13.3.2008 | 11:52
Allt æði þrátt fyrir stólasorgir og strætóbílstjóramóðganir
Það blés og hvein í himnaríki í morgun og eftir að hafa dáðst að fallegu konunni í speglinum dágóða stund kíkti ég á vef Vegagerðarinnar. Hviðurnar voru rétt um 30 m/sek og þegar Gummi (14) bílstjóri hleypti okkur inn í vagninn sagði hann kvikindislega að hviðurnar væru í kringum 34 m/sek. Frekar mikið ýkt, eflaust til að fá okkur til að skrækja. Over mæ dedd boddí. Svo tókst honum að móðga mig hárfínt og ekki í fyrsta sinn á einum sólarhring. Hvort tveggja svona offitusjúklingsmóðgun. Ég sagði nefnilega hughreystandi við hann í morgun að ég skyldi gera mig rosa þunga svo strætó fyki ekki út af á Kjalarnesinu. Gummi svaraði: "Já, það er flott að hafa þig svona framarlega" (addna 500 kílóa sandpokinn þinn). Kannski var hann bara að taka undir djókinn ... veit það ekki. http://www.vegagerdin.is/umferd-og-faerd/faerd-og-astand/faerd-og-vedur/vesturland/linurit/st036.html Vona bara að það verði fært seinnipartinn. Strætó gengur örugglega ekki núna.
Það var algjört þriggja trefla veður í morgun, lítill, röndóttur eftir Gunndísi, þar yfir blár venjulegur og svo fjólublátt sjal yfir allt saman. Ég skalf ekki úr kulda á leiðinni sem fólk hefði getað misskilið sem hræðslu þegar hviðurnar þeyttu okkur á milli akreina. Skömmu fyrir komu í Kollafjörð mættum við risatrukkum og þótt Gummi færi hægt rykkti vel í strætó. Óhljóðin sem heyrðust í vindinum minntu á skerí hljóð í geimverumyndum. Ég náði ekki upp neinni hræðslu, heldur reyndi að dorma. Ég var sybbin, enda er ég að lesa geggjaða nýja bók eftir Robert Goddard, Ekki sjón að sjá, heitir hún. (Bókin Horfinn, eftir hann kom út í fyrra og var alveg frábær.) Tveggja ára stelpu er rænt og sjö ára systir hennar verður fyrir bíl ræningjanna og deyr. Ungur doktorsnemi er vitni að atvikinu. Löggan sem rannsakar málið er ekki sáttur við útkomuna og löngu seinna, þegar hann er kominn á eftirlaun, berst honum bréf sem fær hann til að rannsaka það aftur á eigin vegum ... með hjálp doktorsnemans. Lagði bókina nauðug frá mér kl. 1 í nótt, vissi að það yrði djöfullegt að vakna um sjöleytið og það reyndist rétt!
"Yndislegi" kvöldsölumaðurinn sem Guðný á Króknum hrelldi nýlega í símanum sat greinilega í sæti ritstjórans míns þá, þar fundust skilaboð frá henni með bestu kveðju. Þegar ritstjórinn minn settist í morgun var stóllinn hennar reyndar allur laus og hún hrapaði næstum á gólfið. Stólamálin við borðið mitt voru enn hryllilegri. Gamli stóllinn hennar Steingerðar var orðinn lægri en áður og stólbakið hallaði aftur, eitthvað sem ég hélt að væri ekki hægt að gera nema að handleggsbrjóta sig. Nú, svo var svarti stóllinn minn (sem ég hafði fært fjær borðinu og sett Steingerðarstól í staðinn) kominn nær borðinu og búið að fikta all rosalega í stillingunni. Hann var svona laflaus eins og stóll ritstjórans. Það er ekki þægilegt þegar búið er að leggja fyrir mann dauðagildru ... krota á símasnúruna með penna (hún er viðbjóðslega subbuleg) og fleiri óknytti. Það dugir ekki einu sinni fyrir mig að fylla allt af drasli til að fæla sölumennina frá, þeir ýta því bara til hliðar, setjast og upphugsa fleiri og verri gildrur fyrir okkur. Sem sagt báðir stólarnir úr lagi gengnir í morgun og ég fann fyrir sjaldgæfum pirringi eitt augnablik. Þeir eru duglegir að selja, þess vegna eru þeir enn uppistandandi!
Dagurinn er samt frábær, jafnvel þótt það verði fokkings silungur í matinn í hádeginu. (NannaR, reyndu ekki að verja þennan mat, það er "smámunur" á eldamennsku þinni og sumra annarra).
