Krúttfrændur, kokkteilsósa og nýr aðdáandi

Sætu frændurFrábæru frændur mínir, Úlfur og Ísak, fóru í aðgerð til að loka gómnum núna í byrjun október. Þeir sem ekki vita þá fæddust þeir með alskarð. Þeir dvöldu í fimm daga á spítalanum í góðu yfirlæti en nældu sér fljótlega í umgangspest, þessar elskur. Samt var alltaf stutt í brosið hjá þeim, enda eru þeir með geðbetri börnum. Þarna liggja þeir í kerrunum sínum inni á sjúkraherberginu, með spelkur á handleggjunum til að varna því að þeir geti rifið upp saumana. Þeir eru þrælslappir þarna, dúllurnar. 

 ----------          ------------         -------------        -----------


13.10 2007Hér í himnaríki lítur allt út fyrir latan sunnudag, erfðaprinsinn les, móðir hans íhugar næstu spennandi húsverk ... úúúú, setja í þvottavél, setja Jónas í gang og gefa krumma fiskbita, krummanum sæta sem hefur svifið hér fyrir utan gluggana og glatt augu okkar allra nema Jónasar. Jónatan svikari hefur eflaust fundið aðra svalakerlingu til að daðra við, enda mávur. Allir vita hvað þeir eru lauslátir. Svo þarf náttúrlega að undirbúa sig vel fyrir matarboðið í kvöld, farða sig, finna hugguleg föt og upphugsa skemmtileg umræðuefni til að fá fleiri boð.

 ---------       --------------

Kokkteilsósa

Mía er mjög góður kokkur, ég er svona meira í kökunum, enda í æfingu eftir öll afmælin. Eldaði þó góðar kjúklingabringur í gær. Kryddaði þær með Best á kjúklinginn og grillaði á mínútugrillinu og hafði stöppu úr sætum kartöflum með, já, og salat auðvitað. Þarf að venja erfðaprinsinn af plebbaskap en hann fékk sér kokkteilsósu líka. Hélt að ég væri af kokkteilsósu-kynslóðinni en ekki hann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Fallegir litlir drengir þessar elskur.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.10.2007 kl. 12:54

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Litlu englabossarnir. Sooooooo krúttlegir. Vonandi hafa þeir náð sér.

hvert ertu að fara í matarboð kona? do tell. Þú heppin að fá ástæðu til að stríla þig upp og fara innan um fólk og vera kúltiveruð heimskona... í svona 3-4 klukkustundi. Muuuhaaaaa

Jóna Á. Gísladóttir, 14.10.2007 kl. 13:19

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Matarboðið er hjá Míu systur og mági mínum, honum Sigþóri. Þótt þetta sé familí er engin ástæða til að farða sig minna eða vera leiðinlegri.

Guðríður Haraldsdóttir, 14.10.2007 kl. 13:25

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

Æðislegir. Góðan og gleðiríkan dag Gurrý.

Heiða Þórðar, 14.10.2007 kl. 14:04

5 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Vona að snáðarnir nái sér - bið að heilsa henni systur þinni - svon Tónlistarskóla heilsu.....hver á tvíburadrengina?

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 14.10.2007 kl. 14:21

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Dagurinn verður áreiðanlega góður og gleðiríkur, líka hjá ykkur, issskurnar. 

Mía systir er amma þeirra, Kristín, og Heiðdís, miðbarnið, er mamman. Pabbinn heitir Baldur og frá Sauðárkróki, þessi elska.  

Guðríður Haraldsdóttir, 14.10.2007 kl. 14:54

7 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Það er tómatsósa sem er plebbismi, ekki kokteilsósa. Hægt er að krydda hana ögn og þá er hún algert æði. Ég set t.d. chilli í mína.

Krúttfrændur eru dásamlegir

Laufey Ólafsdóttir, 14.10.2007 kl. 15:29

8 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

krúttfrændinn, þessi sem situr, hann er nú bara alveg eins og þú þarna á myndinni Gurrí, ég er viss um að þú sérð það sjálf :)

Guðrún Jóhannesdóttir, 14.10.2007 kl. 16:16

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er á því að kokteilsósan sé merki um plebbisma, ef eitthvað er.  Svo finnst mér hún svo klígjuleg svona forbleik.  hehe.

Njóttu matarboðsins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.10.2007 kl. 17:48

10 identicon

Finn enga tengingu á milli bloggsins og miðmyndarinnar - nema ef vera kynni..

Glúmur Gylfason (IP-tala skráð) 14.10.2007 kl. 22:12

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

... viti! Snjall.

Guðríður Haraldsdóttir, 14.10.2007 kl. 22:17

12 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Guðröður I og Guðröður II eru yndislegir drengir, jafnvel þó þeir heiti Ísak og Úlfur. Kokkteilsósa er alveg dásamlegt fyrirbrigði og mér er alveg óskiljanlegt hvað hún er illa umtöluð. Eða þá naggið um fitugar, djúpsteiktar kartöflur, þær eru yndislegar. Ekki satt? Bestustu kveðjur yfir flóann - ég horfi núna í gegnum bláa geisla til þín!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 14.10.2007 kl. 22:59

13 Smámynd: Jens Guð

  Svakalega sem nýjasta tölublað Vikunnar er vel heppnað.  Alveg dúndurblað. 

Jens Guð, 15.10.2007 kl. 02:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 129
  • Sl. sólarhring: 302
  • Sl. viku: 2424
  • Frá upphafi: 1461956

Annað

  • Innlit í dag: 116
  • Innlit sl. viku: 2056
  • Gestir í dag: 110
  • IP-tölur í dag: 110

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Garðyrkja og útivera
  • Veðrið á miðvikudaginn
  • Há og grönn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband