7.4.2021 | 17:16
Kaffi og ástarsorgartónlist
Eftir að hafa sagt kaffifarir mínar ekki sléttar í lestinni frá Belfast, hafa mér borist margar ábendingar (ég er áhrifavaldur, hvar er skyrið, hvar voru páskaeggin?) og sú allra, allra átakanlegasta er frá Norrænu, ferjunni sem gengur á milli Íslands, Færeyja og Danmerkur.
Það ætti svo sem ekkert að koma á óvart. Mörgum er svo ótrúlega mikið sama um kaffi. Hafa ekki allir farið í fermingarveislu, erfidrykkju, sjötugsafmæli þar sem kökurnar eru stórfenglegar - allt það dýrasta og besta valið, en svo eitthvað uppsópsduft notað til að drekka með kræsingunum, löngu útrunnið kaffi sem safnaðarheimilið keypti jafnvel gám af til að spara 400 krónur og þurfa ekki að vera sífellt að kaupa.
Ég hef oft lent í því og vel því alltaf gos til að drekka í slíkum samkundum. Eitt sinn keypti ég gott kaffi í brúðkaupsveislu hjá vinkonu og það var svo ilmríkt og svolítið dekkra en það sem safnaðarheimiliskonurnar voru vanar að þær settu helmingi minna magn af kaffiduftinu en vanalega ... Þetta brúna vatn hafði reyndar ágætan keim en það hefði þurft kaffidómara til að skera úr um hvort þetta væri kaffi eða eitthvað annað.
Í erfidrykkjunni hans pabba árið 2001 hafði ég keypt dúndurkaffi með kræsingunum en áttaði mig ekki alveg á því hvað það vakti sterkar tilfinningar fyrr en ég gekk á milli borða til að heilsa upp á frænkurnar að norðan. Þær teygðu út hendurnar og gripu þéttingsfast í mig og sögðu EKKI: Ég samhryggist þér með hann pabba þinn, Guðríður mín, heldur hvæstu þær nötrandi: Hvaða kaffi er þetta eiginlega? Ég þurfti að skrifa niður nafnið á því og hvar ég hefði fengið það (Espressó Krakatá frá Kaffitári).
Ég man þegar elsku Hjalti föðurbróðir minn, kom ásamt Jóu sinni í eftirafmælisveislu til mín, sennilega daginn eftir, eða 13. ágúst, og sagði það minna mikið á kaffið sem Guðríður amma brenndi og malaði úti í Flatey á Skjálfanda áratugum fyrr - bragðmikið og gott. Svo kom brennt og malað kaffi í kaupfélagið með þeim afleiðingum sem flestir þekkja ...
Ég kaupi reyndar alltaf Espresso Roma (frá Te og kaffi) núna því það hefur komið best út í baunavélinni minni, ég hef prófað margar tegundir. Býst þó við að þegar ég er búin að læra almennilega á fínu græjurnar að ég noti Húsblöndu Kaffitárs - það er notað í uppáhaldslatte-inum mínum en Húsblandan fæst því miður ekki á Akranesi - ekki enn, hún Erna, kaupmaður í Einarsbúð, gerir allt fyrir mig ... best að prófa.
LAGIÐ;Einmana reika um framandi og skítuga borg, syngur karl í ástarsorg í meðfylgjandi lagi, en ekki villtur af því að hann er karlmaður og reikar eftir korti,(sjá færslu gærdagsins).
Fór að hugsa um þetta flotta ástarsorgarlag í gær og fann það, hélt að það héti: Aleinn í ókunnu landi. Mánar voru æði, man eftir að hafa heyrt þá taka Jethro Tull-lög á tónleikum í gamla daga.
Enn finn ég ekki Upplyfingar-lag Hauks Ingibergssonar, Kveðjustund í upphaflegu útsetningunni, af samnefndri plötu - það hlýtur að koma á YouTube einhvern daginn en önnur manneskja söng það þegar það kom út á geisladiski. Ég er sem sagt ekki að meina lagið hans Fúsa frænda: Ég elska þig svo mikið að ég gæti næstum dáiðô, heldur: Ég hef aldrei áður elskað nokkurn eins og þig, ég hef aldrei áður upplifað svona mikla sælu, svona mikla ást-lagið. Hver sá sem getur reddað mér þessu lagi verður eftirleiðis í dýlingatölu hjá mér svo það er til mikils að vinna. P.s. Ég er ekki í ástarsorg.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 10
- Sl. sólarhring: 39
- Sl. viku: 474
- Frá upphafi: 1526443
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 409
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.