12.7.2021 | 22:14
Þvottur, Trump, EM, Frakkland og nýju reglurnar
Maturinn í gær heppnaðist ótrúlega vel en kjöthitamælirinn ódýri miðaðist víst við nautasteik, ekki lambahrygg, svo ég tók ekki mark á honum. Kjötið var bleikt við bein og dúnmjúkt (engin skorpa/pura, ég kann ekki að gera slíkt, óttaðist líka ofeldun) Ég er medium rare-týpan í nautakjöti sem ólst þó upp við að spagettí var soðið í 30 mín, eins og kartöflur ... Hljómar eins og hroðaleg meðferð á barni en mér fannst spagettí alltaf gott samt. En hvað ég hélt að yrði um smjörbitana sem ég setti yfir kartöflurnar, laukinn og gulræturnar í gær til að fá betra bragð, veit ég ekki, ég átti alla vega ekki von á að það nánast drukknaði í bráðnuðu smjörinu, bragðgott en ... æ. Alltaf að læra, næst geri ég þetta öðruvísi.
Það styttist í veiðiferðina okkar Hildu norður og ég finn fyrir spenningi, mér er alveg sama hvernig veðrið verður, væri til í að sleppa við slagviðri, hríð og hálku, flest annað kemur til greina. Ég þarf að aðstoða Hildu við að velja spennandi bók til að hlusta á (Storytel) á leiðinni - svo við þurfum örugglega ekkert að tala saman. Það væri hræðilegt að þurfa að gera það. Jafnvel hlæja ... ömurlegt ... en svona í alvöru, við hlustuðum á sögu á leiðinni norður í fyrra og það var mjög notalegt, æsispennandi sögu eftir B.A. Paris. Nr. 2 í röðinni. Sú fyrsta, Bak við luktar dyr, var ótrúlega spennandi en ég man sennilega of mikið eftir henni til að stinga upp á henni, veit að Hilda hefur líka lesið hana. Ég þarf að fara að finna mér nýja bók til hlustunar, full þvottakarfa af hreinum þvotti síðan í gær bíður, ja, eiginlega tvær. Það er gott að hreyfa hendurnar eins og dáleidd, brjóta saman, setja inn í skáp án þess að hleypa að þeirri hugsun hversu ógeðslega leiðinlegt þetta er. Storytel er hugsað til gleði og gamans, ekki sem heimilistæki til að láta mann gera eitthvað leiðinlegt án þess að verða var við það.
EF ég gifti mig aftur þarf minn tilvonandi ekki bara að vera brjálæðislega myndarlegur, heldur líka kunna að búa til sítrónufrómas OG hafa gaman af því að brjóta saman þvott og ganga frá honum, jafnvel líka að ná puru á lambahrygg án þess að ofelda. Ákvað það í dag með þvottinn þegar ég treysti mér ekki í samanbrjótelsið ... sökum kvilla sem skall á fyrir helgi. Ekkert sem vænn skammtur af trönuberjasafa lagar ekki ... Einarsbúð á von á pöntun í fyrramálið. Já, og Einarsbúð pantaði fyrir mig rétta kaffið í fínu espressóvélina svo ég þarf aldrei framar að fara til Reykjavíkur ... nema mér til skemmtunar. Og í Costco auðvitað. Og þó - í Einarsbúð fást Costco-núðlurnar, klósettpappírinn, fínu blautþurrkurnar, æ, kremið þarna, hreinsidæmið í mýkingarefnishólfið í þvottavélina með góðu lyktinni, kattasandurinn og margt, margt fleira.
Leikurinn í gær á EM fékk mig til að hata vítaspyrnukeppnir enn meira ... þar sem í raun heppnin ræður. Yfirleitt slekk ég á sjónvarpinu (ekki í gær samt) og kíki svo bara eftir hálftíma á fréttasíðu til að fá úrslitin, sennilega meðvirkni því ég líð kvalir af samúð með þeim sem ekki skora - en samt algjört svindl að Ítalir hafi bæði sigrað í Eurovisjón og EM ...
Frá 1. ágúst nk. verður það þannig í Frakklandi að aðeins fullbólusett fólk fær að nota almenningssamgöngur, fara á bari, veitingahús og í verslunarmiðstöðvar. Og hjúkrunarfólk sem ekki er fullbólusett í lok ágúst verður sent heim. Ætli það verði svipað hér og í fleiri löndum? Hversu valdamikill er Bill Gates eiginlega?
Sturluð staðreynd: Donald Trump (og Melanie) fór í bólusetningu í Hvíta húsinu í janúar, nánast í kyrrþey, hann leyfði ekki myndatökur við það tilefni!
- - - - - - - - - -
Neðri mynd: Elsku píanóleikarar og aðrir músikantar, fyrirgefið þetta.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.2.): 60
- Sl. sólarhring: 129
- Sl. viku: 874
- Frá upphafi: 1518291
Annað
- Innlit í dag: 48
- Innlit sl. viku: 769
- Gestir í dag: 43
- IP-tölur í dag: 42
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.