Hefnd Framsóknar

Páfi og coUmrćđuefnin fjögur sem varast ćtti ađ nota í fínum bođum eru:

- Trúmál

- Stjórnmál

- Fjármál

- Heilsa

 

Ég segi kannski ekki ađ internetiđ sé gott partí en ţađ kemst nálćgt ţví stundum. En ekki sérlega „fínt“ partí ţví fólk brýtur reglurnar miskunnarlaust. Dćmi sem ég sá í dag: „Guđ hjálpi okkur ef fólk kýs XXX sem mun fjársvelta heilbrigđiskerfiđ áfram.“ Bingó!

„Kjósendur vilja meira í heilbrigđisţjónustu,“ kom svo fram í fréttum áđan, enginn guđ reyndar - ekkert partí heldur. En ţiđ skiljiđ hvađ ég meina, í partíum er sennilega mun skemmtilegra ađ hlusta á eitthvađ allt annađ en langar sögur um botnlangauppskurđ og sýkingu í kjölfariđ, allt um prédikunina á síđustu samkomu hjá Krossinum, hvađ Sigmundur Davíđ býr til góđar hrákökur eđa hvernig mađur geti grćtt rosalega međ ţví ađ opna kaffihús og hafa svo nćstum aldrei opiđ ... loka ţađ snemma ađ vinnandi fólk neyđist til ađ fara á barinn eftir vinnu og endi jafnvel í međferđ (sjá síđustu fćrslu).

 

Mér er alveg sama ţótt spáđ sé vondu veđri á laugardaginn, á KOSS-ningadaginn. Ég ćtla ađ klćđa mig upp á, mála mig og ef ţarf, hárlakka yfir andlitiđ svo ţađ haldist fínt - og fara ađ kjósa (takk enn og aftur fyrir ađ fćra kjörstađ á hlađiđ til mín), síđan skreppa í kosningakaffi um allt, ef ég fć einhvern á bíl međ mér. Ég mun ekki berjast á móti roki og rigningu neitt ofsalega langt (fékk nóg af ţví í ćsku), ţrátt fyrir kökur og brauđtertur. Bara ... ekki gleyma ađ vera međ GOTT kaffi. Ekki nóg ađ hafa bara gott međlćti.

 

Samfó á vinninginn međ stađsetningu kosningakaffis, eđa viđ hliđina á Galito, í sjö mínútna göngufjarlćgđ frá mér. Hálftíma í vestanátt.

 

Hvalirnir ykkarÉg er enn međ samviskubit yfir ađ hafa fariđ í kosningakaffi hjá Framsókn eitt sinn á síđustu öld, án ţess ţó ađ hafa kosiđ Framsókn. Fór međ vinkonu og okkur fannst ţetta mjög fyndiđ. Viđ mćttum óvart of snemma svo viđ vorum sjanghćjađar í ađ skera niđur vínartertur og brúnar randalínur og rađa á kökudiska, og ţegar Óli Jó sjálfur mćtti, nánast klökknađi hann og sagđi dásamlegt ađ svona ungar konur létu sig hag landsins varđa og kysu Framsókn. Viđ vorum langyngstar.

Ţetta var svo gott á okkur. 

Nokkrum árum áđur hafđi ég reyndar kosiđ Ingibjörgu Pálma í bćjarstjórn, eins og stór hluti Skagamanna, hún varđ síđar heilbrigđisráđherra svo ég átti Framsóknarkaffiđ alveg skiliđ. Ég hef reynt ađ hugga mig viđ ţađ síđustu áratugi.

 

Jójó-búseta mín milli Akr. og Rvk. skýrir af hverju ég gat kosiđ Skagakonu eitt áriđ og ekki svo löngu seinna svindlađ mér í kosningakaffi í Reykjavík: 

Frá fćđingu: Reykjavík (1958)* - Stykkishólmur (1959) - Akranes (1961) - Reykjavík (1971) - Sauđárkrókur (1974) - Bifröst (1975) - London (1976) - Reykjavík (1977) - Akranes (1978) - Reykjavík (1982) - Akranes (2006)

* Ég er í raun miklu, miklu yngri - en ţegar ég falsađi nafnskírteini mitt til ađ komast inn í Tónabć um áriđ, gekk ég ađeins of langt í ţví og hef ţurft ađ burđast međ rosalega mörg aukaár síđan. Ef ég reyni ađ leiđrétta gćti ég lent illa í ţví. Sérstaklega hjá Hildu systur sem er farin ađ trúa lyginni í sjálfri sér um ađ hún sé yngri.

 

Viđreynslutćki á hlađinuVeđriđ ógurlega stóđ ekki undir vćntingum hér á Akranesi. Ţađ hvein vissulega ögn í norđurgluggum Himnaríkis í um 15 mínútur og á planinu sunnanmegin fóru kranarnir (viđreynslutćki ađdáenda minna ţar til ég fékk mér almennilegar gardínur) aldeilis ekki á flug, eins og ég hafđi búist viđ (Sjá mynd).

 

Samt var loftvogin í botni, appelsínugul viđvörun í gangi, veđurfrćđingir grafalvarlegir í fréttaviđtölum ... en ekkert dugđi til ađ óveđriđ stćđi undir nafni.

 

Ef vindur hefđi veriđ ađ austan hefđi ég vissulega fundiđ verr fyrir ţessu korteri. Ég tala auđvitađ bara út frá sjálfri mér og hvernig ástandiđ var í Himnaríki, skilst ađ veđriđ í Eyjum og víđar hafi ekki veriđ jafnkósí.

 

Myndirnar tengjast efni fćrslunnar ekki beint, nema sú af krönunum hugumstóru sem högguđust ekki í rokinu. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 148
  • Frá upphafi: 1527943

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 116
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband