25.4.2021 | 21:34
Partí eða partý - fávitar eða fyndnir flottrassar
Hef staðið mig að því að agnúast bæði út í fimleika og hestaíþróttir um helgina, ekki vegna þess að það sé leiðinlegt efni, heldur það að fá ekki gosið sitt í sjónvarpið gerir hvern mann vitlausan.
Hvernig væri að hafa nokkrar stöðvar, t.d. þrjár sem aðeins sýna gosið frá ýmsum sjónarhornum. Þá gæti RÚV haldið í sína íþróttarás án þess að við gosklikkhausarnir tryllumst. (Í góða veðrinu í kvöld hefur ótrúlegur fjöldi fávita hangið fyrir framan vélina og veifað, tveir múnuðu en ég ritskoðaði fyrir birtingu, að hugsa sér hvað ég er orðin klár í tölvutækni, sjá mynd.) Ég mæli með því að svæðið fyrir framan vélarnar verði með rafstraumi svo við heima getum líka skemmt okkur yfir stórum strákum fá raflost.
Ef ríkisstjórn auðvaldsins vill hafa öreigana sína stillta og prúða held ég að það væri þjóðráð að vera með gosvarp. Hver nennir út að mótmæla ef eldgos er í boði í stóra flatskjánum heima sem orsakar kannski næsta bankahrun? Munið þið þegar Skýrslan kom út eftir 2008-hrun? Öll hneykslin sem þar var að finna en hurfu í hraunstraumi nýs eldgoss sem ég man ekki einu sinni hvar var ... Eins og einhver krakkakrúttmoli sagði á barnamenningarhátíð í sjónvarpinu í gær þá er þetta bara búið þegar maður verður sextugur ... þá er eðlilegt að muna ekki allt.
Það mætti halda að ég væri verkalýðshatari að gefa yfirvöldum svona góð ráð, en það er ekki rétt, það stefndi í flottan feril minn sem verkakona, eiginlega þar til ég fékk vinnu á skrifstofu í gegnum klíku árið 1982. Ég hafði áður unnið í fiski í Hraðfrystistöðinni í Grindavík, Ísfélagi Vestmannaeyja (fyrirgefðu, Binni), á Kirkjusandi og tveimur stöðum á Akranesi, ég hef unnið í sokkaverksmiðju, verslunum, uppvaski á Hótel Vík hluta úr sumri og verið í sveit.
Það sem hefur algjörlega vantað í ferilskrána mína er vinna á sjúkrahúsi. Ég sem ætlaði alltaf að verða leikkona, söngkona, dansmær eða ljósmóðir. Varð allt nema ljósmóðir, (bláa öxlin í Heilsubælinu, söng með Kór Langholtskirkju, Mótettukórnum og Fílharmóníu og ég dansa oft heima við lagið Luftguitar).
Lífið færði mig einhvern veginn aldrei þangað þótt mér hafi alltaf fundið spítalar spennandi upp á vinnu að gera. Ég gleymi ekki veðmálinu sem fór eitt sinn fram á Sjúkrahúsi Akraness á sjöunda áratug síðustu aldar þegar mamma (hjúkka) og nokkrir í viðbót héldu því fram að það ætti að skrifa orðið dýrðlingur með ð-i en hinn hópurinn vildi sleppa ð-inu. Ég hélt auðvitað með mömmu en þótt ég muni ekki segja henni það, losaði ég mig við ð-ið fyrir löngu, líka d-ið í hunsa sem sumir vilja skrifa hundsa.
Ég var heilt sumar í fæði á spítalanum, systkini mín stödd víða um land, þau yngri á Ökrum á Mýrum, elsta í Hólshúsum, Eyjafirði en sennilega vildi enginn fá mig í sveit svo mamma þurfti að afplána mig. Þetta er það eina sem ég man eftir þessu sumri, dýrðingur eða dýrlingur, jú, og þegar ekki var hlustað á mig og beygt til vinstri á réttum stað, frekar brunað alla leið á Brú í Hrútafirði þegar átti að sækja systkini mín um haustið. Þau biðu og biðu og biðu ... Þegar ég ólst upp var lítið mark tekið á börnum, þau áttu að sjást en ekki heyrast.
Ég urraði hneyksluð einu sinni þegar ég sá orðið partí skrifað með Ý-i í Séð og heyrt. Ritstjórn SH sat á næsta borði við okkur á Vikunni og ég kom þessu á framfæri, þung á svip, alveg stórhneyksluð. Eiríkur Jónsson, þá ritstjóri SH, gaf lítið út á þetta en sagði margsannað mál að partí með ufsiloni væru miklu skemmtilegri en partí með einföldu. Karlmenn og rök ... Ég gætti þess að láta hann ekki sjá hvað mér fannst þetta fyndið, heldur hvæsti: Viltu þá ekki bara skrifa BAKARÍ með ý-i?
En varðandi dýrling og dýrðling ... það var náttúrlega ekki búið að finna upp tölvur á þessum tíma ... og einum lækninum var falið að spyrja vin sinn sem þekkti íslenskufræðing við Háskóla Íslands, eða eitthvað, um að fá úr þessu skorið. Mikil varð spæling beggja liða þegar í ljós kom að það mátti skrifa orðið bæði með ð-i og án.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 10
- Sl. sólarhring: 39
- Sl. viku: 474
- Frá upphafi: 1526443
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 409
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.