á svínum, ég veit samt að það er ekki allsstaðar. En svona fréttaflutningur fer ósegjanlega í taugarnar á mér, rangar, mistúlkaðar og stundum falsaðar fréttir til að etja fólki saman. Slíkar fréttir eru ekki síst notaðar þegar kemur að „hættum“ bólusetninga.

 

Konan hjá Blóðbankanum sagði að það gengi sú saga að blóðið í fólki skipti um lit við bólusetningu ... við hlógum báðar en verðum svo kannski brenndar á báli eða hýddar opinberlega sem villutrúarkonur þegar kemur í ljós að kóvitarnir höfðu rétt fyrir sér allan tímann ...Ef sagan er sönn vil ég blátt blóð, annað kemur ekki til greina! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 118
  • Sl. sólarhring: 256
  • Sl. viku: 2068
  • Frá upphafi: 1456821

Annað

  • Innlit í dag: 109
  • Innlit sl. viku: 1764
  • Gestir í dag: 107
  • IP-tölur í dag: 106

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Gardínukettir
  • Ostapítsa með sultu
  • Náttborð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband