22.7.2008 | 12:07
Hin fullkomna móðgun
Nú ert þú alltaf svo flottur í tauinu, alltaf með svo góðar græjur og kannt alla nýjustu frasana. En ert samt alltaf svo glataður. Björgvin Halldórsson við gítarleikara í fremstu röð
Carl Billich píanóleikari þótti með eindæmum kurteis maður. Eitt sinn var hann að spila á balli í Þjóðleikhúskjallaranum og drukkinn maður var þar með frammíköll og læti. Loks missti Carl þolinmæðina, stóð upp frá píanóinu, gekk að manninum og sagði ákveðinn: Mig langar að biðja yður vinsamlegast um að halda munni ... og snæða óhreinindi.
Og hvað með það? Elvis Presley, þegar honum var sagt að Bítlarnir væru komnir í heimsókn til hans á Graceland
Hvernig í ósköpunum gæti ég átt í kynferðislegu sambandi við fimmtugan steingerving? Ég á guðdómlegan kærasta sem er 28 ára gamall. Hvers vegna ætti ég að skipta honum út fyrir risaeðlu? Carla Bruni um Mick Jagger
Tónleikar hans standa yfir í fjóra og hálfan tíma. Það er pynting. Hatar hann áheyrendur sína? John Lydon um Bruce Springsteen
Hvernig er mögulegt að hafa það að atvinnu sinni í 30 ár að spila á munnhörpu og sýna ekki minnstu merki um framfarir? David Sinclair, The Times, um Bob Dylan
Hann hljómar eins og hann sé með múrstein hangandi á kynfærunum og matvinnsluvél í kokinu að búa til kæfu úr hálskirtlunum. Paul Lester, Melody Maker, um Jon Bon Jovi
Ólýsanlegur, hæfileikalaus og óheflaður ungur skemmtikraftur. Bing Crosby um Elvis Presley
Drengurinn inniheldur meira plast en plastpoki. Melody Maker um Michael Jackson
Ef myndin mín gerir að minnsta kosti eina manneskju óhamingjusama þá hefur mér tekist ætlunarverk mitt. Woody Allen
Frábær leikkona ... frá mitti og niður úr. Dame Margaret Kendal um Söru Bernhardt
Ég hef meiri hæfileika í mínu minnsta prumpi en þú í öllum líkamanum. Walter Matthau við Barbra Streisand
Hann lítur út eins og hálfbráðnaður bolabítur úr gúmmíi. John Simon um Walter Matthau
Við verðum að viðurkenna að síðasta brúðkaup Elísabetar Taylor snerist um að selja ilmvatn vegna þess að það er erfitt að selja ilmvatn þegar maður er gömul og feit piparkerling. Johnny Rotten (Sex Pistols)
Joan Collins myndi selja eigið garnagaul ef hún gæti það. Anthony Newley (fyrrverandi eiginmaður hennar)
Mér finnst sjónvarp vera mjög fræðandi. Um leið og einhver kveikir á því fer ég inn í bókaherbergið mitt og les góða bók. Groucho Marx
Það væri mikil fróun í því að grafa hann upp og fleygja í hann grjóti. George Bernard Shaw um William Shakespeare
Gott fyrir frama hans. Gore Vidal þegar hann frétti lát Trumans Capote
Sögur hennar eru ráðgátur ekki skáldskapur. Persónur hennar eru ekki einu sinni nógu raunverulegar til að vera skopstælingar. Mér líkar alls ekki við bækur Agöthu Christie. Ruth Rendell um Agöthu Christie
Tilhugsunin um Karl prins að spjalla við grænmetið sem hann ræktar er ekki svo óhugsandi þegar maður man eftir því að hann hefur mikla æfingu í að spjalla við ættingja sína. Jaci Stephens, The Sunday Times
Við bjóðum svona fólki í tesamkvæmi en við giftumst því ekki. Lafði Chetwode um tilvonandi tengdason sinn, John Betjeman
Börn eru fín. Ef þau eru almennilega elduð. W.C. Fields
Við ættum að setja reykingamenn og litla krakka saman og sjá hverjir verða fyrri til að gera hina brjálaða. John Simon um börn í flugvélum
Ég horfði á Sumoglímu í sjónvarpinu í tvo klukkutíma þegar ég áttaði mig á því að þetta var pílukast. Hattie Hayridge
Hún var svo loðin að þegar hún lyfti upp höndunum hélt ég að Tina Turner væri í armkrikunum á henni. Joan Rivers um Madonnu
Tómarúm með geirvörtur. Otto Preminger um Marilyn Monroe
Hún er ein af fáum leikkonum í sögu Hollywood sem er líflegri á ljósmyndum en á hvíta tjaldinu. Michael Medved um Raquel Welsh
Rússar elska Brooke Shields vegna þess að augabrúnirnar á henni minna þá á Leonid Brezhnev. Robin Williams
Ég þekkti hana áður en hún varð hrein mey. Oscar Levant um Doris Day
Elizabeth Taylor er svo feit. Hún dýfir verkjatöflunum sínum í majónes. Joan Rivers um Elizabeth Taylor
Ég vildi að ég hefði þekkt þig á meðan þú varst á lífi. Leonard Louis Levinson við leiðinlegan mann
Ég ætla að leggja nafn þitt á minnið og síðan fleygja höfðinu á mér. Oscar Levant
Hún fékk fallegt útlitið frá föður sínum. Hann er lýtalæknir. Groucho Marx
Megi kynlíf þitt verða jafngott og lánstraustið. J. Corigan
Maðurinn var svo lítill að hann var sóun á húð. Fred Allen
Ein hrukka í viðbót og allir halda að þú sért sveskja. Ókunnur höfundur
Þú ert svo lítill að þegar fer að rigna ert þú sá síðasti sem fattar það. Ókunnur höfundur
Ég hef heyrt skemmtilegri samræður í stafasúpu. Ókunnur höfundur
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 175
- Sl. sólarhring: 343
- Sl. viku: 867
- Frá upphafi: 1505874
Annað
- Innlit í dag: 141
- Innlit sl. viku: 707
- Gestir í dag: 136
- IP-tölur í dag: 132
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
frábært
Hólmdís Hjartardóttir, 22.7.2008 kl. 12:13
Dásamlegt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.7.2008 kl. 12:14
Skemmtilegt gamla fjölmiðla vinkona.
Þórður Helgi Þórðarson, 22.7.2008 kl. 12:34
Já, mér finnst þetta snilld. Fékk bók í jólagjöf fyrir mörgum árum sem innihélt útlensku móðganirnar, hinar heyrði ég hjá Hirti Howser.
Mér fannst freistandi að birta ekki þessa síðustu, heldur slá um mig með henni um alla bloggheima og segja: "Vá, ég hef séð betri færslu en þetta í stafasúpu" ... eða í löngum kommentahalda: "Ja hérna, hef séð málefnalegri umræður í stafasúpu ..." osfrv. en svo hætti ég við. Ég er t.d. enn hálfsár út í Kalla Tomm síðan hann móðgaði mig (man ekki hvernig) í einhverri mannfræði-félagsfræðitilraun hans í bloggheimum í fyrra. Þorði ekki að taka áhættuna að græta fólk hérna út og suður.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.7.2008 kl. 12:47
Tómarúm með geirvörtur.
Þekki nokkur svoleiðis rými.
Þröstur Unnar, 22.7.2008 kl. 12:57
Frábært að lesa þetta takk fyrir mig
Brynja skordal, 22.7.2008 kl. 13:50
Gaman að þessu. Takk.
Hrannar Baldursson, 22.7.2008 kl. 15:13
Ahhh þetta er snilld! Þú verður að kíkja á www.insults.net þú munt elska þá síðu! Ein af mínum uppáhalds þaðan er "are you always this stupid or are you making a special effort today?" Myndi aldrei detta í hug að segja það við þig samt
Vera Knútsdóttir, 22.7.2008 kl. 15:21
Dásamleg færsla.Þesi gæti hæglega hafa verið sögð í sundi, Hún var svo loðin að þegar hún lyfti upp höndunum hélt ég að Tina Turner væri í armkrikunum á henni.“ Joan Rivers um Madonnu
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 16:23
Já það eru víst mörg smellinn tilsvörin frá Bjögga - skemmtilegt, takk.
Edda Agnarsdóttir, 22.7.2008 kl. 16:37
Frábært !!!!! einu sinni var ég spurð hvort það væri ekki allt annað veðurkerfi þarna uppi hjá mér (kona 1.85 cm)
Ásdís Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 16:59
Mjög skemtilegur lestur
Sigurbjörg Sigurðardóttir, 22.7.2008 kl. 17:55
Þetta er snilld
Ragnheiður Ástvaldsdóttir (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 18:08
Takk fyrir skemmtunina
Já, Bjöggi á þá marga góða.
Jóna Á. Gísladóttir, 22.7.2008 kl. 18:12
Elsku Gurrí mín, verði þér að góðu.... og farðu svo að láta sjá þig í Firðinum....
Howserinn (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 18:49
Þetta er frábært!
Kolgrima, 22.7.2008 kl. 18:52
Svo var reyndar einn nýr frá Eiríki Fjalar (Ladda): "Þetta er svo smátt letur að maður þarf að vera dvergur til að lesa það"
Og "snappy come-backs" safnið hans Bo er óþrjótandi brunnur hvernig sem á það er litið. "Lýsing eða Glitnir" er löngu orðin klassík og "ný föt - sama röddin" er í top ten.
Einhverntíma bað hann Magga (Kjartans) um sígarettur í skipunartón: "Sígó !". Maggi sá í pakka í innaná vasa og spurði "af hverju reykirðu ekki þínar eigin?. Bo snöggur að svara "Mér finnst þínar betri" !!!
Vertí samba..
Howserinn (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 18:59
Hehe... skemmtilegt. En ég hef áhyggjur af því að Þröstur sé í slæmum félagsskap...
Lára Hanna Einarsdóttir, 22.7.2008 kl. 20:10
Góð!
Helga Magnúsdóttir, 22.7.2008 kl. 20:46
Ansi athyglisverðar athugasemdir, mér finnst þessi með Doris Day sérlega skemmtileg ;-)
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.7.2008 kl. 21:32
hæ gurrí
þetta er æðislegur listi. mér finnst ummæli rotten um springstín best, við rotten erum nebblega góðir vinir (halfveis). kv d
doddý, 22.7.2008 kl. 21:51
Sæl Gurrý, sá í færslu um daginn að þú varst á vakt í flóttamannafataogallskonarviðtökustöðinni var ég að vona að þú gætir upplýst mig um hvað má koma með og hvað er hentugt. Eða bent mér á hvern er best að tala við.
Takk sætikoppur
Harpa( man alltaf öðruhverju eftir myndræksninu)
Harpa (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 22:59
Takk allir fyrir athugasemdirnar er búin að kíkja á móðganasíðuna, takk, Vera. Já, Þröstur er í slæmum félagsskap og Anna, Doris Day-setningin er óborganleg, eins og margar þarna, erfitt að velja þá bestu. Takk, Hjörtur fyrir að bæta við. Þú ert algjör hafsjór af svona frösum.
Harpa, ég hugsa ótrúlega oft til þín með sífellt meira samviskubiti ... EN það er opið á mánudögum og fimmtudögum, 18-21, og það vantar allt ... eða þannig. Fólk hefur komið með húsgögn, fatnað, húsmuni, potta, pönnur, lampa og hvaðeina sem gerir engum gagn í geymslunni eða bílskúrnum. Verð næst á vaktinni 27. júlí. Kannski við sjáumst þá.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.7.2008 kl. 23:21
Í ákveðnum vinahópi er Kaðlín sú kona sem er með stóra hárbursta undir handakrikunum. Á Húsavík er hannyrðaverslun með sama nafni og ég brosi í kampinn þegar ég keyri framhjá.
Nýyrði yfir feita konu er svo Kjötborg.
Kári Harðarson, 23.7.2008 kl. 11:33
Minns var staddur í fataverslun hvar posakerfi var í steik svo ég bara staðgreiddi, þurfti reyndar að hoppa fram fyrir konu í röðinni til þess, sú var með debetkort.
Hún byrjaði að rövla þótt engin lausn fyndist á hennar málum og ég væri í raun ekki að tefja hana neitt. Þegar hún er í miðri rövlræðu sný ég mér að henni og segi "Heyrðu, þú ert ofan úr Breiðholti er það ekki?" Eitt andarblik róaðist hún, brosti meira að segja eilítið og spurði mig "Jú reyndar, erum við nágrannar?" Ég svaraði að sjálfsögðu "Það er nú óþarfi að ráðast á mig með móðgunum, nei, ég þarf ekki að búa í Breiðholti. Grunaði að þú værir þaðan því fólk sem vælir undan því að aðrir bjargi sér en sjá sjálfir ekki lausn á einu eða neinu enda venjulega þar"
Konan sagði ekki múkk meira, fleygði frá sér fötum sem hún hafði ætlað að kaupa og rauk út.
Eftir massífa lyfjagjöf og samtalsmeðferðir hef ég sleppt því að hrella fólk svona, er jafnvel harkalegri í samskiptum!
Breiðholtshatarinn (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 13:09
Snilld....
Bergljót Hreinsdóttir, 23.7.2008 kl. 14:45
Ég er alltaf að verða hrifnari og hrifnari af húmor Breiðholtshatarans...
Lára Hanna Einarsdóttir, 23.7.2008 kl. 15:18
Gurrí mín, ég er búin að finna afmæliskökuna handa þér.
Nanna Rögnvaldardóttir, 23.7.2008 kl. 16:23
B-hatari, þarna: Jaðrar þetta ekki við fordóma? Mér er bara spurn....
Markús frá Djúpalæk, 23.7.2008 kl. 16:25
Nei nei, eftirdómar, kynntist liðinu i Betlihem (Breiðholti) fyrst og dæmdi svo af reynslu.
Breiðholtshatarinn (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 17:47
Óborganlegt!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 23.7.2008 kl. 22:39
Einu sinni var ég að deita gaur .. hann sagði ,,Þú ert alveg einstök" .. og ég byrjaði að upplifa mig ,,one of a kind", og svo bætti hann við: ,,eins og allir aðrir" ..og hló á mikið ... það þarf varla að taka það fram að mín fílaði ekki húmorinn né gaurinn ...
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.7.2008 kl. 00:36
„Ég ætla að leggja nafn þitt á minnið og síðan fleygja höfðinu á mér.“ Þetta er náttúrulega algjör perla!
Eggert Ólafur Sigurðsson (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 20:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.