9.4.2024 | 19:15
Erfitt símtal, töfrateppið og komandi almyrkvi
Síminn hringdi svo reiðilega að hringjandinn hlaut að vera trylltur. Jú, jú, þetta var systir mín, ein af ótalmörgum. Sú sem kallar almenna kurteisi smjaður og segir reglulega við okkur hinar systurnar: Þið eigið eftir að drepast úr tillitssemi og kurteisi einn daginn, kjánarnir ykkar, það er uppáhaldsmóðgun hennar í okkar garð. Hönd mín nötraði þegar ég svaraði.
Hvenær kemurðu næst í bæinn? byrjaði hún illskulega.
Uuuu, sennilega á fimmtudaginn, svaraði ég lafhrædd. Hvað hafði ég nú gert?
Ég þarf að tala yfir hausamótunum á þér, þú sagðir síðast þegar ég talaði við þig að Katrín myndi pottþétt ekki fara í framboð og nú er hún byrjuð að ógna mínum manni. Varst þú ekki spákona hér einu sinni? Jafnvel völva Vikunnar? Ættir þú þá ekki að vita svona lagað?
Ég andvarpaði. Nei, aldrei spákona í alvörunni sko, bara samkvæmisleikur, í útvarpinu og svona ... svo myndskreytti ég með eigin andliti forsíðu Völvuvikunnar 2007 bara af því ég var komin með hrukkur í kringum augun, sú eina á ritstjórninni. Það þótti svo völvulegt. Ég ... ég var ekki að spá neinu um Katrínu, bara giska. Og hafði rangt fyrir mér, játaði ég.
Bíddu, bíddu, var þetta kannski eitt stórt samsæri frá upphafi til enda af því að BB langði að verða aðal?
Nei, ætli það, svaraði ég þótt ég hafi nú heilmikla ánægju af almennilegum samsæriskenningum.
Þú slappst við fangelsi enn og aftur, hélt hún áfram. Finnst þér ekki ábyrgðarleysi af þriggja katta eiganda að gefa í þessa söfnun hjá þessum kerlingum þarna sem fóru til Egyptalands. Bara samsæri af hverju maðurinn, hvað heitir hann aftur, jú, Pabbi Diljár, fékk ekki að kæra þær í friði.
Ég hefði nú kannski fengið að hafa kettina með á Hólmsheiði, skaut ég glettnislega inn í.
Hrmpf, rumdi í henni. En að aðalatriðinu, ég held að besti maðurinn hefði tekið þetta á endanum ef Katrín hefði ekki vogað sér að bjóða sig fram!
Það væri gaman að vita hver af þessum rúmlega 50 körlum hennar maður er. Ég þorði hreinlega ekki að spyrja til að hún springi ekki úr reiði yfir því - hann ætti vitanlega að vera minn maður líka. Blóðböndin og það allt.
Dyrabjallan er að hringja, örugglega eitthvað mjög áríðandi, laug ég. Ertu til í að hinkra í eina mínútu?
Venjulega mínútu eða þvottavélarmínútu? spurði hún hranalega. Nei, nenni því ekki. Kannski ég heimsæki þig bara á Skagann í næstu viku.
Uuuu, ég ... verð flutt, svaraði ég í örvæntingu.
Nú, hvert? Ertu ekki nýbúin að setja himnaríki á sölu?
Ja, það er ekki komið á hreint hvert ég flyt, en hlutirnir eiga það til að gerast hratt, ég verð alla vega ekki heima.
Já, drífðu þig í að flytja svo maður sjái eitthvað annað en sorglega mörg kattavídjó á snappinu þínu. Ég hnerra orðið þegar mér verður á að kíkja á þau og er ekki einu sinni með ofnæmi. Eins gott samt að þú látir mig vita hvert þú flytur.
Já, hvað heldurð-
Dididi ... Hún hafði skellt á, enn með heimasíma, bara til að geta skellt á aðra.
Fólki var nokkuð tíðrætt um forsetakosningar í gær en enn meira um afmælisdaginn minn í tilefni af deildarmyrkvanum. Eins og allir ættu auðvitað að vita, verður almyrkvi á sólu sem gengur yfir Norðurslóðir, austanvert Grænland, Ísland, Atlantshaf og Spán þann 12. ágúst árið 2026 sem er helsta ástæðan fyrir því að ég ætla að flytja úr himnaríki, þarf svalir sem snúa helst í allar áttir ... svo einhver tími að mæta í afmælið mitt. Ég er þegar byrjuð að safna rafsuðuhjálmum. Þetta verður fyrsti almyrkvinn sem sést (ef veður leyfir) frá höfuðborgarsvæðinu síðan 17. júní árið 1433, las ég einhvers staðar. Á þeim tíma voru enn einhver ár í að við Jón Sigurðsson fæddumst.
Mynd, ath. mottuna: Er á ýmsum fb-síðum um heimilisfínheit og í gær rakst ég á mynd sem tekin var á heimili eins af stóru tískuhönnuðunum, ekki þó YSL, en álíka frægs manns, er léleg í nöfnum. Teppið á myndinni hringdi bjöllum og loks í dag mundi ég hvar ég hafði séð það. Það var á mínu eigin heimili, undir gráa tungusófanum úr Jysk. Líkur sækir líkan heim, hugsaði ég hreykin, en í kringum 2020 öðlaðist ég loks mun betri heimilissmekk, takk, Guðný (hún hannaði breytingarnar í himnaríki). Það var þó ekki að hennar undirlagi sem ég festi kaup á þessu fína persneska teppi sem sést í hér hægra megin, og er með miða undir, framleiðsluland er Íran, sem sagt alvöru, alvöru en samt á ótrúlega góðu verði hjá Portinu í Kópavogi. Hvort þetta er teppi tískugúrúsins sem endaði á einhvern ótrúlega mergjaðan hátt fyrir algjöra tilviljun eða himneska íhlutun ... í himnaríki, veit ég eigi, en mér skilst þó að bankastjóri hafi átt hana á undan mér. Mögulega Alan Greenspan. Hann tók við embættinu daginn fyrir 29 ára afmælið mitt, svo ég útiloka nákvæmlega ekkert. Ýtið á myndina til að stækka hana - sjáið hvað þetta er líklegt.
Ég er að lesa yfir afskaplega átakanlega bók um unga konu sem hefur misst manninn sinn og tekst á við sorgina á ýmsan hátt. Ekki nóg með það, bókin sem ég er að hlusta á fyrir svefninn er líka sorgleg, kona sem reynir að komast yfir svik (framhjáhald) eiginmannsins til margra ára, og er komin upp í sveit til að sleikja sárin ... og baka vöfflur. Mig grunar að báðar þessar bækur muni reynast ástarsögur sem bera þann boðskap að allir þurfi að finna ástina (ég er ekki að tala um ættjarðarást) til að geta mögulega verið hamingjusamir.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 41
- Sl. sólarhring: 104
- Sl. viku: 679
- Frá upphafi: 1505970
Annað
- Innlit í dag: 32
- Innlit sl. viku: 546
- Gestir í dag: 32
- IP-tölur í dag: 32
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.