25.10.2022 | 23:00
Loksins almennilegt partí en ... furðufréttir af kóngi
Samkvæmislíf mitt hefur dregist nokkuð saman (verið afar sorglegt) síðustu árin (áratugina) og í raun aðeins eigin afmælisveisla í ágúst sem munar um. Þangað til í dag upp úr klukkan fimm. Þá fórum við stráksi og Inga vinkona í almennilegt partí í Iðnó í Reykjavík.
Drengurinn hitti stjörnurnar sínar, vissi fyrir fram bara af Katrínu, en varð mjög glaður þegar hann sá Áslaugu Örnu. Ég hef vitað lengi að honum fyndist hún æði og sagði stundum til að kæta hann: „Hei, kærastan þín er í sjónvarpinu,“ og uppskar mikinn hlátur. Ég sagði Höllu frænku frá þessu, hún var á sama boðslista og ég, og hún hvatti mig til að kynna þau tvö. Áslaug reyndist vera algjört yndi og ekkert mál að ég fengi að taka mynd af þeim tveimur saman. Glaðasti drengur í heimi trúði því varla að þetta væri að gerast ... Hugrekki okkar jókst við svona fallegar móttökur svo næsta fórnarlamb var sjálf(ur) forsætisráðherra sem var heldur betur til í að vera með á mynd með svona sætum Skagamanni.
Nú fer að verða komið ansi flott myndasafn og mál til komið að láta prenta myndirnar út, ramma inn og hengja upp á vegg. Hann á myndir af sér með flottasta fólki í heimi: Páli Óskari, Herra Hnetusmjöri, Lalla töframanni og jólasveininum og nú bættust tveir ráðherrar í hópinn. Bjarni Ben var vissulega á staðnum en fékk að vera í friði þar sem drengurinn kannaðist ekkert við hann en ég var til öryggis tilbúin að hóta öllu illu: „Veistu að ég þekki tengdaföður þinn? Hann á afmæli 12. ágúst eins og ég (og Sveinn Andri og Ásdís Rán og Halldóra Geirharðs) og fyndist sjálfsagt að drengurinn fengi ...!“ Verst samt hvað Baldvin er indæll og sennilega ómögulegt að hræða nokkurn með honum. Nei, ég var að pæla í leiðinni í því að biðja BB um að hætta með uppgreiðslugjald á lánum Íbúðalánasjóðs, skipta sumum Jónum út hið snarasta og fleira mikilvægt - en þetta var partí og í partíum er stranglega bannað að tala um stjórnmál, trúmál, fjármál og sjúkdóma.
Og nei, þetta var ekki ríkisstjórnarpartí og ég sérstakur ráðgjafi og hirðbloggari þar, eins og auðvelt væri að giska á, heldur fínasta útgáfuboð. Sem betur fer fann ég ekki kampavínið (nennti svo sem ekki að leita) því kampavín hefur stundum of hressandi áhrif ... Slúður: Ónefndur eldri rithöfundur ætlaði að fremja hinn fullkomna glæp þarna í Iðnó og ræna sögu um glæp. Ung kona stöðvaði gjörninginn og las honum pistilinn. Tek undir með frænku (hún var vitni að þessu) sem leggur til að skáldið fái sent eintak af bókinni með skilaboðunum: Þú gleymdir þýfinu!
Ég hef reynt að vera ótrúlega jákvæð (hann hefur breyst-jákvæð) í garð Karls III (sjá færsluna: Ég vissi það, ég vissi það). Hann var að missa mömmu sína, karlgreyið, og taka við veldissprotanum ... mun síðar en hann vonaði, held ég, væri pottþétt á verktakalaunum sem þjóðhöfðingi byggi hann á Íslandi (sbr. Boga).
En ... ég fékk þær fúlu fréttir nýlega að Karl væri kattahatari (má það bara?) og er virkilega þakklát fyrir að hann sé ekki forsætisráðherra Bretlands, hvað yrði þá um Larry? Það er auðvelt að elska bæði hunda og ketti, yðar hátign.
Búseta mín á 3. hæð er líklega eina ástæðan fyrir því að ég er ekki með hund líka. Ég náði að klappa dýrlegum hundi í Grundarfirði um helgina, eigendur: kaffismekkkonur frá Stykkishólmi. Og í kvöld Husky-hvolpum við Iðnó, mjög kátum og til í klapp á milli þess sem þeir reyndu að veiða gæsir og svani við Tjörnina.
Það kom upp viss söknuður í kvöld eftir elsku höfuðborginni, þar sem ég bjó svo lengi. Lyktin, hávaðinn, ljósin, stemningin ... en ég held samt að það yrði ekki auðvelt að rífa sig frá Himnaríki, sjónum mínum, öldunum, fólkinu, Skagahundunum, Einarsbúð og svona ... Halla frænka stakk upp á því að ég fengi mér sumarhús/sumarbústað í Reykjavík. Ég yrði þá að vinna feitt í lottói eða gifta mig til stórfjár, hugsaði ég döpur því það eru komin hátt í 20 ár síðan líkurnar á því að ég lenti í hryðjuverkaárás jukust til muna ... og ég man ekki líkurnar í svona happdrættum og lottóum, þær eru eiginlega engar. Mig dreymdi samt nýlega fyrir peningum. Draumnum verður ekki lýst hér, ekki á þessu pjattaða bloggi.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 7
- Sl. sólarhring: 41
- Sl. viku: 487
- Frá upphafi: 1526994
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 410
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.