9.9.2008 | 10:31
Löng bið og svo kom rútan ... (pínkuponsu bold líka)
Við Inga vorum orðnar ansi framlágar í nótt að ganga þrjú þegar rútan ók loksins upp að húsinu. Afar þreytt fjölskylda kom út úr rútunni og gekk í fylgd okkar inn á nýja heimilið. Þreytan var svo mikil að ég laumaði bara niðurskorna álegginu inn í ísskáp aftur, engin hafði lyst á neinu. Vona að heita súkkulaðið hafi enn verið volgt í brúsanum í morgun fyrir börnin. Við sýndum okkar konu það helsta og buðum svo góða nótt. Sem betur fer talar hún einhverja ensku. Hún er virkilega geðþekk og minnir mig bara á dugnaðarlega, íslenska móður sem hefur góða stjórn á börnum sínum sem voru svo þæg ... og sæt! Strákarnir eru 11 og 9 ára og mjög líkir í útliti, við héldum lengst af í aðdragandanum að sá yngri væri 5 ára og ætti 6 ára afmæli í dag en hann á 9 ára afmæli í dag.
Mikið vona ég að þau öll fái góðar móttökur á Íslandi, þau hafa nógu lengi verið óæskilegar persónur í Írak og eru ekki velkomin til yfirfullra nágrannalandanna, hvað þá heim til Palestínu. Við munum hitta flóttakonurnar okkar í dag og þar verða líka staddir túlkar. Þótt við höfum getað átt tjáskipti í nótt þá er frábært að geta komið ýmsum hlutum á hreint. Í dag verður t.d. lokið við að tengja gamla sjónvarpið, sem kom um 11 leytið í gærkvöldi og þvottavélina. Það vantar vissulega milljón hluti, eins og t.d. körfu undir óhreina þvottinn, en þetta verður bara svona og ég átti t.d. ekki slíka körfu þegar ég fór að búa. Af augnaráði okkar konu í nótt sýndist mér að henni fyndist allt gjörsamlega fullkomið og meira en það.
Kristinn, sem er að gera heimildamynd um komu flóttakvennanna, hjálpaði okkur Ingu við að loka gatinu á eldhúsinréttingunni þar sem uppþvottavélin var hjá fyrri íbúa, við negldum hreinlega efnisstranga fyrir og eldhúsið gjörbreyttist.
Ásta fór á fundinn vegna Sementsverksmiðjunnar í gær og var mjög ánægð með hann. Get spurt hana betur út úr næsta mánudagsmorgunn þegar sumarfríinu lýkur.
Margt dramatískt hefur gengið á í boldinu undanfarið. Stefanía er í vondum málum þótt hún hafi ekki hrint Jackie, mömmu Nicks, niður stigann en systir Brooke sýndist hún hafa séð hana gera það. Jackie og Steffí hatast og þetta var glæsilegt tækifæri fyrir Jackie að hefna sín. Með hjálp Nicks, sem syrgir brottför Brooke úr hjónabandinu í fangið á Ridge (enn einu sinni), kúgar hún Forrester-tískufyrirtækið út úr fjölskyldunni. Stefanía tryllist þegar hún kemst að því og gleymir að vera þakklát fyrir að fjölskyldan vildi bjarga henni úr fangelsi með þessu. Brooke sefur loks hjá Ridge og þakkar honum fyrir að hafa stöðugt reynt við hana á meðan hún var gift Nick, fyrrum tengdasyni sínum. Dóttir Brooke, hún Bridget, viðurkennir í hjarta sínu að hún elski enn Nick, fyrrum mann sinn og núna síðast stjúpföður. Þau eiga örugglega eftir að ná saman ... en líklega ekki fyrr en hann er búinn að vera með Taylor, fyrri konu Ridge og mömmu tvíburanna og Tómasar, og eignast með henni barn sem reynist fyrir mistök dr. Bridgetar vera úr eggi Brooke ... ef kristalskúlan (Netið) mín lýgur ekki.
Sigur Nicks, eða að ná Forrester-fyrirtækinu, er ekki jafnsætur og hann vonaði því að Brooke, sem var að yfirgefa hann, vill ekki taka þátt í svona hefnd og selur honum eigin hlutabréf í fyrirtækinu. Bara sjokk.
Flóttafólkið brosti við heimkomuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 11
- Sl. sólarhring: 185
- Sl. viku: 649
- Frá upphafi: 1505940
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 523
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
vonandi gengur allt vel hjá þessu blessaða fólki
Hólmdís Hjartardóttir, 9.9.2008 kl. 10:45
Takk fyrir bloggvináttu. Það verður gaman að fylgjast með þessu góða verkefni á síðunni hjá þér.
Sigrún Jónsdóttir, 9.9.2008 kl. 10:45
Langaði til að senda ykkur öllum kveðju sem standið að þessu góðverki á Skaganum. Þarft og gott starf sem þarna er unnið og gangi ykkur vel með framhaldið. Takk fyrir mig og bestu kveðjur héðan frá Tékklandi.
Ía Jóhannsdóttir, 9.9.2008 kl. 10:57
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 9.9.2008 kl. 11:06
Þið megið svo sannarlega vera stolt á Akranesi. Það er ánægjulegt að fylgjast með þessu góða verkefni. Ég þykist vita að framtíð þessa fólks verður björt og að þau muni una sér vel hér á landi.
Gangi ykkur öllum vel!
Ágúst H Bjarnason, 9.9.2008 kl. 11:25
Rosalega varstu krúttleg í sjónvarpinu í gær. Það skein svoleiðis af þér góðmennskan, greiðviknin og gjafmildin að það varð bara bjart í stofunni á meðan þú varst á skjánum. Það er sko óþarfi að hafa áhyggjur af þessu fólki á meðan það er með engla eins og þig á bak við sig.
Helga Magnúsdóttir, 9.9.2008 kl. 11:36
Þetta er frábært hjá ykkur Gurrí eins og Skagamanna er von og vísa.
Haraldur Bjarnason, 9.9.2008 kl. 11:54
Kræst, Helga ... ... af hverju sagðir þú ekki falleg ... grönn ....???
Ágúst, ég er rosalega ánægð með Skagamenn. Sá sem keyrir innanbæjarstrætó er t.d. búinn að flagga á strætó og ekur um allt eins og það væri 17. júní, þessi elska.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 9.9.2008 kl. 11:55
Þú varst mjög falleg og grönn í símaviðtalinu á Útvarpi Sögu í morgun
Markús frá Djúpalæk, 9.9.2008 kl. 12:23
Þið eruð snillar.
Þú bjallar bara ef það er eitthvað sem ég get gert.
Þröstur Unnar, 9.9.2008 kl. 12:33
Þú átt hrós skilið!
Greinilega góð kona hér á ferð!
Lalli Kalli (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 12:33
Mér finnst algjör óþarfi að taka fram sérstaklega það sem alþjóð veit og er öllum augljóst. Ekki það að gjafmildin og allt það sé ekki öllum augljóst það var bara svo extra augljóst í sjónvarpinu. Er þetta þá ekki augljóst?
Ég klukkaði þig. Ekki berja mig, mundu að þú ert minni en ég.
Helga Magnúsdóttir, 9.9.2008 kl. 13:24
Ég bíð spennt eftir nánari fréttum af flóttafólkinu...þetta er svo frábært..
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 9.9.2008 kl. 14:20
Gurrí mín svona grannt fólk eins og þú ert sýnist bara svolítið búttað þegar það er úttroðið af gleði og góðmennsku...ekki einu sinni besta fótósjopp getur lagað slíkt....sorry!! Og sem betur fer segi ég nú bara.
Er það rétt eða vitlaust munað hjá mér að þú borðir eða borðir ekki ostaköku?
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.9.2008 kl. 15:36
knús kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 9.9.2008 kl. 16:16
Alls ekki afþakka ostakökuna, Gurrí mín ! Annars verður þú bara eins mjó og moi, Angelina og Amy W.
Er annars alveg handviss um að það hefur verið notalegt fyrir þessar stríðshrjáðu mæður og börn að láta jafn sæta og glaðlega konu og þig taka á móti sér.
Bestu kveðjur á Skagann af þessu tilefni.
Þín, HHS
p.s. Ætti "Boldið" ekki að heita "Botoxið" ? Þetta fólk er allt löngu orðið eins og froskar í framan. Hefur einhver brosað í þessum þætti sl. þrettán ár ? (Smá útlitsfasismi. Sorrý...)
Hildur Helga Sigurðardóttir, 9.9.2008 kl. 16:19
Gaman að fá að fylgjast með þessu ævintýri á blogginu þínu (og þá er ég ekki að tala um boldið í þetta sinn) - vona að þau nái öll að skjóta góðum rótum hér í nýju heimkynnunum sínum.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 9.9.2008 kl. 17:48
Amma bloggvinkona þín er í sjónvarpinu, sagði stubburinn í gær. Ó þú misstir af henni, sagði hann svo, hún sagði mér að hún væri vinkona þín. Þú ert örugglega að tala um Guðríði, sagði ég og vissi strax hvað var uppi á teningnum, heyrði nefnilega umræðuefnið, komu palestínukvennanna hingað heim.
Ég segi bara ég vona innilega að þetta fólk finni heimili hér og komi til með að líða vel hér. Og gangi þér og ykkur öllu vel Guðríður mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.9.2008 kl. 18:54
Þú verður að setja fréttina á bloggið þitt, Gurrí. Það gengur náttúrulega ekki að bloggvinkonur eins og Ásthildur hafi misst af henni!
Lára Hanna Einarsdóttir, 9.9.2008 kl. 19:21
Gurrí, þið á Skaga eigið heiður skilið, mér hlýnar um hjartarætur að lesa um hvað þið eruð indisleg við þetta fólk. Mikið er þetta fólk heppið að flytja á Akranes, vonandi verður skólaveran hjá krökkunum góð. Hugsa til ykkar og les línurnar þínar á hverjum degi. Alltaf verið stolt af því að vera Skagamaður, en nú ennþá meira!
Kveðja frá Flórída
Hafdís Garðars.
Hafdís Garðars (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 21:02
Þú varst auðvitað ekkert annað en afbragð í sjónvarpinu, kona góð. Mikið er fólkið heppið að hafa þig innan seilingar. Það er eitthvað svo fallegt við það þegar sagt er "flóttafólkið komið heim...."
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.9.2008 kl. 21:07
Jamm, tek undir með -The Lady Of Westernroad-, Láru Hönnu, skutlaðu þessu inn fyrir þá sem ekki sáu. Enenen, það hlýtur nú samt að hafa verið að minnsta kosti rökkvað í stofunni há RISASTÓRU fv. lögreglukonunni Helgu M., því Gurrí er jú BRÚNN engill með grænu augliti!
En þetta er bæði skemmtilegt og merkilegt með unga afmælisdrengin, fæddur 09.09.99, níu ára!
Til lukku með þetta allt saman Guðríður, fyrir hönd jú allra hinna sem lagt hafa líka hönd á plóg!
Magnús Geir Guðmundsson, 9.9.2008 kl. 22:10
Meistari góður, kíktu bara í heimsókn til mín og þá sérðu sólina brúnu. Urlið er motta - eitthvað.
Þröstur Unnar, 9.9.2008 kl. 22:15
Það starf sem þið kæra skagafólk eruð búin að gera er sérdeilis frábært. Þið upphefjið nýtt líf, nýja framtíð fyrir allt þetta ágæta fólk. Megi almættið með ykkar dyggu hjálp gefa fólkinu tækifærin og frelsið!
www.zordis.com, 10.9.2008 kl. 00:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.