18.4.2024 | 17:28
Hitabylgja í nánd og rúsínuraunir
Gífurleg sjálfstjórn var í gangi þegar pantað var í Einarsbúð áðan. Ekkert sætara en kolvetnaskert skyr var á innkaupalistanum; bara kotasæla, kaffirjómi, kattasandur og annað slíkt, eins og k-dagar himnaríkis kveða á um. Það þurfti líka að panta ksúrmjólk, sykurlaust kappelsín því viss systir ætlar mögulega að kíkja um helgina.
Ekki svo mjög góðar fréttir frá Veðurstofunni í dag og gær, eða að það muni snarhlýna á næstunni. Alveg upp í martraðarkennd tíu stig, jafnvel þótt enn sé bara apríl. Engu að treysta! Ekki einu sinni kulda á ÍS-landi. Svo nú verða vifturnar teknar fram, my biggest fans. Ókei samt, gott fyrir elsku verpandi fuglana að það hlýni. Áður en stráksi flutti bað ég hann um að dreifa um allt túnið hér fyrir framan, nánast við þyrlupallinn og þar í kring, korni sem ætlað er smáfuglum og ég keypti í Einarsbúð, ég elska ekki bara hrafna og máva. Inga vinkona sagði spámannslega þegar hún horfði á þessi gulu útlitslýti á grasbreiðunni á milli himnaríkis og íþróttavallarins: Þeir líta ekki við þessu, vertu viss, þessir stóru hringir (af fuglamat) á túninu verða þér til eilífðar háðungar og fá börnin í unglingavinnunni til að urra! Hún sagði þetta kannski ekki svona, en vinafuglar hennar vilja almennilegar matarleifar, segir hún, meira að segja rúsínur! En viti menn, hér hafa sést ýmsir fuglar og nartað í þetta síðustu tvær vikur, þessir litlu, því þeir vita svo sem að rúsínur fá þeir ekki frá mér ... nema ég finni skrambans pakkann sem systir mín faldi einhvers staðar og ef fuglarnir fá þær ekki mun hún finna rúsínurnar heima hjá sér innan nokkurra vikna!
Á myndinni (frá 6. apríl) sést í "hringi" utan um ljósastaurinn sem mávurinn situr ofan á, allt of fínn með sig til að borða svona smáfuglamat. Öll ummerki eru nú horfin! Það gæti þurft að ýta á myndina til að sjá eitthvað.
Í Rauðakrosshittingnum í gær var einmitt talað um rúsínur. Ýmsir þar þóttust illa sviknir, ekki bara af Góueggjum, heldur líka Nóa þegar hellings rúsínurugl flæddi út úr eggjunum, líka magn af lakkrís og hlaupi, grét ein. Henni finnst súkkulaðirúsínur ágætar ... en ekki í páskaeggjum, lymskulega blönduðum saman við rjómakúlur. Á páskadag leið mér eins og ég væri í ógurlega fínu matarboði þar sem hafragrautur var í forrétt. En ég er svo sem manneskjan sem lækaði fb-síðuna Gamaldags íslenskur matur, bara til að minna mig á að lífið er ekki dans á rósum.
- - - - - - - - - -
Fyrir 11 árum skrifaði ég beiskan status:
Smábömmer eftir Grimm-þátt kvöldsins. Gamla konan sem lést í lok þáttarins er fædd sama ár og við Madonna.
Svo áttaði ég mig reyndar á því, eftir algjöran samúðarskort fb-vinanna, að auðvitað hafi hún ekki verið sérlega brött og sæt ... þarna í lokin sérstaklega ... eftir árás varúlfs! Meira að segja ég gæti ekki verið mjög falleg eftir að einhver hefði nánast rifið mig í tætlur.
Sama dag, sama ár, sama beiskja:
Elín kvaddi okkur með möndlutertu í gær. Í morgun kom Áslaug með rúsínubrauð í vikulega kaffifundinn okkar. Það hlýtur bara að gerast eitthvað í hnetu- og döðlumálum á morgun til að fullkomna þetta.
Og þarna loksins naut ég samúðar og stuðnings.
Dúa: Reka fleiri? Sigga Ásta: Það þarf nú bara að dáleiða þig. Inga: Ohhhhh, aumingja Gurrí.
Ljósmyndin þarf ekki endilega að vera af gömlu konunni sem ég var að tala um, man ekki einu sinni eftir því að hafa horft á þessa Grimm-þætti.
Stundum, þegar maður rifjar upp gamlar fb-minningar, fer maður að trúa á að lífið sé bara svo geggjað og sumt fólk ansi gott. Ég kýs að trúa því að Sigga Ásta hafi lagt til dáleiðslu svo ég gæti gleymt þessu hmdr-ofbeldi.
(hdmr= hnetu, döðlu möndlu, rúsínu)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 35
- Sl. sólarhring: 64
- Sl. viku: 731
- Frá upphafi: 1517311
Annað
- Innlit í dag: 27
- Innlit sl. viku: 590
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.