Nýlega komst ég yfir nokkur nýleg, erlend tímarit og er æf út í Moggann og fleiri fyrir að halda svona merkilegum fréttum um Hollywood-stjörnurnar frá okkur lesendum. Að sjálfsögðu deili ég þeim með bloggvinum mínum. Finnst það eiginlega vera samfélagsleg skylda mín.
Ekki vissi ég t.d. að Robbie Williams væri orðinn kærulaus um ímynd sína og hefði bætt á sig heilmörgum kílóum. Honum hættir víst til að fitna og þarf að hafa mikið fyrir því að halda sér í formi. Hann sást kyssa einhverja Sophiu á dögunum og hvað með kærustuna Aydu Fielding, konuna sem hann hreifst svo af vegna þess að hún vissi ekki hver hann var?
Svo langar David Beckham ógurlega í enn eitt barn en þau hjónin hafa alltaf þráð stóra fjölskyldu.
Það náðist mynd af aumingja Liz Hurley á dögunum sem sýnir að hún er komin með skallablett á hnakkann.
Jeremy Clarkson, aðalgæinn í Top Gear, bílaþættinum skemmtilega á SkjáEinum, þjáist víst af miðaldurskrísu, hann gengur a.m.k. um í grænum, forljótum mokkasíuskóm.
Rachael Ray og Oprah Winfrey eru orðnar svarnar óvinkonur en sú fyrrnefnda á frægðina þeirri síðarnefndu algjörlega að þakka. Oprah sagði víst við Rachel: You make me sick. Rachel segir um þessa fyrrum vinkonu sína: Oprah er stjórnsöm tík!
Meiri fitufréttir: Í Chicago er verslun sem heitir Oprah´s Closet og þar eru seld notuð föt af sjónvarpskonunni. Oprah hefur víst fitnað um 30 kíló síðustu þrjú árin en vakið hefur athygli að aðeins föt síðan hún var sem grennst eru til sölu þar.
Leikarinn Nick Nolte, 68 ára, hefur átt við mikið áfengisvandamál að stríða og leitaði til Hare Krishna-sértrúarhópsins eftir hjálp og segist hafa verið edrú um tíma í kjölfarið. Kærasta hans, Clytie Lane, 39 ára, kynnti hann fyrir hópnum. Þau Clytie eiga saman 7 mánaða barn.
Dóttir Whitneyjar Houston, Bobbi Kristina, reyndi að fremja sjálfsmorð á dögunum og ekki í fyrsta sinn. Í þetta skiptið gerði hún tilraun til að stinga móður sína með hnífi fyrst. Hún vill ekki búa hjá mömmu sinni að sögn heimildamanna.
Kirstie Alley er hætt í megrun og bætir hratt á sig. Hún sýndi sig í bikiní í fyrra einmitt í þætti Opruh Winfrey. Kirstie finnst mjög gott að borða snakk og ís fyrir framan sjónvarpið og segja heimildamenn að henni hafi tekist á þann hátt að þyngjast um næstum 40 kíló.
David Hasselhoff féll fyrir einum keppanda í America´s Got Talent, Corinu Brouder sem er 29 ára. Þau deita nú grimmt. Þau sáust á sama hóteli og saman á tónlistarhátíð þar sem David leit hræðilega illa út en var allur á hjólum í kringum Corinu. Systir Corinu var með í för og vakti þríeykið mikla athygli.
Mariah Carey grætti 8 ára stúlku (ég græt reyndar líka þegar ég heyri hana syngja). Hún var að kynna plötu sína á Hard Rock Café í Hollywood og mætti tveimur og hálfum tíma of seint. Hún harðneitaði að árita nokkuð nema plötuna sína og lét eins og algjör díva. Litla daman hafði beðið í röð í nokkra klukkutíma með plakat af söngkonunni og þegar kom að henni hrakti söngkonan hana á brott með dónaskap og svo lét hún sig hverfa ... meira að segja áður en þeir sem keyptu þó geisladisk gátu fengið áritun á þá. Sumir af aðdáendunum urðu svo reiðir að þeir köstuðu geisladiskunum á jörðina og trömpuðu á þeim.
Martha Stewart mun fljótlega giftast milljarðamæringnum Charles Simonyi, þau náðu víst saman aftur. Þegar hann bað hennar sagði hún JÁ, JÁ, JÁ, JÁ! samkvæmt heimildum hins virta tímarits National Enquirer. Enda er hún orðin 66 ára ... Charles er bara 59 ára unglamb.
Systir Marks Wahlberg leikara sat í fangelsi fyrir tryllt rifrildi við kærastann og komu vopn við sögu ... hún beið róleg eftir að litli bróðir borgaði hana út en ekki fylgdi sögunni hvort hann gerði það.
Megan Fox leikkona, ein kynþokkafyllsta kona heims, stal 500 króna gloss úr Wal-Mart og má ekki koma þangað framar, aldrei í lífinu!
Adam Sandler er víst ökklabrotinn.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 222
- Sl. viku: 640
- Frá upphafi: 1505931
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 515
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Þetta eru vitanlega alveg bráðnauðsynlegar og ómissandi upplýsingar. Ekki vissi ég neitt af þessu.
Helga Magnúsdóttir, 16.6.2008 kl. 16:17
Vissi að þetta væru áríðandi upplýsingar fyrir þorra bloggheima, Helga!
Einar, held að Rachel hafi sagt eitthvað ljótt um Opruh á kaffihúsi og það fréttist. Svo er gefið út tímarit um mat á vegum þátta Rachelar ... og Opruh á að finnast það líkjast um of Opruh-tímaritið í efnistökum, Rachel lofaði víst að láta það alfarið fjalla um mat en sveik það og fleira og fleira.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 16.6.2008 kl. 16:24
Ég elska slúður þegar það er matreitt svona fyrir mig en nenni aldrei að ná í það sjálf. Er lítil slúðurdrottning inni við beinið.
Legg til að þú verðir með svona vikulega slúðursamantekt fyrir okkur öll sem eru enn í skápnum með náungaforvitnina.
Og auðvitað er kona Robbie ekki spennandi lengur af því hún veit núna hver hann er.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.6.2008 kl. 17:02
Eins gott að hafa allt á hreinu sem skiptir máli um fólk sem skiptir máli .
Laufey B Waage, 16.6.2008 kl. 18:10
Jamm, heldur betur. Mér líður stórum betur að vita þetta. Hehehhehe
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 16.6.2008 kl. 18:21
Já nú líður manni mun betur eftir að hafa innbirgt allar þessar nauðsynlegu fréttir. Hver segir að slúður sé ekki spennandi. Ja maður spyr sig.
Stella Jórunn A Levy, 16.6.2008 kl. 18:27
Jiminn allt að gerast!
Takk fyrir slúðrð
Ellen frænka (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 20:44
Má ekki endurreisa hinn merka dálk MUF á Vikunni, ænei, það þarf eiginlega ekki því það er miklu meira gaman að lesa þetta á blogginu þínu, fyrst Mogginn stendur sig ekki í stykkinu.
MUF = Mest um fólk.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 16.6.2008 kl. 21:19
Ég bara skil þetta ekki. Allar þessar merkilegu fréttir eins og þú segir og ég hafði enga þeirra heyrt áður. Ég þakka mikið og vel fyrir.
Anna Guðný , 16.6.2008 kl. 23:38
Þetta er of mikið í einu fyrir slúðurfréttaþyrsta konu eins og mig. - Það mun taka tímann sinn að jafna sig eftir svona miklar fréttir. - En ég skil Kristie Alley of vel, svo mér finnst að ekki slúður heldur bara, eðli mála. En verður hann þá ekki rekinn Baðstrandargæinn Hasselhoff eða hvað hann heitir?.-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 16.6.2008 kl. 23:44
Óó, hver myndi ekki reyna sjálfsvíg nálægt Whitney Houston eða fremja morð eftir tveggja mínútna nærveru við Carey Marriah?
En Kristy Alley og Liz Hurley eru fallegar, feitar eða ekki.. eins og Lilja Guðrún!
En skildi E.G. hafa verið að senda þér þessi gagnmerku rit?
Magnús Geir Guðmundsson, 17.6.2008 kl. 01:29
Hvar værum við án þín Gurrí mín?
Kramkveðjur frá Selfossi og eigðu yndislegan dag.
Tína, 17.6.2008 kl. 09:07
Sömuleiðis, Tína mín.
Það var R.H. sem gaf mér dásamlegu ritin, Magnús, og tek undir hjá ykkur L.G.
Bara ekkert að þakka! Mun halda slúðrinu áfram annað veifið!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.6.2008 kl. 11:10
ohh takk fyrir upplýsingarnar þó ekki síst um Robbie baby
Rebbý, 17.6.2008 kl. 12:06
Hey Gurrí mín.
Mikið hef ég nú saknað Þín.
Kolla Pitts. í USA.
Kolla Pitts (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 12:58
Sömuleiðis, elsku Kolla mín. Hrikalega langt síðan við höfum sést. Allt gott að frétta af okkur Hildu. Ég er með netfangið gurri@birtingur.is í vinnunni og kíki alltaf reglulega á það netfang þótt ég sé í vinnunni. Frábært að heyra frá þér (í athugasemdakerfinu). Knús til allra!
Skal fylgjast rosalega vel með Robbie baby fyrir þig, Rebbý!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.6.2008 kl. 13:46
Heheh, kíki á vinnumeilið þótt ég sé heima, átti þetta að vera.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 17.6.2008 kl. 14:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.