Megrandi sælgæti og svarta fjallið kvatt

NeyðarsúkkulaðiskrúfjárnEitt af því sem ég sá (í fyrsta sinn) og keypti í Krónunni í fyrradag var Atkins-nammi, verulega bragðgott, alla vega karamellubitarnir og enginn sykur. Drengurinn spurði strákinn á kassanum: „Hefur þú prófað svona orkubita?“ Áður en hann náði að svara viðurkenndi ég að þetta væri nammi fyrir FeiBo ... þá sem væru að reyna að hætta sykuráti. Um það bil tveimur tímum eftir heimkomu áttaði ég mig á ástæðu þess að þetta þykir svona "megrandi". Það er engin leið að opna þetta, hverjum bita er pakkað vandlega inn í eins konar plastbrynju og áreynslan svo mikil við að reyna að opna að maður bæði brennir óteljandi hitaeiningum, finnur upp ýmis ný blótsyrði og nennir bara að fá sér einn bita á dag. Þvílík snilld. Einn biti nægir líka alveg. En ég vissi að ég hefði not fyrir þetta skrúfjárn einhvern daginn. Þetta er ábyggilega karmískt þakklæti þess til mín fyrir að hafa leyft því að vera í friði og ónotað í pennastandinum á skrifborðinu. 

 

ÚkraínukonaLangri baráttu minni við svarta sokkafjallið lauk loksins í dag. Ég hafði þvegið hrúguna aftur af því að hún var orðin rykug og ekkert bólaði á barnasálfræðingnum í ættinni - sem er góð í sokkaflokkun, til að blekkja mig til að drífa í þessu, en það eru tvær vikur síðan. Nú þurfti ég að taka smápásu frá verkefni og við undirleik Eminem og fleiri tókst mér að ná um tólf svörtum pörum, nánast rétt. Restin virðist bara ekki passa saman. Datt í hug að setja restina í poka handa Rauða krossinum, þar er allt þegið, hægt að nýta allt. Í hvert skipti sem verður afgangur af sokkum, lendir hann í pokanum. Svo verða keyptir skrautlegir sokkar í framtíðinni.

 

Svolítið sjokk að sjá viðtal við úkraínska konu, varaborgarstjóra í Irpin, sem virðist hana fengið öðruvísi móttökur á Íslandi en landar hennar, var flutt nauðug ásamt manni og barni á Ásbrú í ömurlegar aðstæður, aðskilin frá móður sinni sem fór á Bifröst. Þau fengu engan fyrirvara, engan tíma til að pakka niður, báðu um að fá að fara daginn eftir en voru þá handtekin og flutt þangað. 

En sjúkk, það var auðvitað skýring á þessu. Maðurinn hennar er frá Palestínu! Það hlaut að vera ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 24
  • Sl. sólarhring: 24
  • Sl. viku: 794
  • Frá upphafi: 1528670

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 637
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Herkúles besti
  • Elsku Herkúles
  • Catalínusautjándi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband