Enn meira gaman

Svaf í húsi tónlistarskólans í nótt, á hornsófa þar sem spýta skarst upp í bakið á mér ... svaf samt eins og engill. Fannst ég svo örugg þar sem slökkviliðið er á neðri hæðinni.

Nú eru litlu krúttmolarnir að borða hrísgrjónagraut en í kvöld verður steiktur fiskur. Gaman hvað fiskur er vinsæll hjá flestum börnum. Ég þoldi ekki fisk þegar ég var yngri, fékk líklega óverdós af viðurstyggilegum fiski, gellum, nætursöltuðum fiski, reyktri ýsu, hrognum og lifur, saltfiski, skötu, laxi með beinum, síld með enn fleiri beinum ... pyntingaraðferðirnar voru óteljandi.

Davíð er að setja inn myndir núna og þá verður hægt að kíkja á dýrlegheitin.
Nú eru börnin að fara á námskeið fram að kaffi; leiklist, myndlist, grímugerð, kvikmyndagerð og fleira. Kvikmyndagerðin er vinsælust, enda fá þau að gera handrit, velja búninga og leika sjálf í 5 mínútna bíómynd sem verður sýnd á kvöldvökunni síðasta kvöldið. Ég hef einu sinni fengið pínku oggu örhlutverk í einni mynd en Hilda hefur verið heppnari, hún hefur verið myrt í bíómyndum hér, henni hefur verið rænt, hún hefur verið draugur ... og svo framvegis. Aldrei of illa farið með góðan sumarbúðastjóra ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bíddu aðeins góða, hvað varð um pylsurnar?? Er verið að hafa þetta holla fæði af krúttmolunum???

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.6.2007 kl. 13:08

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhaha, allt breyttist vegna 17. júní. Laugardagur verður að sunnudegi og sunnudagur að laugardegi. Sjúkk, hvað ég er heppin!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 16.6.2007 kl. 14:36

3 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Leiklistin er sko skemmtileg, gaman fyrir börnin að hafa svona mikið úrval. Hún Hilda systir þín er frábær, ég sé það bara á öllu. Ég man þegar ég var lítil þá skrifaði ég leikrit, ég valdi leikarana, æfði með krökkunum, og var sjálf í aukahlutverki. Svo var leikritið sýnt og fengum við mikil fagnaðarlæti, enda leikritið Oscar worthy...  Mig minnir að það hafi haft eitthvað með of mikið sjónvarpsgláp að gera, sem er fyndið núna, því að í þá daga var bara einn barnatími, Stundin okkar, á sunnudögum. Ekki áttum við einu sinni VHS spilara (eða BETA), hvað þá DVD spilara eða tölvu.

Já, hvað tímarnir hafa breysts, og við með...

Bertha Sigmundsdóttir, 16.6.2007 kl. 16:54

4 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Æðislegt

Brynja Hjaltadóttir, 16.6.2007 kl. 19:37

5 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Greinilegt að sumarbúðirnar hafa ekki hugmynd um að þú framleiðir kvikmyndir í gríð og erg

Heiða B. Heiðars, 16.6.2007 kl. 20:15

6 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Eru laus pláss þarna?????

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.6.2007 kl. 21:45

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Get nú alveg fyrir það fyrsta svarað einu fyrir þig fröken Gurrí! Heiða, Sumarbúðir hafa nú yfir höfuð engar hugmyndir,en það væri nú gaman ef svo gæti verið haha!

En annars krúttleg færsla, kveikir í manni saknaðarneista til áhyggjuleysis barnæskunnar!

Magnús Geir Guðmundsson, 16.6.2007 kl. 22:11

8 identicon

OHHH! hvað þú átt gott!!! - þetta er greinilega frábært starf! Ég var sjálf í sveit öll sumrin frá 4-14 ára og það var skemmtilegast af öllu! Og BTW: Búin að skila kveðjunni til Sigga

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 16.6.2007 kl. 22:58

9 Smámynd: Ólöf Anna

Akkuru er ekki til svona sumarbúðir fyrir fullorðna þar sem maður fær að leika sér svona og vera skapandi. Einu "sumarbúðir" fyrir fullorðna snúast um að gera mann að grænmetisætu, hreinsa þig að innan eða laga hjónabandið.

Guð hvað mig langar bara ekki neitt að verða stór.

Ólöf Anna , 16.6.2007 kl. 23:31

10 Smámynd: Heiða  Þórðar

Heppinn varstu Gurrý mín, hefði verið árans óheppni ef hún (spýtan) hefði stungist upp í rassaboss.... hehe

Heiða Þórðar, 16.6.2007 kl. 23:45

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta er hárrétt hjá ykkur, það vantar svona sumarbúðir fyrir fullorðna. Fá útrás fyrir skapandi hæfileika og bara leika sér allan daginn. Sting upp á þessu við Hildu. Það er allt of mikið dekrað við ungdóminn ... heheheh. Við viljum líka!!! Það er hundleiðinlegt að verða fullorðinn! Bara megrunar-sjúkrabúðir og hjónabandsráðgjöf, kyrrðardagar og svona boring stöff!

Guðríður Haraldsdóttir, 17.6.2007 kl. 00:01

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Samþykkt! Eigum við ekki að þúast, kæri Guðmundur. Við þekkjumst orðið svo vel. Þú mátt kalla mig Gurrí (ekki Ý)og ég kalla þig Gvend?

Guðríður Haraldsdóttir, 17.6.2007 kl. 00:39

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég var bara að djóka með Gvend, elskan mín. Það er svona eins og ég væri kölluð Gudda ... hehehehehe. Gurrí er fínt, annars finnst mér eins og verið sé að skamma mig ...

Guðríður Haraldsdóttir, 17.6.2007 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 311
  • Sl. sólarhring: 492
  • Sl. viku: 1335
  • Frá upphafi: 1459843

Annað

  • Innlit í dag: 261
  • Innlit sl. viku: 1074
  • Gestir í dag: 255
  • IP-tölur í dag: 244

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • DollyParton
  • Jason-Statham
  • 12. ágúst sko

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband