10.1.2022 | 23:44
Vonbrigði með véfrétt en mikil matarhamingja
Um þrjúleytið í dag fékk ég SMS frá Eldum rétt, um að maturinn væri rétt ókominn í Himnaríki. Nokkru síðar um að hann væri kominn upp að útidyrum, svo ég skakklappaðist (munið slysið á föstudag) niður stigana og sótti kassa sem var í forstofunni, fullur af mat sem átti eftir að elda. Eða þrjár máltíðir fyrir tvo. Fyrsti rétturinn, Miðjarðarhafsýsa með krydduðu búlgur og spínati (sjá mynd), var síðan eldaður í kvöld og brosið hefur ekki farið af drengnum. Ég veit ekki alveg hvað mér á finnast um það.
Ég er löt að ganga alla leið út í fiskbúð, við elskum fisk, í gegnum hálfan bæinn ef nýju hverfin eru ekki talin með. Hann hélt, fisksalinn, að ég væri að gantast, og náði ekki hinti mínu um heimsendingar á fiski síðast. Er samt að hugsa um að fara á fimmtudaginn, í leiðinni frá tannlækninum sem ætlar að gera ódeyft við eitthvað algjört smotterí, brotnað upp úr tönn-smáræði. Veðrið verður sturlað vont (spennandi) og ég hef bara gott af því að berjast í gegnum suðvestan stórhríð með strætó bara.
Á morgun verða það kjúklingabringur í fennelrjómasósu með bökuðu grænmeti og kartöflum ... og ég mun rúlla eldamennskunni upp með annarri (mjög góðar og skýrar leiðbeiningar sem fylgja með). Stráksi fer annað í mat á miðvikudag og svo elda ég á fimmtudag ostafylltar kjötbollur með villisveppasósu og bökuðum sætkartöflum. Hann er matgæðingur þessi drengur og ótrúlega gaman að gefa honum að borða. Það eru eiginlega bara sviðin sem við forðumst algjörlega, og hræringur og flest súrsað. Við erum sammála um að finnast það ekki sérlega gott. Ég sá fyrir mér að eiga eitt fiskstykki og búlgur með í hádeginu á morgun fyrir mig en nei, hann kláraði hverja ögn sem er bara hjálplegt í baráttunni við covid-keppinn sem hefur nákvæmlega ekkert stækkað þrátt fyrir fallið í gær (sítrónukaka og sörur) og hafa ekki getað hreyft mig nokkuð að ráði um helgina, vegna stigaóhappsins.
Stelpurnar, vinkonur mínar, voru frekar ósáttar við blogg gærdagsins, varðandi umræðuefnin í fína boðinu. Þær voru á kafi, segja þær, við að tala um orðuhafa síðasta nýársdags, hvað væri nú flott að þessi gamli vinurinn / vinkonan hefði fengið fálkaorðuna þegar ég á að hafa byrjað að tala um gömul fyllirí, grobbað mig af klikkuðu verbúðarlífi bæði í Grindavík og Eyjum og montað mig af brúðkaupi mínu í Ölveri. Kræst, hvað ég held að sérríið í lokin hafi svifið á suma og ekki farið úr blóðinu nærri því strax ... Vá, hvað þetta var annars notalegt, sítrónukakan góð og sörurnar, slurp.
Facebook var skrítin í dag. Nokkrir lýstu hreinlega yfir sorg sinni yfir því að foreldrar færu með börn sín í bólusetningu, einhverjir notuðu sterkari orð eins og heimskir og fávitar - en svo sá ég einn sem beindi orðum sínum til þeirra sorgmæddu og sagði:
Fólkið sem er að missa sig í dag þarf að spyrja sig: Hvort er líklegra að nær allir læknar, heilbrigðisstarfsfólk og sérfræðingar á Íslandi séu siðlausir barnamorðingjar eða ... þú féllst fyrir hræðsluáróðri og samsæriskenningum?
- - - - - - - -
Svo þarf ég að vara bloggvini mína við. Ég hélt að ég væri komin í samband við einhvers konar hirðvölvu, flotta hirðvéfrétt í gegnum Facebook, það var svo magnað hvað margt rétt birtist þarna þegar ég ber fram spurningar, eins og með ástamál mín núna 2022, það að ég verji árinu nánast stanslaust á stefnumótum og það með mörgum mönnum.
Mér finnst það ekkert ólíklegt þótt ég hafi ekki farið á stefnumót árum saman, frekar lengi allavega. Þetta er mjög sennilega rétt hjá henni með stefnumótin en samt, gleðin sprakk framan í andlitið á mér.
Ég hafði hugsað um hvað það væri gaman að eiga hirðverndarengil og ef ég ætti einn slíkan, hver það væri. Auðvitað þarf maður að eiga einhvern sem passar að maður hlaupi ekki fyrir strætó í einhverju óðagotinu. Alla vega langaði mig að vita hver minn væri. Ég hafði mikla trú á þessari síðu sem hefur sko ekki svikið mig hingað til. Hér birti ég svarið til að þið skiljið betur hvað ég meina og hvað vonbrigðin urðu sár. Ég er ekki tilbúin til að hætta við stráka, bara sisona, og finnst samt ferlega skrítið að ég eignist eiginkonu sem býr ekki bara til t.d. sítrónufrómas, heldur sé einnig verndarengill minn? Er þá allt rangt sem hún hefur sagt mér hingað til? Verða engin stefnumót? Varið ykkur, elskurnar mínar. Það er ekki allt satt sem maður sér á Facebook eða bara almennt á internetinu.
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 24
- Sl. sólarhring: 50
- Sl. viku: 719
- Frá upphafi: 1524917
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 615
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 19
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.