Kári í jötunmóð

Í bomsunumMikið sé ég eftir að hafa fleygt öllum vetrarfötunum mínum í vor. Nú neyðist ég til að kaupa mér lopapeysu, föðurland, kuldabuxur, ullarsokka og lambhúshettu ... að ógleymdum bomsum með göddum neðan á sem henta vel á svelllagðri súkkulaðibrekkunni. Það er ískalt í himnaríki, ég var orðin frosin inn að beini áður en ég fattaði að loka gluggum.

Fór beint í að pakka niður öllum flegnu sumarbolunum, flugfreyjujökkunum, hvítu og bleiku pínupilsunum, strigaskónum, sandölunum, ökklaböndum og tánaglalakki og fleygði beint í tunnuna, enda orðið ónothæft síðan seinnipartinn í dag þegar veturinn kom. Hver ætli verði sigri hrósandi í snjósköflunum í fyrramálið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér datt nú ekki í hug að þú værir týpan sem hendir vetrarfötunum, er þetta ekki bara grín hjá þér?? Hér er annars mjög hlýtt enn og hlýrabolurinn sterkur inn.

Ásdís Sigurðardóttir, 20.8.2007 kl. 21:40

2 Smámynd: krossgata

Mér líður eins og tímaskekkju.  Vetur hvað?  Ég sit að vísu hér á náttkjólnum í flíspeysu og í hnéháum ullarsokkum, en ég er líka í SUMARfríi.

krossgata, 20.8.2007 kl. 21:41

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Um að gera að vera ekki með tímaskekkjuföt á lager nú þegar vetrarveðrin eru skollin á.  Þú hefur væntanlega hellt ÖLLUM naglalökkunum?

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.8.2007 kl. 21:46

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það verður sko hlegið út í búð á morgun þegar ég mæti í náttfötunum ... já, ég henti öllllllum naglalökkunum. Ef ég væri í sumarfríi eins og krossgata væri ég á nýja sólstólnum mínum úti á nýju svölum og myndi sko njóta láréttu regndropanna.

Guðríður Haraldsdóttir, 20.8.2007 kl. 21:53

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég skal arfleiða þig af vetrarfötunum mínum síðan í fyrra Gurrí mín. Ég efast um að ég komist í eitthvað af þeim

Jóna Á. Gísladóttir, 20.8.2007 kl. 22:00

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takkkkk!

Guðríður Haraldsdóttir, 20.8.2007 kl. 22:09

7 Smámynd: Rebbý

snjósköflum hvað?   missti ég af einhverju  hahaha
átti við þetta sama vesen með kuldann inni að stríða í dag, en fattaði fyrir stuttu að halla gluggunum aftur eftir sumarblíðuna

Rebbý, 20.8.2007 kl. 22:22

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hér á norðurhjara veraldarinnar á íslandi var nú bara grillað úti í fínum 15' stiga hita með sólina yfir sér í kvöld.  Sést ekki sólin lengur fyrir sementsrykinu þarna á kornakranesi lengur ?

S.

Steingrímur Helgason, 20.8.2007 kl. 22:23

9 Smámynd: Þröstur Unnar

Þú ert þá semsagt klár á fjöll. Ríf þig með við fyrstu snjóa.

Þröstur Unnar, 20.8.2007 kl. 22:23

10 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Eru til sérstök tánaglalökk? Svakalega er ég eitthvað gettó. Ég nota alltaf bara venjulegt naglalakk á tærnar. Ætti ég kannski ekki að vera að segja frá þessu?  

Laufey Ólafsdóttir, 20.8.2007 kl. 22:47

11 Smámynd: Jens Guð

  Ruglaði gott sumarið þig í ríminu?  Hélst að pólskiptin væru gengin í garð?  Ísland er best.  Ískalt. 

Jens Guð, 20.8.2007 kl. 23:48

12 Smámynd: www.zordis.com

Er svona hryllilega kallt hjá þér ????  Mæ ó, er sem sagt ekki óhætt að mæta á bikiní á skagann ... damn, smelli mér þá bara á hvítu ströndina hérna sunnan megin!

www.zordis.com, 21.8.2007 kl. 00:20

13 identicon

Nú er ég alveg að farast úr forvitni... Hvernig eru flugfreyjujakkar??

Kveðja, Katrín

Katrín Brynja (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 00:47

14 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Gott að Jóna getur gefið þér gömlu vetrarfötin sín..Var það ekki örugglega hún sem grillaði þessi 15 tonn af kjöti í sumar og úðaði í sig??? Ég bara trúi þessu ekki að það sé orðið svona kalt.....Hér er frekar blautt en það er þó 22 stiga hiti. Við erum líka grönn og pössum alveg í vetrarfötin þar sem við grilluðum ekki og átum ekki á okkur gat þetta sumarið. Óli passar t.d alveg frábærlega í flugfreyjujakkann sinn ennþá. Já og þér megið senda honum afmælisknús. Ljóninu mínu fagra. Hugsaðu þér hvað ég var heppin..það munaði bara tuttuguogeitthvað mínútum að hann yrði meyja!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.8.2007 kl. 09:49

15 Smámynd: Fjóla Æ.

Bíddu bíddu. Ég sem er að verða búin með sólpallinn minn og þú segir að það sé kominn vetur. Hvað á ég þá að gera? Ég sem var búin að hugsa mér að liggja á honum í sólbaði um leið og hann yrði tilbúinn.

Það er þó huggun harmi gegn að þó ég hafi grillað 7,5 tonn í sumar þá passa ég ennþá í öll vetrarfötin mín 

...held ég

Fjóla Æ., 21.8.2007 kl. 10:18

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Flugfreyjujakkar eru þunnir og fallegir jakkar sem passa við allt! Flugfreyjur eru alltaf svo smart og vel til hafðar svo að það skýrir sig eiginlega sjálft! (Ég hugsa reyndar stíft til hennar Beggu minnar (flugfreyju) núna).

Frú Fjóla, dónt vorrí, sumarið tók sér bara pásu til að búa til öldur handa mér, það kemur aftur þótt það verði ekki fyrr en eftir einn meðgöngutíma eða svo.

Sammála Jens, elska ískalt Ísland, sjokkið yfir í veturinn var bara svo mikið því að ég var í þunnum fatnaði þegar kuldinn barst inn um gluggann.

Tánaglalakk er sko til. Konan í BYKO fær alltaf glampa í augun þegar ég kem inn og er venjulega búin að fá nýja sendingu af kúl táslunaglalökkum. Þau kosta reyndar meira en þessi venjulegu, fæ dósina á 5.000 kall með pensli.

Guðríður Haraldsdóttir, 21.8.2007 kl. 13:14

17 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég er ekki þessi kona í BYKO....því miður.

Brynja Hjaltadóttir, 21.8.2007 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 220
  • Sl. sólarhring: 292
  • Sl. viku: 1762
  • Frá upphafi: 1460695

Annað

  • Innlit í dag: 199
  • Innlit sl. viku: 1423
  • Gestir í dag: 191
  • IP-tölur í dag: 191

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband