28.11.2007 | 22:38
Tæknitröll, bold og allt um Útvarp Akranes
Gott var að fá far heim með Ingu en þegar hún var að fara út úr dyrunum eftir latte og spjall bað ég hana að tengja snöggvast vídeótækið sem hún lánaði mér. Það hefur alltaf gleymst. Hér á þessu heimili leikum við okkur að kjarneðlisfræði og töfrateningum en kunnum ekki á svona hversdagslega hluti. Dæmi: Hér er ekki ryksugað, heldur sér vélmenni um að halda gólfum himnaríkis hreinum! Jæja, annað hvort er tækið bilað eða scart-tengi eru uppfinning andskotans! Þetta tafði Ingu um næstum klukkutíma og heima í Reykjavík beið hennar sársvangur drengur (20 ára). Tek það fram að Inga leikur á fjarstýringar og tengingar eins og Mía systir á píanó og ég á karlmenn, eða gerði ef ég virkilega legði mig fram um það! Kannski.
Hef horft með öðru, eiginlega hálfu, auganu á síðustu bold og skil ekki alveg allt sem er í gangi. Mér sýnist þó að Bridget tali um barnið, Nichole, sem dó við fæðingu, sem límið sem hélt hjónabandi hennar og Nicks saman. Nú er ekkert lím. Svo kom í ljós að Nick á ekkert í Dominic litla, heldur Dante, bjargvættur Taylor (bjargaði henni frá Ómari soldáni sem hafði rænt henni og allir héldu að hún væri dáin en þá var hún bara í dásvefni). Dante kemur sterkur inn, deitaði meira að segja Brooke á tímabili. Nú þráir hann heitast af öllu að Briget komi til sín og gangi barninu í móðurstað, eins og hún ætlaði að gera með Nick.
Það gengur löturhægt hjá Ridge að reyna við Brooke, hún sér bara tengdason sinn, Nick, sem verður væntanlega brátt á lausu. Eflaust verða þó einhverjar flækjur til að skemma það, kannski að Brooke játist bara Ridge til að spæla Stefaníu, mömmu hans. Svo er dóttir Lou horfin, eftir að Barnavernd kíkti í heimsókn út af marblettinum á öxlinni á henni, sem hún reynir að kenna hinni hressu dóttur Steiger lögregluforingja um. Svo kom eitthvað um að stýrimaður eða vélstjóri hefði klikkast og reynt að sökkva skipi þótt hann hefði ekki stímt á ísjaka og ... jamm, það var alltaf fjör í boldinu.
Miðvikudagar eru ekki lengur viðbjóðslegir kellingasjónvarpsdagar á Stöð 2, ekki eingöngu. Nú eru bæði Closer, spennuþáttur (reyndar kona sem yfirlögga) og Grey´s Anatomy (kona sem læknir en líka fullt af körlum) á dagskránni og hægt að fara að lesa þegar Oprah byrjar ... og horfa á Kiljuna í leiðinni. Er komin frekar langt í Ösku, bókinni hennar Yrsu og finnst hún alveg stórskemmtileg. Í dag fékk ég Guðna sjálfan og kíki á hana um helgina. Harry Potter er þó ofar í bunkanum en erfðaprinsinn, sem átti þá næstsíðustu eftir, spændi hana í sig og er nú langt kominn í þessarri nýju, rosalega spenntur.
Útvarp Akranes verður sent út frá Skrúðgarðinum um næstu helgi (FM 95.0). Það er sniðug hugmynd að senda út þaðan. Tommi strætóbílstjóri og Jón Allansson (gamall bekkjarbróðir úr barnaskóla og safnstjóri hér í bæ) sjá um rokkþátt frá kl. 21 á föstudagskvöldinu. Það verður án efa góð skemmtun! Svo ætlar sjálf Anna Kristine að vera með viðtal við hjónin Ingibjörgu Pálmadóttur og Harald Sturlaugsson á sunnudeginum um miðjan dag. Þess á milli bara glimrandi fjör og skemmtun. Erfðaprinsinn ætlar að skutla mér undir hádegi á laugardeginum og fara svo að kaupa jólagjafir. Hef ekki hugmynd hvað ég á að pína hann til að gefa mér! Getur hann toppað afmælisgjöfina? Efast um það. Kannski að ég tali meira um hvað nýja safnplatan með Led Zeppelin sé örugglega góð ... Mér sýnist hann vera sofnaður með Potter á bringunni og kettina til fóta. Hvað er annað hægt að gera en sofa þegar Jónatan hefur alveg yfirgefið fjölskylduna?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Menning og listir, Sjónvarp | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 205
- Sl. sólarhring: 369
- Sl. viku: 897
- Frá upphafi: 1505904
Annað
- Innlit í dag: 164
- Innlit sl. viku: 730
- Gestir í dag: 158
- IP-tölur í dag: 152
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Hahaha Glæsileg umsögn úr Boldinu Nágrönnum og frétt dagsins þú ert frábær mín kæra þetta verður heljarinnar helgi á öldum ljósvakans hér á skaganum gaman bara kannski maður fá sér gott kaffi í skrúðgarðinum á laugardag ef tími gefst til
Brynja blogg.central.is/skordal_1 (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 22:54
Ah gleymdi hvenar fer þinn þáttur í loftið? Er það ekki á Laugardag?
Brynja blogg.central.is/skordal_1 (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 22:58
Jú, hann verður kl. 11-12.30 á laugardaginn, hlakka helling til!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.11.2007 kl. 23:02
Það er nú aldeilis fínt að geta séð hvað er að gerast í Boldinu, en er ekki Brooke aðalbomban? bara spyr af því hún er ekki á myndinni.
Það er fjör þegar útvarp Skaginn eða Akranes byrjar - búið að vera öll árin 16 sem á hef búið hér á Skaga í desember! Ekki verra ef þú ert líka á leiðinni í það!
Það eina sem er óþægilegt við útvarpið, það er að muna eftir að kveikja á því.
Edda Agnarsdóttir, 28.11.2007 kl. 23:09
ótrúlegt að brook líti ekki við gömlu ástinni sem hún eltist við á tímabili ... samt flaug mér í hug nágrannar á tímabili í lýsingunni þarna... ég hef verið að glápa á þá á netinu, við erum a.m.k. hálfu ári á eftir hér á klakanum.
Hvort myndirðu mæla frekar með bíbí eða ösku ??
Hulda (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 23:51
Bold bold bold, ja Gurrí, það er meiri dýrðin að þurfa ekki að horfa, bíða bara eftir upplýsingum hérna á blogginu þínu
Eins gott að muna eftir þættinum þínum á laugardaginn!!!
knús inn í nóttina
Guðrún Jóhannesdóttir, 29.11.2007 kl. 00:15
Tune in on Gurrí. Það er á hreinu krúttið mitt. Ég bíð spennt eftir föstudagskvöldinu, er farin að baka fyrir tilstandið, eða myndi gera ef ég gæti sko. GN og knús í Himnaríki.
Jenný Anna Baldursdóttir, 29.11.2007 kl. 01:28
Hulda, ég blandaði Nágrönnum og sjónvarpsfréttum inn í boldið að þessu sinni til að gá hvað þið væruð klár ... Það horfa greinilega fáir á sápuóperur ... Get varla gert upp á milli bókanna. Bíbí skilur kannski meira eftir en Aska er hreinræktuð spennubók með skrambi skemmtilegri söguhetju, kvenkynslögmanni sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Já, Guðmundur, það ætti að nást, þú gætir þó mögulega þurft að halda á loftnetinu með vinstri FÆTI þar sem þú hangir út um gluggann á þriðju hæð ... hehehehe
Held að ég væri í taugaflækju og kasti ef ég ætti ekki svona góða bloggvini sem peppa og knúsa á víxl. Ekki veitir mér af. Er að verða nokkuð kvíðin ... þótt nýju fötin dragi aðeins úr því.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 29.11.2007 kl. 08:20
Gurrí! á ég að trúa því að þú sért að eyða þínum tíma í að horfa á þetta Bold eitthavð? 'eg trúi þessu ekki á þig. Nú hvað varðar Jólagjöf sem e-prinsin getur gefið þér, er vélmenni sem ryksugar á meðan maður er að gera eitthvað annað, t.d lesa bók, baka köku, eða búa til lystilega góðan mat. Sá þetta apparrat einhversstaðar auglýst.
bestu kv
siggi
siggi (IP-tala skráð) 29.11.2007 kl. 09:00
Siggi ... Jónas, einn íbúi himnaríkis, er vélmenni sem ryksugar! Hélt að þú vissir það eftir nokkuð tryggan lestur ... nema þú skoðir bara myndirnar ... hahahahha. Mér finnst 40-50 þús króna ryksuguvélmenni aðeins of dýr jólagjöf fyrir fátækan erfðaprins ... einn geisladiskur yrði meira en vel þeginn
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 29.11.2007 kl. 10:09
Nýju fötin bjarga þættinum, það er ekki spurning hehehehe.
Ertu svo að spila með okkur Gurrí , við sem treystum á sannsögli þína í Boldmálinu
Guðrún Jóhannesdóttir, 29.11.2007 kl. 12:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.