Útlitsgallaðir aukaleikarar og nauðsynlegar njósnamyndavélar

Stefanía tengdóHorfði með öðru á boldið í hátíðarlaugardagsendursýningu í dag. Nú er allt vitlaust (eins og alltaf). Ridge fékk hjartaáfall, rifu á ósæðina, og kallar stöðugt á Brooke sína sem er í lúxusferð í Mexíkó með Nick sínum. Merkilegt hvað persónurnar hafa notað hjartaáföll til að stjórna fólkinu í kringum sig. Áður en Ridge hneig niður sagði hann við móður sína að hún hefði eyðilagt líf hans. Stefanía hóf leit að Brooke og þegar ég kom upp úr baðinu sá ég að hún var komin til Mexíkó og grátbændi Brooke um að koma að sjúkrabeði Ridge. Nick varð ekki hress á svip, ber að ofan og svona. Enda var þetta þannig ferð.

Á Bold-háskólaspítalanum er þess vandlega gætt að hafa aukaleikarana örlítið útlitsgallaða og ég hef aldrei áður séð í þessum þáttum eins mikið samansafn af feitum rössum. Það undirstrikar líklega glæsilegheit og gallaskort aðalleikaranna. Varir Taylor nutu sín a.m.k. ósegjanlega vel á sjúkrahúsganginum.

Hilda systir er á leiðinni með fullan bíl af börnum og við ætlum að hittast í Skrúðgarðinum. Fattaði ekki að segja henni að hún gæti ekki viðrað börnin á sandinum, það er enginn sandur. Háflóð nú um miðjan dag. Líklega dríf ég mig síðan með henni í fimmtugsafmæli vinkonu okkar kl. 18 í höfuðborginni. Heilsan skánar með hverjum klukkutímanum. Get þá tekið elsku hjartans strætó til baka kl. 20.45. Í fjölskyldufréttum er annað helst að Mía systir ætlar á Ladda-skemmtunina í kvöld. Meira útstáelsið á þessari fjölskyldu.

invis-straumur-reykjavk-axis233d-2008-02-16-142814Nú þjáist ég af valkvíða. Eyjan er komin með vefmyndavél í miðbænum;  http://eyjan.is/webcam Þar get ég fylgst með nýjustu tískustraumum landans og slagsmálum, staðsett flotta menn með einmana blik í augum og séð hverjir eru kaffisjúkir, sjá rauða, lága húsið fyrir miðri mynd sem hýsir Kaffitár í Bankastrætinu.

Hvenær á ég nú að hafa tíma til að vakta Kötlu? http://ruv.is/katla/   Hvað gerist svo þegar þeir druslast loks til að hleypa almenningi að Eldeyjarvefmyndavélinni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hafa bara tvo vafra opna, annan með Kötlu og hinn með Kaffitári. Málið leyst. Svo má alltaf tengja fleiri skjái. Hafa vefmyndavélarnar sitt hvoru megin við miðskjáinn sem þú svo notar til að skrifa og bloggast. Tíguleg lausn í einfaldleika sínum eins og varirnar á Taylor og bringuhárin á Nick.

Lára Hanna Einarsdóttir, 16.2.2008 kl. 14:51

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Svona til upplýsinga fyrir þig, þá má sjá margan manninn skjótast fyrir hornið á Skagabraut/Kirkjubraut dag sem nótt. Muhahaha-

ha.

http://mail.sha.is/myndavel/

Þröstur Unnar, 16.2.2008 kl. 15:01

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Já einmitt, nú er allt vitlaust eins og venjulega og víðar en í Boldinu!

Magnús Geir Guðmundsson, 16.2.2008 kl. 16:21

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.2.2008 kl. 22:04

5 identicon

Boldið-Strætóferðir,er ekkert annað spennandi að gerast?

jensen (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 22:17

6 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Það gerist fátt annað í lífi mínu en bold og strætóferðir, kæri Jensen!!!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 16.2.2008 kl. 22:47

7 identicon

Þekki þessa hringamyndun í lífinu,held að mörg,mörg okkar þekki þennan hring.Gurrí er frábær,, hringtemjari,,allt í góðu.

jensen (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 22:53

8 identicon

alveg merkilegt hvað ridge er orðin ógeðslega gamall eitthvað í boldinu miðað við þegar ég var að nenna að glápa á það... hlýtur að vera mjög gaman að fara í vinnuna og láta lita sig gráhærðan... nema hann sé svona in real life? Skiptir kannski ekki öllu

Vissi ekki af þessari myndavél... gaman að glápa á einhverjar svona vélar þegar lítið er að gera, hef alltaf langað að setja upp eina svona... veit bara ekki hvernig   ef þú veist um einhvern sem veit það og getur sagt mér það endilega má hann kommenta á blogginu mínu

Hulda (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 22:58

9 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Held að þú sért á svipuðu róli og Ísland, kannski aðeins á eftir. Man eftir þætti fyrir nokkrum vikum/mánuðum þar sem Nick var að passa Hope litlu og hún næstum drukknaði í heita pottinum. Jú, Brooke á Hope litlu einmitt með fyrrverandi tengdasyni sínum, Deacon, sem Bridget var gift og hefur nú náð frá henni nýlega fyrrum eiginmanni, Nick.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.2.2008 kl. 11:22

10 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Innlistskvitt

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 17.2.2008 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 12
  • Sl. sólarhring: 39
  • Sl. viku: 646
  • Frá upphafi: 1505999

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 523
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Í fiski 15 ára
  • Sultarólin hert
  • Útsýni úr Kokku kaffihúsi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband