11.9.2008 | 14:33
Sætir Skagakrakkar, lærdómshestur himnaríkis og pínubold
Inga hringdi áðan og bað mig um að fylgja Línu og börnum yfir í Rauða kross-húsið á fund. Lína var nú bara farin á fundinn þegar ég kom heim til hennar, hafði bjargað sér þangað sjálf, dugnaðarforkurinn, enda vissi hún ekki að því að ég ætlaði að koma. Hitti á leiðinni hóp af þvílíkt krúttlegum og yndislegum Skagakrökkum sem ég smellti mynd af. Þar var m.a. elskan hann Jón Ingvi, sonur bloggvinkonunnar Flórens (sem er sveitamærin Sigrún), þeirrar sem bjargaði mér á Skagaslysó þegar ég datt í Ógæfumölinni forðum og fékk stórt gat á hnéð. Síðan er hún bara Flórens í mínum huga, enda hjúkka. Spjallaði aðeins við kennara barnanna sem var líklega með þau í vettvangsferð. Þau höfðu stoppað til að klappa pínulitlum smáhundi sem var í gönguferð með eiganda sínum sem kallaði þann smáa sleðahund þreytulegri röddu. Hahahhaha. Við kennarinn fórum að tala um nýju íbúana á Skaganum, flóttafólkið, og það er greinilegt að börnin ætla að taka vel á móti börnunum í hópnum og hjálpa þeim að aðlagast nýja lífinu.
Á leiðinni heim úr göngutúrnum hringdi Brynja bloggvinkona. Hún sagði að eiginmaðurinn hefði verið búinn að gefa gömlu, góðu kaffivélina og húsbandið því gert sér lítið fyrir og keypt nýja kaffivél handa Línu. Sagði að þær væru nú ekki mjög dýrar. Þvílíkt fólk, segi nú ekki annað. Það á vissulega að reyna að gera ekki upp á milli en þegar komið er ákveðið net í kringum hverja fjölskyldu áttar fólk sig á því hvað vantar og hvað ekki. Lína var alsæl með gamaldags uppáhellingardótið, hvað segir hún núna? Dóttir hennar skutlaði könnunni til mín áðan og þetta er fínasta græja. Takk, Brynja og fjölskylda. Strákarnir fá hjól í dag, uppgerð og viðgerð og ættu að vera í fínu lagi. Ingu tókst að redda þeim. Veit að Línu langar í hjól líka og hver veit nema leynist fullorðinshjól hjá Rauða krossinum. Fólk gaf þvílíkt mikið í söfnunina í sumar, ekki bara húsgögn.
Næ litlu sambandi við erfðaprinsinn þessa dagana, hann gerir lítið annað en að fara í skólann, læra heima og sofa. Danskan og stærðfræðin reynast leikur einn, sem hann átti alls ekki von á í byrjun.
Eric er orðinn beiskur út í konu sína, Stefaníu, sem getur ekki fyrirgefið honum að hafa látið frá sér Forrester-fyrirtækið til Nicks þótt það hafi verið eingöngu gert til að bjarga henni sjálfri frá fangelsi. Steffí segir að hann hafi gefist upp of snemma, hann hefði átt að leyfa henni sjálfri að tala við Nick fyrst, hún kynni lagið á helvítinu.
Nick biður Bridget, fyrri konu sína og síðar stjúpdóttur, dóttur Erics og Brooke, um að taka þátt í Forrester-ævintýrinu með honum en hún neitar voða sár. Líklega verður Donna, systir Brooke og áður skotin í Ridge, núverandi hennar Brooke, eina manneskjan fyrir utan Jackie, mömmu Nicks, sem kemur eitthvað nálægt þessu með honum. Forrester-fjölskyldan, með Brooke innanborðs, ætlar að bretta upp ermar og stofna nýtt tískuhús. Taylor, geðlæknir og fyrrum næstum fangi, sálgreinir nú Stefaníu og kemst að því að heiftin og frekjan í henni, sem brýst stundum út og er að fæla Eric frá henni, á rætur sínar að rekja til æsku hennar og dómínerandi föður. Jamm. Sá ekki allan þáttinn í morgun, guði sé lof fyrir endursýninguna í dag kl. 17.28.
P.s. Sá þetta http://dv.is/frettir/2008/9/11/felag-stofnad-til-hofuds-bloggara/ á dv.is. Þetta á eflaust að vera fyndið ... en þetta lyktar af argasta einelti. Veit ekki til þess að Stebbi hafi gert nokkrum mein með færslum sínum.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 137
- Sl. sólarhring: 315
- Sl. viku: 829
- Frá upphafi: 1505836
Annað
- Innlit í dag: 109
- Innlit sl. viku: 675
- Gestir í dag: 107
- IP-tölur í dag: 103
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Ég held að það sé fátt meira heilandi en að taka þátt í (og fylgjast með) fólki praktísera mannúð sína.
Það á að ordínera aðstoð við náungann til að öðslast max. lífsgæði.
Takk Gurrí mín.
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.9.2008 kl. 14:56
þakklæti mótekið Gurrí mín vonandi smakkast kaffið vel úr nýju vélinni og "þín" kona verði ánægð Hlakka til að drekka kaffi með þér Himnaríkisfrk vonandi fljótlega
Brynja skordal, 11.9.2008 kl. 15:10
Frábært hvað þetta gengur allt vel. Ég hef aldrei séð einn einasta BB þátt en fylgist spennt með hjá þér. Er meira að segja farin að fatta sumar fjölskylduflækjurnar.
Helga Magnúsdóttir, 11.9.2008 kl. 16:51
það er alltaf hægt að fá hjól á spottprís þegar löggan heldur uppboð á óskilamunum
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 11.9.2008 kl. 18:06
Aha, frábær hugmynd.
Knús til ykkar.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 11.9.2008 kl. 18:07
Ég hef aldrei skilið þessa aðdróttanir í garð Stefáns, ef fólki líkar ekki við það sem hann skrifar þá á það ekkert að lesa bloggið hans. Þetta er voða einfalt. Ég skil ekki fólk sem nennir að svekkja sig á því hvað aðrir gera og leggja sig fram við að láta þá fara í taugarnar á sér.
Mummi Guð, 11.9.2008 kl. 21:29
Sæl elskan, langt síðan ég hef kvittað hjá þér. En þar sem á mig er minnst gat ég ekki annað. Og sæt mynd af Jóni Ingva.
Sjáumst vonandi fljótlega, þú átt alltaf eftir að kíkja í kaffi í nýja húsið okkar ;)
Knús...
SigrúnSveitó, 12.9.2008 kl. 00:22
Ég á hjól sem ég skal með glöðu geði gefa. Þarf bara gera við dekkið annars nær ónotað.
Vala (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 18:51
Inga fékk hjól handa Línu í dag. Takk samt kærlega, Vala.
Verð að fara að kíkja í kaffi í nýja, flotta húsið ykkar, Flórens. :)
Og knús!!!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 12.9.2008 kl. 23:05
Vala, ef þú sérð þetta þá væri hjólið mjög vel þegið! Það eru auðvitað fleiri konur sem komast illa á milli. Ég er með netfang: gurrihar@gmail.com
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.9.2008 kl. 12:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.