17.10.2021 | 14:41
Jólagjafaleit, hjartaleikur og björgun frá beru kvenfólki
Ég er í alvöru byrjuð að kaupa jólagjafir og tók tvær slíkar með mér heim úr borginni í gær til að pakka inn ... en Ellen frænka, pöntunar-erlendis-frá-ráðherra Himnaríkis, lét mig fá þær, svona fæst ekki á Íslandi. Henni fannst þetta sem ég pantaði svo sniðugt að hún pantaði sér sjálf eitt slíkt í leiðinni (og ég líka eitt fyrir mig). Þetta er svo gaman, veit nefnilega ekki hvort það telst vera góð jólastemning að vera á síðustu stundu með gjafakaupin ...
Það er eitthvað um hjónafólk/pör auðvitað í fjölskyldunni og ég sá nýlega auglýsingu um kósí jólagalla. Eins og að ganga í skýi, segir þar. Hugsa sér kósíheitin að bíða t.d. úti á stoppistöð og vera ekkert kalt, hinir brjálaðir úr öfund og fá kannski að koma inn í hlýjuna með manni. Það gæti samt verið að ég væri eina manneskjan í ættinni sem notar strætó, en fólk ætti að prófa það samt hvað það er guðdómlegt í kulda og trekki að bíða og vera samt hlýtt. Sumir fara út í bíl sinn í gallanum á meðan bíllinn hitnar og alla leið í vinnuna? Grilla úti á svölum í apríl í honum? Fara í jólaglögg, jólahlaðborð og vera ekki kalt. Sumir myndu ekki fíla jólagalla allan ársins hring en ég á flippaða fjölskyldu ... Kannski bók með? Grilla úti á stoppistöð og lesa meðan kjötið eða vegan-ið grillast? Möguleikarnir eru óþrjótandi. Maður á alltaf að finna gjafir með margfalt notagildi og helst skemmtanagildi - þar koma bækurnar inn.
Sennilega tengist snemmgjafadæmið því að mig vantar útrás fyrir leynivinaleiki síðan ég fór að vinna heiman frá mér, alein en auðvitað í frábærum félagsskap sjálfrar mín og kattanna. Ætla nú samt að skilja eftir eina mandarínu á hverju kvöldi til að gleðjast yfir henni næstu fimm morgna.
Halla frænka rakst á gamla mynd af okkur tveimur (c.a. 1985-1986) og blastaði henni á Facebook þar sem ég hirti hana og setti hér. Og gömlu árin okkar saman rifjuðst upp, allt djammið, allir ljósatímarnir, allur þvotturinn sem hún þvoði fyrir mig af því að ég átti ekki þvottavél (eða síma eða sjónvarp) þótt ég væri virkilega efnuð einstæð móðir á öllum þessum bótum, sagði fólk. Og akkúrat þegar mamma lánaði mér litla sjónvarpið sitt kom hin grimma innheimtudeild Ríkissjónvarpsins heim til mín og ég var þar með rukkuð fyrir afnotagjöld þótt ég ætti það ekki. Ég var svo hrædd við þau að ég næstum bauð þeim inn í kaffi ... hefði aldrei þorað að ljúga að þeim.
Halla sótti reglulega poka af óhreinum þvotti til mín, þvoði, þurrkaði og braut saman. Fannst það lítið mál, eiginlega svo sjálfsagt að ég mátti varla þakka fyrir. Það er líka Höllu að þakka að ég fer ekki lengur í sund. Við fórum saman í Sól og sælu við Aðalstræti minnst vikulega heilan vetur og þar var sérsturtuklefi fyrir hvern og einn ... Svo þegar ég skrapp um vorið í sund í Laugardalslauginni fékk ég áfall yfir öllum rössunum í yfirfullum sturtuklefa ... var eins og í atriði úr kvennafangelsismynd eða hryllingsmynd fyrir teprur ... og hef ekki farið í almenningslaug síðan. Mér finnst hún hafa, með því að draga mig í ljós, bjargað mér hardcore-gagnkynhneigðri frá allsberum kerlingum. Mætti ég frekar biðja um ... æ, skiptir ekki ...
Ég hætti við ferðina í bæinn í dag vegna veðurs. Komnar rauðar hviðutölur á Kjalarnesi, Skrauthólar í 28 m/sek, var 22 fyrir skömmu (strætó hættir í 30 m/sek-hviðum).
Hlýt að finna eitthvað af húsverkum til að vinna í staðinn. Djók. Las í Viðskiptablaðinu, held ég, að ungur Íslendingur hafi grætt milljónir á gamaldags tölvuleikjasíðu sem hann heldur úti.
Ég kíkti á síðuna og sá að þar er löngu glataður leikur sem heitir Hearts og ég hef sárlega saknað mjög lengi, var búin að gleyma honum, svo sárt hafði ég saknað hans. Nú er ég farin að spila við þau Mike, Bill og Lisu nokkur spil á dag, kostar ekki krónu svo gróðinn hlýtur að koma frá auglýsendum.
Best er að fá sem allra fæsta slagi, alls ekki spaðadrottninguna (13 stig) og helst engin hjörtu (eitt stig á hvert hjarta) ... nema ef manni tekst að ná öllum hjörtum og spaðadrottningunni, þá fá hinir held ég 26 stig - en þegar einhver er kominn í 100 stig tapar hann leiknum. Síðan heitir cardgames.io ... Ekkert að þakka!
Neðsta myndin sýnir strætóinn sem ég hefði átt að taka áðan en þorði ekki.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 2
- Sl. sólarhring: 173
- Sl. viku: 429
- Frá upphafi: 1526339
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 373
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.