23.6.2021 | 12:22
Fullt til að banna ...
Ég er ekkert svo langt frá því að uppgötva að morgunverkin geti verið drjúg, eins og systir mín vill meina, svo ég er sennilega að detta í að verða miðaldra. Fer núorðið á fætur fyrir níu og er búin að öllu, eins og kaffi, tiltekt (meira að segja brjóta saman þvott og ganga frá) og sturtu, fyrir kl. 10. Trúði vart mínum eigin augum þegar ég leit á klukkuna ... en hvað er ég að tefja ... stórfréttir í grennd.
Hlutirnir gerast hratt í himnaríki. Ég komst að því að mamma löggunnar er ári yngri en ég, þess vegna hló hann svona þegar ég spurði hvort hún byggi á dvalarheimili. Einhver mistök voru gerð í pöntunarferlinu í fyrrakvöld og ég skráð sem 78-módel - hann trúði því og sagði mig afar unglega í kveðjusímtalinu. Ég kunni ekki við að segja að hann væri ansi karlalegur með allt þetta skegg. Hef þó ekki gefist upp á mannaveiðum, fer út að borða um helgina með einum sem er mjög andlega sinnaður ... getur verið galli en ég gef honum séns.
Ein vinkona mín sagði að ég yrði að þjálfa mig betur til að klúðra ekki málum, stefnumót væru vinna, algjört hörkupúl, þau væru orðin þannig að fólk þyrfti að geta svarað rétt - hún hefði sjálf iðulega fengið spurningar um markmið og hvar hún sæi sig innan þriggja ára, eitthvað slíkt. Ef hún væri ekki með svör á reiðum höndum, misstu þeir áhugann. Hún kom sér upp vel æfðum svörum sem hljómuðu vel og henni hefur tekist að heilla marga karlmenn þannig, skilst mér. Hún er samt brjáluð út í markþjálfara, segir þá hafa sprottið upp eins og gorkúlur síðustu árin, og eyðilagt svo margt fyrir fólki sem er að reyna að koma sér áfram á hjónabandsmarkaði.
Svona eins og ég kenni skiltahönnuðum um versnandi tilfinningu landsmanna fyrir íslensku máli. Ég fór eitt sinn inn í búð sem heitir Mamma veit allan andskotann (ögn breytt), en á skiltinu stendur Mamma Veit Allan Andskotann. Ég spurði um ástæðu þess að heitið væri skrifað með öllum þessum hástöfum og fékk: Sá sem gerði skiltið fyrir okkur skilaði þessu svona og okkur finnst þetta bara fínt. Þú gerir þér grein fyrir því að þetta er rangt mál, er það ekki? sagði ég og eitt leiddi af öðru.
Þrátt fyrir sterk ítök mín í lögreglunni var gerð skýrsla um slagsmálin (eða slags-málið, þetta var svo lítið) sem brutust út nokkrum mínútum síðar og ég má víst ekki koma nær þessari búð en sem nemur 100 m. Ég rétt slepp inn í Kaffitár. Það væri svo töff og pró að láta prófarkalesa skiltin sín áður en þau fara upp, svo þau séu ekki fyrirtækjum til eilífs ósóma, maður lætur ekki endurskoðandann gera við bílinn sinn.
- - - - -
Sumir eru ósáttir við að búa t.d. í miðbænum af því að þar er svo mikill hávaði um helgar, langt fram á nótt - vilja af þeim sökum að opnunartími bara verði styttur svo þeir fái svefnfrið. Þetta er fólk sem ætti að vita að hverju það gekk þegar það flutti í miðborgina og ætti því að flytja sig sjálft en ekki að reyna að breyta öllu í kringum sig. Fólk með galopna glugga vill að kettir verði lokaðir inni í stað þess að gera eitthvað sem kemur í veg fyrir að kettir fari inn um glugga þess. Einn hrokagikkurinn tók kött í gíslingu nýlega fyrir norðan - enda kominn með samþykki fyrir því að kettir væru meindýr og mætti koma illa fram við þá, kötturinn lá víst og svaf í rúminu hans sem honum fannst viðbjóður og hann hefur alveg rétt til að finnast það, hann hafði þó ekki rétt á því að loka köttinn inni hjá sér, ég hefði hringt á lögregluna, ekki farið í vörn. Þessum freku körlum og konum tekst kannski með að breyta einhverju, Húsavík er dæmi um það, og gera þar með lífið litlausara. Kettir eru alls ekki verstir þegar kemur að fugladrápi. Glerrúður í húsum eru skæðastar fuglum, þá eru það mávar, minkar og slíkt ... flestir kattaeigendur eru ábyrgir og loka ketti sína inni eða setja á þá stóra trúðakraga. Mínir kettir fara aldrei út, til þess er ég of hrædd um að þeir verði fyrir bíl, og nú á seinni tímum, að eitthvert ógeðið geri þeim eitthvað.
Fólk vill ekki lúsmý inn til sín, eða geitunga og fær sér net í gluggann en þessi maður heimtar að kettir fái ekki að ganga lausir, frekar en hundurinn hans. Lærði þessi maður aldrei dýrafræði? Það er gífurlega mikill munur á þessum dýrum. Ég elska hunda en ég yrði sennilega smeyk ef þeir fengju að ganga lausir, þeir eru misjafnir þótt ég hafi persónulega aldrei rekist á vondan hund. Ein besta vinkona mín á Akranesi er sjeffertíkin í næstu blokk.
Það er hægt að skrifa endalaust um þetta - en við eigum ekki að láta freka fólkið taka stjórnina, getum við ekki lært að lifa í sátt og samlyndi, ekki alltaf reyna að breyta umhverfi okkar. Ég man vel eftir því þegar hundahald var bannað, það var frekar ömurleg og litlaus borg að búa í - og týna hundi í. Tík sem ég átti sleit sig lausa frá tengdó og fór á flakk. Ég talaði við lögguna bæði á Hlemmi og Lækjartorgi. Lögginn á Hlemmi sagði að henni yrði lógað ef hún næðist, helvítis hundar alltaf, en þessi á Lækjartorgi róaði mig og sagði hana eflaust á lóðaríi. Hvorugur trúði því að ég byggi á Akranesi, sem þó var reyndin. Gott fólk á Njálsgötu fann tíkina og tók hana inn og í gegnum Hundavinafélagið, endurheimtum við hana.
Svo eru þeir til sem hálfpartinn hatast við börn, eða er illa við þau, man alveg eftir slíku fólki úr æsku, hvernig sem það er nú hægt - börn vissulega ónáða, skemma og slíkt, pottþétt meira en kettir ... Það er eitt fjölbýlishús sem ég mun aldrei vilja búa í, segi ekki hvar, en þar er börnum bannað að ganga á grasinu umhverfis blokkina. Venjulegu grasi sem lítur ekkert betur út en grasið á næstu lóð þar sem börn mega leika sér. Ég er búin að kynna mér þetta, þarna voru bara settar ýmsar íþyngjandi reglur - af því bara - og farið strangt eftir þeim. Það er ekki sérlega eftirsóknarvert að búa í slíku húsi.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.2.): 9
- Sl. sólarhring: 185
- Sl. viku: 910
- Frá upphafi: 1518531
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 784
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.