22.10.2007 | 00:16
Með lögguna í vasanum ...
Þessi sunnudagur breyttist svolítið, eiginlega bara heilmikið. Það átti að fara í netbolinn og njóta Formúlunnar með stæl. Á meðan ég sat og horfði á vísana á klukkunni færast löturhægt í áttina að Formúlu hringdi síminn. Glaðbeitt kvenmannsrödd. Hæ, þetta er Hilda (systir). Við mamma (mamma) ætlum að kíkja í heimsókn á eftir, hvernig líst þér á það? Margar vikur frá síðasta hittelsi ... Ég horfði á símtólið og sjónvarpið til skiptis. Nú voru góð ráð dýr. Mér datt djöfullegt snilldarráð í hug á sekúndubroti og með geigvænlegri lymsku tókst mér að fresta komu þeirra. Ég sagði Hildu að Formúlan yrði á dagskrá kl. 4 (þá byrjaði sjálf keppnin) en AUÐVITAÐ yrðu þær samt að koma. Í lok setningarinnar kjökraði ég lágt. Ég kem bara eftir fimm, sagði Hilda hlýlega en hrím myndaðist samt á símtólinu. Það gæti hafa verið ímyndun hjá mér. Svo hringdi ég í lögguna.
Þeim mæðgum seinkaði nokkuð, eins og ég bjóst við, (múahahahaha) og mættu ekki fyrr en kappakstursmennirnir voru búnir að burra og byrjaðir að djúsa og grobba sig. Ég styrkti nefnilega lögreglukórinn á Akranesi um nokkra fimmtíukalla og lét bæði taka þær fyrir hraðakstur (91,5 km/klst) og loka göngunum í svona 43 mínútur til öryggis.
Úrslitin voru bara fín. Þegar minn maður (Hamilton) hafði klúðrað þessu (snemma í keppninni) varð svo mikið spennufall í himnaríki að ég hefði reyndar alveg þegið heimsókn til að dreifa huganum.
Það hringdu fleiri sem voru að pæla í að koma í heimsókn. Ég sagði frá Formúlu, lögregluríki og fyrirhugaðri innrás ættingja. Líklega eru allir svo hræddir við mömmu, kannski enn frekar Hildu, að enginn þorði að koma.
Það var ekki fyrr en þrjár mínútur yfir níu í kvöld sem ég áttaði mig á þessu samsæri. Vinir mínir og ættingjar er andstyggilega þenkjandi, þessar elskur. Þeir lesa bloggið mitt og finna þannig út hvenær ég ætla að horfa á eitthvað verulega krassandi í sjónvarpinu. Síðan hringir liðið til að prófa mig. Elska ég vini mína og ættingja ... eða er ég orðin sjónvarpsfíkill? Hvað um allar þær löngu helgar sem ég hef setið emjandi að springa úr einmanaleika (aldrei) og enginn kemur? Vá, hvað ég ætla ekki að gera neitt um næstu helgi.
Það var ekki nóg með að mæðgurnar heiðruðu himnaríki með komu sinni ... Hilda hljóp óvænt niður í bíl þegar heimsókninni virtist vera lokið, skildi mömmu eftir, kom svo upp með fullt af mat sem hún eldaði handa okkur. Svakalega gómsætan taílenskan kjúklingarétt.
Þetta var frábær dagur!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Formúla 1, Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.4.): 90
- Sl. sólarhring: 199
- Sl. viku: 657
- Frá upphafi: 1524288
Annað
- Innlit í dag: 83
- Innlit sl. viku: 561
- Gestir í dag: 80
- IP-tölur í dag: 78
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Enn og aftur er þetta spurning um sögnina að elska - þ.e.a.s., áður en hún týnir merkingu sinni.
Glúmur Gylfason (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 00:40
Sumir elska það að hata einhvern...aðrirhata það að elska einhvern... Minn dagur var superb..og í lok dagsins var ég loks komin í hóp "Diva"...
Agný, 22.10.2007 kl. 03:36
aha ! Þá man ég það þegar ég geri innrás í himnaríki, skoða sjónvarpsdagskrána fyrst hehehe
Ragnheiður , 22.10.2007 kl. 06:52
Hurru, Glúmur, má ekki tala um að elska ástvini sína? Ég minntist hvergi á sjónvarp eða ryksuguróbót í tengslum við að elska, heldur fólk, þarna nöldurskjóðan yðar!
Ég lét taka þær rétt skömmu áður en við komum á Skagann. Þær voru svo samstarfsfúsar við líkamsleitina að löggan næstum gleymdi sér!
Agný díva ... æði.
Sko Ragga, Formúlan er búin og þar með er dottið niður gláp á sjónvarp um helgar, nema á sunnudagskvöldum!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.10.2007 kl. 07:49
Þett er bömmerinn við að blogga. Fólk veit of mikið um mann
en það má auðvitað ljúga á blogginu, kona gæti sagst vera á leiðinni út eða eitthvað, en það hefur þann mínus í för með sér að þá er ekki hægt að blogga skemmtilega, þ.e. ef maður er aldrei heima í prinsippinu, þá gerist auðvitað ekkert heima. Sjitt skilur þú hvað ég meina? Held að ég botni ekkert í því
.
Megi góðir vættir fylgja yður þennan mánudag og gefa yður góðar vinnustundir.
Smjúts frá mér
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.10.2007 kl. 08:10
Knús á móti, elskan. Ég botna algjörlega í þessu hjá þér!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.10.2007 kl. 08:46
hmmm og svo var verið að skoða Rosberg, Kubica og Heidfeld fyrir að hafa brotið eldsneytisreglur, þannig að þar til í nótt einhvern tímann gat verið að Hamilton yrði meistari eftir allt saman. Staðan núna er sú að stewards úrskurðuðu að úrslitin stæðu óbreytt, þrátt fyrir brot, en McLaren liðið er búið að kæra úrslitin.
Ég verð að viðurkenna að þrátt fyrir að Hamilton sé mitt uppáhald get ég vel unnað Kimi titilsins, hann er svo oft búinn að vera nálægt honum. Yrði ekki smá fúlt ef hann næði að vera meistari í dagpart...
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 22.10.2007 kl. 08:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.