Fréttir af Vesturlandsvegi, uppseldu DV og afmæli mömmu

Strætó í morgunÞað sem bar helst til tíðinda á leiðinni Akranes-Mosfellsbær í góða veðrinu í morgun var að litli sendiferðabíllinn frá Svefn og heilsu, þessi sem fauk nýlega út af í hvassviðri, er enn á sama stað ... ofan í skurðinum. Flottur minnisvarði um kvikindislegar hviðurnar. Allt gekk líka klakklaust fyrir sig þegar Skagastrætófarþegarnir hópuðust tugum saman yfir götuna að biðskýlinu sem leið 15 í bæinn stoppar við. Á einni stoppistöðinni í Mosó komu tvær konur inn. Ég þekki aðra þeirra, þá aftari, og ætlaði aldeilis að plata hana til að setjast hjá mér en hin hlassaði sér bara í sætið, þrátt fyrir ótalmörg önnur laus. Næst verð ég með teikníbólur, fýlubombur og þaðan af verra til að koma í veg fyrir svona slys.

DVÍ hádegismatinn var lasagna, svona allílæ, en svo skrapp ég inn á DV, sem er hinum megin við matsalinn. Ætlunin var að ná mér í eintak þar sem allt var gufað upp hérna megin við matsal. En ... blaðið er uppselt og ég þarf að bíða þangað til ég kem heim til að lesa viðtalið við séra Gunnar á Selfossi. Málið er víst allt einn misskilningur, skilst mér að presturinn hafi sagt, hann bara kyssti og faðmaði stelpurnar, ekkert meira ... Mér er spurn ... það varð allt brjálað um árið þegar DV birti mynd af manni áður en hann var dæmdur fyrir barnaníð og allir vita hvernig það fór. Nú skúbbaði Stöð 2 með þetta á laugardaginn, myndbirting og alles, af hverju er fólk ekki jafnbrjálað núna?

Beta, Edda, mamma og GaujaElskuleg móðir mín á afmæli í dag. Hún var einmitt í kirkjukór með Ágústu Selfoss-prestsfrú í gamla daga og þær sungu báðar eins og englar. Ég keypti dekurkörfu handa mömmu með baðbombum og kremum. Hún elskar allt slíkt, dekurrófan sú ...

Skelli inn mynd úr afmælinu mínu í fyrra þar sem mamma situr í sófanum (t.h.) með Eddu frænku við hlið sér. Vinstra megin er Beta sjúkraþjálfari og lengst til hægri er Gauja, vinkona og skólasystir, og systir Betu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til hamingju með mömmu þína.  Ég er nú búsett á Selfossi og þetta er minn prestur. Trúi þessu illa upp á hann og bíð eftir nánari fregnum áður en ég segi nokkuð.  Allavegana eru mín kynni af honum þau að hann er einstaklega hlýr og umvefur allt í sínum kærleik og gleði.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.5.2008 kl. 12:51

2 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Til hamingju með mömmu þína....varðandi séra Gunnar, ég þekki af eigin raun hvernig svona mál ganga fyrir sig í kerfinu og segi bara það, að það leggur enginn heilvita manneskja það á sig að fara í erfiðar yfirheyrslur og málaferli nema rík ástæða sé til....yfirheyrslur yfir fórnarlömbum er óvægin og gengur mjög nærri fólki......eigðu góðan dag..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 5.5.2008 kl. 12:57

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sammála þér, Ásdís, best að láta rétta aðila sjá um að rannsaka og kveða upp dóm.

Guðríður Haraldsdóttir, 5.5.2008 kl. 12:58

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Einmitt, Hrafnhildur, held að stelpurnar séu ekki öfundsverðar, og enginn kærir að gamni sínu nema eitthvað mikið sé að. Held að það sé um 1% kæra sem reynast ekki vera á rökum reistar.

Guðríður Haraldsdóttir, 5.5.2008 kl. 13:01

5 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

til hamingju með mömmuna þína og megi dagurinn vera þér ljúfur

Guðrún Jóhannesdóttir, 5.5.2008 kl. 13:10

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Þessi lengst til venstre, er hún líka of ung til að binda sig?

Til hamingju með múttuna þína.

Þröstur Unnar, 5.5.2008 kl. 13:43

7 Smámynd: Fjóla Æ.

Til hamingju með móður þína. Gott hjá þér að gefa henni dekur í dag. Hún á það svo sannarlega skilið.

Það er greinilegt að það skiptir máli hvort það sé séra Jón eða bara Jón í fjölmiðlaumfjöllun um viðkvæm mál.

Fjóla Æ., 5.5.2008 kl. 13:57

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heheh, Þröstur, þetta er hún Beta sjúkraþjálfari, hamingjusamlega gift og nokkurra barna móðir.  Sorrí, karlinn.

Held að mamma verði alsæl með dekrið, Fjóla. Hún elskar allt slíkt.

Megi dagurinn þinn líka verða ljúfur, Gunnsan mín.

Guðríður Haraldsdóttir, 5.5.2008 kl. 14:14

9 Smámynd: Brynja skordal

Til hamingju með Mömmu þína æðisleg gjöf sem þú færir henni hafðu ljúfan dag elskuleg

Brynja skordal, 5.5.2008 kl. 15:23

10 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Mér finnst nú Gurrí mín að prestar eigi ekkert með að faðma og kyssa unglingsstúlkur í söfnuði þeirra. Ég myndi ekki kæra mig um það nema presturinn væri okkur persónulega kunnugur og sá sem færi að kássast þannig upp á mína dóttur með kraga og í hempu eður ei á mér að mæta.

Steingerður Steinarsdóttir, 5.5.2008 kl. 16:07

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, sama segi ég, Steingerður almáttugur. Ég endursagði bara orð hans úr DV.

Guðríður Haraldsdóttir, 5.5.2008 kl. 16:21

12 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Til hamingju með móður þína Gurrý, Oh það eru svo margir tengdir Hvammstanga sem eiga afmæli í dag :) Td systirdóttir mín,,,,, svo er stór prins þarna hjá þér á skaganum (sko ég er ömmusystirinn)    sem kemur fljótlega heim f. 3 maí :)

heyrðu minn maður var á Kjalarnesinu og smellti mnd af bílnum frá svefn og heilsa :(

Svona okkar, þá er bara eldri dóttir mín (24) sagði henni frá hugmynd okkar :)   Já mamma þú gerir þetta, láttu ekki svona he h he ehe,,,,,,,,  tala betur við hina og hef svo samband............ Bestu kveðjur til þín og auðvitað til Hildu.. Er hún kansi með síðu ????????

Erna Friðriksdóttir, 5.5.2008 kl. 18:11

13 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Presturinn virðist vera mikill knúsari það er víst, kannski ekki og  eiginlega alls ekki passandi, sérstaklega þegar um ungar dömur er að ræða. Ég efast um að þarna sé um gróft ofbeldi að ræða eins og sumir láta það hljóma.  Mér finnst að fjölmiðlar hefðu átt að bíða með þetta þar til öll kurl væru komin til grafar.

Til hamingju með mömmu þína.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 5.5.2008 kl. 19:19

14 Smámynd: Arafat í sparifötunum

Til hamingju með mömmu þína, hún á sama afmælisdag og Tommi bróðir

 Magga mákona

Arafat í sparifötunum, 5.5.2008 kl. 20:10

15 Smámynd: Tiger

Innilegar hamingjuóskir með Móður þína Gurrí mín. Knús yfir á ykkur öll með óskum um góða nótt í himnaríki..

Tiger, 5.5.2008 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 27
  • Sl. sólarhring: 650
  • Sl. viku: 2401
  • Frá upphafi: 1461496

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 1977
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sérdeilis flott terta
  • Jón Gnarr og stráksi
  • Jörgen Klopp

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband