27.4.2021 | 16:05
Ekki leti - bara vítamínskortur
Ég var vöknuð fyrir allar aldir í morgun, klukkan var ennþá 9-eitthvað, fékk mér kaffi og fór í símann til að athuga hverju ég missti af með því að fara svona snemma að sofa í gær. Í leitinni að því rakst ég á myndband sem gaf í skyn að ég gæti öðlast meiri orku með einhverri stuttri rútínu á kvöldin og ég giskaði í huganum á iljanudd, gæti alveg hugsað mér að ýta á vissan punkt hvert kvöld til að öðlast eilífan kraft. Ég ýtti á play, því miður!
Eftir korter af einhverju sem átti að æsa upp í manni spenning, tíma sem ég fæ aldrei til baka og hefði átt að nota til að brjóta saman þvott, kom í ljós að þetta tengdist megrun.
Það var alveg hægt að flissa yfir dramanu, átakanlegum sögum af eiginkonu hans sem losnaði ekki við spikið, sama hvað hún reyndi. Læknir ráðlagði henni að borða minna og hreyfa sig meira, þvílík ósvífni. Þegar konan, orðin vonlaus og döpur, ákvað einn daginn að prófa að skokka fékk hún vægt hjartaáfall sem er vissulega ekki fyndið en ég held reyndar að þetta hafi verið uppspurni til að selja eitthvað. Ég hef einu sinni áður látið blekkjast af svona myndbandi og það tók mig eflaust 20 mínútur af lífi mínu að skilja að það var verið að selja bók - ekki um megrun þó. Hélt að ég væri orðin ögn veraldarvanari en þetta. Svo hef ég ágæta orku eftir að ég fór að taka vítamín reglulega.
Já, og drekka Fasta, berjasafa frá Íslenskri hollustu, sjá mynd hér ofar, sem ég drekk vænan sopa af á morgnana - af því að ég borða ekki ber (bláber eru viðbjóður) og fer á mis við einhver vítamín vegna þess. Þessi drykkur hefur haft þær furðulegu aukaverkanir að tennur mínar skemmast ekki og ég steinhætti að naga neglurnar eftir 50 ára nag niður í kviku. Nú klippi ég þær reglulega, pirruð yfir vexti þeirra og á eitthvað um 30 tegundir af naglalakki, mér til mikillar gleði. Og orkan sem kom yfir mig um það bil þremur vikum eftir að ég fór að drekka safann varð til þess að Búkolla auglýsti bókadaga. Ég fór nefnilega að grisja og var allt í einu komin með þrjátíu kassa af bókum til að gefa Búkollu sem þá var alvörunytjamarkaður og tók við öllu nema auðvitað óseljanlegu rusli.
- - - - - - - - -
Það er ekki til leti - bara vítamínskortur!!! Samt, það er allt of erfitt að finna Fasta. Hann fæst í Melabúðinni og í einhverjum hollustubúðum en er því miður hættur að fást á föstudögum í Mjóddinni, með öllum sultunum og hinum söfunum. Ég treysti áður alltaf á að geta keypt hann þar - svo bara hættu þau þar. Elskan hún Karen í Kaju hér á Akranesi, fór að selja hann fyrir mín orð. Auðvitað ætti Íslensk hollusta að verðlauna mig fyrir hvað ég hef auglýst Fasta vel í gegnum undanfarin ár - en ég er svo sem orðin vön því að vera algjörlega vanmetinn áhrifavaldur.
Annað sem ég finn mikinn mun á er kremið hennar Þuríar vinkonu, eða ég fann mikinn mun þegar ég notaði það ekki - nánast allt síðasta ár, Fjólu-dag- og næturkrem (áður Móa), grænt, hollt, má borða það ... Við Þurí hittumst ekkert í fyrra, aðallega vegna COVID, og ég keypti mér eitthvað fokdýrt fegrunarsmyrsl í snyrtivörubúð og fór smám saman að sætta mig við að ég væri að eldast, hrukkurnar fjölguðu sér án nokkurrar miskunnar. Samt hætti ég að reykja í apríl ... það var ekki fyrr en um síðustu jól að ég fékk aftur kremið hennar og þá horfði ég á kraftaverkið gerast, eða fjandans hrukkurnar hörfa hratt og vel, ekki kannski hverfa, en næstum því.
Ég held að Icelandair selji öll íslensk hollustu-græn-krem í vélum sínum nema frá Fjólu sem vekur furðu mína - líka furðu Irene, konunnar hans Haraldar frænda í Ameríku, hún er háð þessu kremi eins og ég, og birgir sig alltaf upp af því í hverri Íslandsferð. Og Fjólu-græðikremið sem er annað, það er notað á Landspítalanum, m.a. á brunadeild, og er einstakt. Eitt sinn sólbrann ég illa í andliti, þá nýkomin heim og nýbúin að hreinsa af mér farða vegna myndatöku hjá Vikunni, og setti eitthvað feitt krem á andlitið sem ég hélt að væri hið eina rétta gegn farða, settist síðan út í sólina í korter og uppskar annars stigs bruna. Ég spurði lækninn hvort ég mætti nota græðikremið frá Fjólu, hún hringdi til öryggis á Landspítalann, fékk góð meðmæli þar og samþykkti, sagðist svo í lokin vera ansi ánægð með hversu vel þetta greri. Það myndaðist ný og falleg húð undir og hin flagnaði bara af. Besta en sársaukafyllsta húðmeðferð sem ég hef farið í ...
- - - - - - - - - - -
Já, ég var að segja frá þessu vídjói sem hafði af mér dýrmætan tíma í morgun. Ég gafst upp og hætti að horfa þegar eiginmaðurinn áhyggjufulli var kominn niður í kapellu sjúkrahússins og grét þar og bað guð um að gera konu sína granna svo hún fengi ekki framar hjartaáfall. Í kapellunni hitti hann góða konu sem hann hellti úr sinni andlegu ruslatunnu yfir en góða konan tjáði honum að eitt sinn, eiginlega fyrir stuttu, hefði hún verið mjög feit. Hann trúði því varla, þessi kynþokkafulla kona, almáttugur ... já, þarna gafst ég upp, þrátt fyrir að kannski væru bara tveir klukkutímar eftir, eða fimm mínútur. Það var hægt að setja pásu á en ekki sjá lengdina á myndbandinu eða flýta því á nokkurn hátt. Maður þarf ekki martröð ef til eru svona myndbönd.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 4
- Sl. sólarhring: 35
- Sl. viku: 468
- Frá upphafi: 1526437
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 403
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.