22.3.2008 | 21:00
Of gott til að vera satt - hætt með Stöð 2 sport!
Áskriftin að Stöð 2 Sport varði stutt. Var búin að hlakka ógurlega til að horfa á enska boltann á morgun, enda tveir stórleikir á dagskrá. Við erfðaprins biðum þolinmóð á meðan góða fólkið á Stöð 2 afruglaði hjá okkur en það gerðist hægt, nema á gömlu Sýn, þar var golf! (Hrollur) Ég sé helvíti fyrir mér sem heitan stað þar sem hnetumöndludöðlurúsínu-buff hlýtur að vera í matinn og beinar útsendingar frá golfmótum í sjónvarpinu allan sólarhringinn.
------ ---------- ----------- ------------ -----------
Eftir tvo eða þrjá tíma hringdi erfðaprinsinn í s. 515 6100 að beiðni minni og fékk þær fréttir að enski boltinn væri alveg sér og pakkinn allur kostaði um 4.000 krónur. Skrýtið að konan hafi ekki minnst á það þegar hún seldi mér áskriftina. Ég hætti við allt saman. Eftir að hafa hlustað á fréttir Stöðvar 2 sannfærðist ég um að ég hafði gert rétt en þar kom fram að beina Formúluútsendingin verður órugluð kl. 6 í fyrramálið ... en EKKI í endursýningu um hádegisbil. Nú íhuga ég í fúlustu alvöru að skila inn afruglaranum og hætta að skipta við þetta fyrirtæki. Ég hef heyrt um nokkra aðila þarna úti sem lifa góðu og innihaldsríku lífi án þess að vera með Stöð 2. Ég hef verið tryggur kaupandi, eða M12 áskrifandi, síðan á níunda áratug síðustu aldar og er mjög þolinmóð að eðlisfari, núna er mér nóg boðið. Ég veit að bisniss er bisniss ... en þetta með Formúluna er hrein mannvonska.
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Enski boltinn, Formúla 1 | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 69
- Sl. sólarhring: 256
- Sl. viku: 761
- Frá upphafi: 1505768
Annað
- Innlit í dag: 51
- Innlit sl. viku: 617
- Gestir í dag: 51
- IP-tölur í dag: 50
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Hehehehe.Ég er hætt með st 2 og fæ ekkert bold.Fékk fráhvörf fyrst til að byrja með en er óðum að lagast enda komnar 3 vikur.Það er víst hægt að lifa á boldsins.Gleðilega páska í Himnaríki
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 21:25
Vakna, Gurrí, VAKNA! Tökum ekkert mark á þér sem formúlunörd ef þú horfir á endursýningu... :D
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 22.3.2008 kl. 21:34
(já og við höfum reyndar aldrei verið með Stöð 2 eða Sýn eða neitt. Nó prob.)
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 22.3.2008 kl. 21:34
Mæli með fyrirtæki í Skútuvoginum sem heitir Eico. Eiginmaðurinn fékk nóg af því í vor að láta fyrirtækið þarna á Lynhgálsinum taka sig í ra......ið og fékk sér áskrift að Sky. Ég er ekki frá því að fótboltaglápið hafi aukist, en á móti fæ ég Poirot og fleira skemmtilegt í stórum skömmtum. Kveðjur á Skagann.. já og gleðilega páska.
Sigríður Jósefsdóttir, 22.3.2008 kl. 21:44
margt annað hægt að gera en að góna á sjónvarp, daginn inn og út
Brjánn Guðjónsson, 22.3.2008 kl. 21:59
Ég man eftir því að hafa færslað á sömu lund nýlega, bloggritstuldur frú Guðríður ?
Steingrímur Helgason, 22.3.2008 kl. 22:15
ég held að þitt helvíti sé himnaríki Bretans
Jóna Á. Gísladóttir, 22.3.2008 kl. 22:35
Hætti þessu stöð2 og sýn rugli 2003 og hef ekki séð eftir því
Hallgrímur Óli Helgason, 22.3.2008 kl. 22:46
Hætti með áskrift fyrir 3 árum síðan og furða mig stundum á því að ég hef EKKERT saknað þess....er reyndar ekki fótboltafan. Leigi mér bara bíómynd eða dánlóda þegar mig langar að horfa á sjónvarp annað en fréttir.
Gleðilega páska og kvús til þín inn í helgina.
Marta B Helgadóttir, 22.3.2008 kl. 23:55
n
Marta B Helgadóttir, 22.3.2008 kl. 23:55
Gleðilega páska, elskurnar. Líst vel á gervihnött! Fá bæði Poirot og fótbolta, það er dýrð. Annars sit ég ekki öll kvöld og allar helgar yfir sjónvarpinu þótt það hljómi kannski svoleiðis.
Anna, hér á þessu heimili sýndum við mikinn styrk, opnuðum bara annað litla páskaeggið frá mömmu og fengum okkur í eftirrétt. Hitt bíður til kl. 6.30 í fyrramálið, yfir FOrmúlunni.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.3.2008 kl. 01:24
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.3.2008 kl. 01:36
Þetta er nú brandari með læsta endursýningu. Þú tekur bara upp þessa beinu og horfir þegar þú vilt. Áfram Raikkonen.
Birgir Þór Bragason, 23.3.2008 kl. 08:01
Á reyndar ekkert upptökutæki enn en stefni að því að breyta því. Ég vaknaði bara fyrir allar aldir ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.3.2008 kl. 08:05
Til hamingju með þessa ákvörðun. Hef ekki kveikt á sjónvarpi heima hjá mér í rúm tvö ár. Og sakna ekki þessarar horngrýtis amerísku spýju sem flæðir yfir okkur hérna á skerinu. Að maður tali nú ekki þessa boltaleiki. Menning? HEheheheheehhdhhhahahahaha. Gleðilega páska. Með beztu kveðju.
bumba (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 08:16
Ég reyndi að verða áskrifandi að stöð 2 um daginn með akkúrat engum árangri!!! Það var alveg sama hvað ég reyndi..starfsfólkið þarna var ekki alveg að kunna vinnuna sína. Ef ég ætti sjónvarpsstöð myndi ég hafa það að leiðarljósi að hafa fólk í vinnu sem skilur um hvað starf þeirra er..sérstaklega þeirra sem eiga að vera að afla áskrifenda en ekki losna við þá. En þeim tókst að fæla mig langt frá......Ski nú annars ekki að þú þurfir að kvarta. Með þetta dýrðarútsýni stöðugt og alltaf út um gluggann þinn.
Gleðilega páska.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 23.3.2008 kl. 10:36
Já, það væri ansi spennandi að sjá áhorfstölurnar núna. Það eyðilagði fyrir mér páskadag og annan í páskum að rífa mig svona upp til að horfa ... og það á frekar leiðinlega og tíðindalitla keppni, svo það verður ekki gert aftur. Ef ég stjórnaði málum þarna myndi ég hafa þetta ódýrara og fá miklu, miklu fleiri áskrifendur ... við Íslendingar erum loksins að vakna af dásvefni og nennum ekki að láta fara illa með okkur. Ég er t.d. hætt að hringja í bankann minn því ég er beðin um kennitölu í upphafi símtals og síðan er ég rukkuð þótt viðkomandi símtal hafi engu bjargað. Það er alls staðar reynt að græða á almenningi, ég nenni ekki að taka þátt í þessu lengur.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 26.3.2008 kl. 13:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.