Sjokkerandi uppgötvun um faðerni Hope litlu

Taylor og Ridge„Ég er bara að hugsa um það sem er best fyrir fjölskylduna,“ sagði Brooke!
„So do I,“ svaraði Stefanía grimmdarlega!

„Hórudögum þínum í fjölskyldunni er lokið,“ hélt Stefanía áfram og minnti Brooke á framhjáhald hennar með Thorne, hinum syni hennar.

(Hún var einu sinni gift Thorne, þetta hefur gerst eftir að hún byrjaði aftur með Ridge á ekkilsárum hans)
„Velsæmið er komið aftur inn í fjölskylduna,“ sagði Stefanía og átti við Taylor.

Á sama tíma, annars staðar: Ridge og Taylor (sjá mynd) í faðmlögum heima hjá foreldrum Ridge. Ridge lofar að leysa málið.

 

 

Amber og Deacon með barniðDeacon og BridgetÁríðandi leiðrétting: Deacon, fyrrverandi tengdasonur Brooke, á Hope litlu með Brooke, ekki Nick, hvað bull hefur verið í mér!!! Og Deacon var maðurinn hennar Bridget. Brooke er sem sagt vön að stinga undan dóttur sinni! Ekki skrýtið að leikkonan sem lék Bridget hafi hætt í þáttunum og farið að leika lögfræðinginn í Close to home á SkjáEinum.

Deacon er druslugæi sem átti barn með frænku Amber, barnið sem Amber stal þegar hennar fæddist andvana. Og svo lét Amber Rick, son Erics (manns Stefaníu) og Brooke, halda að þetta væri barnið þeirra sem fæddist í hjólhýsinu hjá mömmu hennar.

Frænkan sem átti barnið í alvörunni tróð sér inn í fjölskyldu Amber og þekkti barnið sitt á fæðingarbletti ... Tókst að kúga Amber um tíma.

Allt komst upp, einhverra hluta vegna breyttist frænkan úr hjólahýsapakki í algjöran engil sem allir elskuðu þar til hún lést mjög snöggt úr erfiðum sjúkdómi. Þetta gerðist allt á meðan ég lá í veikindaleyfi heima fyrir nokkrum árum.

En hvað ætli hafi orðið um Deacon og barnið sem Amber og Rick gátu ekki lifað án?

(Ef músarörin er sett yfir myndirnar kemur í ljós hvað hver heitir!!!)  

 

P.s. Ég vil minna á að það var ég sem skúbbaði með fingurmissi Ingu í X-Factor sl. sunnudag, nú fyrst í kvöld er þetta í sjónvarpinu, Íslandi í dag!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þú þarft þess ekki! Ég segi frá öllu markverðu sem gerist. Læt vita með fyrirvara þegar ég hætti þessu! Þá er það bara vídjóið!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 20:15

2 identicon

Ég dáist að þér að botna eitthvað í þessum þáttum. Ég hef alltaf gefist upp eftir smástund, en sé nú að þolinmæði borgar sig þegar sápuóperur eru annars vegar

Silja Dögg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 20:49

3 identicon

Gurrí mín, þú ert bara perla.  Það er nóg að lesa úrdráttinn úr þáttunum hjá þér og deginum bjargað.   Bestu kveðjur, Sigga. 

Sigga Guðmunds. (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 21:20

4 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Þú ert algjör toppur, ef það væri ekki fyrir fótboltann þá gæti bara selt sjónvarpið, þú er algjör draumakona, sendi mínar bestu kveðjur.

Pétur Þór Jónsson, 22.2.2007 kl. 21:31

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég skal með glöðu geði skrifa um fótbolta Pétur minn. Ég held með Liverpool fyrir Davíð frænda, Manchester United fyrir soninn, West Ham fyrir mág minn osfrv  ... hehehhehe!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 21:37

6 Smámynd: Gunna-Polly

ég er viss um að hún getur lýst fótbolta jafnvel og glæstum vonum ég ætla að leggja sjónvarpinu mínu

Gunna-Polly, 22.2.2007 kl. 21:38

7 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Og svo ertu væntanlega Framari eins og ég með fullri virðingu fyrir ÍA.

Pétur Þór Jónsson, 22.2.2007 kl. 21:41

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Framari, ja, ég var skotin í Pétri Ormslev þegar ég var 13 ára! Það hlýtur nú að skipta máli!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 21:52

9 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Enda var pabbi hans einhver besti jazzleikari sem við höfum átt á tenórsax og stákurinn einn af betri fótboltamönnum þess tíma, hann væri örugglega atvinnumaður ef hann væri að spila í dag og hananú.

Pétur Þór Jónsson, 22.2.2007 kl. 21:59

10 Smámynd: Vilborg Valgarðsdóttir

Takk fyrir skammt dagsins, þú ert frábær að geta munað þetta. Ég er viss um að þó ég hefði séð þetta sjálf þá gæti ég ekki rifjað það upp þótt ég ætti að vinna mér það til lífs.

Vilborg Valgarðsdóttir, 22.2.2007 kl. 22:20

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, og það hefur þessi snjóboltaáhrif, maður þarf ekki að reyna lengur að vera skemmtilegur ... múahahahahha! Snilld að fatta þetta! Æi, djók!

En hvernig er með þig frú Anna, kemstu á laugardaginn? Og allir hinir bloggvinirnir, líka Hildigunnur (of kors)?????? Þú berð alla ábyrgð á veru minni hérna!

Vilborg ... ég sat við tölvuna og vann ... svo ef kom einhver dásamleg setning í þættinum í sjónvarpinu hérna í bókaherberginu þá skrifaði ég hana niður, ég er ekki alveg svona mikill snillingur. Aldrei hefði mér t.d. dottið í hug orðið hórudagar, eins og Brooke greyið fékk framan í sig frá tengdó.

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 22:36

12 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Anna var búin að lofa að taka mig með, þannig að ég bíð í ofvæni eftir að hún hafi samband við mig  Meira að segja búin að fá bæjareyfi hjá eiginmanni og börnum!

Sigríður Jósefsdóttir, 23.2.2007 kl. 00:44

13 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Bæjarleyfi átti það víst að vera

Sigríður Jósefsdóttir, 23.2.2007 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 238
  • Sl. sólarhring: 409
  • Sl. viku: 2031
  • Frá upphafi: 1461014

Annað

  • Innlit í dag: 211
  • Innlit sl. viku: 1668
  • Gestir í dag: 210
  • IP-tölur í dag: 207

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jörgen Klopp
  • Opið hús kl. 17
  • Dýrheimar kaffihús

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband