8.2.2021 | 17:54
Borgarferð, samsæri karla og borgarlínan
Ég heimsótti elsku höfuðborgina á föstudaginn og gisti eina nótt. Systir mín aðstoðaði mig við að raða 2020-bókhaldinu (hrollur).
Þetta var nú ljómandi góð helgi samt. Við hættum við að fara í IKEA vegna biðraðar, sem gaf svolítið tóninn um hversu góð helgin yrði. En fórum þó í Costco. Ég þurfti að skila jólagjöf, náttfötum sem voru næstum því í small-stærð, takk, elsku Dagbjört frænka, þú ert og verður uppáhalds.
Ekki nægði að segja að þetta væri jólagjöf, heldur þurfti kennitölu frænkunnar sem ég mun sennilega aldrei gleyma eftir þetta. Númeraminni mitt kom sér þó best á meðan ég sendi jólakort því ég kunni fest ef ekki öll póstnúmer landsins utan að ...
Ég fékk endurgreitt hjá Costco - þessi annars flottu náttföt voru ekki lengur til svo ég keypti mandarínur og tómatsósu. Tók ekki einu sinni körfu með inn. Ég missi nefnilega lífsviljann í búðum og vil komast út, helst strax. Eins og í fína, flotta vöruhúsinu í Ameríkunni með Halldóri fjanda, sem stoppaði mig á flóttanum eftir að hann var búinn að fata sig upp, og var snöggur að finna á mig bæði kápu og úlpu (í stærðum 22 og 24, ég nota nr. 16) ég mátaði mjög hratt og sagði FÍNT, þetta passar!
Úlpan var æði, ég hefði vissulega getað verið í fimm lopapeysum undir henni en það kom aldrei rétta fmmpeysu-veðrið svo ég gaf úlpuna fyrir rest, en gat selt fínu kápuna.
Aldrei láta búðaleiða koma í veg fyrir að maður kíki á miðann sem segir til um stærð á flík. Og aldrei láta neinn segja sér að konur elski búðarferðir og karlar hati þær. Mín reynsla rústar þessari staðarlímynd gjörsamlega. Ég veit núna að þetta er hið stóra samsæri karla - að segja okkur stelpunum þetta svo þeir sleppi við að fara út í búð. Og ef þeir fari - séu þeir hetjur.
Við fórum líka í Elko og keyptum útvarp handa mömmu, ég stillti það á Rás 1. Reyndi svo að brjóta stöðvatakkann af án árangurs. Það var akkúrat verið að spila eitthvað fallegt úr Töfraflautu Mozarts svo ég vona ... Síðast þegar við mamma fórum saman út á djammið var það í Hörpu, einmitt á Töfraflautuna. Langar ekki til að mamma fari að hlusta á X-ið, FM957 eða eitthvað þaðan af óhollara, ég er auðvitað að grínast með X-ið og FM957 en meina allt sem ég segi um "þaðan af óhollara". Mamma býr á Eir þar sem fer sérlega vel um hana, hún situr og ræður krossgátur daginn út og inn, þjálfar þannig hugann. Ég er hrifnari af orðaleit, Hilda systir af sudoku og Mia af myndagátum ... spennandi að vita hver okkar mun halda sér best andlega. Ég veðja á mig, kannski af því að ég elska rapp ... en mamma var nú hrifin af Coolio í gamla daga, þessu eina lagi þarna úr bíómyndinni.
Ég hef ekki kynnt mér vel fyrirhugaða borgarlínu en ef einn Facebook-vinur minn hefur rétt fyrir sér, líst mér ekki á blikuna. Svo virðist sem meira verði hugsað um sparnað en góða þjónustu - þannig að notendur í úthverfum neyðast, ef rétt er, til að ganga mun lengri vegalengdir en áður út á stoppistöð - sem er blátt áfram heimskulegt í íslensku veðri. Þá er þessi annars frábæra hugmynd um skjótar almenningssamgöngur eiginlega dauðadæmd áður en hún verður að veruleika. Það er ekki hægt að segja að fólk sé ekkert of gott til að ganga í tíu mínútur, tuttugu mínútur Það urðu heilmiklar breytingar fyrir hvað ... tuttugu árum, hraðleiðirnar 1, 2, 3, 4, 5 og 6 urðu eins konar borgarlína og í stað þess að rölta upp á Hofsvallagötu (bjó á Hringbraut á milli Hofsvallagt. og Bræðraborgarstígs) þurfti ég að ganga út að Þjóðminjasafni til að ná sexunni eftir að vinnan mín flutti í Höfðabakka. Að sumri til allt í lagi að rölta í 10-15 mín. en ekki í hálku og hríð. Um veturinn tók ég vagn við Hofsvallagötu og hitti sexuna á Lækjartorgi - sem var allt í lagi en miðað við það sem Facebook-vinur minn segir eftir að hafa kynnt sér þetta vel, er að Hofsvallagötumöguleikinn verði þá ekki lengur fyrir hendi. Af hverju ekki bara lestarkerfi, ekki ísköld og vindasöm drög að lest ... Mig langar alltaf svo mikið að vita hvort strætófarþegar fái að leggja orð í belg þegar svona stórvirki eru í vinnslu - eða hvort það séu jeppaakandi verkfræðingar og reglustika eingöngu? Segi nú svona. En ef ég flyt einhvern tíma aftur í bæinn myndi ég fá mér íbúð nálægt stoppistöð.
Efri mynd; Það tekur mig um mínútu (ef þarf ekki að klappa hundum á leiðinni) að ganga út á stoppistöð á Garðabraut, skúrarnir fjær vinstra megin skyggja á stoppistöðina. Þegar er mikil hálka, eins og á myndinni, tekur um 20 mínútur að skríða þangað.
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 36
- Sl. sólarhring: 37
- Sl. viku: 670
- Frá upphafi: 1506023
Annað
- Innlit í dag: 31
- Innlit sl. viku: 543
- Gestir í dag: 24
- IP-tölur í dag: 24
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Hægt verður að ferðast með strætisvögnum að og frá Borgarlínunni.
Í Nýju leiðaneti eru skilgreindar tvær megingerðir leiða: Stofnleiðir og almennar leiðir.
Stofnleiðirnar verða sjö og þær munu tengja saman sveitarfélögin og stærstu hverfin á höfuðborgarsvæðinu.
Borgarlínan verður að mestu leyti í sérrými með forgangi á gatnamótum og vagnar á stofnleiðum munu koma á 7-10 mínútna fresti á annatíma.
Ferðatíminn á milli Hamraborgar í Kópavogi og Háskólans í Reykjavík, svo og á milli Seltjarnarness og Kringlunnar mun til að mynda styttast um ellefu mínútur.
Vagnar Borgarlínunnar verða liðskiptir og ýmist 18 metra langir (einn liður) eða 24 metra langir (tveir liðir) og því lengri en hefðbundnir strætisvagnar og geta tekið allt að 160 farþega.
Vagnarnir verða rýmri en hefðbundnir strætisvagnar og með tröppulaust aðgengi frá brautarpöllunum.
Fargjaldið verður greitt á brautarpöllunum og því hægt að ganga inn um allar dyr á vögnunum.
Borgarlínan - Leiðanet
Borgarlínan - Athugasemdir og spurningar
Þorsteinn Briem, 8.2.2021 kl. 19:53
Borgarlínan verður að mestu leyti í sérrými með forgangi á gatnamótum, á þetta nú að vera.
Þorsteinn Briem, 8.2.2021 kl. 21:52
Þetta er skemmtilegur pistill Guðríður.
Ég er orðinn það fullorðinn að ég sakna SVR, það var strætókerfi með viti, því það virkaði fyrir notendur.
Mínar leiðir voru einkum Hagar-Sund, fjarkinn, og Grandi-Vogar, tvisturinn.
Nú er þetta allt komið í svo mikið rugl með útvistaða nýfrjálshyggju fyrirtækinu Strætó að það á að auka enn meira ruglið með einhverju sem enginn skilur til hvers verði, Berlínar-Hjálmars Borgarlínan. Jú, Steini trommari þykist skilja þetta, en hann mærir ætíð alla vitleysu.
Ps. Ég er ekki mikill búðarmaður, en stundum gerist ég þó hetjulegur og læt til leiðast að fara m.a.s. í Ikea. En hugsa þá mest um að fá mér þar að borða. Þá gerist ég svo kosmópólitan þar á pallinum; Costco þar í grenndinni.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.2.2021 kl. 12:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.