28.9.2023 | 17:51
Gjörbreytt ásýnd og fleiri einnota fyrirtæki
Morgunstund gefur svo sannarlega gull í mund. Sumar litlusystur hafa stundum mögulega kannski svolítið rétt fyrir sér. Eftir að hafa dúllað mér við tiltekt eftir sturtu, frá u.þ.b. kl. 11.15-11.47, var ásýnd eldhúss Himnaríkis gjörbreytt. Það sem er ekki hægt að gera með smávegis vatni og einum eyrnapinna ... Talsverður munur, finnst mér, sjá samsetta mynd.
Ég bæði óttast áhrif rúmsins og gleðst yfir þeim, nýja rúmsins, harða og dásamlega, óttinn er við að ég geti ekki lengur vælt yfir bakverkjum þegar ég bið stráksa að þrífa upp af gólfinu uppköst kattanna (aðallega Krumma sem ælir af skelfingu þegar fer að minnka í dallinum, og étur síðan of mikið þegar ég fylli á sem þýðir að hann endurtekur gubbskapinn).
Er orðin miklu skárri, finnst ég meira að segja hreyfa mig hraðar, stundum alveg hviss-bang af því að ég þarf ekki lengur að óttast að fá þursabit við eina óvarlega hreyfingu. Svona leið mér líka eftir að ég keypti gömlu dýnuna, fyrstu c.a. þrjú árin en svo bara gafst hún upp á mér og sveik loforðin. Enginn áhugi þegar ég kvartaði, svo fyrirtækið varð einnota í mínum huga, eins og Ak-tak-dæmið, sem vinur minn kallar Rændu -spændu ... Mér skilst að RB-dýnur gefist ekki svo glatt upp á eigendum sínum. Hægt að snúa þeim alls konar og þegar þær fara að linast eftir kannski 20 ár, er hægt að láta gera þær eins og nýjar.
Frétti hjá elsku Einarsbúð áðan að það væri þjóðarskortur á eggjum. Nei, tengist ekki ketó, heldur vegna nýrrar reglugerðar um hamingjusamari hænur sem er auðvitað dásamlegt. Við eigum að fara vel með dýr. Margir eggjabændur hættu út af þessu og því er skorturinn. Svo datt mér í hug að kannski væri hægt að hafa slátrun kjúklinga mannúðlegri, eins og að skutla þær, en láta dýralækni horfa á, til að það sé ekkert sárt. Hægt að ráðgast við Kristján Loftsson ... sem Gummi bróðir hafði næstum ruglað saman við Gissur Pál Gissunarson óperusöngvara í erfidrykkju um árið, munið. Hefði ég átt að stoppa hann, eins og ég gerði? Nei.
Hversu dásamlegt hefði verið ef einhver hefði ruglað mér saman við t.d. Marilyn Monroe ... eða nei, hún dó viku fyrir fjögurra ára afmælið mitt. Ja, kannski frekar ef einhver segði ofsaspenntur við mjólkurkælinn í Einarsbúð: Bíddu, bíddu, ert þú söngkonan Edda úr Angist? Þá hefði ég getað svarað: Uhhh, takk, ég gæti verið mamma hennar, hún er vissulega í miklu uppáhaldi. Hún söng með í laginu Hel með Skálmöld og Sinfó. Sennilega hefði ég bara bilast úr hlátri ... en samt ... Ég leyfði úkraínskri grannkonu minni að heyra Hel og hún varð óttaslegin, fannst þetta vera djöflarokk. But you are in Heaven, hefði ég auðvitað átt að segja.
Inga vinkona kemur í mat í kvöld, í Ljúffengt kotasælulasagna. Það uppgötvaðist villa í uppskriftinni og Eldum rétt sendi SMS upp á líf og dauða með leiðréttingu, þetta hefði orðið ansi þurrt annars, munar alveg um 60 ml (fyrir tvo) af vatni. Við verðum þrjú í mat en ég keypti efni í meira salat með, og eftirrétt líka, eða fokkings engjaþykkni með satans nóakroppi. Bara jólin? hugsið þið eflaust, já, alltaf jól í himnaríki. Og nei, ég er ekki farin að skreyta.
Af Facebook:
Á meðan Kristján Loftsson langar að veiða hvali, verða hvalir veiddir, skrifaði einhver mæðulega áðan.
Á minni eigin síðu, Fb rifjar upp frá 2015: Rakst á gamla stafsetningarvillu eftir mig á prenti: Hjartnær (hálfa öld). Er þetta ekki bara ágætt nýyrði? En yfir hvað?
Svo eru komin níu ár síðan ég sjokkeraði (í 2 sekúndur) afgreiðslukonu hjá Bakarameistarum, ég hafði keypt bananarúllutertu (8-12 manna) til að gleðja soninn. Viltu kassa? spurði hún. Nei, takk, ég ætla að borða hana hér! Eftir að hafa verið um tíma á fb-síðu þar sem afgreiðslufólk kvartar yfir viðskiptavinum sem reyna að vera fyndnir, fékk ég samviskubit og er hætt þessu. Þetta var uppáhaldskaka lífs míns en mér var refsað fyrir húmörðinn, eins og stráksi orðar það (húmor og ömurð saman?), og kakan er ekki lengur í boði!!! Jói Fel gerði svipaða en hafði vínbragð í kreminu sem var ... Ja, ég viðurkenni fúslega að ég er fanatísk á móti víndropum í bananarúllutertum.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.4.): 4
- Sl. sólarhring: 80
- Sl. viku: 775
- Frá upphafi: 1525766
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 702
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.