24.8.2022 | 14:46
Friðhelg tónlist og kramdir bílar: ævintýraferð til Eyja
Vestmannaeyjar tóku ansi hreint vel á móti okkur Hildu systur, dóttur hennar, tengdasyni og tveimur unglingsstrákum. Það var ljómandi snjallt að halda örafmæli fyrir jólakúlufólkið sitt, en samt áskorun að fara strax daginn eftir til Eyja.
Ég gat ekki stillt mig um að vera með tertu þrátt fyrir óeðlilegheitin (eða að bjóða ekki sjötíu allra nánustu). Ég bað konditorimeistarann að laga alls ekki villurnar á tertunni og sendi henni textann með undirskriftinni BITRINGUR (ekki Birtingur)en hún leiðrétti undirskriftina en leyfði öðru að halda sér.
Og ég hætti ekki í neinum leiðindum, alls ekki, það voru skipulagsbreytingar fram undan sem hefði þýtt meiri vinnu og þar af leiðandi meira álag (sem ég hef forðast undanfarin ár). Þau munu svo sannarlega pluma sig vel án mín, frábært fólk þarna sem ég er strax farin að sakna. Og ég mun líka hafa nóg að gera.
Eins og flest (öll) ferðalög snerist þetta til Eyja um að finna sem fyrst besta kaffið og það tókst í hvelli. Ég hefði sennilega aldrei hætt í Ísfélaginu 1974 ef það hefði þá verið komið á næsta horn, sjávarmegin - en þá var svo sem enginn að pæla í góðu kaffi. Það heitir Vigtin - bakhús og er einnig bakarí. Við "stunduðum það" þessa tvo daga okkar. Við kíktum í búðir og ein þeirra, Flamingo, var ansi flott. Ég beið úti í bíl meðan mæðgurnar fóru inn, ég missi oft lífsviljann í búðum og fer bara ef nauðsyn kallar. Hilda kom út með tvær fínar flíkur og bað um álit mitt, ég benti á aðra þeirra, hugsa að þessi klæði þig betur, sagði ég, og svo urðu mæðgurnar að játa að þarna væri elsku Ellen frænka að reyna laumulega að kaupa afmælisgjöf handa mér ... Svo ég fór inn og hreifst af allri litadýrðinni þar. Valdi mér dásamlega peysu, í afar fallegum bláum lit, hef varla farið úr henni síðan. Mig vantaði bók (Gjöf hjúskaparmiðlarans) svo ég fór í bókabúðina þar sem áður var sjoppan sem ég verslaði við þegar ég starfaði í Ísfélaginu. Stelpunum þar fannst ekkert merkilegt að ég hefði keypt sælgæti þar eitt sinn (fyrir rúmum 48 árum) í sjoppuferð fyrir sjálfa Shady Owens. Hvaða Shady? sagði önnur þeirra alveg áhugalaus. Ég er viss um að hún hefur aldrei heyrt um Hljóma eða Trúbrot, Uriah Heep eða Led Zeppelin, hvað þá Slade, Pink Floyd eða Jethro Tull. Greinilegt að menningin náði aldrei til Eyja þótt þær séu svona skammt frá Íslandi (eins og stráksi orðaði það.) Getur verið Eyjar séu friðhelgar á einhvern hátt? Ekki spilla hreinleika þeirra-dæmið, eins og á við um t.d. Surtsey, en samt mega ferðamenn koma þangað. Það gæti útskýrt af hverju ég heyrði bara tónlist Loga; í búðum, á veitingastöðum, á götum úti, lítil leikskólabörn rauluðu Minningu um mann á Vestmannabrautinni þannig að ég táraðist. Vá, hvað Logar hljóta að vera þreyttir eftir Þjóðhátíð ...
Mynd: Stráksi að spranga.
Húsið sem við gistum í var á tveimur hæðum, við vorum sex og herbergin fimm sem passaði ljómandi vel. Hilda pantaði húsið í maí og það var ekki sérlega dýr en þegar hún kíkti á verðið nú nýlega kostuðu tvær nætur í september næstum helmingi meira en við borguðum um miðjan ágúst. Framboð og eftirspurn-lögmálið ... dæs. En þetta var notalegt hús og mjög vel staðsett. Stutt að fara út að borða ... hjá Gott fyrra kvöldið og Einsa kalda það seinna. Svakalega góður matur hjá báðum, veit ekki hvaða kaffi er hjá fyrrnefnda staðnum en heyrði að það væri ekkert sérstakt hjá Einsa kalda svo ég sleppti því.
MYNDIN er af gamla Ísfélagshúsinu en ég fann út eftir þrotlausa rannsóknarvinnu að nú væri þar banki, einnig íbúðir. Lengst til vinstri sést í húsið sem hýsir Vigtina kaffihús. Nú er Ísfélagið flutt lengra til vinstri við þessa sömu götu, sýndist mér á bíltúrum okkar, og með aðsetur í kassalaga húsi sem hentar sennilega betur en það gamla.
Við heimsóttum hið flotta safn um eldgosið í Heimaey 1973, leyfðum strákunum að fara í sund og að spranga sem tókst bara vel hjá þeim. Á sunnudeginum skruppum við í búð og ég varð stjörnustjörf þegar sonur einnar af eftirlætis-Instagramstjörnum mínum afgreiddi mig. Ég tók Dustin Hoffman á hann (New York, 1991) eða lét sem ég þekkti hann ekki og nöldraði með dassi af kærleika yfir því að innkaupapokar væru ekki við kassann ... eins og hann réði því. Það er alltaf verið að reyna að stjórna okkur, takið poka ÁÐUR en þið farið á kassann, en sem gestur í Eyjum og búin að tæma töskuna mína af margnota pokum vegna ferðalagsins, var fúlt að þurfa að klofa yfir manneskjuna fyrir aftan sig í biðröðinni við kassann (Hildu systur) til að ná sér í poka. En börn samfélagsstjarna eru friðhelg, finnst mér, og maður lætur þau í friði, eins og stjörnurnar sjálfar auðvitað líka.
Um kvöldið, það síðasta, jöpluðum við á sælgæti yfir Eurovision-myndinni um m.a. álfa Húsavíkur, alltaf jafnskemmtileg. Eina svindlið mitt frá 16:8-dæminu þar sem ég borða bara milli 12 á hádegi og 20. Og eftir að hafa náð okkur í almennilegt kaffi, enn einu sinni, frá Vigtinni, fórum við í biðröðina að Herjólfi. Við bryggjuna mætti okkur hroðaleg sjón, eða sundurkraminn bíll eftir bílalyftu Herjólfs svo við ókum skjálfandi inn í skipið. Ég hugsaði um hundana sem fá hvergi að vera nema á bílaþilfarinu þar. Það lifðu allir það af þegar ég og fyrrverandi eiginmaður minn (einn af þeim fyrstu) fórum reglulega með Akraborginni með hundana okkar. Við héldum okkur bara úti og hundarnir voru ekki lausir. Enginn amaðist við okkur. Mikið vona ég að dýrahatur sumra sem fara með völd fari minnkandi og við getum öll, menn og dýr (líka mávar), farið að lifa í sátt og samlyndi. Þó hvika ég ekki frá kröfum mínum um að vissir býflugnabændur hafi stinguflugur sínar alltaf í ól.
Myndin er af sérstökum kattahvíslara Himnaríkis sem ásamt móður sinni gætti kattanna á meðan þessi dásamlega kaffi-sprang og fleira-djammferð til Eyja var farin.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 14
- Sl. sólarhring: 41
- Sl. viku: 638
- Frá upphafi: 1506037
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 523
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.