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Ferðalög, Matur og drykkur | Facebook
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 247
- Sl. sólarhring: 315
- Sl. viku: 870
- Frá upphafi: 1524702
Annað
- Innlit í dag: 220
- Innlit sl. viku: 743
- Gestir í dag: 216
- IP-tölur í dag: 215
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Þeir eru svoooo duglegir, þessar elskur, þess vegna læt ég bloggnöldur og stöku minnismiða til þeirra fylgja.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.3.2008 kl. 13:44
ekki fylgja ... heldur nægja.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.3.2008 kl. 13:46
Hehe, hvernig bragðaðist fokkings silungurinn? Þessi 14 ára bílstjóri kann enga mannasiði enda ungur að árum
Knús og klemm
Jenný Anna Baldursdóttir, 13.3.2008 kl. 13:59
Ég sagði ekki eitt einasta orð ...
Ég held ég hafi aldrei boðið þér í silung (allavega ekki í mörg mörg ár) því að ég veit alveg að þú kannt ekki gott að meta. Nema bara sumt sko.
Hmmm, kannski ég hafi bara silung næst þegar ég býð þér í mat.
Nanna Rögnvaldardóttir, 13.3.2008 kl. 15:18
Ég hefði viljað fá fokkings silung nammi namm, annars var ég að heyra að það er óveður á Kjalarnesi, vertu bara kjurr í vinnunni og hrekktu svo fjandans sölumannsdýrið, hann beri greinilega enga virðingu fyrir sætinu þínu.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 15:35
Jú, elskan, ég hef smakkað silung hjá þér og fannst hann fínn. Annars er hetjuskapur hjá mötuneytinu að bjóða upp á slíkan mat sem silung! Fólk var himinsælt með matinn, líka silunginn og sumir sögðu að þetta hefði verið besti matur í sögu mötuneytisins. Grænmetisrétturinn, sem ég fékk mér, var grænmetisburrító með hvítlaukssósu ... en ég fékk mér líka bragðsterka chili-sósu sem átti reyndar að vera með fiskinum, held ég. Sé eftir að hafa ekki smakkað í þetta skiptið, gerði það síðast og var ekki ánægð.
Vona Jenný að þú sért ekki orðin rugluð vegna mismunandi aldurs Gumma.
Ég veit ekkert hvað hann er gamall. Hann er ungur miðað við elsta mann heims og gamall miðað við erfðaprinsinn.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.3.2008 kl. 15:38
Ásdís, það væri rosalega gaman að verða eftir, athuga hver sest í sætið mitt og lesa honum svo pistilinn, rólega en ákveðið, svona eins og Stefanía í boldinu við Brooke. Hehehhehe
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.3.2008 kl. 15:39
Ég borðaði keilu í hádeginu en hefði líka þegið silung. Vona að þessi sölumannsólánsóféti fari að slasa sig á stólnum mínum.
Steingerður Steinarsdóttir, 13.3.2008 kl. 15:39
Silungur er lostæti, namm namm! Þú átt við ýmislegt að stríða og ég segi nú bara einsgott að þeir selji, elskulegir sölumennirnir!
Þú ert s.s. að eta comida mexicana todos los días querida! Dag eftir dag alveg ..... knús í veðrið !
www.zordis.com, 13.3.2008 kl. 16:11
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 17:11
Hún hljómar ótrúlega girnileg þessi bók. Þarf að verða mér úti um hana.
Lemja bílstjórann!
Jóna Á. Gísladóttir, 13.3.2008 kl. 21:31
...hefur þér dottið í hug að skrúfa stólinn lausan áður en þú ferð heim á kvöldin? Þú veist - auga fyrir auga, skrúfu fyrir skrúfu...
Hrönn Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 22:50
Ég er uppalinn af góðri konu, því hef ég ungva þörf á því að úttala mig um að ég hefði á skotspónum heyrt þá kviksögu að fullvaxnar konur væru eiginlega grundvöllur fyrir almannasamgöngum 'mínímí' strædóa upp á Skipaskaga.
Til að staðfesta þessa persónulegu persónugreiníngu, þá ýti ég ekki á 'senda' takkann, í enda þessarar athugasemdar.
Steingrímur Helgason, 14.3.2008 kl. 00:52
Tiger, 14.3.2008 kl. 03:00
Hæ sjálf nýi bloggvinur. Stabat Mater sem við fluttum er eftir John Speigh og var samið sérstaklega fyrir Vox Feminae og frumfluttum við hann í Háteigskirkju síðastliðið haust og tókum hann svo aftur núna. Ótrúlega magnað verk og aldrei að vita nema þú fáir að njóta hans einhverntíman...
Söngfuglinn, 14.3.2008 kl. 10:03
Kristín Katla Árnadóttir, 14.3.2008 kl. 10:27
Goddard er góður! Við erum í sömu stöðu með Ekki sjón að sjá (Sight unseen). Kemur niður á nætursvefninum
Stefán V. (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 10:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.