Ţrjár klárar konur og femíniskur strćtóbílstjóri ...

Smiđur, vísindakona og ritstjórnarfulltrúiHeimir bílstjóri er annađ hvort sannur femínisti eđa heyrnarlaus. Frá Mosfellsbć sátum viđ ţrjár kjarnakonur fremst í strćtó; vísindakonan, smiđurinn og ritstjórnarfulltrúinn og töluđum hátt og snjallt um vísindi (ć, ţiđ mynduđ ekki skilja ţađ ...), misrétti (Ísland 2007), úrtölur (konur kunna ekki ađ keyra, skilja ekki vísindi og geta ekki lćrt stćrđfrćđi) og froska (dćmisaga frá smiđnum). Margir kjósa ađ misskilja svona umrćđur um misrétti og halda ađ veriđ sé ađ tala illa um karlmenn, sú var auđvitađ ekki raunin, viđ erum allar, held ég, alveg kolvitlausar í stráka, eins og flestir femínistar.

Á leiđinni upp kúlurassbrekkuna tók ég vel á ... gekk rösklega og fann hvernig rassvöđvarnir styrktust međ hverjum metranum ... og ţađ var eins og viđ manninn mćlt, mađurinn á Merrild-sendibílnum flautađi nćstum ţví á mig og var alveg viđ ţađ ađ stoppa fyrir mér svo ađ ég kćmist yfir götuna. Hann stoppar pottţétt á mánudaginn. 

Nellí prófarkalesari kom rennblaut í hús nokkrum mínútum á eftir mér. Hún varđ holdvot inn ađ beini á ţví ađ labba úr bílnum sínum og ţessa millimetra ađ húsinu. Ég nýt greinilega velţóknunar veđurguđanna sem láta víst bara rigna á rangláta. Eru ekki prófarkalesarar hvort eđ er í sama flokki og stöđumćlaverđir? Sífellt nöldrandi ... "ţú átt ekki ađ leggja hérna" ... "ţú átt ekki ađ skrifa Y í klifra" ... osfrv.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sumir skrifa "ý" í femýnisti.  Ég veit ekki hvort ég myndi vilja láta prófarkalesa ţađ í burt (Danmerkurfarinn Keli).

Annars skil ég ekki hvers vegna fólk heldur ađ ţađ fari fram einhverjar lágstéttarumrćđur í almenningsvögnum, svona yfirleitt.  Ónei, ţar fara fram háakademískar umrćđur um allt milli himins og jarđar, eins og ţín fćrsla sannar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.10.2007 kl. 09:11

2 Smámynd: krossgata

Ég hef lengi lagt metnađ minn í ađ afsanna ýmislegt í úrtölufrćđum.  Til dćmis bakka ég alltaf í stćđi og er sérlega leikin viđ ţađ.    En líklega er ég ranglát (enda rigndi á mig á leiđ frá bíl ađ inngangi vinnustađar)  og yrđi líklega flokkuđ međ prófarkalesurum eđa mamma myndi alla vega setja mig ţar.  Ég set y alltaf á rétta stađi og er mjög liđleg viđ ađ benda henni á hvar ţau eigi ekki ađ vera. 

krossgata, 5.10.2007 kl. 09:31

3 Smámynd: Guđríđur Haraldsdóttir

Ég er ekkert "skárri" en prófarkalesari, sonur minn fékk ekki einu sinni ađ nota orđiđ SKE í ćsku, og gerir aldrei ţótt fullorđinn sé, tek ţađ fram ađ ég elska prófarkalesanana mína ... og hef nákvćmlega EKKERT upp á stöđumćlaverđi ađ klaga, enda legg ég aldrei ólöglega, einhverra hluta vegna!

Já, Jenný, ţćr verđa stundum ansi akademískar samrćđurnar á morgnana, enda er víst ljóta og vitlausa fólkiđ sem áđur tók strćtó svo ljótt og vitlaust ađ ţađ keypti sér bíl ... Nú er pláss fyrir okkur snillana!

Guđríđur Haraldsdóttir, 5.10.2007 kl. 09:48

4 Smámynd: Guđrún Jóhannesdóttir

Guđrún Jóhannesdóttir, 5.10.2007 kl. 11:43

5 Smámynd: Katrín Snćhólm Baldursdóttir

Kúlurassabrekkan á eftir ađ finn aţér mannsefni Gurrí mín..einhvern sem snarbremsar ţegar ţú bíđur eftir ađ komast yfir götu međ ţinn snilldarhaus og lögulega rass.

Ég heyrđi einu sinni samrćđur í strćtó sem eru ţess eđlis ađ ég get ekki haft ţćr eftir. Verđ bara rjóđ og undirleit ţegar ég ryfja ţćr upp. Voru frekar á dónalegar sko og ţetta var fólk á miđjum aldri sem talađi mig eldrauđa í framan.

ypsiloniđ er í bođi prófarkalesara Vikunnar.

Góđa helgi

Katrín Snćhólm Baldursdóttir, 5.10.2007 kl. 12:39

6 identicon

Hmmmm froska? Mér finnst ţađ áhugaverđasta umrćđuefniđ! Hafđi smiđurinn dćmisögu um froska???

Dagbjört (IP-tala skráđ) 5.10.2007 kl. 12:59

7 Smámynd: Guđríđur Haraldsdóttir

Dćmisagan um froskana: Einu sinni ákváđu nokkrir froskar ađ klifra upp háa byggingu. Froskarnir á jörđu niđri sögđu aftur og aftur: Ţiđ getiđ ţetta ekki, ó, ţiđ dettiđ! Og sjá, ţeir duttu hver af öđrum, allir nema einn sem heyrđi ekki úrtölurnar. Í ljós kom ađ hann var heyrnarlaus.

Hefđi gaman af ţví ađ heyra strćtósöguna viđ gott tćkifćri, Katrín ... múahahahhahaah ... 

Guđríđur Haraldsdóttir, 5.10.2007 kl. 13:16

8 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

alltaf gaman ađ lesa ţínar fćrslur. Getur ţú nokkuđ útvegađ mér viđtaliđ viđ hana Lovísu sem var í Vikunni um daginn, ég er innilokuđ og kemst ekkert nćstu vikur.  Eigđu góđa helgi međ kisunum.  Blowing Bubble 

Ásdís Sigurđardóttir, 5.10.2007 kl. 13:40

9 Smámynd: Magnús Geir Guđmundsson

Ć Gurrí, ţú og ţinn rass, bráđum fer mig ađ langa ađ klappa honum!

Ritstjórnarfulltrúi? Fór alveg framhjá mér, ađ ţú hafir veriđ lćkkuđ í tign ţarna um daginn!!

En svo áttu ekkert međ ađ heyra blautar frásagnir frá vinkonunni góđu, mundu ađ ţú ert TEPRA!

Magnús Geir Guđmundsson, 5.10.2007 kl. 15:48

10 Smámynd: Heiđa B. Heiđars

Ţú ert ógeđslega fyndin ţessa dagana Gurrí!! Hvađ er í vatninu ţarna á Skaganum?

Heiđa B. Heiđars, 5.10.2007 kl. 15:59

11 Smámynd: Ragnheiđur

Hm verđur mađur ekki ađ eiga bíl til ađ leggja ólöglega ? Froskarnir eru góđir, ég held ađ ég sé heyrnardaufur froskur..THERE  I said it ! Hef aldrei skiliđ get ekki hugtakiđ....

Knús á ykkur elskurnar á Skaganum

Ragnheiđur , 5.10.2007 kl. 16:45

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

 Ég er sammála Heiđu. Ţú ert fljúgandi mćlsk og dregur sjálfa ţig saman í háđi ţessa dagana. Baaaara fyndin. Takk fyrir pistil

Jóna Á. Gísladóttir, 5.10.2007 kl. 16:54

13 Smámynd: Guđríđur Haraldsdóttir

Heheheh, ég hitti SME í dag og ţađ urđu fagnađarfundir međ okkur, fađmlög og alles. Hef ekki hitt ţessa elsku í mörg ár! Já, ske er danska og rosalega ljótt, a.m.k. í rituđu máli.

Farin heim!!! úúúúúúú

Guđríđur Haraldsdóttir, 5.10.2007 kl. 17:27

14 identicon

"Kúlurassabrekka"? Er ţetta viljandi stagl sem á ađ ţýđa rassarassabrekka? Culo ţýđir rass á ítölsku. Hugsanlega líka á latínu. Veit ekki.

Er prófarkalesarinn Nellí kvenkyns? Lćrđi ţá reglu í barnaskóla ađ öll kvenmannsnöfn sem enduđu á hljóđinu í vćru rituđ međ löngu ý.

Glúmur Gylfason (IP-tala skráđ) 5.10.2007 kl. 19:11

15 Smámynd: Guđríđur Haraldsdóttir

Vá, tókst mér óafvitandi ađ segja rass tvisvar í einu orđi? Vá, hvađ ég get veriđ fyndin ... hahahhaha! Takk fyrir ţetta.

Líklega er Nellý međ Ý, ţar sem hún heitir Nellý ... aftur á móti fékk ég stuđning Orđabókar Háskólans viđ ađ breyta Gurrý í Gurrí fyrir 20 árum, enda gćlunafn. Vil alls ekki láta kalla mig Gurrujjjj ...

Guđríđur Haraldsdóttir, 5.10.2007 kl. 19:25

16 Smámynd: Nanna Rögnvaldardóttir

En Gurrí, ef ţú hafnar ske á ţeirri forsendu ađ ţađ sé danska (reyndar upprunalega ţýska), verđurđu ţá ekki líka ađ hafna kannski á sömu forsendum (ţađ er samsett úr kann og ske)? Hvorttveggja er a.m.k. 500 ára gamalt í íslensku, ske kemur m.a. mjög oft fyrir í Nýjatestamentisţýđingu Odds Gottskálkssonar, sem er elsta prentuđ bók sem til er á íslensku. Má ekki segja ađ orđiđ hafi unniđ sér ţegnrétt á nćrri 500 árum? 

Nanna Rögnvaldardóttir, 5.10.2007 kl. 21:46

17 Smámynd: Nanna Rögnvaldardóttir

... eđa reyndar 700 árum - ske kemur fyrst fyrir í íslensku á 14. öld.

 En ég vann reyndar einu sinni  hjá manni sem sagđist alltaf finna bragđ af tökuorđum ţegar hann notađi orđ eins og gaffall og skúffa (af ţví ađ -ff- inni í orđi er ekki til í forníslensku eđa eitthvađ). Hvorttveggja eru reyndar yngri tökuorđ í íslensku en ske.

Nanna Rögnvaldardóttir, 5.10.2007 kl. 22:07

18 Smámynd: Guđríđur Haraldsdóttir

Mér finnst SKE hrćđilega ljótt orđ og engist ţegar fólk notar ţađ, a.m.k. í ritmáli. Berst gegn ţví en líklega vonlausri baráttu. Takk fyrir fróđleikinn, ţú klikkar ekki. Vissi reyndar ţetta um kannski en nota ţađ nú samt. Hef líklega bara "ofnćmi" fyrir hnetum, möndlum, döđlum, rúsínum, morfíni og orđinu SKE. 

Guđríđur Haraldsdóttir, 5.10.2007 kl. 22:24

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 231
  • Sl. sólarhring: 297
  • Sl. viku: 1773
  • Frá upphafi: 1460706

Annađ

  • Innlit í dag: 209
  • Innlit sl. viku: 1433
  • Gestir í dag: 201
  • IP-tölur í dag: 201

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband