17.8.2007 | 08:37
T.G.I.Friday ...
Sá að klukkan var alveg að verða 6.41 þegar ég byrjaði að búa mér til latte í götumáli í morgun. Veðjaði við sjálfa mig, eins og svo oft, að ég myndi ná þessu og samt ekki missa af strætó. Sé mest eftir því að hafa ekki lagt eitthvað undir þar sem ég gjörsigraði sjálfa mig og hljóp í loftinu út á stoppistöð með latte í annarri og Tár, bros og takkaskó í hinni. Heimir sat undir stýri og kom okkur örugglega á áfangastað, þessi elska. Sagði mér að hann hefði verið í heyskap alla síðustu helgi hjá foreldrum sínum.
Samferðafólk mitt sendi mér undarlegt augnaráð þegar það sá hvaða bók ég var að lesa en ég lét það ekki á mig fá, er endanlega frjáls úr viðjum smáborgaralegra lífsreglna og hámaði í mig þessa svokölluðu unglingabók ... fyrir stráka! Ef rithöfundar, tískumógúlar og ýmsir bisnissmenn vissu bara hvað þeir gera mikla skyssu með því að setja aldurstakmörk eða kynjabinda hlutina. Það ætti að sjálfsögðu að auglýsa þessa bók sem frábæra fyrir t.d. krakka, kerlingar og ketti ... eða ekki. Man hvað ég var sár út í SkjáEinn þegar reynt var að höfða til UNGA FÓLKSINS með dagskránni og ég barðist við erfiðar hugsanir ... er ég svona barnaleg að hafa gaman af þessu, er þetta einhver klikkun hjá mér að geta horft á þetta? O.s.frv. Held reyndar að Skjárinn sé hættur þessu bulli. Hef reyndar ekki sérlega gaman af því sem á að höfða til míns aldurshóps, eins og t.d. Jay Leno. Mætti ég þá biðja um Conan O´Brien, plís eða hinn þarna, Jon Stewart (?)! Skjárinn féll reyndar ofan í þá viðurstyggilegu, mannfjandsamlegu gryfju að vera með svokallað kvenvænt sjónvarpsefni á þeim tíma sem Heimsmeistarakeppnin í fótbolta stóð yfir í fyrrasumar. Djöfull var ég móðguð út í þá en vissulega missti ég alltaf af þessum viðbjóði þar sem ég horfði á fótboltann. Þeir settu hundleiðinlega "stelpuþætti" á dagskrá. Þetta er svo skoðnanamyndandi fyrir ungar stelpur sem halda að þær eigi að fyrirlíta fótbolta og horfa á kvenlegan hrylling Ég er enn öskureið vegna allra þeirra ára sem ég horfði ekki á fótbolta og jafnvel píndi mig til að horfa á sannsögulegar sjónvarpsmyndir. (Fliss)
Þetta verður langur, annasamur en örugglega guðdómlegur dagur í dag. Megi hann samt verða enn betri, dásamlegri og skemmtilegri hjá ykkur (þetta eru ekki væmnar, sætar óskir til ykkar, heldur árangursríkur galdur sem byrjar að virka NÚNA!) Mikið er ég samt þakklát fyrir að það skuli vera föstudagur og helgin að koma! Vá, hvað ég skal sofa!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Íþróttir, Matur og drykkur | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 182
- Sl. sólarhring: 348
- Sl. viku: 874
- Frá upphafi: 1505881
Annað
- Innlit í dag: 145
- Innlit sl. viku: 711
- Gestir í dag: 139
- IP-tölur í dag: 134
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Hvort hann virkar þessi galdur Gurrí...akkúrat þegar þú skrifaðir þetta vaknaði ég við það að fá eitthvað gott í hausinn og hef ekki getað hamið hamingju né lífsgleði síðan. Vissi bara ekki hvað hafði gerst fyrr en ég las bloggið yðar. Thank you very many for this spell.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.8.2007 kl. 08:56
Já, þvílíkt frelsi þegar viðjar smáborgaralega hugsunarháttsins hafa ekki áhrif lengur og maður getur gert eitthvað allt annað á kvenvænum sjónvarpsdögum en að horfa á sjónvarp. Þetta hlýtur að vera dásamlegt þegar svo ofan á bætist hin stóíska ró og einstakt jafnaðargeð sem yfir mann færist þegar maður hefur orðið 49 ára í fyrsta sinn. Ég hef ekki reynt þann kafla enn en bíð spennt.
krossgata, 17.8.2007 kl. 09:33
Smellti of fljótt á Senda.... ætlaði að segja líka: Eigðu góðan dag.
krossgata, 17.8.2007 kl. 09:34
Njóttu dagsins Gurrí mín. Það ætla ég að gera
Jóna Á. Gísladóttir, 17.8.2007 kl. 09:53
Ég var að lesa Tár, bros og takkaskór núna um daginn og skemmti mér vel. Hún er hreint ágætlega skrifuð og alls ekki bara fyrir stráka.
Fjóla Æ., 17.8.2007 kl. 09:59
Hvað er þetta eiginlega með "Tár, bros og Takkaskó" Þú ert að lesa hana, Fjóla nýbúin og svo sá ég einhverja klausu í einu dagblaðanna í dag með heiti bókarinnar í fyrirsögn og mynd af höfundi, er eitthvað rosa come back í gangi?
ps. frábær lesningin af Tomma og mormónunum.
sama
Edda Agnarsdóttir, 17.8.2007 kl. 10:07
Það var verið að endurútgefa hana loksins í kilju en hún kom fyrst út 1990! Það er fréttnæmt ... Fékk hana senda og mun fjalla um hana í næstu Viku!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.8.2007 kl. 10:42
Eigðu góða helgi. Gurrí mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 17.8.2007 kl. 11:03
Þetta með bókina er kannski ekki svo skrítið. Hún er skemmtilega skrifuð og gefur ekkert svo ósanna mynd af raunveruleika unglingsins. Ég datt í að lesa hana því hún var allt í einu á eldhúsborðinu hjá mér.
Fjóla Æ., 17.8.2007 kl. 11:19
lúxus að hafa atvinnu af því að lesa bækur
fékk nett áfall þegar ég byrjaði að lesa unglingabækurnar hennar Isabel Allende en sá að maður vex aldrei upp úr krakkanum í sjálfum sér (sem betur fer)
Rebbý, 17.8.2007 kl. 11:22
Njóttu dagsins og bókarinnar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.8.2007 kl. 11:54
Eigðu ljufan dag og vonandi hvílistu vel um helgina. Hér eru svipuð plön í gangi og veðrið er ljúft, ætla út í göngu þegar kisa skríður ofan af bumbunni á mér, hún elskar mig, trúirðu því??
Ásdís Sigurðardóttir, 17.8.2007 kl. 12:02
Góðar stundir í dag og alla daga, amen.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.8.2007 kl. 12:05
Spennandi með bókina, ég verð að fara ná mér í eintak.
Edda Agnarsdóttir, 17.8.2007 kl. 13:17
Eigðu frábæran dag nafna
Brynja Hjaltadóttir, 17.8.2007 kl. 16:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.