Getum sjálfum okkur um kennt ...

Venus fæðistSystir mín fór að tala um skemmtilegan pistil sem hún las í blaði nýlega. Hann var um þá kröfu á konur að þær fæddu börn sín á sem náttúrulegastan hátt og helst án nokkurrar deyfingar. Sjálf fór systir mín á námskeið á Fæðingarheimilinu á sínum tíma og var sagt þar að það væri henni sjálfri að kenna ef hún fyndi til við fæðinguna, ef hún slakaði nógu vel á myndi barnið koma sársaukalaust í heiminn ... Konur sem kunna að slaka á finna ekki til. Þetta fullyrti konan sem hélt námskeiðið þótt hún hefði reyndar aldrei fætt barn sjálf. Ekki reyndist þetta rétt hjá konunni og systur minni fannst hún hálfmisheppnuð fyrst hún fæddi barnið ekki skellihlæjandi og án sársauka.

Vinkona mín ætlaði að fæða barn sitt á sem náttúrulegastan hátt og í mesta lagi að drekka piparmyntute við verstu verkjunum. Þegar fæðingin var komin vel af stað bað hún ekki blíðlega um te, heldur gargaði: „Ef þið deyfið mig ekki þá drep ég ykkur!“ Við hlógum mikið að þessu. Erfðaprinsinn fæddist á Skaganum á líklega einni bestu fæðingardeild landsins. Þaðan hef ég bara góðar minningar, fyrir utan þegar starfsstúlka réðst á mig og sagði: „Hvernig ætlar þú nú að fara að með tvo hunda? Þú verður að láta lóga þeim fyrst þú ert komin með barn!“ Jú, og líka þegar ljósmóðirin sagði að þetta gæti ekki verið sárt ... ég kveinkaði mér þegar hún var að sauma mig og deyfingin var farin úr. Aðgát skal höfð ... segi ekki meira.

Nicholas CageSársaukaþröskuldur fólks er misjafn. Ég er reyndar algjör „aumingi“ og hef alltaf látið deyfa mig í tætlur hjá tannlækninum. Ekki vildi ég vera karlmaður og þurfa sí og æ að „bíta á jaxlinn“ á allan hátt, enda eru oft á tíðum gerðar ofurmannlegar kröfur til þeirra. Ég hélt í alvöru hérna einu sinni að karlmenn gætu t.d. ekki farið í ástarsorg, þeir væru svo miklir töffarar og mölvuðu hjörtu okkar stelpnanna án nokkurrar miskunnar. Við grétum en þeir færu bara á fyllerí ef þeim væri sagt upp eða hristu þetta af sér kæruleysislega og fyndu sér svo nýja kærustu. Svona geta nú staðalímyndirnar ruglað okkur líka. Þótt mér finnist Nicholas Cage hundleiðinlegur í grenjumyndunum sínum er það kannski vegna þess að ég hef meira gaman af spennumyndum en grenjumyndum ... en kannski er ég sjálf blýföst í þessum hugmyndum öllum og er hér með að kasta stórgrýti úr gróðurhúsi. Úps.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Skemtileg hugsun þarna að baki.

En þú veist vel að karlmenn hvorki gráta né dansa.

Þröstur Unnar, 1.9.2007 kl. 15:20

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, og sannir karlmenn borða ekki kleinur, það heyrði ég einu sinni en líklega var það bara í gríni.

Guðríður Haraldsdóttir, 1.9.2007 kl. 15:31

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Þoli ekki fólk sem aldrei hefur átt börn (þarmeðtaldir karlmenn) sem er að gefa leiðbeiningar um fæðingar og segja hvernig okkur eigi að líða. Tala nú ekki um ef verið er að meta utanaðfrá hvað við getum og hvað ekki Það er viðbjóðslega vont að fæða börn. Ég hef gert það þrisvar og það er ekkert skárra í annað eða þriðja skiptið. Það er bara vont og ég áskil mér allan rétt til að öskra af mér hausinn í hvert skipti og bíta frá mér í leiðinni. Síðast bað ég fólk um að lóga mér bara . ...svo er þetta voða fínt eftirá auðvitað og þú gleymir þessu brátt... jeræt!!!

Laufey Ólafsdóttir, 1.9.2007 kl. 15:33

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Bókin Konur með einn í útvíkkun fá enga samúð var alveg frábær. Samansafn af fæðingarsögum, jafn misjöfnum og sögukonurnar voru margar. Svo er reynt að skella okkur öllum í sama mótið. 

Guðríður Haraldsdóttir, 1.9.2007 kl. 15:46

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL. frábær titill á bók. Ég hreyfðist ekki feti ofar en 3 í útvíkkun í fyrstu fæðingu og læknirinn hafði svo mikla samúð með mér að hann lét keyra mig upp á skurðstofu. Þeir geta verið ansi manneskjulegir þessar elskur þegar þeir vilja.

Jóna Á. Gísladóttir, 1.9.2007 kl. 16:02

6 Smámynd: krossgata

Já, það er ekki unaður að fæða barn.  En það er alveg dásamlegt að vera viðstaddur fæðingu barnabarns og láta einhvern annan um sársaukann.    Ég var heldur ekkert að hvetja dótturina til að fæða alveg náttúrulega og lyfjalaust.  Mér fannst ég ekki viðstödd fæðingu minna barna, ég var í hörkupúli.

krossgata, 1.9.2007 kl. 17:17

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Don´t get me started.  Arg og þúsundsinnumþað.  Það stendur í biblíunni að við skulum fæða með verkjum.  Enn við líði meðan hægt er að deyfa nasavængina við óþægindum vegna of mikillar snýtu.

Muhahaha eitthvað svo pírí núna.  Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.9.2007 kl. 17:39

8 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Sjá grein og umræður hér hjá henni Eyju Margréti.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 1.9.2007 kl. 18:11

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ahhh, takk, Hildigunnur, fín grein og góðar pælingar hjá Eyju og kommenturum!

Guðríður Haraldsdóttir, 1.9.2007 kl. 18:24

10 identicon

Ég hef ekki fætt sársaukalaust en allveg þolanlegan sársauka, reyndar var andlitsfæðingin verst af 3 fæðingum , en ég missti af 3ju fæðingunni og bað ljósmóðurina að endurtaka hana.

Ásta (IP-tala skráð) 5.9.2007 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 283
  • Sl. sólarhring: 306
  • Sl. viku: 1825
  • Frá upphafi: 1460758

Annað

  • Innlit í dag: 259
  • Innlit sl. viku: 1483
  • Gestir í dag: 245
  • IP-tölur í dag: 242

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Opið hús kl. 17
  • Dýrheimar kaffihús
  • Ken

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband