26.9.2008 | 15:27
Af skelfilegu dömpi, mögulega ekki óléttu ... og nammilöngun
Rifjasteik með brúnni sósu, steiktum kartöflum, rauðkáli og salati að eigin vali var í matinn í hádeginu. Bragðaðist bara vel. Föstudagar eru annasamastir hér í Hálsaskógi, alla vega hjá okkur Vikugellum, og því gott að meira skuli lagt í hádegismatinn en á t.d. þriðjudögum. Suma föstudaga kaupa stelpurnar nammi eftir hádegi og þá gaman að lifa. Nú er aðalnammigrísinn í helgarferð í Svíþjóð svo líklega verður ekkert nammi í dag nema ég grípi sjálf til aðgerða. Vona bara að nammigrísinn muni eftir að koma með nammi handa okkur úr Fríhöfninni. Það er regla hér.
Eftir matinn voru heilmiklar umræður, m.a. um lífsreynslusögur Vikunnar. Ég sagði full eftirsjár frá kunningjakonu sem nýverið bannaði mér að birta djúsí frásögn af manni sem sagði konu sinni upp með tölvupósti eftir langt hjónaband. Lét sig bara hverfa. Kunningjakona mín sagði að þetta hlyti að vera svo sjaldgæft athæfi að það myndi fattast hvaða fólk þetta væri og dró áður gefið leyfi sitt fyrir birtingunni til baka. Samstarfsmenn mínir hlógu kvikindislega og sögðust vita fjöldamörg dæmi þess að uppsagnir færu einmitt þannig fram og sögðu mér jafnvel enn meira krassandi sögur.
Einn gæinn dömpaði kærustunni sinni með SMS-i: Thetta er buid Annar sagði við konu sína þegar hann var nýkominn heim úr vinnunni: Ég elska þig ekki lengur. Þegjandi og hljóðalaust setti hann svo fínu buxurnar, sem hann hafði nýlega keypt á 17.000 kall, ofan í poka og greip líka eina koníaksflösku úr vínskápnum með. Fleiri orð voru ekki höfð um þetta. Það vantar jafnrétti í þetta, alveg er ég viss um að karlar hafa líka fengið hrikalega útreið hjá mökum sínum í þessum málum.
Kannski er ég á lausu vegna hræðslu við eitthvað svona skelfilegt dömp. Ég kannski búin að vera með manninum í viku, búin að kaupa brúðarkjól, koma mér upp smekk fyrir fótbolta og Formúlu, velja á milli hans og kattanna/erfðaprins og velja hann ... og svo kemur önnur kona í spilið og býr á heppilegri stað en á næstum 5. hæð á Akranesi (erfitt að flytja flygilinn alla leið upp).
Ylfa Ósk Úlfarsdóttir, af ætt úlfhunda, kom í heimsókn í vinnuna í dag og Úlli kokkur, eigandi hennar, er ekki lengur viss um að hún sé hvolpafull. Sónar um daginn sýndi nákvæmlega ekkert en það þarf samt ekki endilega að tákna óléttuleysi. Ég sem er búin að vera að lauma að henni harðfiski þegar hún kemur, af því að ég hélt að hún þyrfti að borða fyrir níu núna ... og það stolnum harðfiski úr skúffunni hennar Hrundar.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 219
- Sl. viku: 641
- Frá upphafi: 1505932
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 516
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Ég sá utan á Séð og Heyrt í gær að það eru bara allir að skilja, hvað er í gangi, eitthvað Bold syndrome?
Ásdís Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 15:30
hehe Skilnaðaræði á Íslandi?
Já það er ekkert annað, best að treysta ekki karlmönnum, þá verð ég ekki svikin. hehehhe
kv Gleymmerei
Brynja Dögg Ívarsdóttir, 26.9.2008 kl. 15:43
Ég er alveg nýbúin að fá mér gemsa í fyrsta sinn á ævinni. Kannski að það hafi verið ómeðvitaður ótti við að Stjáni skildi við mig með SMS?
Helga Magnúsdóttir, 26.9.2008 kl. 17:15
Ísak, þessu skal ég koma til skila. Þið karlarnir eruð sko ekkert smá flottir í mínum huga!!! Við vitum að þið lesið Vikuna líka en konurnar eru víst duglegri að KAUPA tímarit! Góð hugmynd þetta með umhirðu húðar karla.
Helga, ekki spurning. Ekki gefa honum upp gemsanúmerið þitt!
Ásdís og Gleymmérei ... held að það sé ekkert endilega skilnaðaræði í gangi núna, hef alla vega ekki orðið vör við það í nánasta umhverfinu. Finnst þó algengara að sjá brúðkaup í Séð og heyrt!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 26.9.2008 kl. 18:20
Hey!!! Er ég nammigrís Vikunnar??? Móðgaðist svo hryllilega yfir þessum ómaklegu ummælum að ég fyllti ferðatöskuna af súkkulaði með hnetum og rúsínum handa þér grísinn þinn!!!
Björk Eiðsdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 17:28
Þorði ekki að kenna hinum um nammgrísheitin, þú ert fjarverandi og verður búin að gleyma þessu þegar þú kemur til vinnu ... heheheheh
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 27.9.2008 kl. 20:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.