Róandi dagskrá fyrir R-daginn.

Rafmagnslausi dagurinnRafmagnslausi dagurinn nálgast allt of hratt en ég fann út að ef ég skipulegði hann gæti hann orðið léttbærari. Ég róaðist mikið við þá ákvörðun.

 

Eina sem ég hef ekki ákveðið er hvort ég fari á fætur fyrir kl. 9 til að búa til kaffi (en hvað geri ég þá til hádegis þegar allt er lokað nánast alls staðar?) eða sofi lengur (er í sumarfríi, varð að taka sumarfrísdag, tölvan mín gengur nefnilega fyrir rafmagni, eins og allt).

 

 

Sennileg dagskrá R-dags:

Kl. 9.00: Rafmagn tekið af Himnaríki og hverfunum í kring.

Kl. 10.58: Vaknað í nístandi þögn. Áfall, bitið á jaxlinn.

Kl. 11: Hlustað á fréttir í gegnum símann, útvarpið gengur fyrir rafmagni.

Kl. 11.10: Reynt að róa kettina og sprauta upp í þá vatni, þeir eru löngu orðnir afhuga venjulegum vatnsskálum, vatnsbrunnur þeirra gengur fyrir rafmagni. Takk, Rarik. Takk kærlega.

Kl. 11.15: Sturta og klæð.

Kl. 11.30: Farið í Galito, aðeins of langt á Grjótið, nema Tommi hirði mig upp og skutli mér þangað. Samt örlítil hætta á að hann bjóði mér í mat heima hjá sér, í súrsaða selshreifa með hræringi sem uppstúfi. Hann er með súrtunnu á svölunum. Muna að forðast Tomma. Fara í Grjótið ef R.d. nær til Stillholts.

Kl. 12.30: Gleraugnabúð. Gleraugu löguð og áfallahjálp.

Kl. 13.00: Latte í Frystihúsinu.

Kl. 13.30: Latte í Grjótinu og lesið, kannski eitthvað sæmilega myndarlegt tekið tímabundið og örstutt á löpp.

Kl. 15:00: Bókasafnið, stefnumót við stelpurnar, spjallað, heklað, blaðað í bókum. Já! Leitað að sjónvarpi. Þetta Eldvatn við Ása horfir ekki á sig sjálft á RÚV. Stefnir í stórt hlaup. 

Kl. 17.40: Flamingo, sýrlenskur gæðamatur á góðu verði keyptur, Réttur nr. 10 í „takeaway“ (nr. 10 á skiltinu fyrir ofan afgreiðsluborðið).

Kl. 18.04: Stráksi kemur heim, saddur. Borðaður réttur nr. 10. Setið saman í örvæntingarfullri þögn og jafnvel myrkri með honum og kisunum. Pikkað með fingrum á stólarma, tárast.

Kl. 18.10: Ísland-Þýskaland. Ekki hægt að horfa því sjónvarpið gengur fyrir rafmagni. Kíkt á hálfrar tommu símaskjáinn ef eitthvað er eftir af hleðslu. Leitað að kertum. 

Eldvatn við ÁsaKl. 19: Lífið hefst. Ísland-Þýskaland þar sem karlar sparka bolta kemur í ljós, einnig vaknar til lífsins Eldvatn við Ása þar sem jökulvatnið frussast. Almenn gleði.

 

Daginn eftir: Allt úr frystinum borðað (tvær skúffur) svo það skemmist ekki. Þarf að panta ný föt, stærri. Ath. alnetið.

 

Daginn þar á eftir: Restin af öllu úr frystinum borðuð. Muna að breyta fatapöntunum í XXXXXXXXXX-L.

 

Þessi dagskrá fyrir miðvikudag, fimmtudag og föstudag er nokkuð líkleg - svo er líka freistandi að fara til Kaju, maturinn hjá henni er ekki bara hollur, hann er líka mjög góður, eða það sem er ekki með hnetum, möndlum, döðlum og rúsínum. Ohh, þarf líka að fara í apótek, kaupa búkonuháraplokkara, sveppakrem, míkrólax, lúsasjampó og gyllinæðarkrem - djók. Ég fer í apótek í Reykjavík ef mig vantar slíkt (og ekki lengur með hárkollu og sólgleraugu, þökk sé grímum). Það vantar D-vítamín á heimilið. Ég hef verið dugleg að taka það eftir hvatningu landlæknis, og er eiginlega viss um að flensan sem herjaði á mig í síðustu viku hafi verið miklu vægari en sú sem ég fékk í fyrra vegna D-vítamínsins. Stráksi fékk mun meiri kvefeinkenni (hóst og snýt) enda gleymi ég sjaldnar en hann að taka vítamínið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 16
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 158
  • Frá upphafi: 1527953

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 126
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband