Fínasta menning hér á Skaga

Sigga með Ísak og Ellý með ÚlfHér í himnaríki hefur allt verið ágætlega menningarlegt í kvöld, nema ég hef ekkert komist í að lesa Potter og kemst eflaust ekki til fyrr en um miðnætti eða svo. Ellý ætlar að kíkja og menningast með mér kl. 23 og horfa á flugeldana hinum megin við hafið. Mikið skemma nú nýju, flottu, stóru svalirnar fyrir mér gleðina (útsýnið) yfir því að njósna um Reykvíkinga með stjörnukíkinum. Ég næ ekki að sjá t.d. 116 Reykjavík, eða Kjalarnesið, en næ þó miðbænum og Seltjarnarnesinu. Veðrið er gjörsamlega guðdómlegt, sjórinn sléttur og útsýnið gott.

 

Sigga með Ísak, Ellý með Úlf. Mynd úr afmæli 2007. 

Heyrði í mömmu áðan en þær Hilda komu úr sumarbústaðavikudvöl í gær. Tvíburarnir knáu, Ísak og Úlfur, gistu eina nótt hjá þeim og mamma á ekki orð yfir hvað þeir voru góðir, þeir dunduðu sér víst tímunum saman. Þeir eru víst alltaf jafnglaðir þegar þeir sjá hvor annan og eru farnir að þróa með sér tvíburamál, heyrðist mér á mömmu sem heldur því fram að þeir séu undrabörn. Tek undir það, enda er ótrúlega gáfað og líka fallegt fólkið í þessari fjölskyldu ... jamm, rétt ályktað, hluti hennar er úr Þingeyjarsýslu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hógværðin alltaf söm við sig. Kveðjur í menninguna á Skaganum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.8.2007 kl. 22:31

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Þingeyingar, hmmm...Ég slapp við eldglæringarnar en fann höggin alla leið hingað í sveitina. Þetta verða örugglega hreystimenni hin mestu, þessir piltar.

Þröstur Unnar, 18.8.2007 kl. 23:21

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, það heyrðust miklar drunur úr bænum. Hér fyrir neðan himnaríki hafði safnast fjöldi manns til að fylgjast með. Við vorum sex gellur úti á svölum hjá mér og einn köttur. Mikið stuð!

Guðríður Haraldsdóttir, 18.8.2007 kl. 23:34

4 Smámynd: Svava S. Steinars

Þetta var flott sýning, ég sat á besta stað við Sæbrautina og fékk allt dæmið beint í andlitið.  Höggin frá sprengingunum skullu á manni og púðurreykurinn fyllti vitin.  Magnað !  Btw, hvernig kaupi ég meira myndapláss ? Do tell !

Svava S. Steinars, 19.8.2007 kl. 01:57

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons       
 

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 19.8.2007 kl. 02:05

6 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

sýningin var snilld í ár. Frábært að slökkva á götulýsingu á meðan, man ekki eftir því áður.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 19.8.2007 kl. 10:45

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kíkti ekkert með stjörnukíkinum. Kl. 23.01 hringdi dyrabjallan og Ellý, ásamt vinkonu og þremur börnum þusti inn. Til að bjarga kíkinum frá börnunum þá lét ég sem hann væri ekki til, enda kannski ögn skemmtilegra að standa flissandi úti á svölum í skemmtilegum félagsskap. Var búin að koma mér vel fyrir með kíkinn inni í bókaherbergi rétt fyrir 11, búa mér til latte og bara beið ... æ, ég er svo mikill nörd, en þá hringdi bjallan. 

Guðríður Haraldsdóttir, 19.8.2007 kl. 11:49

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gurrý mín, kíkirinn kemur brátt í góðar þarfir, því Jenný er að búa sig undir sæti í Breiðholtinu og hrópa yfir! Þá getur þú kíkt á hana hrópandi og kannski lesið varalestur!  Hver veit? (Kíktu annars á bloggið hennar)

Edda Agnarsdóttir, 19.8.2007 kl. 12:00

9 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ég reyndi líka að vinka þér en fékk ekkert svar. Það hlaut að vera skýring á þessu!

Laufey Ólafsdóttir, 19.8.2007 kl. 12:19

10 identicon

Ég er náttúrlega Norðlendingur mikill, þó svo að mestalla ævina hafi ég búið á höfuðborgarsvæðinu, ... en fólk úr þessum sýslum er hraust ... sannarlega!

Knúskossar!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 19.8.2007 kl. 12:38

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég fór niður að strönd og vænti þess að sjá flugeldasýninguna eða a.m.k glampana frá henni hingað yfir.Svona menningarviti..hálfviti.... eins og ég verð að vera með í slíkri uppákomu. Segir sig sjálft. Löngu eftir miðnætti gerði ég mér grein fyrir að ég var vitlausu og megin og var að góna yfir til frakklands sem sprengdu enga flugelda í gær.

Gurrí mín þú ert engin nörd..ert bara bráðum að verða fimmtug...knús

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.8.2007 kl. 13:01

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hmmm, síðan hvenær 360 dagar "alveg að verða-eitthvað"? Ég verð sko lengi í viðbót 40 plús ... jafnvel nokkur ár!

Guðríður Haraldsdóttir, 19.8.2007 kl. 13:06

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Tíminn líður sko hraðar og hraðar með aldrinum..á þínum hraðamælingum miðað við aldur erum við kannski að tala um þrjúhundruðogsextíuogeitthvað mínútur!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.8.2007 kl. 13:10

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hnussss, ætla sko að njóta þess í langan tíma að vera fjörutíuogeitthvað, rúmlega fertug, á fimmtugsaldri osfrv. Mun telja í árum, ekki dögum, hvað þá mínútum.

Guðríður Haraldsdóttir, 19.8.2007 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 167
  • Sl. sólarhring: 279
  • Sl. viku: 1709
  • Frá upphafi: 1460642

Annað

  • Innlit í dag: 154
  • Innlit sl. viku: 1378
  • Gestir í dag: 151
  • IP-tölur í dag: 151

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband