Nafli alheimsins fundinn

ÞurrkaraklútarHöfuðborgin var heimsótt í dag (eiginlega í gærkvöldi og gist), stráksi átti erindi og ég fylgdi með. Hilda hirðbílstjóri fór með okkur um víðan völl og við heimsóttum meðal annars álfa og svo nokkrar verslanir, einn dýralækni (sjúkrafæði fyrir Kela) og eitt kaffihús sem er með opið lengur en flest, jesssss (Te og kaffi í Garðabæ).

Sár skortur hefur til dæmis verið að myndast í Himnaríki á þurrkaraklútum sem sjá til þess að þvotturinn í þurrkaranum komi út þurr og rafmagnslaus. Eru ekki allir löngu hættir að nota mýkingarefni til að afrafmagna? Held að klútarnir séu skárri valkostur en það.

Costco bauð upp á sítrónukökuna góðu en það var Kostur sem átti þurrkaraklúta, ekki þessa góðu frá Kirkland (sjá mynd) en frábær og sérlega hjálpleg starfskona í Kosti benti okkur á öðruvísi klúta í litlum pökkum. Hún sagði líka snjallt að nota klútana í skó til að varna lykt ... og Hilda fékk glampa í augun, enda með fótboltastrák, svo hún keypti pakka.

 

Áður en við skutluðum stráksa rétt eftir hádegið prófuðum við ítalska samlokustaðinn (Cibo Amore) í Hamraborg og það er ekkert skrítið að þau þurfi oftast að loka fyrr á daginn af því að allt klárast nánast jafnóðum. Hamraborgin er eiginlega nafli alheimsins, ég væri til í að búa í íbúð þarna fyrir ofan ... ekki of mikill gróður, heldur dásamleg pöddulaus steinsteypa með flottri þjónustu allt um kring. Þar er dýralæknir, veitingastaðir, tannlæknir, blómabúð, kaffihús, matvöruverslun ... svo fátt eitt sé talið. Mér skilst reyndar að það eigi að fara að byggja þarna fyrir aftan svo það gætu orðið læti. Spurning um að vera þá með enn háværari músík ... já, ef ég flyt suður kæmi Hamraborg vel til greina. Ekki verra að hafa stóra strætóstöð rétt hjá, já, og Gerðarsafn er þarna líka, og bókasafn. OG EKKI MÁ GLEYMA KATALÍNU!

 

Kærulaust fólkÉg hef stundum hugleitt hvort ég sé jafnvel að breytast í Hildu systur (ekki leiðum að líkjast). Ég er hætt að vera fréttasjúk, held ég hafi örmagnast eftir að hafa þurft að fylgjast grimmt með bæði jarðskjálftum og eldgosum, fyrir utan Covid-fréttir síðustu árin, en tók það skrefinu lengra en hún og nenni ekki að horfa á neitt nema eldgos í sjónvarpinu. Eins og hún hlusta ég orðið mikið á hljóðbækur en eitt er mjög ólíkt með okkur ... ég hef nokkuð betri kaffismekk en hún, finnst mér, (Espresso Roma vs Neskaffi). Svo finnst mér mikið ábyrgðarleysi að hafa slökkt á símanum á nóttunni sem hún ráðleggur mér reglulega eftir að ég kvarta yfir bíbbi úr gemsanum sem vekur mig stöku sinnum.

Mér tókst af mikilli snilld um árið að ná öllum bling-hljóðum úr gemsanum mínum nema því sem segir mér að einhver sem ég gæti mögulega þekkt (en geri nánast aldrei) sé á Instagram. Ég fæ svakaleg óhljóð í hvert skipti sem Insta lætur mig vita og einnig þegar frægir leikarar úr Hollywood byrja að fylgja mér ... eins og t.d. Keanu Reeves. Ég er líka með Elon Musk sem fylgjanda og einnig annan Elon Musk

Ég veit því miður að það er ekki bara fegurð mín sem lokkar þessa stórhuggulegu fylgjendur að mér, heldur einhver svipur sem fær sumt fólk til að reyna að netsvindla á mér, frelsa mig til ofsatrúar eða dónast eitthvað og halda að Instagram sé stefnumótasíða. Stundum finnst mér eins og skrifað sé á ennið á mér: Bjáni, auðvelt að plata! Hef fengið frið frá indverskum ungum mönnum á snappinu eftir að heill veitingastaður ytra reyndi við mig um árið (íslensk, kannski ljóshærð og til í tuskið?) og ég tók smáspjall í beinni (í mynd) þar sem ég stóð og beið pirruð eftir strætó hérna á Garðabrautinni, með lífsreynslulínur og allt á andlitinu, ekki ljóshærð og ekki til í neitt. Þeim fannst þetta ógeðslega fyndið (og mér reyndar líka þótt ég léki mig hneykslaða og benti á að snappið væri ekki Tinder).

Hér í Himnaríki er mikill viftuhvinur. Ein vifta í eldhúsinu, önnur stór á ganginum, þriðja í stofunni og fjórða í svefnherberginu mínu. Hvar er norðanáttin svala þegar þörf er á henni? Til í að fá hana bara seint á kvöldin og til morguns til að styggja ekki vini og vandamenn ... dæs.     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 80
  • Sl. sólarhring: 281
  • Sl. viku: 1622
  • Frá upphafi: 1460555

Annað

  • Innlit í dag: 77
  • Innlit sl. viku: 1301
  • Gestir í dag: 77
  • IP-tölur í dag: 77

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband