17.8.2007 | 21:02
Annir, flugur, keppni, verðlaun og menning
Alltaf gott að koma heim á föstudögum, sérstaklega eftir skemmtilega strætóferð með Tomma. Við höfum ansi líkan tónlistarsmekk og ef Magnús hefði ekki gefið mér King Arthur-diskinn með Rick Wakeman í afmælisgjöf hefði Tommi lánað mér plötuna (vínyl) og ég getað látið Bergvík afrita hana yfir á geisladisk.
Þetta var vægast sagt MJÖG annasamur dagur, við vorum að ljúka við mjög djúsí blað (já, lögfræðingur hringdi og allt ... kannski fer ritstjórinn minn í fangelsi ). Aukablað með geggjuðum uppskriftum fylgir líka næstu Viku ... Ritstjórinn fer í frí á mánudaginn og undirrituð þarf að leysa hana af í tvær vikur. Það verður bara spennandi, ég væri eflaust þrælstressuð ef ég ynni ekki með jafnmiklum dúndurkonum og ég geri. Velgengnin hefur verið slík síðustu mánuðina að við vorum verðlaunaðar, fengum gjafakort á tvo flugmiða með Iceland Express. Langar mikið að nota þá í að bjóða erfðaprinsinum í fótboltaferð til Englands í vetur. Það hefur verið draumur okkar að fara á leik, t.d. með West Ham, uppáhaldsliðinu okkar. Kannski skreppa til Katrínar í leiðinni!
Á meðan sumir kljást við geitunga þessa dagana er allt fullt af stórum og pattaralegum fiskiflugum í himnaríki, ég sé alla vega eina núna. Mig grunar að þær komi mun fleiri inn yfir daginn þar sem kettirnir hafa sjaldan verið þriflegri. Þetta sparar mér gífurlega fjármuni í kattamat ... hvað er hollara en fljúgandi ferskt og stökkt sushi, fullt af próteini og vítamínum! Verð reyndar að viðurkenna að ef mér tekst ekki að bjarga viðkomandi risaflugu út þá tek ég fyrir eyrun áður en smjattið hefst, enda finnst mér smjatt einstaklega ógeðfellt hljóð ... bæði hjá köttum og mannfólki.
Mig langar að benda á einstaklega skemmtilega keppni sem fram fer á bloggsíðunni hennar Katrínar Snæhólm, svona sögu- og ljóðakeppni. Hún hvatti gestkomandi til að semja ljóð eða sögur um myndir sem hún birti og nú keppist fólk við að tilnefna það sem því þykir best.
Er búin að lesa þetta einu sinni yfir og þarf að gera það aftur ef ég á mögulega að geta valið. Það er erfitt að gera upp á milli, kannski get ég það ekki.
Hélt að ég væri ekki mikil ljóðamanneskja en þar skjátlast mér, þarna eru fín ljóð. Tilnefningar/kosningin er ekki bara fyrir bloggvini Katrínar, heldur alla þá sem kíkja við á síðunni hennar. Hér er slóðin:
http://katrinsnaeholm.blog.is/blog/katrinsnaeholm/entry/287784/#comments
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Enski boltinn, Menning og listir, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 124
- Sl. sólarhring: 304
- Sl. viku: 816
- Frá upphafi: 1505823
Annað
- Innlit í dag: 99
- Innlit sl. viku: 665
- Gestir í dag: 98
- IP-tölur í dag: 95
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Stjörnukíkir segirðu. *hugsi-hugsi-hugs* Ég ætla að fara að venja fólk við orðið stjörnukíki og 50 ára afmælið mitt í samhengi. Að vísu nokkur ár í það en reynslan hefur kennt mér að fólk tekur ekki mark á svona skrítnum óskum nema það hafi verið undirbúið lengi. Ég er ekki enn búin að fá fiðluna sem ég hef veirð að undirstinga fólk með síðustu 30 ár.
krossgata, 17.8.2007 kl. 21:14
Þetta með að undirstinga fólk ... ég sá svo flotta uppþvottavél í húsi skömmu fyrir þrítugsafmælið mitt, litla vél sem var byggð ofan í eldhúsbekkinn. Ég setti ekkert samasemmerki á milli þess og afmælisins en fólkið mitt tók þessu ómeðvitaða hinti mínu og færði mér litla og sæta uppþvottavél. Það varð ást við fyrstu sýn. Verst að það tók 11 mánuði að fá pípara til að tengja hana ... þessi þriðji sem kom hafði hringt á rangri dyrabjöllu um morguninn og kom sama daginn og tengdi!
Mikið vona ég að þú fáir stjörnukíki, Krossgata!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.8.2007 kl. 21:31
Já Gurrí mín (dæs) þar sem ég veit að þú ert hokin af forvitni og eigandi öflugs stjörnukíkis verð ég að játa að ég ofurlítið öfundsjúk út í þig, þjáist af sama "hoka"
Smjúts
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.8.2007 kl. 21:44
Má
Brynja Hjaltadóttir, 17.8.2007 kl. 21:45
..ekki nota þessar fiskiflugur í fiskisúpu? Arg þoli ekki þegar tölvan tekur af mér völdin og vistar algerlega óskrifuð commet....ekki ég að fálma á lyklaborðinu heldur allt tölvunni að kenna
Brynja Hjaltadóttir, 17.8.2007 kl. 21:47
Fiskisúpa, hmmmm, kettirnir éta flugurnar jafnóðum, kannski ég kenni þeim að safna þeim í staðinn. Hehehheeh!
Er ég rosaleg að nenna ekki í bæinn, Jenný? Býst við að fá Ellý með barn í mat á morgun. Hún nennir ekki heldur! Það er svo gott að búa á Skaganum. Þið Jóna ættuð bara að skella ykkur til mín um helgina ... ja, hún er með tengdó í heimsókn. Alla vega bráðum, stelpa!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.8.2007 kl. 21:57
Elsku. Gurrí þú ert yndisleg alltaf gaman að lesa bloggið þitt
Kristín Katla Árnadóttir, 17.8.2007 kl. 22:14
Áttu virkilega stjörnukíki ? mikið hlytur það að vera skemmtilegt hobby.
Marta B Helgadóttir, 17.8.2007 kl. 22:17
Jamm, það er sko gaman að fylgjast með í góðu skyggni, sé þoturnar taka á loft frá Keflavíkurflugvelli, sæta manninn fara í morgunsturtuna í Öldugrandanum ... nei, ókei, þetta seinna er ekki rétt, tunglið er voða flott í gegnum kíkinn og flugeldasýningin á menningarkvöld var æðisleg í fyrra. Vona að hún verði jafnflott á morgun.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.8.2007 kl. 22:39
VIð áttum einu sinni stjörnukíki, nennti honum ekki þurfti þolinmæði og þess háttar við stillingu og að ná nokkrum myndum af viti, sá bara stjörnur á flögri svo ég bara seldi hann. Verð heima á morgun ekkert helv. borgarrölt, allt betra en það. Yndislegt þetta með flugurnar, ég veiddi oft hrosssaflugur handa gömlu kisu sem ég átti, henni fannst svo sérstaklega gaman að borða þær lifandi, ég náði þeim á einni löpp og færði henni þær í rúmið hún elskaði mig líka geðveikt. Hafðu það gott um helgina með kisum og góðu kaffi.
Ásdís Sigurðardóttir, 17.8.2007 kl. 23:43
Kannski er kíkirinn minn ekki alvöru -alvörustjörnukíkir. Ég þarf bara að stilla fókusinn. Þetta er langdrægur skratti, mun þægilegri en þessi sem ég keypti óvart fyrst þar sem allt var öfugt og á hvolfi þegar ég kíkti í gegnum hann, sá var bara fyrir tungl og stjörnur og ég fékk að skipta eftir að hafa eytt nokkrum klukkutímum í að setja hann saman og taka hann svo aftur í sundur þegar ég fattaði mistökin. Mun ætíð verða þakklát Bræðrunum Ormsson fyrir geggjaða þjónustu í gegnum elskurnar hjá Módel hér á Skaganum. Hefði ekki getað horft á flugeldasýninguna með þessum fyrsta! - Ég gekk ekki svo langt að veiða hrossaflugur fyrir Fjólu, gömlu kisuna mína, þegar við bjuggum á Hávallagötunni, en ég lyfti henni upp svo að hún gæti veitt þær sjálf, ... við mikinn viðbjóð einnar vinkonu sem varð vitni að því einu sinni. Fjóla elskaði mig líka voða heitt!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.8.2007 kl. 23:59
Var einmitt að pæla í þessu sama, skyldi ég lenda í fangelsi fyrst Elín fer til útlanda? Það væri bara kúl! Já, ég er hætt að halda með Barcelona fyrst þeir eru svona leiðinlegir við Eið Smára!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.8.2007 kl. 00:45
Fallegt af þér að minnast á mig, en algjör óþarfi! En mig langar líka til Englands, komast í plötubúðir og svona, má ég ekki bara koma með!?
Magnús Geir Guðmundsson, 18.8.2007 kl. 01:12
Flott að fara í fangelsi, færð mat á kostnað ríkisins og þarft ekki að borða afganga lengur. Fylgist spennt með næstu Viku Viss um að þú rokkar feitt sem ritstýra, í næstu viku verða FBI, KGB og Stasi farnir að hringja líka
Svava S. Steinars, 18.8.2007 kl. 01:17
Hvað er í gangi á Vikunni? Verð ég aftur að kaupa þetta kvennablað? Síðast keypti ég það í vor þegar ég var að fara til útlanda og vantaði lesefni. Sá fyrirsögn um ofsóknir gegn Gunnari í Krossinum. Mig langaði til að taka þátt í þeim og greip með mér blaðið. Og uppgötvaði að Vikan er orðin ágætis blað.
Ritstjórinn þarf ekki að gráta það að fara í fangelsi. Ég er þaulvanur að sitja í fangelsi. Það er bara frábært. Maður kynnist öllum þessum indælu handrukkurum, dópsmyglurum og morðingjum. Að vísu lendir ritstjórinn í fangelsinu í Kópavogi. Þar eru bara konur og nokkrir sakleysislegir sætabrauðsdrengir.
Jens Guð, 18.8.2007 kl. 01:32
Jamm, ég stend kórréttari, þér hef ég alveg misst af,
Flott.....
S.
Steingrímur Helgason, 18.8.2007 kl. 01:45
Keli minn elskaði mig líka agalega, en ekki fyrir að hjálpa honum með flugurnar heldur fyrir að smyrja flatköku með smjöri og hangikjöti handa honum svona spari ... merkilegt hvað kettir leggja í að borða
Rebbý, 18.8.2007 kl. 11:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.