Heimkoma Hildu, fótboltavonbrigði og fullt af boldi

Hilda � sp�talanumMikið létti mér þegar ég heyrði í Hildu um hádegisbil, hún komin heim og ekki með heilahimnubólgu eins og læknar héldu á tímabili. Fyrsta sem ég spurði hana að var hvort hún hefði fengið ælupokann. Hún hló og sagði að það hefðu greinilega verið vaktaskipti um þetta leyti og einstaklega vel hefði verið hugsað um hana. Það tókst í fjórðu tilraun (hjá fjórða lækni) að ná úr henni mænuvökva en hún hefur fíngerðar æðar eins og ungbarn og þær liggja djúpt eins og sum ættarleyndarmál. Seinni svæfingarlæknirinn gat þetta í fyrstu tilraun, hún lét Hildu bara setjast upp. Þegar ég fór í aðgerð fyrir nokkrum árum kveið ég einna mest fyrir mænudeyfingunni sem var framkvæmd á skurðarborðinu. Ungur læknir sem ég viðraði þetta við hughreysti mig þótt ég væri með Chuck Norris-svip á andlitinu og sagði að í kæruleysispillunni væri ákveðið gleymskuefni. Það passaði, ég man bara eftir að hafa setið upprétt og hallað mér fram í fangið á elsku Kristínu skurðhjúkku og bara nokkrar sekúndur í stunguna. Síðan bara gleymska. Ég hef því einungis hálfrómantískar minningar úr skurðstofunni, vantaði bara kertaljósin. Hilda þarf að muna árangurslausar tilraunirnar og líka þá sem tókst en þar sem hún er töffari mun það ekki hafa varanleg áhrif á hana.

priceless80'sBoldið rúllar í sjónvarpinu og gamlar endurminningar um Sankti Dörlu eru rifjaðar upp. Mikið vona ég að eitís-tískan komi aldrei aftur. Fólk leit skelfilega út, þ.á m. Darla. Sem betur fer missti ég mig aldrei í herðapúðanotkun af því að þeir hafa alltaf klætt mig illa. Hárgreiðslan var kannski annað mál.

RonaldoErfðaprinsinn kom beiskur af barnum áðan, hafði verið að horfa á Manchester United-West Ham. Þegar staðan var orðin 3-0 lét hann sig hverfa, þó er hann gamall MU-aðdáandi. Svona hefur hann Sigþór mágur mikil áhrif á fjölskylduna að allir, ábyggilega mamma líka, halda óðir með West Ham. Annars á Heiðdís, tvíburamamman knáa, afmæli í dag og mamma á mánudaginn. Áfram West Ham. Held að bati Hildu hafi orðið svona skjótur af því að hún var búin að lofa mömmu að sækja tertu í bakarí í Mjóddinni á mánudaginn. Mikið vona ég að tertan verði ekki með hnetum.

ThorneThorne er kominn heim af sjúkrahúsinu eftir lát Dörlu. Allt er enn í blöðrum og skreytingum eftir barnaafmælið. Hector kemur tárvotur heim til Taylor og segir henni að Darla sé dáin. Taylor rétt svo getur gargað og grátið fyrir vörunum sem flækjast óneitanlega svolítið fyrir henni með öllu þessu bótoxi. Ridge rýkur til Brooke og færir henni fréttirnar, fær þar kærkomið tækifæri til að sjá konuna sem hann elskar en hún ekki hann. Darla og ThorneTaylor stingur af og fer til Thorne sem var aleinn að horfa á afmælismyndband. Þegar þau standa í faðmlögum byrjar Darla allt í einu að tala úr sjónvarpstækinu. Hún hefur ákveðið, rétt fyrir dauða sinn, að segja eitthvað ótrúlega sætt við Thorne sinn inn á vídeó, eins og hún hafi fundið þetta á sér ... Hún játar að hafa týnt dematnseyrnalokki í heita pottinum. Segið svo að ríka fólkið hafi ekki áhyggjur líka. Aumingja Thorne missir sig algjörlega og kjarkur Taylor til að játa á sig að hafa ekið á Dörlu minnkar stöðugt. Hún segir samt stöðugt sorrí, sorrí, sorrí.

DonnaSystir Brooke, Donna, er komin til sögunnar og nú leikin af annarri leikkonu en í gamla daga þegar ég horfði ekki. Hún er svolítið gæruleg, ef ég á að vera alveg hreinskilin. „Hve oft sagðir þú mér eiginlega að Ridge væri örlög þín?“ spyr Donna sem skilur ekkert í því af hverju systir hennar er allt í einu gift Nick. Hún verður óþægilegur gestur á heimilinu. „Skiptir þú Ridge út fyrir hann,“ segir hún, ekki mjög hrifin af Nick. „Mann sem bannar þér að sitja fyrir nakin, aldrei myndi Ridge gera það.“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, svo krúttlegt að þið talið saman á blogginu, þið himnaríkiskrútt.

Gott að Hilda er komin heim, heilu og höldnu.

Knús

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2008 kl. 15:55

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

MU brattir með sig, þeir toppa þetta árið.  Annars horfði ég á boldið og fannst bara ágætt, var alveg búin að gleyma að Sally var einu sinni yngri, leit bara ágætlega út. Skildi Taylor einhverntíman segja Thorne að hún hafi keyrt á hana??  Frábært að systir þin er komin heim, en verður hún ekki að fara vel með sig?? láttu hana liggja í viku minnst 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.5.2008 kl. 16:08

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er gott að þið hafið samúð með honum Sigþóri vini mínum vegna þessa West-Ham sjúkleika Gurrí. Það duga sko engar mænustungur gegn þessu, hvort sem er sitjandi, standandi eða liggjandi. -

Haraldur Bjarnason, 3.5.2008 kl. 16:24

4 Smámynd: Jóhanna Sigrún Jónsdóttir

Sæl Gurrý! viltu skila kveðju til Hildar frá mér ...  ástar og batnaðarkveðjur

Kv Hanna Rúna

Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 3.5.2008 kl. 17:02

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 3.5.2008 kl. 19:07

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég var alveg óskaplega kát með úrslitin í boltanum í dag! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 3.5.2008 kl. 19:48

7 identicon

Bíddu.bíddu.bíddu!!!!

Rennur mænuvökvi um æðar Hildu systur?

En að öllu gamni slepptu, þá get ég sett mig í hennar spor. Ég mun helga mænudeyfingum heilt bindi í væntanlegri ævisögu minni.

Það er annars stórmerkilegt að einföldum trixum sem auðvelda þolendunum( og þá væntanlega gerandum líka) mænudeyfingar og aðrar athafnir á svipuðum slóðum, skuli vera haldið leyndu fyrir jafn mörgum læknum og raun ber vitni...

Linda María (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 297
  • Sl. sólarhring: 378
  • Sl. viku: 2259
  • Frá upphafi: 1455962

Annað

  • Innlit í dag: 265
  • Innlit sl. viku: 1866
  • Gestir í dag: 254
  • IP-tölur í dag: 247

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ástarsaga
  • Sofandi köttur
  • 1. maí fyrir nokkrum árum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband