Eldri konur - yngri menn ... fæðingar og illa innrættir kvöldsölumenn

Ofnæmi í strætóGummi bílstjóri (300) horfði umhyggjusamur og afar áhyggjufullur á mig þegar ég skrönglaðist út úr strætó í Mosó, enda hafði ég hóstað látlaust fyrir aftan hann alla leið. Svo steinhætti geltið þegar í Mosó kom. Líklega er ég bara með ofnæmi fyrir Gumma, þessari elsku!

Framtíðin ...Dagurinn reddaðist svo algjörlega þegar ég sá forsíðu nýja Séð og heyrt en Páll Rósinkrans (34) er genginn út og er farinn að vera með fallegri flugfreyju (46) sem segir mér að ég ætti kannski að gefa gaum aðdáendum mínum á aldrinum 37-44 ára. Hingað til hef ég fleygt ástarbréfum frá þessum mönnum, enda eru þeir ekki í markhópi mínum. Ég hef líka hlegið fyrirlitlega þegar þeir hrósa útliti mínu og haldið að þeir ætluðu að misnota góðvild mína til að kynnast Helgu, litlu systur, (40) ... Við erum með merka konu (61) á forsíðu Vikunnar, konu sem fann bróður sinn eftir 60 ár og komst að því að faðir þeirra systkina var mikil stríðshetja í seinni heimstyrjöldinni og síðar mikill björgunarmaður, bjargaði fólki út úr bílflökum og slíkt. Ferlega skemmtilegt viðtal. Mér fannst líka athyglisvert að lesa viðtal við konu sem hefur bæði prófað að fæða barn hér á Íslandi og í Bandaríkjunum og það er mikill munur á. Hér á landi eru konur hvattar til að kveljast og pínast af því að það er svo náttúrulegt en það er ekki boðið upp á slíkt í USA. Konan segir ungbarnaeftirlit hér á landi þó mun betra.

Getnaðarvörn sem virkarEin vinkona mín ætlaði einmitt að hafa allt svo náttúrulegt hjá sér og við verstu hríðarverkjum ætlaði hún í mesta lagi að dreypa á piparmyntutei. Eftir að hún var komin á fæðingardeildina breyttist allt og hún hótaði starfsmönnum öllu illu, kvalafullum dauða og alles, ef hún fengi ekki mænudeyfingu í hvelli!

Ég er svipað þenkjandi og hún, langar að láta hnefana tala ... en gagnvart sölumanns"krúttinu" (kaldhæðni) sem situr í sætinu mínu á kvöldin. Hann getur ekki sleppt því að skemma stillinguna á stólnum mínum og auk þess hefur hann einstaka ánægju af því að sparka inniskónum mínum það langt undir skrifborðið að ég þarf að skríða eftir þeim ... og hnén á mér þola illa slíkt eftir slysið ógleymanlega á ógæfumölinni í september 2006 þegar þurfti að sauma níu spor ... Ég er svo mikill hrakfallabálkur ... dett á svona fjörutíu ára fresti og slasa mig til blóðs ... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Ég mæli eindregið með því að þú gefir yngri mönnum sjens. Sjálf er ég árgerð "56 og þriðji maðurinn árgerð "67 - og þetta er fyrsta hjónabandið mitt (af þremur) sem virðist ætla að ganga upp - og vel það. Við erum búin að vera ýkt ástfanginn í bráðum 6 ár - og lifum í endalausri sælu.

Laufey B Waage, 20.2.2008 kl. 11:07

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Jussumía.mikið er ég heppin að vera með yngri manni...hann er heilum 14 árum..ehh nei..14 mánuðum yngri . Það telst samt með. Hann ER yngri. OG ég er Í þesssu tilfelli eldri kona með yngri manni. Smart bara Agalegt að þér hafi yfirsést þetta Gurrí....koma nú ekki allir karlarnir sem spila fótbolta fyrir utan gluggann hjá þér vel til greina..???? Gaman gaman!!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.2.2008 kl. 11:22

3 Smámynd: Nanna Rögnvaldardóttir

Íslenskar ljósmæður eru bara svona miklu biblíufróðari en þær bandarísku, þær muna hvað Drottinn sagði við Evu í 1. Mósebók og átti að gilda um alla hennar kvenkyns afkomendur: ,,Mikla mun ég gjöra þjáningu þína, er þú verður barnshafandi. Með þraut skalt þú börn fæða, og þó hafa löngun til manns þíns, en hann skal drottna yfir þér."

Svo er það ekki alveg rétt að þú hafir aldrei leitt hugann að sambandi við yngri menn. Ég minni til dæmis á þegar við vorum með plön um að giftast sonum hvor annarrar til að geta nýtt okkur skattkortin þeirra. Það strandaði bara á drengjunum sjálfum ef ég man rétt.

Nanna Rögnvaldardóttir, 20.2.2008 kl. 11:44

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhahaha, ég var búin að gleyma þessu með synina, voðalega höfum við verið viðbjóðslega þenkjandi ...

Líst vel á fótboltamenn en þeir hlaupa allt of hratt til að ég gæti náð þeim, Katrín. Laufey, fer að dæmi þínu :)

Guðríður Haraldsdóttir, 20.2.2008 kl. 12:14

5 Smámynd: Kolgrima

Konur lifa lengur en menn og því er lógískt að búa með yngri manni - minnkar líkurnar á því að kona sé ekkja í mjög mörg ár! Fyrir nú utan það að margir hafa verið aldir upp í því að bera virðingu fyrir sér eldra fólki

Kolgrima, 20.2.2008 kl. 12:31

6 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Athyglisvert (37 - 44) :/

Kjartan Pálmarsson, 20.2.2008 kl. 12:34

7 Smámynd: Ragnheiður

hehehehe já hér eru sko margir áhugaverðir punktar, hef þetta allt í huga ef minn strýkur úr beislinu og ég þarf að endurnýja

Ragnheiður , 20.2.2008 kl. 12:37

8 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Gummi er níu mánuðum eldri en ég og í nærri ár get ég endalaust bent honum á að hann er eldri maður sem eltist við sér yngri konu.

Steingerður Steinarsdóttir, 20.2.2008 kl. 12:52

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtileg færsla Gurrý mín, auðvitað gefurðu öllum séns sem þér líst vel á, þitt er valið, aldurinn er þeirra vandamál ekki þitt.  Minn er 6 mánuðum yngri, var hér áður með konum sér yngri, en finnst þetta miklu betra að vera með sér eldri konu. 

Ásdís Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 13:24

10 Smámynd: krossgata

 Ég fæddi næstum svona náttúrulega (alveg óvart) í seinna skiptið sem ég stóð í þessu.  Þetta gekk sem sagt svo hratt að það var víst of seint að setja upp mænudeyfingu og ég svo logandi sprautuhrædd (er örugglega til fínt fóbíuheiti yfir það) að ég harðneitaði að fá vatnsbóludeyfingar og/eða aðrar sprautur og fannst ég vera að kafna af bannsettu gasinu, svo því var grýtt í burtu.  Á endanum tók ljósan mín, þessi elska, af mér ráðin og gaf mér eitthvað deyfilyf og svo móteitur gegn því þegar kollhríðin hófst - svo krílið yrði ekki droggað.

Margar indælar skynsamar ljósur til. 

krossgata, 20.2.2008 kl. 14:09

11 Smámynd: Tiger

 Færslurnar þínar eru alltaf jafn skemmtilegar og góðar. Finnst endalaust gaman að kíkja á þig ungfrú Akranes. Hef mikið gaman af því hve lifandi frásagnastíll þinn er, maður dettur alveg inn í daginn þinn. 

Myndi fyrir mína parta styðja við þá hugmynd að hafa sem flest sem eðlilegast og minnst af afskiptasemi lækna og annarra þegar um eðlilegar fæðingar er að ræða. Þekki nálægt dæmi þar sem slík "hjálp" kostaði unga foreldra sitt fyrsta barn og ekki var litið á þau "mistök" öðruvísi en óheppni. Þrátt fyrir að um fullkomlega eðlilega fæðingu væri að ræða þá var gripið inní ferlið - eðlilegt ferli - með skelfilegum afleiðingum.

  

Tiger, 20.2.2008 kl. 15:42

12 identicon

kennarinn minn var að eignast barn, þurfti að taka á móti því í hjónarúminu því það tók bara 50mín frá því hríðir hófust... þannig þetta er nú mismunandi

Hulda (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 18:58

13 identicon

Hvað hefurðu á móti yngri mönnum? Minn er sjö árum yngri en ég og hann viðurkennir fúslega að hann sé haldinn dálítilli ellifíkn. Svo eins og Kolgríma segir verður maður ekki ekkja eins lengi og það er ódýrara að líftryggja þá. Þessi kall hentar mér miklu betur en sá fyrri sem var jafngamall mér.

Helga Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 20:02

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Eldri konur, yngri menn - það er trendið núna sko! 

Marta B Helgadóttir, 20.2.2008 kl. 21:22

15 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Steingerður mín, ég myndi skipta honum út - alltof gamall fyrir þig

Marta B Helgadóttir, 20.2.2008 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 344
  • Sl. sólarhring: 421
  • Sl. viku: 1368
  • Frá upphafi: 1459439

Annað

  • Innlit í dag: 251
  • Innlit sl. viku: 1112
  • Gestir í dag: 238
  • IP-tölur í dag: 233

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 12. ágúst sko
  • Nöfn
  • Skvasssss

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband