Kallið mig bara Guðfinnu ...

Irskir 2013Síðasta helgi fór nánast ekki í neitt sukk þótt Írskir dagar færu fram. Meirihluta helgarinnar var varið í höfuðborginni, heimsækja mömmu sem er veik, bjóða drengnum upp á KFC, heimsækja álfasteinana við Álfhólsveg, fara í Smáralind og vera kölluð Guðfinna í Te og kaffi sem var nú bara kúl þegar loks fattaðist að miðinn þar sem á stóð GURRÍ þýddi nú bara Gurrí, svo við fengum veitingarnar okkar. Þetta var svo dásamlegt að þau mega alltaf kalla mig Guðfinnu.

 

Myndin var tekin á Írskum dögum árið 2013 og þá var úti veður vott. 

 

Á laugardeginum vaknaði ég fyrir allar aldir (10.30) við að þjófavarnarkerfi í nágrannabíl fór í gang, aftur og aftur. Furðulegt að fólk hlaupi ekki út og lagi eða ýti á fjarstýringu, hugsaði ég sárhneyksluð. Mér tókst nú samt að sofna aftur í smástund áður en ég dreif mig á fætur. Gemsinn minn sem hafði verið með hálfa hleðslu var orðinn tómur, rosalegt drasl þessir símar, minn ekki nema fjögurra ára og strax orðinn svona mikið drasl. Frekar fokdýr iPhone. Hilda systir bauð mér góða kvöldið þegar ég kom niður um hálftólf. Hún var eflaust löngu vöknuð. „Rosalegur hávaði var í gemsanum þínum, leiðinleg vekjarahringing,“ sagði hún og meinti sennilega þjófavörnina í bílnum ... „Nei, þetta var uppi,“ sagði hún ákveðin. Hmmmmm. Ég horfði samt reiðilega á alla bíla nálægt húsinu hennar Hildu á leiðinni í útréttingar.

 

Við náðum smávegis stemningu á Írskum, fórum á markað fyrir utan Kaju þar sem ég keypti skrítið sjampó, svona sápustykki með rosalega góðri lykt. Ég mundi eftir að nota það í morgun, hugsa að sendillinn frá Eldum rétt eigi eftir að stökkva á mig nema ilmurinn hafi gufað upp. Það var ungur, fallegur, franskur maður sem seldi mér þetta, kannaðist við stráksa úr sundi ... svo ég vonandi get haft uppi á honum aftur, nema Kaja sjálf sé með númerið hans, þetta var jú á Kajuplaninu. Fengum svo borð á Galito kl. 17.45, mikið púsluspil hjá starfsfólkinu að koma öllum fyrir. Stráksi vildi lax en ég benti honum blíðlega á miklu girnilegri (2000 kr. ódýrari) hamborgara því við fengjum fisk tvo daga í röð frá Eldum rétt, maður ætti aldrei að ofgera neinu ... Hann glotti og fékk sér hamborgara - með salati, ekki frönskum. Það er siður sem við höfum tekið upp ef við veitum okkur þann munað að fara út að borða, að upphollusta matinn sem verður helmingi betri. Salat sem sagt í staðinn fyrir franskar. Gestirnir, Hilda og Júlíanna, voru horfnar á braut þegar brast á með rosalegum látum á hlaðinu, brekkusöngurinn, fjölmennasti viðburður ársins á Akranesi, ef frá er talið afmælið mitt ... sem minnir mig á að ég tel ekki líklegt að ég verði með stóra afmælisveislu í ár þegar greinast nokkur hundruð manns á dag með covid. Vil ekki eiga á hættu að nokkur smitist hjá mér. Fólk gæti heimtað að ég skilaði afmælisgjöfum, eða þaðan af verra. Annars er ástandið auðvitað miklu betra eftir bólusetningarnar, munið hópsmitið á Landakoti áður en farið var að bólusetja og dauðsföllin þá en nú er ekki sama hættan. Ég veit að lyfjafyrirtækin græða ofboðslega, eins og ég græði á stafsetningarvillum annarra, tannlæknar á sælgætisáti fólks og ferðaþjónustan á ferðafólkinu ... 

 

Ég setti óvart Rás 1 á í nýja útvarpinu í eldhúsinu skömmu fyrir klukkan 14. Hvernig átti mig að gruna að á þeirri stöð hljómaði Starless með King Crimson, eitt flottasta lag í heimi? Hefði samt haldið að Óli Palli spilaði það í Rokklandi frekar en á þessum tíma ... Næsta lag á eftir var reyndar Rásareitt-legra, karlakórslag, dásamlegt líka. Kannski er ég að ná þeim eftirsótta þroska og innri ró sem kallar á Rás eitt? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 10
  • Sl. sólarhring: 31
  • Sl. viku: 156
  • Frá upphafi: 1527684

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 143
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Um 1960 með pabba og mömmu
  • Magpie Murders

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband